Skessuhorn


Skessuhorn - 27.09.2006, Side 12

Skessuhorn - 27.09.2006, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 SB£SS1M©EKI Með bátasmíðim í blóðinu Rætt við Aðalstein Valdimarsson á Reykhólum sem vinnur nú að stofnun Bátasafns Breiðafjarðar Aðalsteinn á heimili sínu á Reykhólum. Hann er núfluttur aftur í húsiS sem hann reisti upp úr 1960. Á Reykhólum við Breiðafjörð er nú unnið að því að koma á fót Báta- safni Breiðafjarðar, safhi sem helg- að yrði súðbyrðingnum breiðfirska sem margir þekkja. Markmið saihs- ins er að safna, skrá, varðveita og sýna muni og minjar sem hafa gildi fyrir sögu báta, bátasmíða og sigl- ingar við Breiðafjörð. Þá skal safhið stuðla að nýsmíði súðbyrðinga, veita þekkingu í því fagi efrir gögn- um, efla siglingakunnáttu og halda til haga vitneskju um gamlar sigl- ingaleiðir á Breiðafirði. Þetta eru sannarlega háleit markmið og hefur Aðalsteinn Valdimarsson verið ffamarlega í flokki í þessari baráttu. Hann er t.a.m. formaður Félags áhugamanna um Bátasafn Breiða- fjarðar á Reykhólum. Bátasmíði er Aðalsteini ekki ókunnug, hann er menntaður í þeim ffæðurn enda kemur hann af miklum ættbálki bátasmiða. Frændi hans, Hafliði Aðalsteinsson, er varaformaður téðra samtaka, þannig að ljóst er að fagið er ættinni hugleikið. Aðalsteinn fæddist í Hvallátrum þann 29. mars árið 1938. Faðir hans var Valdimar Olafsson Olafssonar Bergsveinssonar í Bjarneyjum, Ó- lafssonar Teitssonar. Allir voru þeir skipasmiðir og fleiri í ættinni, t.a.m. annar sonur Olafs Teitssonar, Eyjólfur í Sviðnum. Móðir Valdi- mars var Fjóla Borgfjörð. Valdimar, faðir Aðalsteins, var vel þekktur skipasmiður, tók marga nema og smíðaði fjölda báta. Hann lést ung- ur, aðeins 33 ára gamall, og í raun er ótrúlegt hve mikið hann lætur eftir sig. Snemma lá fyrir hvað úr Valdimar yrði, því fóstra hans orti til hans á barnsaldri: Þetta rættist og Valdimar varð þekktur skipasmiður ásamt því að stunda búskap í Hvallátrum. Aðal- steinn var aðeins 14 mánaða þegar hann missti föður sinn og þegar hann var þriggja ára flutti móðir hans úr Hvallátrum með sjö systkin hans. Aðalsteinn var yngstur og varð eftir hjá ffændfólki sínu. Fetað í fótspor föður Þegar Aðalsteinn var sextán ára gamall fetaði hann í fótspor föður síns, enda má segja að hann hafi bátasmíði í blóðinu. „Eg fór til Hafnarfjarðar og lærði í Bátasmíða- stöð Breiðafjarðar árið 1954,“ segir hann. „Þegar ég útskrifaðist þaðan árið 1958 hafði fyrirtækið breytt um nafn og var orðið Bátalón. Það segir kannski eitthvað um áhrif föð- ur míns að allir þrír stofhendur Bátasmíðastöðvarinnar unnu hjá pabba, þeir Einar Sturluson, Þor- bergur Ólafsson og Jóhann Líndal Gíslason." Þegar Aðalsteinn hafði útskrifast sneri hann aftur í Hvallátur og fór að vinna við smíði bátsins Draupn- is. „Eg og Valdimar fósturbróðir minn sáum mest um smíðina, en ffændi minn Aðalsteinn hafði feng- ið þá flugu í hausinn að harm væri í pólitík og hafði lítinn tíma í þetta. Valdi fór svo í hlunnindi um sumar- ið en ég hélt smíðinni áfram.“ Fyr- ir þá sem ekki vita hvað um er rætt eru nytjar fuglsins á Breiðafjarðar- eyjunum nefndar einu nafni hlurtn- indi. Aðalsteinn fór að því loknu að Króksfjarðamesi. „Þar kynntist ég konu héðan úr sveitinni og við fluttumst að Reykhólum. Við áttum saman eina dóttur og hún gerði mig síðan að afa þegar ég var 68 ára gamall. Það er því nokkuð langt á milli kynslóða hjá okkur.“ Á Reyk- hólum var Aðalsteinn í 11 ár, vann við byggingarvinnu og reisti mörg útihús í sveitinni. Um vetur var hann á vertíð þar til hann lenti í slysi sem varð til þess að hann gat ekki lengur stundað sjóinn. Þar smíðaði hann eina bátinn sem hann hefur smíðað upp á sitt einsdæmi, Hafdísi. „Eg hafði verið eitt sumar með bát til að læra hvemig bátar eiga að vera í laginu. Eg reyndi svo að gera Hafdísi sem besta úr garði en það mistókst nú allt, nema það að hún slær ekki á móti vindi.