Skessuhorn


Skessuhorn - 27.09.2006, Page 8

Skessuhorn - 27.09.2006, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 oiusunukj Umferðarmannvirki á Hvanneyri úr takti við fólksfjölgnn Ibúum á Hvanneyri hefur á liðn- um árum verið að fjölga mjög. Þar eiga nú lögfestu um 300 manns en við þá tölu má bæta a.m.k. 150 nem- endtun við Landbúnaðarháskólann sem eiga þó ekki lögheimili á staðn- um. A Hvanneyri dvelja því a.m.k. 450 manns að jafnaði, en til gamans má geta þess að það er sami fjöldi og bjó í Borgamesi um fyrra stríð. Aætlanir m.a. Agústar Sigurðssonar, rektors LBHI gera ráð fyrir að eftir 5-7 ár verði íbúafjöldi í þorpinu kominn í 1000 manns. Þó íbúum hafi fjölgað þetta mildð er óhætt að segja að enn sé mikill „þorpsbragur“ á umferðarmannvirkjum á staðnum sem á engan hátt hafa þróast í takt við fjölgun vegfarenda. Heimamenn á Hvanneyrarstað telja að bílafjöldi hafi aukist tun 200- 300% á hðnum misserum og eigi sú fjölgun sér enga hliðstæðu í sveitar- félaginu. Ibúar hafa af því miklar áhyggjur að umferðaröryggismálum sé ekki sinnt í hlutfalli við umferð og óttast að óbreyttu sé það einimgis tímaspursmál hvenær alvarlegt slys verði. Nefna menn sem dæmi að að- keyrsla að leik- og grunnskólum skuli hggja í gegnum íbúðargötur og telja að sveitarfélagið, yfirvald skipu- lagsmála, eigi sökina þar sem nýtt skipulag með nýrri aðkomuleið að skólunum vanti. Við magn umferðar, sem rekja má til íbúa á staðnum, bætist mikil um- ferð ferðafólks sem lítt eða ekkert þekkir til staðhátta og ef öryggismál- um og t.d. merkingum sé ábótavant skapi það enn meiri hættu en þörf er á. A spjallvef staðarbúa segir m.a. að það vanti stórlega hringtorg tdl að hægja niður umferð, biðskyldu- merkingar myndu eyða vafa um hvemig fólk ættd að haga sér í um- ferðinni og hraðahindranir við fjöl- fama göngustíga vanti tilfinnanlega. Þegar ekið er inn á Hvanneyrar- stað er ekkert sem dregur úr um- ferðarhraða annað en lítt áberandi skiltd. Okumenn þurfa því ekki að draga úr hraða við krossgötur þar sem annars vegar er haldið beint á- fram að skólahúsum, skrifstofubygg- ingum og nemendagörðum og hins vegar er beygt til hægri að t.d. meiri íbúðabyggð, grunn- og leikskóla, gömlu skólahúsunum og gripahús- um. Þrátt fyrir að um nokkurt skeið hafi verið uppi áætlanir um gerð hringtorgs við þessar krossgötur, hefur enn ekkert orðið af ffarn- kvæmdum. „Sveitarstjórn hefur þrýst á það við samgönguyfirvöld að hraðað verði gerð hringtorgs á Hvanneyri til að dregið verði úr þeim mikla hraða sem er á bílum þegar komið er inn á staðinn. En okkur er sagt að vanti fjárheimild til verksins. Við höfum rætt við vega- málastjóra, Vegagerð og samgöngu- ráðherra um málið á liðnum misser- um og okkur verið tjáð að fram- kvæmdinni hafi verið frestað," sagði Páll S Brynjarsson, sveitarstjóri þeg- ar hann var spurður um málið. „Þá hafa umferðaröryggismál bæði á Hvanneyri og í Borgamesi verið til umræðu í þriggja manna starfshópi á vegum sveitarfélagsins, sem skipað- ur var í ágúst sl. til að fara ofan í kjöl- inn á brýnustu verkefnunum. Meðal þess sem Hggur fyrir er að bæta þarf Umræddar krossgötur semjýrst er komið ad þegar ekið er inn á Hvanneyrarstað. Hér er ráðgert að bygg/a bringtorg, en stjómvöld hafa frestað framkviemdum. Ljósm. Sólrún Bjamadóttir. biðskyldumerkingar því meðan á þær vantar gildir hægri reglan á stöðum sem það getur hæglega vald- ið misskilningi. Þá vantar