Skessuhorn - 15.02.2006, Síða 19
§HgSSUiSÖES!
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006
19
Tap á rekstri ^
meistaraflokks ÍA
en hagnaður á
yngri flokkum
Á aðalfundi Knattspyrnufélags
ÍA sem haldinn var í síðustu viku
kom fram að tæplega 8,7 milljóna
króna tap varð af Rekstrarfélagi
meistaraflokks ÍA og 2. flokks. Er
það mun verri afkoma en árið á
undan en þá var tapið tæplega
ein milljón krónur. Að sögn Guð-
laugs Kr. Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra félagsins er helsta
skýring á versnandi afkomu fé-
lagsins að leita í minnkandi tekj-
um félagsins. Munar þar mestu
um að félagið naut ekki tekna af
þátttöku í Evrópukeppni á liðnu
ári og einnig voru minni tekjur
vegna sölu leikmanna. Rekstrar-
tekjur félagsins drógust því sam-
an úr 50,7 milljónum króna árið
2004 í rúmar 38,6 milljónir króna í
fyrra. Stærsti útgjaldaliður félags-
ins var laun og launatengd gjöld
eða 28,6 milljónir króna. Guð-
laugur segir að undanfarið hafi
verið unnið hörðum höndum við
að skera niður kostnaðarliði hjá
félaginu og einnig eru í undirbún-
ingi ýmsar leiðir til fjáröflunar.
Mun betri afkoma varð af
rekstri yngri flokka félagsins á
síðasta ári. Hagnaður af rekstri
þeirra nam rúmum 3,4 milljónum
króna en árið áður varð hagnað-
urinn rúmar 2,3 milljónir króna.
Rekstrartekjur yngri flokkanna
voru tæpar 23,5 milljónir króna.
Af einstökum tekjuliðum má
nefna að tekjur af mótahaldi
námu tæplega 8,9 milljónum
króna. Rekstargjöld yngri flokka
voru tæpar 20,2 milljónir króna.
Stærsti kostnaðarliðurinn var
þjálfunarkostnaður að upphæð
tæpar 12,5 milljónir króna.
í skýrslu Rekstrarfélags meist-
araflokks og 2. flokks segir að nú
séu viðræður í gangi við aðal-
styrktaraðila félagsins, KB banka,
um endurnýjun á samningi fé-
lagsins og að vonast sé til þess
að þær viðræður geti létt félaginu
fjárhaginn á komandi árum. Þá
segir í skýrslunni að ekki sé ann-
að hægt en að horfa björtum
augum fram á komandi ár og
stjórn félagsins muni kappkosta
við að halda útgjöldum félagsins
innan skynsamra marka. HJ
Kemur sparkvöllur
við Lýsuhólsskóla?
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar
samþykkti samhljóða t síðustu
viku að sækja um til Knattspyrnu-
sambands (slands að einn af þeim
völlum sem reistir verða í svoköll-
uðu sparkvallaátaki sambandsins
árið 2007 verði staðsettur við
Lýsuhólsskóla. í bókun bæjar-
stjórnar segir að þetta sé gert þar
sem umsóknarfrestur fyrir þessi ár
sé að renna út og þetta sé einnig
gert án þess að skuldbinda þá
bæjarstjórn sem taka mun við eft-
ir kosningar í vor. Þá segir í sam-
þykkt bæjarstjórnar: „Ljóst er að
verið er að gera úttekt á skólastarfi
í Snæfellsbæ og einnig að fyrir
skólaárið 2007-2008 mun verða
tekin ákvörðun um framtíð Lýsu-
hólsskóla. Gæti hvoru tveggja
haft áhrif á það hvort sparkvöllur
kæmi til greina á svæðið eða
ekki.“
HJ
LATTU 0KKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
lllOKO
(5}rva.taug ^
Efnalaugin Múlakot ehf
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 4371930
Tökum að okkur þjónustu, ráðgjöf,
hönnun og verktöku á öllum stigum skógræktar.
SVÍRI ehf.
Friðrik Aspelund • Hvanneyri • 311 Borgarnes
Sími 437 0017 & 893 7306 • sviri@sviri.is
Búið að reisa spemir Akranesballarinnar og má nú glöggt sjá hvenig mannvirkið mun líta út þó eftir sé að kheða utan á grindina.
Framkvœmdum við húsið lýkur í vor. Ljósm. HJ
www.skessuhorn.is
FORTUNA
MATSTOFA
Fortuna hefur opnað matstofu í
matsai Sementsverksmiðjunnar hf.
að Mánabraut 20 - gengið er inn
við vesturenda byggingarinnar.
* Réttur dagsins
• Súpa og brauð
• Salatbar
• Pítsa
* Brauð og álegg
* Kaffi
Allt þetta fyrir
aðeins ÍOOO kr.
Heitur matur í hádeginu
- alla virka daga
Gæði og ferksleiki í fyrirrúmi
Sími 431 3737
/--------------------------------------------------------------------------------v
Samþykkt Adalskipulagi
Hvalfjardarstrandarhrepps 2002-2014
Sveitarstjóm Hvalfjarðarstrandarhrepps hefur samþykkt tillögu að Aðalskipulagi
Hvalfjarðarstrandarhrepps 2002-2014. Tillagan var auglýst og lá frammi til kynningar
á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlöðum, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hvalfjordur.is
og á skrifstofu Skipulagsstofnunar frá 23. nóv. til 21. des. sl. Athugasemdarfrestur rann
út þann 6. janúar sl. og bárast athugasemdir frá 8 aðilum.
Sveitarstjóm hefur afgreitt athugasemdimar og sent þeim sem gerður athugasemdir umsögn
sína. Gerðar vora óveralegar breytingar á auglýstri tillögu aðalskipulagsins í samræmi
við afgreiðslu sveitarstjómar við innsendum athugasemdum.
Við staðfestingu Aðalskipulagi Hvalfjarðarstrandarhrepps 2002-2014 mun sá hluti
Aðalskipulags iðnaðarsvæðis á Grandartanga 1997-2017 sem er innan sveitarfélagsins
falla úr gildi.
Tillaga Aðalskipulags Hvalfjarðarstrandarhrepps 2002-2014 hefur verið send
Skipulagsstofnun sem afgreiðir tillöguna til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu hennar.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjómar geta snúið sér
I til oddvita Hvalfjarðarstrandrhrepps.
j Hvalfjarðarstrandarhreppur 7. febrúar 2006
l Hallfreður Vilhjálmsson, oddviti
ú________________________________________________________________________________)