“ ára búsetu. „Ég fór að vinna þar um vorið en skilaði mér ekki aftur,“ segir Aðalsteinn, en hann og barns- móðir hans slitu þá samvistum. I Búðardal stýrði hann lengi vel Tré- smíðaverkstæði Þorgeirs og Gunn- ars en fór síðan að keyra vörabíl. Hann beitti sér í félagsmálum og var um tíma formaður Landssam- bands vörabílsstjóra. Aðalsteinn var mestan partinn í því að keyra fyrir bændur. „Ég átti ágætis ámoksmrs- vél og þetta var miklu betra en að keyra fyrir stærri aðila. Ég mokaði þá sjálfur á og öll nýting varð mun betri, tankurinn dugði t.a.m. mun lengur." Aðalsteinn keyrði þó einnig fýrir Vegagerðina og vann við klæðningu vega. Hann hafði hins vegar ýmis- legt við aðbúnað að athuga og þar kom að hann fékk það sem hann kallar „besta reiðikast sem ég hef fengið.“ Um þessar mundir var einn maður sem sá um öll þessi verk fyrir Vegagerðina og var Aðalsteinn ekki sáttur við fyrirkomulagið. „Við vorum að vinna í Suðurfirði og mönnum lá svo á að klára verkið að kallaður var til aukamannskapur úr Borgarfirði. Þá var vaninn sá að bfl- stjórar ynnu í níu tíma en fengu tólf losanir á þeim tíma. Þama var hins vegar komið svo mikið af mönnum að við unnum í tólf tíma en fengum aðeins níu losanir. Okkur var held- ur ekki boðið að vera með þeim í mat þannig að það var komið fram við okkur eins og hunda. Eitt sinn spyr yfirmaðurinn hvort hann eigi að bæta við heimamönnum eða að- komumönnum við verkið. Ég firrt- ist þá við og hreytti út úr mér „Þú færð enga í þetta nema þú komir ffam við okkur eins og menn.“ Að- komumennirnir sögðu að svona ættu formenn að vera, en heima- mennirnir óttuðust um vinnuna. Ég hætti þessu hins vegar, auglýsti bíl- inn og seldi hann á þremur dög- um.“ Aðalsteinn segir reiðikastið hafa orðið honum til happs. „Það var að draga úr þessu öllu um þetta leyti, kominn klafi á bændur og þeir hættu að framkvæma. Ég hætti því á hárréttum tíma.“ Eftir þetta keyrði Aðalsteinn sendibíl í tvö og hálft ár en hélt síðan suður til Reykjavíkur. Heilsubrestur I Reykjavík vann Aðalsteinn í byggingarvinnu í tíu ár, lengst af sem verkstjóri hjá fyrirtækinu Búlka. Vinnan fólst aðallega í því að taka við uppbyggðum húsum og klára að vinna þau. Honum líkaði hins vegar ekki hvernig undirverk- takar komu fram við eiganda fýrir- tækisins og gagnrýndi það mjög. „Hann var með blóðsugur sem undirverktaka. Einu sinrú þurfti að mála eitt hús algjörlega upp á nýtt eftir málarana og sérstaklega var beðið um að þessir menn máluðu aldrei aftur. Eigandinn var hins vegar svo góður í sér að hann hætti ekki að skipta við málarana. Ég kallaði hann félagsmálastofnun.“ Eftir að Aðalsteinn hætti hjá fýrir- tækinu fór það á hausinn, þannig að reikna má með að nokkuð hafi ver- ið til í gagnrýninni á reksturinn. Eftir því sem leið á starfsævi Að- alsteins fór að bera á heislubresti og fýrir sjö árum missti hann heilsuna. Hann segir ástæðuna vera þá að hann hafi verið of mikið í eiturlofti í gegnum ævina. Þá hugsaði hann sér að láta gamlan draum rætast og flytja til Hveragerðis. „Fóstra mín fýrstu árin eftir að pabbi dó og áður en mamma flutti úr Hvallátram hét Steinunn. Hún flutti síðar til Hveragerðis og ég heimsótti hana þangað þegar ég var unglingur. Þá lýsti ég því yfir að þar langaði mig að búa. Ég flutti síðan þangað þeg- ar ég missti heilsuna, en í ljós kom að ég þoldi ekki andrúmsloftið þar, það var of mikill brennisteinn í því. Ég ákvað því að snúa aftur til Reyk- hóla á ný.“ Kirkjuviðgerðir Aðalsteinn er maður hagur og hefur ekki sest í helgan stein þó heilsan sé farin að bila. Árið 1992 tók hann að sér að gera upp Hjarð- arholtskirkju og var það mikið púsluspil. „Það vora engar teikn- ingar til af kirkjunni og henni hafði verið mikið breytt. Hins vegar voru allar spýtur til og á þeim fundust merki eftir lista og þess háttar þannig að hægt var að raða þessu saman. Ég var í þrjú ár að gera kirkjuna upp, en á sínum tíma voru þrír menn hálft ár að reisa hana.