Skessuhorn


Skessuhorn - 27.09.2006, Qupperneq 23

Skessuhorn - 27.09.2006, Qupperneq 23
 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 23 „Getum framleitt góða leikmenn á færibandi,“ segja þjálfarar ÍA Bjarni Guðjónsson var valinn besti leikmaður meistaraflokks ÍA ársins 2006. Þetta var tilkynnt á fjölmennri uppskeruhátíð Knatt- spyrnufélags ÍA sem haldin var í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka á laugardaginn. Það eru leik- menn liðsins sem standa fyrir valinu. Heimir Ein- arsson var jafnframt val- inn efnilegasti I eik m að u r liðsins. Annar þjálfara liðsins, Arnar B. Gunnlaugsson, var val- inn leikmaður KB banka. Það eru fulltrúar bankans sem velja leik- mann sem þeir telja að hafi skar- að framúr. Stuðningsmannafélag ÍA, Skagamörkin, völdu Árna Thor Bjarni Guðjóns- Heimir Einarsson. Guðmunds- son sem þann leikmann sem skarað hefði mest framúr á árinu og þá var Hafþór Ægir Vil- hjál msson valinn besti vængmaðurinn. Heimir Einarsson var valinn besti leikmaður 2. flokks og Björn Bergmann Sigurðsson var valinn efnilegasti leikmaður flokksins. Þá fékk ísleifur Örn Guðmunds- son Kidda-bikarinnar sem er af- hentur til minningar um Kristján Óskar Sigurðsson einn efnileg- asta leikmann ÍA. Hann lést langt fyrir aldur fram árið 1999. Fjöl- skylda Kristjáns og þjálfarar 2. flokks velur þann leikmann er hreppir bikarinn hverju sinni. HJ Lið Víkings. í tilefni þess að nú er fótboltinn kominn í vetrarfrí gerir Skessuhorn sumarið upp. Víkingur í Ólafsvík hélt sæti sínu í fyrstu deild eftir harðvítuga baráttu og lauk keppni í sjöunda sæti með 19 stig. Liðið vann fjóra leiki, gerði sjö jafntefli og tapaði sjö leikjum. Heimavellurinn nýttist liðinu ekki mjög vel, einn af fjórum sigurleikjum var spilaður þar, fjögur af sjö jafnteflum, en liðið tapaði fjórum leikjum á heimavelli. Víkingur skoraði 16 mörk og fékk á sig 22. Jónas Gestur Jónasson, formaður knattspyrnudeildar Víkings, sagði í samtali við Fyrsta golfmótið leikið á 18 holu Hamarsvelli Skessuhorn að sumarið hefði í það minnsta endað vel. Liðið hafi spilað ágætis fótbolta í sumar, þó einn eða tveir leikir hafi verið slappir. „Það féll hins vegar ekkert með okkur. í síðustu fimm leikjunum féll allt í einu allt með okkur, við unnum leiki og settum inn mörk á síðustu mínútum. Við gerðum hins vegar allt of mörg jafntefli þó það hafi verið ansi mikilvægt í lokin,“ en Víkingur gerði jafntefli við Hauka í lokaumferðinni og tryggði þannig veru sína í deildinni. Jónas segir menn mjög sátta við það að liðið hafi haldið sér uppi í fyrstu deild. Annað árið í deildinni væri oft erfitt og liðið hefði farið upp um tvær deildir á tveimur árum. Nú væri Víkingur búinn að festa sig í sessi sem fyrstu deildar lið. „Það hve mörg lið gátu fallið, bæði úr fyrstu deild og úrvalsdeild, sýnir okkur bara hvað íslenskur fótbolti er að verða jafn.“ Jónas segir menn þegar farna að huga að næstu leiktíð og byrjað sé að vinna í leikmannamálum. Þjálfari liðsins, Ejub Purisevic, á tvö ár eftir af samningi sínum en hann þjálfar einnig yngri flokkana. Tíðinda er að vænta í málefnum yngri flokka á Snæfellsnesi. Til stendur að sameina alla yngri flokka félaganna Víkings, Reynis, Grundarfjarðar og Stykkishólms í eitt félag. Ekki er búið að ákveða nafn á liðið, en vinnuheitið er Snæfellsnes. „Þessi vinna er komin ansi langt og þetta fer líklega í gang núna í október. Við erum að byggja upp fyrir framtíðina og það munu allir græða á þessu,“ segir Jónas að lokum. -KÓP Nú er knattspyrnuvertíðin að baki og ekki úr vegi að gera sum- arið upp. ÍA endaði í sjötta sæti deildarinnar með 22 stig, 14 stig- um á eftir FH sem varð íslands- meistari. Liðið vann sex leiki, gerði fjögur jafntefli og tapaði átta leikjum, skoraði 27 mörk en fékk á sig 30. Fjóra af sex sigur- leikjum spilaði liðið á heimavelli, þrjú af fjögur jafnteflum komu á útivelli og tapleikirnir spiluðust fjórir