Skessuhorn


Skessuhorn - 27.09.2006, Side 2

Skessuhorn - 27.09.2006, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 ■ .fXMIH... I Til minnU Við minnum fólk á að nú fer vætutíð í hönd og rétt að kanna hvort allur hlífðarfatnaður er ekki fyrir hendi á börn og fuli- orðna. j Veðarhorfwr Það verður norðaustan átt næstu daga, rigning eða súld á fimmutdag en úrkomulítið suð- vestanlands. Á föstudag verður víða vætusamt en úrkomum- inna vestanlands og á laugar- daginn heldur norðaustanáttin áfram með vætu, úrkomulítið sunnanlands. Hitinn verður frá 3 upp í 10 stig. Á sunnudag og mánudag verður hægviðri, stöku skúrir eða slydduél. Hiti 0 til 6 stig að deginuhn. Haustið er sem sagt að koma með til- heyrandi vætu og kulda. SpMrninj viHi^nnar í síðustu viku var á skessuhorn.is spurt að því hvort aukinn umferðaráróður hefði haft áhrif á svarendur. Af um 300 sem svara telja 69% að svo hafi verið, 25,9% svara neitandi og 5,1% vita ekki hvort aukinn umferðaráróður hefur haft áhrif á þá eða ekki. „Mun Vaxtasamningur Vesturlands verða landshlutanum til góða?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is VestlendinjMr viKi^nnar Þeir Arnar og Bjarki Gunnlaugs- synir eru Vestlendingar vikunn- ar að þessu sinni. Þeir náðu glæsilegum árangri eftir að þeir tóku við ÍA og lentu í öðru sæti í seinni umferðinni. Sýnt í Landnámssetri i Borgarnesí MAikudagur 27. s«pt. kl. 20 - Uppntt Friramudagur 28. sapt Id. 20 - örfá sasti iaus FhwMudagur S. otrtótmr kl. 20 • Uppselt Fðstudagur 8. október kl. 20 • Uppsett Laugardagur 7. októbar kl. 20- Uppaalt Sunnudagur B. október kl. 20 - Uppsalt Fimmtudagur 12. októbor kl. 20 - Laus sadl Fóstudagur 13, október kl. 20 - Uppselt Lauprdagur 14. októbor Id, 20 - Uppsolt Sunnudagur 18. október Id. 20 - Uppsett Staöfesta þarf mlöa meö greiðslu viku fyrir sýningardag LEIKHÚSTILBOfl Tvimttaður kvoldv&rður og ieikhuamiði kr. 4300 - 4800.- WOAPANtANIR 1 SlMA 4S1 1600 ¥1 mAfim I Guðrún ráðin meimingarfulltrúi Borgarbyggðar Guðrún Jónsdóttir, fráfarandi verkefnisstjóri kynningarmála LBHI á Hvanneyri, hefur ffá 1. október nk. verið ráðin í tímabund- ið starf til eins árs sem menningar- fulltrúa Borgarbyggðar í hálfu starfi. Áður en Guðrún réðist til starfa á Hvanneyri sat hún m.a. í bæjarstjórn Borgarbyggðar í eitt kjörtímabil, stýrði Markaðsráði Borgfirðinga meðan sá félagsskapur var og hét og starfaði auk þess m.a. sem fréttaritari RUV og dagskrár- gerðarmaður. Eins og ffam hefur komið í frétt- um Skessuhoms var í haust horfið ffá því að ráða starfsmann í stöðu sem halda átti utan um bæði mark- aðs- og menningarmál í sveitarfé- laginu. Effir að staðan hafði verið auglýst kom í ljós að þessir mála- flokkar áttu ekki endilega samleið í einu og sama stöðugildinu. Að sögn Páls S Brynjarssonar, sveitarstjóra er nú verið að skoða hvernig sveit- arfélagið hyggst standa að mark- aðs- og kynningarmálum í ffamtíð- inni og er nú í skoðun að ráða starfsmann tímabundið í þau verk- efni meðan verið er að móta starfið í nýju, sameinuðu sveitarfélagi. „Það liggur fyrir að verkefni í bæði menningar- og markaðsmálum era ærin hjá okkur og því mikilvægt að við reynum að spila sem best úr báðum þessum málaflokkum í nýju Guírún