“ Aðalsteinn segir Hjarðarholtskirkju vera skemmtilegasta verkefnið sem hann hafi komið nálægt. Sam- bandsslit settu þó strik í reikning- inn. „Þetta er það verk sem hefúr tekið hug minn allan og ég gaf mig allan í það. Það bar þó skugga yfir, þar sem kona mín sneri sér að öðr- um á þessum tíma. Það hafði að sjálfsögðu áhrif, en verkið situr í minni mínu.“ Að því loknu gerði ég kirkjuna í Gufudal upp og þar studdist ég mikið við gamlar fermingarmyndir til að sjá hvemig kirkjan hefði litið út. Fyrsta verkið sem Aðalsteinn kom nálægt við kirkjusmíði var að setja kross á kirkjuna í Gufudal, þá ungur maður. Gufudalskirkja var einnig síðasta kirkjan sem hann kom nálægt og því má segja að hann hafi verið kominn í hring. Máttur tilviljana Það má með sanni segja að margt í lífinu sé tilviljunum háð. Því fékk Aðalsteinn að kynnast þegar hann snéri aftur til Reykhóla. Húsið sem hann reisti sér þegar hann flutti fýrst þangað upp úr 1960 stóð autt. Þar hafði til skamms tíma verið at- vinnustarfsemi en Aðalsteinn keypti húsið og gerði upp, þó því verki sé reyndar ekki lokið. Þá rakst hann á gamlan félaga, Hafdísi, bátinn sem hann smíðaði, og var ekki lengi að festa sér hann. Lífið hefur því farið í hring og virðist leita aftur til upp- runans. Þannig hefur Aðalsteinn nú mikið unnið að varðveislu, söfnun og viðgerðum báta, nokkuð sem hann lærði ungur til en hefur ekki starfað við síðan. Aðalsteinn hefur góða þekkingu á gömlum bátum og hefur hún nýst honum til starfans. Þannig telur hann sig hafa fundið það út að báturinn Friðþjófur, sem er í eigu Þjóðminjasafns Islands og geymdur á Bátasafninu á Reykhól- um, sé í raun ekki rétt nefndur. „Hann er sagður smíðaður í Hval- látrum 1910-1915 af Ólafi Berg- sveinssyni afa mínum. Ég vil hins vegar meina að hann hafi verið smíðaður í Bjamarhöfh árið 1840 og hafi heitað Felix I. Það er ýmis- legt sem bendir til þess. Ólafur smíðaði allt sitt með köntuðum róm, en ég hef bara fundið eina slíka í efri hluta bátsins. Tveir bræður smíðuðu Felix I, hvor sína hliðina og þeir töluðust ekki við. Það má sjá á þessum bát að borðin passa ekki alveg saman líkt og tveir menn hafi smíðað hann. Eins heyrði ég í þeim sem gerði hann upp og hann gaf mér upplýsingar sem benda til þess að um Felix I sé að ræða.“ Leitað að báti Við bátasöfiiunina hafa tilviljan- irnar spilað stórt hlutverk. „Eitt sinn bilaði bíllinn minn og ég fékk lánaðan gamlan Skoda hjá sveitar- stjóranum. Það var ansi kalt á leið- inni suður og gangtruflanir í bíln- um, og greinilega ónýtur vatnslás. Ég fór í Heklu daginn eftir að kaupa vatnslás og hitti þar fýrir til- viljun Kjartan Ólafsson tónlistar- kennara. Hann segir mér að í Fremri-Langey séu þrír bátar sem ég verði að skoða. Og það stendur heima að þetta eru stórmerkilegir gripir. Eins hafði ég lengi leitað að báti sem Aðalsteinn Ólafsson, faðir Aðalsteins Aðalsteinssonar smíðaði. Ég hélt ég vissi hvað hefði orðið um hann, en hann fór út í Skarðsstöð í viðgerð og fannst aldrei eftir það. Ég leitaði og leitaði og trúði alltaf að ég myndi finna hann. Hingað kemur svo maður sem vann við slátt og bendir mér á þrjá báta á Ballará. Ég þekkti bátinn þar undir eins en hann hafði verið mun lengur í notk- Vertu kátur Valdi minn, víst þig gæfan stySur. BráSum verSur böggullinn bóndi og skipasmiSur. Heilladrjúgt reiðlkast Árið 1971 fór Aðalsteinn í bygg- ingarvinnu við Búðardal. Það sem átti að verða tímabundið varð að 20 Aðalsteinn t bátasafninu. Fjœr má sjá bátinn sem gengur undir najninu Friðþjófur og er sagður smíðaSur 1910-1S. Hann vill meina að þetta sé Felixl og smíðaður árið 1840 í Bjamarhöfh.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.