Skessuhorn


Skessuhorn - 27.09.2006, Qupperneq 15

Skessuhorn - 27.09.2006, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 15 aát»um/L: Nýtt sldpulag hafiiaraðstöðu í Brákarey Deiliskipulagstillaga að hafraraðstöðu við Brákarey gerir ráðjýrir nýjum sjóvamargarði og að um leið skapist ágtet hajharaðstaða Jýrir snuerri báta, en eins ogfram hefur komið í Skessuhomi hefur aðstaða fýrir þá verið sérlega hágborin undanfarin ár. Myndin sýnir þó hinn enda eyjunnar og brúna yfir Brákarsund en þar hafa smábátar legið við ankeri vegna skorts á aðstöðu. Síðastliðinn fimmtudag hélt Borgarbyggð kynningarfund í Hót- el Borgarnesi þar sem tillögur að væntanlegu deiliskipulagi hafnar- svæðis í Brákarey í Borgarnesi voru kynntar almenningi. Um 70 manns mættu á fundinn, en slík mæting verður að teljast sérlega góð á sam- bærilegum fundum jaínvel í fjöl- mennari sveitarfélögum. Arkitekt- arnir Richard Briem og Reynir Ámason héldu framsögu auk Sig- urðar Skarphéðinssonar frá Orku- veitu Reykjavíkur og Vignis Al- bertssonar frá Faxaflóahöfrium. I tillögunni er gert ráð fyrir að gerður verði nýr varnargarður vest- antil á eyjunni og þannig sköpuð ný hafnaraðstaða fyrir smábáta. Þá er í tillögunum gert ráð fyrir hreinsi- stöð fyrir fráveitu á vegum Orku- veitu Reykjavíkur á svæðinu. Að sögn Páls S Brynjarssonar, sveitar- stjóra voru undirtektir fundar- manna við tillögunni það jákvæðar að hann gerði ráð fyrir að hún yrði fljótlega sett í auglýsingaferli. „Aður hafði skipulags- og bygging- amefnd samþykkt þessa tillögu og stjóm Faxaflóahafiia fyrir sitt leiti. Því er í raun ekkert að vandbúnaði að setja tillöguna í auglýsingaferli þannig að ffamkvæmdir geti hafist sem fyrst,“ sagði Páll í samtali við Skessuhorn. Björn Bjarki Þorsteinsson, forseti sveitarstjórnar segir aðspurður, varðandi önnur svæði í Brákarey sem ekki er tekið á í þessu deiliskipulagi nýs haínarsvæðis, hafi menn rætt um að fá nokkrar arki- tektastofur í hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag eyjunnar. Mönnum sé það ljóst að Brákarey er perla frá náttúmnnar hendi sem nauðsynlegt sé að sátt skapist um hvernig best verður nýtt í ffamtíð- inni. A eyjunni em nokkur mann- virki sem sum hver era í eigu sveit- arfélagsins en önnur sem einkaaðil- ar eiga og nýta og vonandi takist mönnum að finna framtíðarlausnir sem allir geti sætt sig við. „Við höf- um á undanförnum áram fengið á íbúafundum hugmyndir íbúa um hvernig þeir sjá framtíð eyjunnar best borgið. Það væri æskilegt að koma þeirri vinnu lengra á veg og þá með því að fara t.d. í óformlega hugmyndasamkeppni meðal arki- tekta til að kalla ffam góðar hug- myndir og útfærslur,“ sagði Bjöm Bjarki í samtali við Skessuhorn. MM Mikil óánægja með stjómun og stjómunarhætti á Bifröst Nýstofnað starfsmannafélag Há- skólans á Bifföst hefur óskað effir fundi með háskólastjóm þar sem stjómun skólans og stjórnskipulag verði rætt. Félagið gerir athuga- semdir við ýmsar breytingar sem gerðar hafa verið á skiptdagi skólans að undanförnu og einnig stjómun- arhætti skólans. Formaður félagsins segir framhald málsins ráðast af við- brögðum stjómarinnar. Eins og fram hefur komið í ffétt- um Skessuhoms hafa ýmsar breyt- ingar verið gerðar á stjórnskipulagi Háskólans á Bifföst að undanfömu og vora fyrir skömmu stofhaðar fjórar nýjar stöður sviðsstjóra á sama tíma og tvær stöður ffamkvæmda- stjóra vora lagðar niður. Þá ákvað stjóm skólans á dögunum að breyta samþykktum skólans um ráðningar- ferli og ráðningartíma rektors skól- ans. Jafnffamt var ákveðið að ffam- lengja ráðningarsamning Runólfs Agústssonar rektors um eitt ár en samkvæmt fyrri samþykktum hefði hann átt að láta af starfi 1. ágúst 2007. Miklar hræringar hafa orðið í mannahaldi á Bifföst undanfamar vikur og meðal annars má nefna að Bemhard Þór