Skessuhorn - 27.09.2006, Side 22
22
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006
ssassiniQEM
Guðjón Bachman afhendir mixerinn fyrir hönd Rafta og Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir
formaíur húsráðs tekur ánægð við.
Vetrarstarf ungmenna
hefst í Borgamesi
Á haustdögum hittust ungmenni
í ungmennahúsinu Mími í Borgar-
nesi og kusu stjórn, eða ungmenna-
ráð, næsta starfsárs, sem hefúr það
hlutverk að leiða innra starfið.
Fjölmörg ungmenni á aldrinum 16
-25 ára mættu, en dagskrá hófst
með grillveislu í boði Borgarness
kjötvara. Formaður var kosin Sig-
ríður Dóra Sigurgeirsdóttir og aðr-
ir í stjórn með henni voru kosin
Svanberg Rúnarsson, Arnar Þor-
steinsson og Gunnhildur Lind
Hansdóttir. I skemmtinefnd gáfu
kost á sér þeir Ingi Björn Róberts-
son og Halldór Gunnarsson. Frá-
farandi stjórn voru þökkuð góð
störf.
Fram kom á fundinum að Guð-
mundur Skúli Halldórsson og Sig-
ríður Dóra Sigurgeirsóttir höfðu
setið fund NUF, Landsamtaka
ungmennahúsa á Norðurlöndum,
sem í eiga sæti fulltrúar frá Islandi,
Finnlandi, Danmörku og Svíþjóð,
fyrir Islands hönd í Helsingi í
Finnlandi í síðustu viku og var
Skúli þar kjörinn forseti NUF.
Vélhjólaklúbburinn Raftar, sem
fær að nota ungmennahúsið á
fundum sínum, mætti á svæðið.
Ástæðan var sú að þeir vildu launa
gott samstarf og styðja í verki við
starf ungmennahússins með ein-
hvejum hætti. I því skyni gáfu þeir
forláta hljóðmixer þannig að tón-
listarflutningur í húsinu ætti ekki
að vera vandamál í framtíðinni.
Með í för var trúbadot sem vígði
nýja mixerinn við góðar undirtekt-
ir. Þetta kvöld var opið nokkuð
lengur en vanalega og horft á úr-
slitaþátt í Supernova söngvara-
keppninni og tókst þessi Magna-
vaka vel og stemning var góð, þótt
einhverjir væru syfjaðir í Fjöl-
brautaskólanum eða vinnunni dag-
inn eftir. -KOP
Hjónin Gróa Dal og Bjöm
A Einarsson búa og starfa í
Búðardal. Auk starfa sinna
við umönnun aldraðra og
Mjólkursamlagið, sinna
þau hjónin fréttaritun í
héraðinu m.a. fyrir
Skessuhom. Hann tekur
myndir og hún skrifar.
Gróa og Bjöm eru gestir
Skráargatsins að þessu
sinni - í fyrsta skipti sem
hjón eru leidd saman á
þeim vettvangi. Látum sjá hversu samstíga þau eru:
Fullt nafn: Gróa Linddís Dal Haraldsdóttir og Björn Anton Einarsson
Starf: Sjúkarliði á Silfirtúni og klínikdama hjá Erling Valdimarssyni tann-
lækni. Viðhalds- og viðgerðarmaður í MS Búðardal
Fceðingardagur og ár: (G)3. des. 1964 - (B) 30jan 1964.
Fjölskylduhagir: Gift og eigum 3 böm. 16, 18 og 22 ára.
Hvemig bíll? (G) Citroen c4 árg. 2005, - (B) breyttur Ford Aerostar árg
1991.
Uppáhalds matur? Lambakjöt í allri mynd.
Uppáhalds drykkur? Vatn og tsl. Brennivín, í þessari röð.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Fréttir, góðar heimilda/dýralífsmyndir og mót-
orsport.
Uppáhalds sjónvarpsmaður? David Attenborough.
Uppáhalds innlendur leikari? Siggi Sigmjóns, ótrúlegt togleðurstríni.
Uppáhalds erlendur leikari? Kevin Bacon
Besta bíómyndin? (G) Jesus Christ Superstar - (B) Enemy mine.
Uppáhalds íþróttamaður? Jón Páll var ótrúlegt mikilmenni.