Jónsdóttir, menningarfulltrúi Borgarbyggðar. sveitarfélagi,“ sagði Páll í samtali við Skessuhorn. MM Viðræður uin fráveitu o g ljósleiðaravæðingu í Grundarfirði Bæjarráð Grundarfjarðar hefur hafið óformlegar viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um hvort fyrirtækið sé tilbúið til að taka yfir ffáveitu í Grundarfirði. Við þær viðræður hefur lagning ljósleiðara í bæjarfélagið komið upp. Ekki er þó um formlegar við- ræður að ræða og ekkert er í hendi með málið. Orkuveitan sér nú þeg- ar um sölu á rafmagni og heitu og köldu vatni í bænum. Á fundi bæj- arstjórnar þann 14. september lögðu fulltrúar L-lista ffam tillögu um að bæjarstjórn færi í viðræðu við OR um „yfirtöku á holræsum og lagningu ljósleiðara," eins og segir í tillögunni. Lagt var til að einn fulltrúi meirihluta og einn fulltrúi minnihluta mynduðu nefnd sem færi í viðræðurnar. Meirihlut- inn vísaði tillögunni ffá. Sigríður Finsen, forseti bæjar- stjórnar, sagði í samtali við Skessu- horn að tillögunni hefði verið vísað ffá vegna þess að nú þegar væru hafhar óformlegar viðræður. Bæjar- ráð hitti fulltrúa OR nýlega og voru þessi mál þar á dagskrá. Þar mun þó fyrst og fremst hafa verið rætt um fráveitumál. Sigríður sagði bæjar- stjórn ekki búna að mynda sér stefhu í því hvort óskað yrði eftir ljósleiðaravæðingu. Málið væri á byrjunarstigi og búið væri að marka næstu skref, en ekkert væri fast í hendi. Kostnaður við mögulegar framkvæmdir liggur ekki fyrir. Gísli Olafsson, fulltrúi L-lista, sagði aðspurður að minnihlutinn hefði talið að fara ætti í beinar við- ræður við OR um málið. Hann taldi eðlilegt að OR tæki yfir frá- veituna og legði ljósleiðara í bæinn, enda væri ljósleiðari forsenda þess að fyrirtæki og stofnanir flyttu út á land. Hann sagði að í vor hefði bæj- arstjóm verið boðið á kynningar- fund hjá OR og minnihlutinn hefði talið eðlilegt ff amhald af því að fara í beinar viðræður um málið. Emil Sigurðsson, fulltrúi L-lista, sat fundinn með fulltrúum OR. Hann sagði að út úr honum hefði ekkert komið. Hann hefði spurst fyrir um hvort stjórnarskipti í OR hefðu breytt forsendum málsins en fengið þau svör að svo væri ekki. OR hefur tekið að sér lagningu hitaveitu í bænum og við þær fram- kvæmdir verður ídráttarrör fýrir ljósleiðara lagt í hvert hús. Emil sagði að minnihlutinn hefði því talið eðlilegt að nýta sér það og ljósleiðaravæða Grundarfjörð. -KÓP Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar í samstarf við LSR Stjórn Lífeyrissjóðs Akranes- kaupstaðar hefur falið Gísla S. Ein- arssyni bæjarstjóra og formanni stjórnar sjóðsins og Sævari Þráins- syni stjórnarmanni að taka upp við- ræður við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins um þjónustu- og rekstrar- samning. Samningurinn taki á mót- töku og skráningu iðgjalda, skrán- ingu réttinda, útreikninga- og út- greiðslu lífeyris og fleiri þátta í starfsemi sjóðsins. I samþykkt stjórnarinnar segir að markmiðið samstarfsins skuli vera að veita góða þjónustu, með áherslu á öruggar upplýsingar, traustar ráðleggingar, gott viðmót og stuttan svartíma. Lífeyrissjóður Akraneskaupstað- ar er einn minnsti lífeyrissjóður landsins og var hrein eign hans rúmar 1.030 milljónir króna um síðustu áramót og höfðu aukist