Skessuhorn - 27.09.2006, Side 7
jkjtssunökji
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006
7
Við opnum á Akranesi þann 16. október
Ný líkamsrækt fyrir allar konur. Betri
heilsa á 30 mínútum. Hjá okkur færðu
aðhald og stuðning hvort sem þú þarft að
grennast eða styrkjast.
Geymsla og varðveisla
stafrænna ljósmynda
Rætt við Svan Steinarsson í Framköllunarþjónustunni
Stafræn ljósmyndun hefur rutt sér
til rúms á nýliðnum árum með undra-
verðum hraða. Segja má að nú séu
ljósmyndavélar af þessu tagi almenn-
ingseign eða í það minnsta eign sem
fer saman hjá þeim sem nýtt hafa sér
tölvutæknina. Stafræn ljósmyndun
gerir lífið á margan hátt auðveldara.
Geta má þess að í rekstri héraðs-
fféttablaðs eins og Skessuhoms þar
sem ljósmyndir gegna stóru hlut-
verki, hefur staffæn ljósmyndatækni
og tölvupóstsendingar auðveldað
margt í samanburði við þá tífna þegar
stækka þurffi allar myndir af filmu,
bíða eftir niðurstöðunum og skanna
síðan afraksturinn af pappfr til notk-
unar í blaðinu. Sá sem þetta ritar
gengur svo langt að segja að rekstur
blaðs eins og Skessuhoms væri hætt
ef ekki nyti við staffænna mynda og
þeirra tækniffamfara sem orðið hafa á
nýliðnum árum. Blaðið fær þannig
sendar myndir ffá lesendum, fféttir
leiða oft af slíkum myndum og þáttur
myndatöku í rekstrarkostnaði er ekki
lengur íþyngjandi.
En eins og með svo margt gott þá
fýlgir böggull skammrifi. Varðveisla,
skráning og geymsla mynda á staf-
rænu formi getur verið vandasöm,
enda er mánaðarskammtur slíkra
mynda sem blaðinu berast tahnn í
þúsundum. Skráning og utanumhald
allra myndanna er eitt. Annað atriði
sem ekki síður þarf að huga að bæði á
héraðsfréttablaðinu og hjá einstak-
lingum er geymsla slíkra mynda.
Hvar verða myndirnar efrir 10-15 ár
og verða þær e.t.v. ekki ril lengur;
ónýtar? Þetta óttast margir atvinnu-
ljósmyndarar og segja að meðan ekki
liggur alveg ljóst fyrir að staffænar
myndir geymist í a.m.k. áratugi, muni
þeir halda áffam að nota filmuvélar.
Þeir og aðrir hafa áttað sig á þeirri
staðreynd að harðir diskar í tölvum,
CD diskar, netgeymsla á myndum og
bleksprautuprentun er í flestum til-
fellum afar óöruggir geymslumiðlar
til lengri tíma. Harðir diskar bila,
margar netsíður smækka sjálfkrafa
upplausn ljósmynda, CD diskar verða
ólæsilegir ýmist vegna blekdofriunar í
htnum sem er brenndur með geislan-
um, skýmyndunar á hlífðarfilmu eða
út af rispum. Myndir sem prentaðar
eru út á bleksprautuprenturum end-
ast einungis ef þær eru rétt gerðar, á
réttan pappír og með réttu bleki, sem
er bæði dýrt og tímafrekt. Sérfræð-
ingar halda því ffam að ef fólk notar
staffæna ljósmyndatækni þá sé staf-
ræn ffamköllun mynda, unnin af fag-
aðilum, skynsamlegasta leiðin til að
varðveita ljósmyndir.
Filmumar dregist
sarnan um 70%
Til að forvitnast nánar um hvað
fólk geti gert til að tryggja endingu á
þeim fjölda staffænna mynda sem tek-
inn er, leitaði Skessuhom til Svans
Steinarssonar hjá Framköllunarþjón-
ustunni í Borgamesi. Hann hefrir 17
ára reynslu af rekstri ffamköllunarfyr-
irtækis og nú síðustu ár einnig í efrir-
prentunum staffænna ljósmynda.