Uppáhalds íþróttafélag? (G) Ólafiir Pái - (B) Snæfell
Uppáhalds stjómmálamaður? Litlir kassar og allir eins..
Uppáhalds innlendur tónlistarmaður? Sverrir Stormsker.
Uppáhalds erlendur tónlistarmaður? Kim Larsen og Meatloafi
Uppáhalds rithöfundur? (G) Elínborg Lárusdóttir - (B) Guðmundur G.
Hagalín.
Ertufylgjandi eða andvíg ríkisstjóminni? Fylgjandi
Hvað meturðu mest ífari annarra? Heiðarleika og lífsgleði.
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra? Óheiðarleika og svart-
sýni.
Hver er þinn helsti kostur? (G) Bjartsýni. - (B) Fjölbr. áhugamál.
Hver erþinn helsti ókostur? (G) Fljótfæmi ogstjómsemi ermérsagt. - (B)
Of mörg áhugamál.
Eitthvað að lokum? Það erjrábært að búa í Dölum, borðið meiri ost;)
Snæfell stefnir hátt í körfunni
Daði Heiðar Sigurþórsson, for-
maður körfuknattleiksdeildar
Snæfells segir mikla bjartsýni
ríkja í Hólminum fyrir komandi
leiktíð. Liðið byggir að mestu leyti
á leikmönnum sem spilað hafa
saman um nokkurra ára skeið og
nokkrir fyrrum leikmenn liðsins
snúa aftur. Þeir þrír eriendu leik-
menn sem léku með liðinu í fyrra
eru allir hættir, sem og Lýður
Vignisson fyrirliði. Hann var mikið
meiddur á síðasta tímabili og er
nú kominn í nám í akademíunni í
Keflavík, en mun ekki leika neitt í
ár.
Einn Bandaríkjamaður mun
leika með liðinu í vetur, Justin
Shouse. Þeir Hlynur Bæringsson
og Sigurður Þorvaldsson, ganga
aftur til liðs við Snæfell frá hol-
lenska liðinu Woonaris og
Hólmarinn Daníel Ali Kazmi er
kominn aftur heim eftir nám í
Bandaríkjunum. Þá er Guðni Val-
entínusson kominn til liðsins frá
Fjölni.
Daði segir að einnig sé mikið
um unga leikmenn sem alist hafi
upp hjá félaginu.
Aðspurður segist hann búast
við því að Snæfell verði í toppbar-
áttunni í ár ásamt fleiri liðum.
„Það er erfitt að líta framhjá liðum
eins og Njarðvík og Keflavík, við
verðum líklega að berjast við þau.
Skallagrímur var spútniklið í fyrra
en það er erfitt að segja til um
hvernig þetta verður fyrr en deild-
in er farin af stað og maður hefur
séð liðin spila. Eins gætu Haukar
komið á óvart og ÍR hefur burði til
að koma sér í fremstu röð á
næstu árum með frábærum þjálf-
ara.“
Þjálfarinn sem Daði vísar til er
Bárður Eyþórsson sem þjálfaði
Snæfell til margra ára en yfirgaf
herbúðir liðsins í vor. í stað hans
er kominn Bandaríkjamaður,
Geoff Kotila að nafni, sem þjálfað
hefur í Danmörku undanfarin tíu
ár. Daði er ánægöur með nýja
þjálfarann og segir að ekki nema
það besta hafi dugað til að fylla
það skarð sem Bárður skyldi eftir
sig. „Hann er að gera ofboðslega
fína hluti. Það er hvalreki fyrir
okkur og íslenskan körfubolta að
fá hann hingað. Það er ekki mikið
af alvöruþjálfurum sem koma inn í
deildina, þetta eru oftar en ekki
fyrrverandi leikmenn en ekki
menn sem hafa stúderað þessi
fræði út í eitt. Með honum kemur
ferskt blóð inn í íslenskan
körfuknattleik," segir Daði að lok-
um.