hraða- hindranir við göngustíga á Hvann- eyri tdl að auka öryggi gangandi veg- farenda. Okkur er fullkunnugt um þetta vandamál og erum öll af vilja gerð að hraðað verði sem kostur er þeim úrbótum sem snúa að sveitar- félaginu og þrýst verði áfram á Vegagerð að leysa þau mál sem að ríkinu snúa,“ segir Páll í samtafi við Skessuhorn. Hann segir að unnið sé áffarn við göngustígagerð á staðnum og nýir stígar sem þar hafi verið lagðir verði að hluta til malbikaðir nú í haust. MM Framkvæmdir við Grenigrund í útboð Akraneskaupstaður, í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur og Sím- ann hf., hefur auglýst eftir tilboð- um í framkvæmdir við Grenigrund. Um er að ræða malbikun götunnar og einnig verða lagðar gangstéttir við götuna. Framkvæmdirnar voru nokkuð í sviðsljósinu undanfarna mánuði. Fyrrverandi meirihluti bæjarstjórnar hugðist ráðast í end- urbætur götunnar á næsta ári. Ibúar við götuna voru ekki sáttir og af- hentu bæjarstjórn undirskriftarlista í vor þar sem þess var krafist að ráð- ist yrði í ffamkvæmdir strax en eft- ir að íbúar götunnar kröfðust úr- bóta strax. Málið var til umræðu í kosningabaráttunni í vor og eitt af því fyrsta sem núverandi meirihluti tilkynnti var að ráðist yrði í fram- kvæmdir á þessu ári. Samkvæmt auglýsingu bæjarins skal malbikun götunnar lokið fyrir 15. desember og öðrum frágangi vegna framkvæmdanna skal lokið eigi síðar en 1. júní á næsta ári. HJ Rjúpnaveiði leyíð ijóra daga vikuímar firá 15. okt - 30. nóv Umhverfisráðherra hefur ákveð- ið fyrirkomulag veiða á rjúpu haustið 2006. Veiðitímabilið verður eins og í fyrra frá 15. október til 30. nóvember en sú nýjung tekin upp að einungis verður leyft að veiða fimmtudaga til sunnudaga. Afram verður sölubann á rjúpu og afurð- um hennar, eins og segir í tilkynn- ingunni. Þá hvetur ráðherra til hóf- samra og ábyrgra veiða. I samvinnu við dómsmálaráðuneytið verður veiðieftirlit úr lofti eftir því sem kostur er. I tilkynningu ráðuneytisins segir: „Náttúrufræðistofnun mat veiðiþol rjúpnastofnsins fyrir umhverfis- ráðuneytið og byggðist matið á þeirri stefnu stjórnvalda að rjúpna- veiðar séu sjálfbærar. Það var mat stofhunarinnar að óvæntir atburðir hefðu orðið í rjúpnastofninum og talningar sýndu að stofhinn er á niðurleið eftir tveggja ára upp- sveiflu. Varpstofh 2006 er talinn 180.000 fuglar og er það fækkun um 40.000 fugla frá í fyrra. Við mat á veiðiþoli er miðað við að afföll unga verði nú á haustdögum líkt og 2005 og útreikningar á stærð veiði- verði 70%, þ.e. það sama og haust- ið 2005. Stofnunin mat stærð veiði- stofns 2006 um 500.000 fugla og ásættanleg veiði um 45.000 fuglar. Umhverfisráðherra ákvað í fyrra að veiðitíminn yrði frá 15. október til 30. nóvember auk þess sem bannað var að selja rjúpu. Stjórn rjúpnaveiða árið 2005 tókst ágæt- lega. Stefnt var að 70.000 fugla veiði og mat Umhverfisstofnunar er að heildarveiði hafi verið á bilinu 70.000 til 75.000 fuglar. Miðað við sóknargetu veiðimanna er augljóst lega úr veiðum sínum og þannig orðið við áskorun um að sýna hóf- semi við veiðar. Þrátt fyrir þetta gengu væntingar um afkomu rjúpimnar ekki eftír. Ljóst er að margir þættir aðrir en skotveiðar hafa áhrif á afkomu rjúp- unnar og það er talið líklegt að ó- hagstætt tíðarfar sumar og haust 2005 hafi verið afdrifaríkt. I fyrra kom haustið snemma og var rysjótt auk þess sem slæmt vorhret í lok maí olli vanhöldum í varpi.