Skessuhorn


Skessuhorn - 27.09.2006, Page 4

Skessuhorn - 27.09.2006, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 Æðardúns- hreinsistöð flytur í bæinn STYKKISHÓLMUR: Fyrir- tækið Islenskur æðardúnn hefur flutt starfsemi sína frá Læk í Dýrafirði í Stykkishólm. Fyrir- tækið hefur verið skrásett í Stykkishólmi en ekki haft starf- semi sína þar. Rekstraraðilar á Læk ákváðu að hætt starfsemi og var þá tekið til bragðs að flytja hreinsistöðina í Hólminn, í stað þess að leggja hana niður. Með- al eigenda fyrirtækisins eru Friðrik Jónsson læknir í Hólm- inum og dóttir hans Erla bæjar- stjóri. -kóp Manns leitað HVALFJÖRÐUR: Björgunar- sveitir fundu sl. laugardagskvöld, efrir stutta leit, eldri mann á Sfld- armannagötu, gönguleið milli Hvalfjarðar og Skorradals. Mað- urinn og sonur hans höfðu orðið viðskila á leiðinni síðari hluta dags og kallaði sonurinn strax eftír aðstoð þegar sýnt þótt að maðurinn myndi ekki skila sér fyrir myrkur. Björgunarsveitir og þyrla voru kölluð út til leitar og fundu manninn fljótlega. Hann var fluttur með þyrlu til skoðun- ar á sjúkrahús í Reykjavík. Þetta reyndist annasamur dagur hjá Björgunarfélagi Akraness, því sveitin hafði áður tekið að sér gæslu á septemberfest fótbolta- manna á Skaganum. Farið var í gæslustörfin strax og leitin á Sfld- armannagötum hafði borið þennan góða árangur og gátu björgunarfélagsmenn þannig strax farið að vinna upp í kostn- aðinn við útkallið! -mm Garðaholt að Safiiasvæðinu AKRANES: Skipulags- og byggingamefnd Akraness hefur samþykkt að leggja til við bæjar- stjóm að vegur að Safnasvæðinu og kirkjugarðinum að Görðum fái nafnið Garðaholt. -hj Undirbúningur Landbúnaðar- saftis BORGARFJÖRÐUR: Byggða- ráð Borgarbyggðar hefur tilnefnt Sveinbjöm Eyjólfsson sem full- trúa sveitarfélagsins í undirbún- ingshóp um stofnun Landbúnað- arsaflis Islands. Þetta var ákveðið í framhaldi af bréfi sem Bjami Guðmundsson ffá Landbúnaðar- háskóla Islands sendi sveitar- stjóm. I bréfinu ræðir Bjarni undirbúning að stofhtm safnsins og vísar til góðra undirtekta ffá- farandi sveitarstjórna Borgar- byggðar og Borgarfjarðarsveitar við málið. Fram kemur að í imd- irbúningi sé stofriun sjálfseignar- stoffiunar um málið. Undirbún- ingshópurinn verður skipaður fúlltrúum ffá Bændasamtökum Islands auk fulltrúar ffá Land- búnaðarháskólanum. -hj Nefiid um skólamál skilar brátt niðurstöðu Þriggja manna starfshópur sem Borgarbyggð skipaði í sumar til að leggja mat á framtíðar húsnæðis- mál grunnskóla í sveitarfélaginu og skiptingu í skólahverfi mun innan tíðar skila skýrslu sinni. Far- ið var í þessa vinnu m.a. vegna sameiningar sveitarfélaga í vor en einnig vegna framkominna óska frá Háskólanum á Bifröst um upp- byggingu nýs grunnskóla á staðn- um og tilheyrandi íþróttamann- virkja, en varlega áætluð myndi sú uppbygging kosta sveitarfélagið á annan milljarð króna. Að sögn Páls S Brynjarssonar, sveitarstjóra var meðal annars leitað til KPMG um frekari greiningu á hugmyndum Bifrestinga um uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja á Bif- röst. Aðspurður segir Páll að nið- urstöðu starfshópsins sé að vænta á næstunni. MM Vetrarstarf bridsfélagamia að heíjast Næstkomandi mánudag munu urum sem vantar makker er bent á neitt á móti því að fjölga borðum, léttleikandi