Skessuhorn


Skessuhorn - 15.02.2006, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 15.02.2006, Blaðsíða 20
NQtt og öflugt VGrKXdt i til íbúðakaupa íbúðalán.is www.ibudalan.is Háskólasetur Snæfellsness stofiiað Síðastliðinn fimmtu- dag var haldinn stofii- fundur stjórnar Há- skólaseturs Snæfells- ness. Háskólasetrið er firæðasetur Háskóla Is- lands á Snæfellsnesi. Það er staðsett í Stykkis- hólmi og er fyrst og fremst rannsóknasetur með áherslu á náttúru- rannsóknir á Snæfells- nesi og Breiðafirði, enda er náttúran þar með ein- dæmum fjölbreytt og rannsóknatækifæri óþrjótandi. Fyrst um sinn verður um eitt stöðugildi að ræða en vonir standa tdl að þeim muni fjölga hratt, ekki síst með aðkomu háskólanema í framhaldsnámi í náttúruffæðum. Er hér um að ræða spennandi tækifæri til uppbyggingar á þekkingu og til að auka fjölbreytni í atvinnu og menntun á svæðinu. Tilkoma setursins á sér nokkra forsögu en segja má að hugmyndin hafi formlega tekið að þróast eftir að starfsmenn Náttúrustofu Vestur- lands fóru á fund forstöðumanns Stofiaunar ffæðasetra Háskóla Is- lands í nóvember 2003 með tillögu um að Háskólinn kæmi á fót rann- sóknasetri í náinni samvinnu við Náttúrustofuna. Fulltrúar Háskól- ans voru strax jákvæðir, einkum vegna þess að með þessu móti væri ekld stofnuð ný einmenningsstofn- un, heldur gæti starfsmaður setars- ins strax gengið inn í þá starfsemi og aðstöðu sem fyrir væri á Náttúru- stofu Vestarlands. Þá skipti einnig máh að ekkert annað setar Háskól- ans var fyrir á Vesturlandi en Há- skólinn vill gjaman þjónusta alla landsbyggðina. Fjármagn til stofnunar setursins var tryggt með ffamlagi ríkisins á fjárlögum ársins 2006, en auk þess leggur Stykkishólmsbær til ffæði- mannaíbúð fyrir gestaffæðimenn og aðstöðu í ráðhúsi Stykldshólms og Náttúmstofa Vesturlands leggur m.a. til aðstöðu á rannsóknastofum. I fyrstu stjóm Háskólaseturs Snæ- fellsness sitja sex fulltrúar, þar af era þrír tilnefndir af Háskóla Islands. Formaður er Rögnvaldur Ólafsson, dósent í eðlisfræði og forstöðumað- ur Stofnunar fræðasetra Háskóla Is- lands en ásamt honum era þeir Jör- undur Svavarsson, prófessor í sjávar- líffræði og Amþór Garðarsson, pró- fessor í dýrafræði, fulltrúar Háskól- ans. Fulltrúi Stykkishólmsbæjar er Magnús I. Bæringsson, sjávarút- vegsfræðingur, en Menja von Schmalensee, líffræðingur, er full- trúi Náttúrustofu Vesturlands. Hér- aðsnefnd Snæfellinga tilnefhir sjötta fulltrúann í stjómina. Nú þegar hefur verið auglýst effir forstöðumanni og verður áhugavert að fylgjast með framgangi mála en að öllum líkindum hefjast rannsókn- ir á vegum setursins strax í vor. MM Lagt til að nokkrar jarðir verði þjóðjarðir Nefhd skipuð af landbúnaðarráð- herra hefur lagt til að nokkrar jarðir í ríkiseigu verði svokallaðar þjóð- jarðir. Nefndinni var ætlað að koma með tillögur um hvaða ríkisjarðir á forræði landbúnaðarráðuneytisins skuli ekki seldar með það að mark- miði að þær verði þjóðareign í ffam- tíðinni. I greinargerð nefndarinnar kemur ffam að á allra síðustu árum hafi ásókn í jarðir þar á meðal ríkis- jarðir aukist verulega. Af þessum ástæðum sé því nauðsynlegt að fyrir liggi ákveðin stefna ríkisins um hvort og þá hvaða jarðir skuli ekki seldar. I áliti nefndarinnar er lagt til að nokkrar jarðir á Vestarlandi verði þjóðjarðir. Búðir á Snæfellsnesi vill nefndin að verði þjóðjörð vegna sér- stæðrar náttúm og nálægðar við þjóðgarðinn umhverfis Snæfellsjök- ul. Þá er lagt til að vegna sögu Flat- eyjar á Breiðafirði, gildis hennar fyr- ir ferðaþjónustu, legu hennar og náttúra verði hún þjóðjörð. Þá er nefnd jörðin Hraundalur ytri í Mýrasýslu. Um hana er sagt að hún sé afskekkt og ffiðsæl og hafi mikið útivistargildi. Um Skáleyjar á Breiðafirði er sagt að vegna ein- stakrar náttúra og umhverfis, sögu þeirra og gildi fyrir ferðaþjónusta verði þær skilgreindar sem þjóðjörð. Hvammur í Dalasýslu er sögð ein þekktasta jörð Islendingasagna og allt fram á þennan dag. Vegna sögu- legs og menningarlegs gildis sé nauðsynlegt að hún verði þjóðjörð. Ólafedalur í Saurbæjarhreppi hefur merka sögu og því verði hún einnig í hópi þjóðjarða. HJ Rúmlega 90 íbúðalóðir brátt auglýstar á Akranesi Bæjarráð Akraness hefur falið sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs að undirbúa auglýsingu lóða í fyrsta áfanga Skógarhverfis á Akranesi. Að sögn Þorvaldar Vestmanns sviðs- stjóra er nú unnið að undirbúningi auglýsingarinnar og vonar hann að áhugasamir húsbyggjendur geti sent inn umsóknir fljótlega. I þess- um fyrsta áfanga Skógarhverfis verða lóðir undir rúmlega 90 íbúðir í einbýlis-, rað- og parhúsum. Hann segir að stefnt sé að því að gataa- gerð verði boðin út með vorinu þannig að lóðimar verði byggingar- hæfar í haust. I september vora síð- ast auglýstar lóðir á Akranesi og þá bárast 134 umsóknir um lóðir und- ir þær 28 íbúðir sem þá voru til ráð- stöfunar. HJ Qejrðu uel mð þína á kmtudagúui Gefðu henni glæsilegan konudagsbtómvönd frá Model og bjóddu henni út að borða á Galito, frábærum veitingastað. Þeir sem versla við okkur á konudaginn geta dottið í lukkupottinn og hreppt eftirfarandi vinninga: Glæsilegt handsmíðað gullhálsmen frá Model Sælkeramáltíð fyrir 2 með öllu á Galito Pizzuveislu fyrir 6 manns á Galito Dregið verður í lok dags 19. febrúar. Galíío Restaurant - Baf Borðapantanir í síma 430 6767 MODEL STILLHOLT116-18 • AKRANESI SÍMI431 3333 * model.ak@simnet.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.