“ MM Oánægja með heflun vega í Hvalíj a rðarsveit Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur falið sveitarstjóra að hafa samband við Vegagerðina og þrýsta á um að malarvegir í sveitarfélaginu verði heflaðir reglulega. Sigurður Sverrir Jónsson sveitarstjórnar- maður og atvinnubílstjóri flutti til- lögu um málið og var hún sam- þykkt samhljóða. Sigurður Sverrir ekur skólabíl innan sveitarfélagsins og því manna kunnugastur um ástand malarvega á sinni akstursleið. Hann sagði í samtali við Skessuhorn að vegirnir væru mjög slæmir í Svínadalnum og í Leirársveit og raunar væri al- veg sama hvaða malarvegur það væri innan sveitarinnar. Þá mætti alla bæta með heflun. Sigurður Sverrir segir eiginkonu sína, sem einnig sér um akstur skólabarna, hafa haft samband við Vegagerðina í Borgarnesi og spurt hvers vegna malarvegir í Hvalfjarðarsveit væru ekki heflaðir og hefði fengið þau svör að enginn veghefilsstjóri sé við störf í Borgarnesi. „Vegir eru almennt ekki heflaðir í takt við þá miklu umferð sem um þá fer og ástandið hér er ekkert einsdæmi. Það væri til dæmis fróð- legt að fá upplýsingar um hve oft malarvegir í Hvalfjarðarsveit hafa verið heflaðir á síðustu tólf mánuð- um,“ sagði Sigurður Sverrir. Fjármagn stýrir framkvæmdum Þegar Bjarni H. Johansen þjón- ustustjóri Vegagerðarinnar í Borg- arnesi var spurður um málið sagðist hann vita að vegheflun væri ábóta- vant á öllu Vesturlandi, vegirnir væru allir í misgóðu ástandi. Þó væri alveg sama í hvaða sveitarfé- lagi fólk byggi, allir teldu sinn veg þann versta á öllu landinu. Bjarni sagði Vegagerðina leita til verktaka með heflun takist starfsmönnum stofnunarinnar ekki að vinna verk- ið. Því geti verið að þegar áður- nefndur bílstjóri fékk svarið um mannekluna hafi það verið reyndin. Hjá Vegagerðinni veikist menn og fari í barneignarleyfi eins og í öll- rnn öðium fyrirtækjum og ekki fá- ist alltaf heimild til að ráða starfs- menn í staðinn. „Verkum er for- gangsraðað en við lítum þó til mik- illa umferðarhelga, veiðitímabila, rétta og þess háttar þegar viðhald vega er skipulagt hjá okkur," sagði Bjarni. Hann segði einnig að mal- arvegir innan Hvalfjarðarsveitar hefðu verið heflaðir í sumar en ekki reglulega frekar en aðrir vegir. „Það rignir ekki reglulega eins og hvert mannsbarn veit og því er ekki hægt að hefla effir dagatali. Ef allir malarvegir eiga að vera í mjög góðu ásigkomulagi þarf meira fjár- magn. Fjármagn sem veitt hefúr verið í vegheflun og rykbindingu hefur ekki dugað. Oft eru vegirnir verstir við brýr og ristarhlið sem fyrir löngu hafa lokið hlutverki sínu. Þar eru oft verstu holurnar og mestra viðgerða þörf. Við höfum óskað effir því að sum þessi ristar- hlið verði fjarlægð, en án árangurs. Abúendur og jarðaeigendur við malarvegi mættu sumir stundum líta í eigin barm og vera fusari til samstarfs við okkur,“ sagði Bjarni. Bjarni segist vel skilja óánægju þess fólks sem fara þurfi um slæm- an veg og það kannski oft á dag. „Ég er því innilega sammála að ekki er skemmtilegt að aka um svona vegi og starfsmenn Vega- gerðarinnar vilja gjarnan geta gert betur, en ég tel að á Vesturlandi séu til mun verri malarvegir en í Svína- dal og á mörgum þeirra er mun meiri umferð. Við tökum vel á móti öllum upplýsingum og kvörtunum um ástand vega og reynum að gera það sem við getum til að bæta ástand þeirra,“ sagði Bjarni að lok- um. SO

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.