Svanrn- hefrir verulega frindið fyrir
samdrætti í framköllun gömlu
filmunnar og er nú svo komið að hann
er einn í fyrirtæki sínu, en starfsmenn
þar vom allt að þrír þegar best lét. „Eg
ætla að halda áff am að taka við filmum
til ffamköllunar, en er að sérhæfa mig
effir mætti í vinnslu staffænna mynda.
Framköllun á filmum hefrir minnkað
um 70% á síðasthðnum 3-4 árum og
ef ég ekki tileinkaði mér nýja tækni og
uppfyllti nýjar þarfir markaðarins,
þyrftí ég að loka. Það er staðreynd að
nær allar ffamköh-
unarstofrir sem ekki
hafa tileinkað sér
staffænu tæknina
hafa þurft að hætta
starfsemi og nægir
að nefria ffamköll-
unarstofur á Akra-
nesi, Isafirði,
Hvammstanga og
Blönduósi í því sam-
bandi,“ segir Svan-
ur. Þannig má segja
að landfræðilega
þjóni Framköllun-
arþjónustan í Borg-
arnesi stóm svæði. Svanur
nokkuð þétt net umboðsaðila sem
taka við filmum til ffamköhunar eða
staffænum myndum til eftirprentunar
og em þessir staðir nú á Akranesi,
Hellissandi, Olafsvík, Grundarfirði,
Stykkishólmi, Búðardal, Hvamms-
tanga og Hólmavík.
Gæta að lágmarksstærð
myndanna
Svanur segir að í raun séu fáar leið-
ir sem hægt sé að benda fólki á til að
geyma staffænu myndimar til lang-
tíma með ömggum hættí, aðrar en að
láta prenta þær á gæðapappír. „Það er
engin ein, örugg geymsluleið til.
Einna helst mætti segja að laus utan-
áliggjandi drif fyrir tölvur séu best.
Það sem fólk getur gert, og ég mæh
með, er að velja af og til bestu mynd-
irnar úr þeim fjölda mynda sem tekn-
ar em og látí prenta þær hjá okkur.
Þetta mættí gera svona einu sinni tíl
tvisvar á ári. Þá verður kostnaðurinn
ekki of mikill í hvert sinn og um leið
er fólk að tryggja bestu mögulegu
varðveislu myndanna." Svanur segir
að margir viðskiptavinir hans flaski á
því að geyma myndir t.d. inn á ffís-
væðum á hinum og þessum vefsíðum,
en síðar ef eitthvað á að gera við
myndirnar, t.d. stækka þær eða end-
urprenta, þá reynist það ekki hægt því
þær vom minnkaðar svo mikið niður
við slíka geymslu að þær era í raun
ónýtar á eftir. „Myndir þurfa að vera
að lágmarki 400-500 kílóbitar að
stærð (Kb) til að fá nothæfa eftír-
prentun t.d. í stærðinni 10x15 cm eða
15x20 cm. á pappír. Þá er ekki síður
nauðsynlegt að gæði myndanna séu
strax stillt í nægjanlega góðri upp-
Svanur við framköllunarvélina.
hefur lausn í myndavélunum sjálfrim,“ bæt-
ir hann við.
Til að koma til móts við þarfir
þeirra sem vilja láta prenta mikið af
staffænum myndum, hefur Svanur
ákveðið að bjóða mikinn magnafslátt
skipti myndimar hundmðum í hvert
skiptí hjá viðskiptavinum hans. „Ég
hef leitað eftír góðum verðum í papp-
ír erlendis og tel mig nú geta boðið
fólki eftirprentanir á myndum fyrir 20
krónur stykkið, þurfi það 500 stykld
eða fleiri. Þá er um að gera að velja
bara bestu eintökin úr stafrænu
myndunum og koma með þær á
geisladiskum eða á minniskubbum til
mín og fá þær þannig fluttar yfir á
pappír."
