Skessuhorn - 27.09.2006, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006
SHgSSlöIgOBíS
Lágt sjálfsmat og vúnuefiianeysla
unglinga í Borgai'firði
Iþróttamiðstöðin í Borgamesi. Tómstundanefhd BorgarbyggSar horfir m.a. tilþess aí efla
íþróttastarffyrir unglinga í forvamarskyni. Þá er einnig horft til annarra tómstunda.
Unglingar í Borgarnesi og Borg-
arfirði hafa lágt sjálfsmat og vímu-
efhaneysla þar er meiri en annars-
staðar á Vesturlandi og með því
versta sem gerist á landinu. Þetta
kemur fram í skýrslunni „Heilsa og
lífskjör skólanema 2006.“ Hún var
unnin af Háskólanum á Akureyri
og Lýðheilsustöð og er hluti af al-
þjóðlegri rannsókn. I vor voru
spurningar lagða fyrir nemendur í
6., 8. og 10. bekk í öllum grunn-
skólum landsins, utan sérskóla.
Sjálfsmat nemenda grunnskólanna í
Borgamesi og Borgarfirði er lægst
allra á landinu. Nemendur mátu
eigið líf á kvarðanum 0-10 og var
aðeins rétt rúmlega helmingur, eða
54,2%, sem mat líf sitt á bilinu 8-
10. Sömu tölur yfir Vesturland em
61,7% og á landinu í heild 65,1%.
Svipað er uppi á teningnum þeg-
ar kemur að neyslu vímuefha. I
svörum við spurningunni um hvort
viðkomandi reykti daglega kom í
ljós að enginn í 6. bekk gerði það,
en 2,4% 8. bekkinga svaraði því ját-
andi. A Vesturlandi öllu er sú tala
lægri, eða 1,7%, og enn lægri á
landinu í heild sinni eða 1,4%. I tí-
unda bekk lítur dæmið þannig út að
17,2% nemenda í Borgarnesi og
Borgarfirði reykja daglega, 9,9% á
Vesturlandi og 10,2% á landinu
öllu. I báðum tilfellum reykir hæst
hlutfall unglinga á landinu í Borg-
arnesi og Borgarfirði.
Eintmgis nemendur í 10. bekk
svömðu spurningum um aðra
vímugjafa. Kom þar í ljós að 46,8%
nemenda í Borgamesi og Borgar-
firði hafa orðið ölvaðir einu sinni
eða oftar á síðustu 12 mánuðum og
11,1% þeirra hefur notað hass eða
marijúna einu sinni eða oftar. Á
Vesturlandi hafa 38,2% 10. bekk-
inga orðið ölvaðir á síðasta ári og
39,5% á landinu öllu. 9,4% nem-
enda í 10. bekk á Vesturlandi hefur
prófað hass eða marijúna, en 9,5% í
Reykjavík. Þá em hlutfall eineltis í
gmnnskólum í Borgarnesi og
Borgarfirði hærra en landsmeðal-
tafið, eða 22,2%, sem hafa verið
lögð einu sinni eða oftar í einelti, á
móti 18,9% yfir landið í heild sinni,
og 17,2% á Vesturlandi.
Bjöm Bjarki Þorsteinsson er for-
maður tómsmndanefndar Borgar-
byggðar, en hún hefur með málefni
æskulýðs að gera. Hann sagði í
samtali við Skessuhorn að menn
þar væru mjög meðvitaðir um
stöðu mála og hefðu fullan hug á að
bregðast við skýrslunni. „Við þurf-
um að líta í eigin barm hvað þetta
varðar, finna út hvað virkar ekki og
finna réttar leiðir til að börnunum
okkar líði betur. Þetta verkefni
blasir við nýrri tómstundanefhd og
vímuvarnamálin tilheyra okkur.
Hér er starfandi vímuvamahópur,
en við verðum að hugsa upp leiðir
sem virka.“ Tómstundanefnd mtm
taka málið fyrir á fundi sínum í
næstu viku og í kjölfarið grípa til
aðgerða. Aðspurður segist Björn
Bjarki telja að samþætting vímu-
varna- og tómstundamála í einni
nefnd sé af hinu góða. „Þetta á vel
saman. Af hverju leiðast krakkar út
í fíkniefni og annað slíkt? Verðum
við þá ekki að gera betur með tóm-
stundir, þá ekki bara íþróttir heldur
hin ýmsu félagsstörf?“
Jákvæðir þættir koma einnig
ffam í skýrslunni, en í ljós kemur að
langflestir nemendur í Borgarnesi
og Borgarfirði, eða 72,2%, borða
morgunmat fimm sinnum í viku
sem er mest yfir landið. A Vestur-
landi gegnir það sama um 70,8%
nemenda og 68,% á landinu öllu.