KÓP
Fyrstu leikir í körfunni
Vesturlandsliðin munu leika fyrstu leiki sína í körfunni nú í vikunni í Powerade-bikarkeppninni. Snæfell
mætir Tindastóli á fimmtudaginn klukkan 19:15 í Stykkishólmi. Vinni liðið sigur í þeim leikur liðið við Kefla-
vík á sunnudaginn. Skallagrímur leikur á sunnudaginn við sigurvegarana úr viðureign ÍR og Hauka. Leik-
urinn fer fram í Borgarnesi og hefst klukkan 19:15. Snæfell og Skallagrímur mættust í síðustu viku í æf-
ingarleik í Borgarnesi og hafði Skallagrímur þá betur 79-78. Deildarkeppnin hefst þann 19. október.
-KÓP
Leiktíðin leggst
vei í þjálfara Skallagríms
Valur Ingimundarson
Með haustinu fer íþróttalíf að
færast inn fyrir hússins dyr og
einn af venjubundnum haust-
boðum er körfuboltinn. Fyrsta
umferð keppnistímabilsins verð-
ur leikin þann 19. október og
Skessuhorn fannst tilhlýðilegt að
heyra í forsvarsmönnum vest-
lensku félagana af því tilefni og
hóf leikinn á að slá á þráðinn til
Vals Ingimundarssonar, þjálfara
Skallagríms.
Valur segir að komandi leiktið
leggist ansi vel í sig. Hann segir
liðið ekki hafa sett sér nein sér-
stök markmið um sæti en stefn-
an sé alltaf sú að gera betur í
dag en í gær. Hann á von á því
að Suðurnesjaliðin verði sterk nú
sem endranær og nefnir einnig
KR og Snæfell til sögunnar. „Svo
verða einhver spútniklið og von-
andi verðum við eitt þeirra."
Nokkrar mannabreytingar hafa
orðið á liði Skallagríms frá síð-
ustu leiktíð eins og gengur og
gerist. Þeir Hörður Unnsteins-
son, Heiðar Lind Hansson og
Adolf Kárason, allt ungir og efni-
legir leikmenn, eru farnir frá lið-
inu, en þeir fóru allir suður til
náms. í hópinn hafa hins vegar
bæst nokkrir leikmenn. Her-
mann Daði Hermannsson kemur
frá Þór á Akureyri. Hann er flutt-
ur í Reykholtsdal en kona hans
mun vera þaðan. Þá gengur KR-
ingurinn Sveinn Blöndal til liðs
við Skallagrím, en hann er nemi á
Bifröst. Darryl Flake, Bandaríkja-
maður sem leikið hefur með KR
og Fjölni, bætist einnig í hópinn.
KÓP
Torfærumótorhjóla-
keppni á Langasandi
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt beiðni Vélhjólaíþrótta-
klúbbs Reykjavíkur, VÍK, um leyfi
til að halda þolaksturskeppni vél-
hjóla á torfærumótorhjólum á
Langasandi á Akranesi þann 21.
október. Þá var einnig samþykkt
að veita undanþágu á hámarks-
hraða á keppnisleiðinni sem mun
liggja skammt frá Dvalarheimilinu
Höfða og út á sandinn en þrautir
munu verða settar upp fyrir kepp-
endur á sandinum. Keppnin er
æfingakeppni til styrktar VÍK og
einnig mun hluti af innkomu
mótsins renna til nýstofnaðs Vél-
íþróttaklúbbs Akraness.
SO
Fjórir
Skaga-
menn í
landsliðs-
hóp U17
Lúkas Kostic, landsliðsþjálfari
landsliðs karla undir 17 ára aldri,
hefur valið fjóra Skagamenn í
landsliðið sem tekur þátt í und-
ankeppni EM í Rúmeníu 25.-30.
september. Skagamennirnir eru
Trausti Sigurbjörnsson, Björn
Bergmann Sigurðsson og Ragnar
Þór Gunnarsson leikmenn ÍA og
Björn Jónsson leikmaður Heren-
veen. Liðið leikur þrjá landsleiki í
ferðinni.
HJ
a&íwiiUMMLVesturlands www.skessuhorn.is
•• DJ ww ww ww mmm
Skessuhorn stjómsýsian Fynrtapki r^ðmista ugiýs' Fefóaþjém ista
Forsiða Fréttir Tenglar Myndir Fynrtae.kið Smáa ngar Á dófsnr t Askríft Gestabók Aðsendar gr<
Á Skessuhorasvefnum fínnurðu daglegar fréttir af Vesturlandi, innsendar greinar,
smáauglýsingar, viðburðadagskrá og margt fleira.
Kíktu núna!