um 8,9% á árinu. Á sama tíma jókst hrein eign lífeyrissjóða að meðaltali um 23,6%. Hrein raunávöxtun sjóðsins á síðasta ári var 9,3% en var 13,5% að meðaltali hjá lífeyris- sjóðum landsins. Hrein raimávöxt- un Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis- ins var rúm 14% á sama tíma. Gísli S. Einarsson bæjarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að samþykkt stjórnarinnar sé tímanna tákn því lífeyrissjóðir hafi verið að stækka á undanförnum árum og með því sé grunnur þeirra treystur. Hann segist bjartsýnn á að samn- ingar takist. HJ Skipt um glugga á gamla héraðsskólanum I blíðviðrinu undanfarna daga hefur Bergsveinn Jó- hannsson, smiður í Reyk- holti unnið að gluggaskipt- um á suðurhlið gamla hér- aðsskólans í Reykholti. Húsinu hefur verið ágæt- lega við haldið á undan- förnum árum og er staðar- prýði þrátt fýrir að það sé komið hátt á áttræðisaldur. Skólahald er löngu aflagt í húsinu sem þjónar í dag hlutverki varaeintakasafns Landsbókasafnsins. Þá er einnig í húsinu hátíðarsal- ur og fræðimannsíbúð. Ljósm. BHS MM Leiðrétting Þau leiðu mistök urðu í spum- ingu vikunnar í síðasta tölublaði að einn viðmælandinn var rangt nafhgreindur. Hún heitir Eva Dögg Héðinsdóttir. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. -mm Enn mælist ofsahraði AKRANES: í liðinni viku voru 18 ökumenn kærðir fýrir að aka of hratt og virðist ekkert lát vera á hraðakstri, að sögn Jóns S Olasonar yfirlögregluþjóns. I þessum 18 manna hópi var einn sem var kærður fýrir að aka á 144 km/klst hraða og annar fýr- ir að aka á 151 km/klst hraða þar sem 90 km/klst hraði er leyfilegur. „Hvorutveggja er hraði sem augljóslega veldur vegfarendum mikilli hættu. Umræða hefur verið mikil í samfélaginu að undanförnu um afleiðingar hraðaksturs og get- ur hún varla hafa farið framhjá einum einasta manni. Það veld- ur því æ meiri furðu að enn sé að finna allmarga, ósköp venju- lega þátttakendur í samfélag- inu, sem virðast skilja ábyrgðar- tilfinninguna og samviskuna eftir þegar þeir setjast undir stýri og fá titilinn ökumaður,“ sagði Jón í samtali við Skessu- horn. -mm Frambjóðendur óskast NV-KJÖRDÆMI: Kjörnefnd Samfýlkingarinnar í Norðvest- urkjördæmi auglýsir eftir fleiri frambjóðendum í prófkjör flokksins í kjördæminu sem ffarn fer helgina 28.-29. októ- ber. Um er að ræða opið próf- kjör fýrir flokksmenn og stuðn- ingsmenn Samfýlkingarinnar í kjördæminu. I tilkynningu frá kjörstjórn er óskað eftir því að áhugasamir snúi sér til for- manns kjörnefndar, Eggerts Herbertssonar í síma 860-7910 eða eggertherbertsson- @hotmail.com. Framboðsfrest- ur er til 30. september. -mm Gekk í skrokk á föður sínum AKRANES: Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann á Akranesi í 30 daga skilorðs- bundið fangelsi fýrir að hafa ráðist á föður sinn og slegið hann með flötum lófa í andlit og nokkur hnefahögg í andlit, bak og síðu með þeim afleið- ingum að hann hlaut mar og yf- irborðsáverka á höfði, brjóst- kassa og hægri framhandlegg. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærði hafði áður hlotið dóm fýrir líkamsárás. Ákærða var einnig gert að greiða rúmar 20 þúsund krónur í málskostnað. -hj

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.