Þá er sá tími sem nemendur í skól-
um Borgarfjarðar og Borgarness
eyða við sjónvarp eða tölvuskjá með
því minnsta sem gerist á landinu,
en 53,9% þeirra segjast verja 30
klukkustundum eða meira við þá
iðju, en 56,3% á landinu í heild og
58,9% á Vesturlandi.
-KÓP
Utskrifaoist sem læknir
/
og fór beint til Olafsvíkur
I síðustu viku útskrifaðist ung
kona ættuð af Mýrunum sem lækn-
ir með hæstu einkunn ffá læknahá-
skólanum í Debrecen í Ungverja-
landi. Hún heitir Hanna Kristín
Olafsdóttir og er ffá Hundastapa.
Hanna Kristín hefur undanfarin 6
ár verið í læknanámi ytra og er hún
þegar komin til starfa, reyndar
tímabundinna, við heilsugæslu-
stöðina í Olafsvík, en þar hefur ver-
ið læknislaust að undanfömu.
Hanna Kristín vildi af hógværð
sem minnst gera úr árangri sínum á
læknisprófinu, en staðfesti þó að
hún hafi útskrifast með hæstu ein-
kunn kvenkyns læknanema af alls
140 manns sem útskrifuðust í síð-
ustu viku. „Við vomm 12 sem út-
skrifuðust með hæstu einkunn, ég
var hæst kvennanna en einn karl-
maður sló mér þó við,“ sagði hún í
samtali við Skessuhorn. Hanna
Kristín stoppaði ekki lengi við í
Ungverjalandi eftir útskriftina því
hún var komin til starfa vestur í
Olafsvík strax á mánudagsmorgun.
,J4ér hefur verið læknislaust og tók
ég að mér tímabundið starf ffam til
næstu áramóta. Eftir það hef ég
ráðið mig til læknisstarfa í London
og flyt þangað eftir áramót og ætla
að búa með kærastanum sem þar
starfar,“ sagði Hanna Kristín að
lokum.
MM
Aflaverðmæti í júní
minna en í fyrra
í júní var landað 1.846 tonnum af
sjávarfangi að verðmæti tæpar 146
milljónir króna í höfhum á Vestur-
landi. I sama mánuði í fyrra var
landað 3.825 tonnum að verðmæti
rúmar 178 milljónir króna. Þetta
kemur fram í tölum Hagstofu ís-
lands. Samdráttur í verðmætum er
því um 18% á milli ára og tæp 52%
í magni tahð. Fyrstu sex mánuði árs-
ins var landað á Vesturlandi 43.353
tonnum að verðmæti rúmar 1.847
milljónir króna. A sama tíma í fyrra
var landað 50.569 tonnum að verð-
mæti rúmar 1.490 milljónir króna.
Aflaverðmæti eykst því um tæp 24%
á sama tíma og aflinn minnkar um
rúm 14%. HJ
Heilsugæslustöð krefiu* bæjarhátíð
um kostnað við heilsugæslu
Einn gesta Færeyskra daga 2006. Ekki er vitað hvort umræddur gestur var einn þeirra sem leita þurfti hjálpar á heilsugæslustöðinni.
Skipulagsnefnd Færeyskra daga í
Olafsvík hefur alfarið hafnað
greiðslu á hluta kostnaðar fyrir
heilsugæslu þá daga er hátíðin stóð
yfir. Framkvæmdastjórn Heilsu-
gæslustöðvarinnar sendi skipulags-
nefndinni bréf þar sem tilkynnt er
að hún samþykki ekki að boðið sé
til útihátíðar sem sé orðin að einni
mestu sukkhátíð landsins. Skipu-
lagsnefndin segir það ekki hlut-
verks sitt að fjármagna heilsu-
gæsluþjónustu.