Myndir prentaðar á
striga
Til að mæta minnkandi verkefrium
vegna þess hve filmufr amköllun hefur
dregist saman býður Svanur nú ýmsa
aðra þjónustu, en tengda þó. „Eg
þurftí að breyta áherslum og auka
vömframboðið. Ég geri talsvert af því
að taka passamyndir hér á stofunni
hjá mér og hef auk þess fjárfest í dýr-
um plotter sem gefur ýmsa mögu-
leika. Til dæmis get ég prentað
myndir út á striga og sett á
blindramma en góðar ljósmyndir geta
komið glettilega vel út með því og em
auk þess tílvaldar tækifærisgjafir. Þá
er hægt að nýta plotterinn í teikn-
ingaútprentun og auglýsingagerð,
hægt er að plasta stórar myndir og
ýmislegt fleira er hægt með rétta
tækjakostinum. I það minnsta vil ég
láta reyna á að halda rekstrinum
áfram en með nýjum áherslum,"
sagði Svanur að lokum. MM
Borgarbyggð
Umsjónarmaður eigna
í Borgarnesi
Um er að ræða starf á framkvæmdasviði.
í starfinu felst umsjón og eftirlit með eignum
eignasjóðs í Borgarnesi ásamt húsvörslu í •
Grunnskólanum íBorgarnesi.
Æskilegt er að umsækjendur hafi iðnmenntun.
Laun skv. kjarasamningum launanefndar
sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 6. október og skal
umsóknum skilað á skrifstofu Borgarbyggðar að
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes.
Nánari upplýsingar veitirSigurður Páll Harðarson
forstöðumaður framkvæmdasviðs á skrifstofu
Borgarbyggðar í síma 433-7100 eða á netfang:
sigurdur@borgarbyggd.is
Sveitarstjórí Borgarbyggðar
Fiarmalastiori
SEMENTSVERKSMIÐJAN
Sementsverksmiðjan hfer framleiðslu-
fyrirtæki sem hefur um áratuga skeið
framleitt sement og fylliefni ísteypu
fyrir íslenskan byggingaríðnað.
Lögð er áhersla á öguð og vönduð
vinnubrögð iallrí starfsemi fyrírtækisins.
Framleiðslan. salan og dreifingin er
gæðavottuð samkvæmt ISO EN
9001:2000 staðli.
Nánari uppiýsingar um starfsemi verk-
smiðjunnar erað finna á heimasíðu
félagsins: www.sement.is
Sementsverksmiðjan hf á Akranesi auglýsir starf
fjármálastjóra laust til umsóknar.
Starfssvið
Fjármálastjórnun félagsins í nánu samstarfi við fram-
kvæmdastjóra
Skipulag vinnufyrirkomulags og áframhaldandi þróun
og uppbygging á upplýsinga- og bókhaldsmálum
félagsins
Tölfræðileg úrvinnsla, afstemmingar og árshluta-
uppgjör
Gerð rekstraryfirlita, greiðsluáætlana og önnur
skýrslugerð
Undirbúningur að gerð ársreiknings
Margvísleg önnur verkefni í samráði við framkvæmda-
stjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun á sviði viðskipta- og/eða rekstrarfræða eða
sambærilegt
Reynsla af bókhaldsstörfum og uppgjörsvinnu
Þekking á Navision eða sambærilegu bókhaldskerfi
Nákvæmni í starfi og góð tölvukunnátta
Skipulagshæfni, frumkvæði í starfi og góð samskipta-
hæfni
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
fyrir 9. október nk. Númer starfs er 5035.
Upplýsingar um starfið veitir Þórir Þorvarðarson.
Netfang: Thorir@hagvangur.is
HAGVANGUR
Skógarhlíð 12 • 105 Reykjavik
Simi 520 4700 • www.hagvangur.is
við ráðum