félagar í Bridsfélagi Borgarfjarðar hittast við spilaborð- ið í fyrsta skipti á nýju starfsári. Enn eru nokkur laus pláss við spila- borðið og eru allir áhugasamir bridsspilarar hvattir til að mæta í félagsheimilið Logaland fyrir klukkan 20. Að sögn Jóns Eyjólfs- sonar, formanns BB verður nú í upphafi aðstoðað við að leiða sam- an spilapör þannig að stökum spil- --------y------------------------ að örvænta eigi. Gott væri ef áhugasamir nýliðar létu Jón vita í síma 893-6538, en einnig er hægt að mæta næstkomandi mánudag á staðinn. „Við munum byrja á að spila eins kvölds tvímenning en stefrium á að spila aðal sveitakeppni félagsins á sex kvöldum í nóvember og ffam í desember. Undanfarið ár vorum við yfirleitt að spila á 9-11 borðum og höfum síður en svo allavega meðan að gólfþláss leyfir,“ sagði Jón í samtali við Skessuhorn. Samkvæmt upplýsingum frá Ein- ari Guðmundssyni, formanni Bridsfélags Akraness hefst vetrar- starf þess félags fimmtudaginn 5. október. Spilað verður í sal Félags eldri borgara að Kirkjubraut 40. Nánari upplýsingar gefúr Einar í síma 862-2962. MM Itreka kröfu um að veglína um Borgames verði færð Á fundi byggðaráðs Borgarbyggð- ar þann 6. september sl. var sam- þykkt að ítreka samþykktir síðustu sveitarstjórnar Borgarbyggðar þar sem því er beint til vegamálastjóra að færsla þjóðvegar 1 við Borgames verði sett í samgönguáætlun. Á fundi bæjarstjórnar þann 15. sept- ember sl. var afgreiðsla byggðaráðs staðfest með átta atkvæðum af níu, en einn bæjarfulltrúi, Jenný Lind Egilsdótrir (B) sat hjá. Þannig má segja að þverpólitísk samstaða sé um að ýta á samgönguyfirvöld að hrað- að verði undirbúningi að færslu veg- línu þjóðvegarins um Borgarnes á fyllingu úti í firðinum og meðfram byggðinni, í stað þess að öll umferð- in fari áffam í gegnum byggðina. „Núverandi sveitarstjórn hefur þannig staðfest vilja síðustu sveitar- stjómar í þessu efni. Það er óásætt- anlegt bæði fyrir íbúa í Borgamesi út ffá öryggissjónarmiðum og veg- farendur sem hér eiga leið um að öll umferðin fari um núverandi veg sem er alltof þröngur til að bera þá miklu umferð sem hér fer um,“ sagði Páll S Brynjarsson, sveitarstjóri í samtali við Skessuhorn. Hann segir að eftir sé að koma nýrri veglínu í gegnum tunhverfismat og ffamkvæmdin sem sfrk sé af þeirri stærðargráðu að hún þurfi að fara inn á langtímaátlun Vegagerðarinnar. Því sé ekki hægt að segja fyrir um það hvenær af þessum ffamkvæmdum geti orðið, en ítrekar að það hljóti að auðvelda samgönguyfirvöldum ákvörðun í málinu að vilji sveitarfélagsins liggi fyrir með þetta skírum hætti. MM Akraneskaupstaður segir upp viðskiptum við Landsbanka Islands Bæjarráð Akraness hefúr sam- þykkt að fela bæjarstjóra að segja upp viðskiptum við Landsbanka Is- lands á Akranesi. Sveinn Kristins- son fulltrúi Samfykingarinnar í bæj- arráðs sat hjá við afgreiðslu málsins og hefur óskað eftir nánari upplýs- ingum um málið. Að sögn Gísla S. Einarssonar bæjarstjóra er um að ræða öll helstu viðskipti bæjarins í fjármálum sem Landsbankinn hefur haff með höndum um áratuga skeið. Nokkrar deilur urðu innan bæjar- stjómar í vetur eftir að starfsmenn bæjarfélagsins fengu launaseðla sína senda í pósti í upphafi árs með korti ffá Landsbankanum á Akranesi þar sem útibússtjórinn tilkynnti að markvisst