Bernhardsson lét af störfum sem deildarforseti við- skiptadeildar en þeirri stöðu hafði hann gegnt í rúmt ár. Við hans starfi tók Magnús Ami Magnússon að- stoðarrektor. Hann sagði starfi sínu lausu nokkram dögum síðar. Sam- kvæmt heimildum Skessuhorns er mikil óánægja meðal starfsmanna á Bifföst með ýmsar áðurnefndar breytingar og einnig hefur á undan- fömum mánuðum farið vaxandi óá- nægja með stjómunarhætti á Bifföst. Fyrir skömmu var stofhað starfs- mannafélag Háskólans á Bifföst og var Hólmffíður Sveinsdóttir kjörin formaður þess. A fjölmennum fundi félagsins í síðustu viku var samþykkt ályktun með þorra greiddra atkvæða þar sem óskað er effir fundi með há- skólastjóm um stjórnun og stjóm- unarhætti skólans. Hólmfríður vildi í samtali við Skessuhom ekki tjá sig efhislega tun ályktun fundarins en staðfesti að í henni væri farið ffam á við háskólastjóm að hún taki til greina ákveðnar athugasemdir sem ræddar hafa verið á fundum starfs- manna og lúta að stjómunarháttum skólans. Hún segir ffamhald málsins því ráðast af viðbrögðum háskóla- stjómar. Ekki náðist í Guðjón Auðunsson formann háskólastjórnar þar sem hann er erlendis. Banjarbyygð Tillaga að breytingu á aóalskinulagi Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 1997-2017, færsla þjóðvegar 54 við Engjaás í Borgarnesi. Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingum á aðalskipulagi Borgarbyggðar 1997-2017 samkvæmt 2.mgr.l7gr. skipulags og byggingarlaga nr.73/1997. í breytingartillögunni felst að Snæfellsnesvegur (nr. 54) frá hringtorgi á Hringveginum ogað mörkum þéttbýlisuppdráttar aðalskipulagsins erfærður. Eldra vegstæði verður að hluta fellt niður. Vegna færslunnar breytist lögun ogstærð landnotkunarreita á svæðinu þannig að athafnasvæði stækkar og aðlagast nýju vegstæði og reitur fyrir blandaða landnotkun athafnasvæðis- og verslunar- og þjónustusvæðis minnkar lítillega og aðlagast vegstæðinu. Breyting á aðalskipulagi verður til sýnis á skrifstofu Borgarbyggðar frá 27. september 2006 til 25. október 2006. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 9. nóvember 2006. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tiltekin frest telst samþykkur henni. Borgarnesi 21.09.2006 - Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar OEndurmenntunardeiid Lbhí kynnir: íslenska dreifbýlið: —Öðruvísi menningarsaga Námskeið haldið i samstarfí við Reykjavikur Akademiuna Kennsla: Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur Tími: 12., 19. og 26. október (3x), kl. 19:30-22:00 á Hvanneyri Nánari upplýsingar og skráning á netfangið endurmenntun@lbhi.is eða í gegnum síma 433-5033. Landbúnaðarháskóli íslands -www.lbhi.is V________________________________________J Afmælishátíð Grundaskóla Grundaskóli fagnar 25 ára afmæli föstudaginn 6. október og af því tilefni mun verða mikið um dýrðir í skólanum þá viku. Opið hús verður þhðjudaginn 3. okt. hjá 1.-6. bekk og miðvikudaginn 4. okt hjá 7.-10. bekk. r Fimmtudaginn 5. október er karnival dagur en þá verður sameiginleg skemmtun jyrír allan skótann frá klukkan 9-12. Verður þáýmistegt sér tit gamans gert á skótatóðinni, skrúðganga, söngur og teikir. Afmælishátíðinni lýkur síðan með afmæíisveistu fyrir starfsfólk og boðsgesti föstudaginn 6. október. Allir velkomnir að koma og samfagna með okkur í leik og starfi. Framköllun á stafrænum myndurn 1-100 101-200 201-300 301-500 501 ofl. 40 kr. stk. 35 kr. stk. 30 kr. stk. 25 kr. stk. 20 kr. stk. FRAMKÖLLUNARÞJÓNUSTAN EHF. BRÚAKTQRG! - 310 BQRGARNESI - S. 437-1055 www.framkollunarthjonustan.is fratnkollun@sifnnet.is Móttökustaðir Akranes. Model. H Dram Granc Hellissandur Hradbud Esso Hólmavík Kaupfélagið Hvammstangi Verslunin Hlin ölafevik Söluskáli OK Stykkishólmur Heimahomió.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.