Forsaga málsins er sú að í júlí á
síðasta ári sendi Björg Bára Hall-
dórsdóttir framkvæmdastjóri
Heilsugæslustöðvarinnar í Olafs-
vík skipulagsnefnd Færeyskra daga
bréf þar sem vakin var athygli á því
að aðsókn á hátíðina væri sífellt að
aukast og samsetning gestanna
hefði breyst. Fyrstu árin sem há-
tíðin var haldin hafi venjuleg vakt á
Heilsugæslustöðinni ráðið við
þjónustu við hátíðargesti. Hin síð-
ari ár hafi tvöfaldur fjöldi starfs-
manna vart haft undan og það hafi
haft í för með sér „gífurlegan
kostnað fyrir stöðina sem ekki fæst
bætt frá ríki í formi aukafjárveit-
ingar,“ eins og segir í bréfi Bjargar
Báru og segir að kostnaðurinn við
hátíðina árið 2005 fari vart undir
einni milljón króna. Jafnframt
óskaði hún eftir því að mótshaldar-
ar greiði þennan kostnað í framtíð-
inni og einnig að þeir greiði hluta
kostnaðar ársins 2005.
Skipulagsnefndin svaraði Báru
Björg samdægurs með bréfi þar
sem fram kemur að nefndin telji að
„það sé ríkisins að borga kostnað-
inn í heilbrigðisþjónustu,“ og til-
kynnir að bréfi Báru Bjargar hafi
verið vísað frá.
Að loknum Færeyskum dögum í
ár sendir Bára Björg aftur bréf til
nefndarinnar. I því kemur fram að
framkvæmdastjórn Heilsugæslu-
stöðvarinnar samþykki ekki að
boðið sé til útihátíðar „líka þeirri
sem var í byrjun júlí hér í bæ,“ því
þróun mála hafi verið með þeim
hætti að ekki verði við unað. Það
sem áður hafi verið fjölskylduhátíð
„er orðið að mestu sukkhátíð
landsins,“ eins og segir orðrétt í
bréfinu. Þá segir einnig: „Við vilj-
um því senda skýr skilaboð: Við
samþykkjum ekki unglingadrykkju
í bænum. Við samþykkjum ekki að
börnin okkar geti ekki gengið
óhult um götur bæjarins á lögleg-
um útivistartíma. Við mótmælum
því að boðið sé til slíkrar hátíðar á
næsta ári.“ Með bréfinu var sendur
reikningur að fjárhæð 300 þúsund
krónur sem sagður er hluti kostn-
aðar við vinnu starfsfólks stöðvar-
innar á meðan á hátíðinni stóð.
I opnu svarbréfi sem skipulags-
nefndin sendi frá sér á dögunum er
það ítrekað að það sé ekki í verka-
hring nefndarinnar að fjármagna
kostnað við heilsugæslu og vísa til
laga í því sambandi. Framkvæmda-
stjórnin þurfi því að snúa sér til
ráðuneytis heilbrigðismála með
beiðni um frekari fjárframlög „ef
stofnunin telur að hún geti ekki
haldið uppi fullri þjónustu" á með-
an á hátíðinni stendur.
Aðspurð hvort það væri í verka-
hring framkvæmdastjórnar Heilsu-
gæslustöðvarinnar að mæla með
eða á móti samkomuhaldi sagði
Björg Bára í samtali við Skessu-
horn að til þess að halda slíkar há-
tíðir þyrfm mótshaldarar aðgang
að heilsugæslu. Með bréfinu hefði
framkvæmdastjórnin verið að
koma skoðun sinni á framfæri.
Hún sagði alkunna að þeir sem
héldu útihátíðir greiddu fyrir
heilsugæslukosmað sem þar færi
ffam. Aðspurð hvort það stæðist
lög að innheimta slíkan kostnað
við bæjarhátíð sem Færeyska daga
sagði hún að það yrði að koma í
ljós. Að öðru leyti vildi hún ekki tjá
sig um málið. Hún myndi ræða
það beint við skipulagsnefndina en
ekki í gegnum fjölmiðla.
Magnús Höskuldsson, sem sæti
átti í skipulagsnefnd Færeyskra
daga í ár, sagðist í samtali við
Skessuhorn málið útrætt í nefnd-
inni því enginn lagalegur réttur
væri til innheimtunnar. Fram-
kvæmdastjórn Heilsugæslustöðv-
arinnar væri því komin langt út
fyrir sitt verksvið með útgáfu
reikningsins og með þeim orðum
sem í bréfi stofnunarinnar hefði
komið fram.