yrði leitast við að gera sérstaklega vel við starfsmenn bæj- arins í öllum þeirra bankaviðskipt- um og kjömm. Einnig bárast harð- orðar athugasemdir frá öðrum bankastofúunum. Aðspurður hvort uppsögn samninga við Landsbank- ann nú eigi rætur í þessu máli segir Gísli S. Einarsson svo ekki vera. Meirihluti bæjarstjómar einfaldlega mótað þá stefnu að bjóða þessi við- skipti út. Þar hafi ekki ráðið nein óánægja með viðskiptin við Lands- bankann. Hann segir útboð fara fram innan skamms en uppsagnar- ff estur viðskipta er þrír til sex mán- uðir. Gunnar Sigurðsson forseti bæjar- stjórnar Akraness segir eðlilegt að fjármálastofnanir keppi um við- skipti í útboði eins og gengur og gerist í öðmm viðskiptum. Þessi ákvörðun bæjarráðs sé einfaldlega verið að fara sömu leið og mörg önnur sveitarfélög hafa farið á liðn- um ámm. HJ Styrkir minningarsjóð AKRANES: Bæjarráðs Akra- ness hefur samþykkt að leggja fram 200 þúsund kónur sem stofnframlag í minningarsjóð um Geirlaug Árnason. Fyrr í mánuðinum var þess minnst að 80 ár vom liðin frá fæðingu Geirlaugs og voru haldnir minningartónleikar um hann í safnaðarheimilinu Vinaminni fyrir skömmu. Geirlaugur var um árabil virkur í sönglífi Akra- ness en hann lést árið 1981, að- eins 54 ára að aldri. Minningar- sjóðurinn mun styrkja ungt og efnilegt tónlistarfólk á Akra- nesi. -so Bærinn gefur afinælisgjöf AKRANES: í tilefni 25 ára af- mælis Grandaskóla á Akranesi hefur Bæjarráð Akraness ákveðið að veita skólanum 300 þústmd krónur í styrk. Skólinn á 25 ára affnæli þann 6. október n.k. og eins og ffam hefur komið í ffétt- um Skessuhorns verður tíma- mótanna minnst með ýmsum hætti. -so Vilja gjald- frjálsan leik- skóla fyrir 5 ára BORGARBYGGÐ: Foreldra- félög leikskólans í Klettaborg og leikskólans við Skallagrímsgötu f Borgamesi hefur sent bæjaryfir- völdum áskorun í formi opins bréfs þar sem skorað er á bæjar- stjórn Borgarbyggðar að hún beiti sér fyrir gjaldfrjálsum leik- skóla fyrir 5 ára börn. „Fordæmi fyrir slíku em fjölmörg og hafa sveitarfélög að eigin ffumkvæði tekið upp slíkt fyrirkomulag. Má þar nefna Grandarfjörð, Siglu- fjörð og Hveragerði sem öll era smærri sveitarfélög en Borgar- byggð,“ segir m.a. í bréfinu. I lok áskorunarinnar segir: „Væntum við þess að Borgarbyggð sjái sóma sinn í því að verða ekki eff- irbátur annarra sveitarfélaga í þeim efnum, heldur ffemur, skipi sér í hóp ffamsækinna sveitarfé- laga sem vilja auka við grunn- þjónustu og þar með bæta hag íbúa svæðisins." -mm Vörubifreið skemmd AKRANES: Skemmdarverk vora unnin á vörabiffeið þar sem hún stóð á athafnasvæði Laugafisks við Breiðargötu sl. fimmtudagskvöld eða aðfar- amótt föstudags. Rúður vom bromar í biffeiðinni og klæðn- ing rifin. Að sögn lögreglu hef- ur borið á því að unglingar safnist saman á þessum stað en ekki er þó hægt að fullyrða hvort þeir tengist skemmdar- verkunum. Hins vegar myndi lögregla þiggja upplýsingar ef einhver veit hver þama var að verki. -mm WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð f lausasölu er 400 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kolbeinn Ó Proppé 659 0860kolbeinn@skessuhorn.is Sigurbjörg Ottesen 868 0179 sibba@skessuhorn.is Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhom.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.