á útivelli og fjórir á heima- velli. Bjarki og Arnar Gunnlaugs- synir tóku við liðinu af Ólafi Þórð- arsyni þann 30. júní. Þá hafði lið- ið spilað níu leiki, unnið tvo en tapað sjö. Undir stjórn þeirra bræðra hefur liðið unnið fjóra leiki, gert fjögur jafntefli, tapað tveimur leikjum og nælt sér í 16 af þeim 22 stigum sem liðið hlaut. í lok leiktíðar voru Arnar og Bjarki valdir þriðju bestu þjálfarar deild- arinnar af sjónvarpsstöðinni Sýn, á eftir Teiti Þórðarsyni Kr, og Ólafi Jóhannessyni FH sem var í efsta sæti. Bjarki Gunnlaugsson sagði í samtali við Skessuhorn að hann gæti ekki verið annað en ánægð- ur með niðurstöðuna úr því sem komið hefði verið. Hann segir þó að það hafi verið hálfskrýtið að fagna sjötta sætinu, persónulega hafi hann verið hálffúll. „Maður er með svo mikið keppnisskap og vill ekki vera annarsstaðar en á toppnum. Þegar farið er yfir þessa leiki sem við spiluðum, vantar ekki mikið upp á að við hefðum getað endað í Intertoto sæti. Við missum t.d. leikina við Fylki og Breiðablik niður í jafntefli Það þýðir hins vegar ekki að velta sér upp úr því.“ Bjarki segist vera mjög ánægð- ur með það hvernig þessi árang- ur náðist. „Stórir klúbbar eins og ÍA verða að spila skemmtilegan fótbolta, fólk vill horfa á þannig bolta, sérstaklega þegar það eru góðir menn í liðinu. Það verður að vera fjör á leikjunum." Þegar hann er inntur eftir því hvað hafi staðið upp úr í sumar nefnir hann leikinn við KR í Frostaskjóli sem ÍA vann eftir að hafa komist und- ir í tvígang. „Það var ákveðinn vendipunktur fyrir okkur. Við fundum kerfi sem hentaði okkur og sýndum hvað við vorum með gott lið.“ Mikið hefur verið rætt og ritað um þjálfaramál félagsins. Bjarki segir að þeir bræður geri ráð fyrir Sumarið endaði vei hjá Víkingi Fyrsta mótið á 18 holu golfvelli á Hamri við Borgarnes, fór fram sl. laugardag. Mótið nefnist „Undir Hamrinum," og er spilaður högg- leikur með og án forgafar. Þátttak- endur voru um 40 í einu fallegasta haustveðri sem hugsast getur. Það var Ómar Örn Ragnarsson sem sigraði án forgjafar en Hilmar Þór Hákonarson með forgjöf. Önnur úrslit urðu þessi: Úrslit án forgjafar: 1. Ómar Örn Ragnarsson, 75 högg 2. Bjarki Pétursson, 81 högg 3. Ingvi Árnason, 82 högg Úrslit með forgjöf: 1. Hilmar Þór Hákonarson, 63 högg 2. Ásdís Helgadóttir, 64 högg 3. Hans Egilsson, 66 högg Einnig fór fram á sama móti Þjálfarabræðurnir Arnar og Bjarki Gunniaugssynir. því að Guðjón Þórðarson taki við liðinu. Þeir sjálfir hafi verið skráð- ir á þjálfaranámskeið nú um helg- ina en muni hvorugur mæta á það þar sem þeir reikni ekki með að vera með liðið áfram. Spurður að þvi hvort þeir séu ósáttir við þá þróun mála segir Bjarki: „Það er réttur nýrra manna sem koma inn í stjórn að velja sér þá menn sem þeir vilja vinna með, það er ekkert persónulegt." Bjarki segist ekki eiga von á þeir bræður spili fyrir ÍA á næsta ári og ekki sé í spilunum að taka við þjálfun ann- ars liðs. „Lykillinn að því að við gátum spilað svona í sumar var að við fundum loksins þjálfara sem skildu okkur og hvernig skrokkurinn á okkur er. Það þarf að vera mjög skilningsríkur þjálf- ari til að við getum spilað." Bjarki segir framtíðina vera bjarta hjá ÍA og hann telur að lið- ið eigi að geta haldið áfram á þeirri braut að spila skemmtileg- an bolta. „Það er fullt af góðum ungum strákum að spila og koma upp. Nú er húsið að verða klárt og ef við nýtum það rétt eigum við að geta framleitt góða leik- menn á færibandi," segir Bjarki að lokum. -KÓP A myndinni er formaður vallarnefndar, Björgvin O. Bjarnasyni og félagar hans a 1. teig. sveitakeppni milli GB og Golf- klúbbs Rarik sem er vinaklúbbur GB. Töldu fjögur bestu skor hjá hvorum klúbbi. GB sigraði með nokrum yfirburðum í sveita- keppninni. MM Andri og Freyr á leið á Evrópuleika Andri Jónsson og Freyr Karls- son í íþróttafélaginu Þjóti munu taka þátt í Evrópuleikum Special Olympics sem fram fara í Róm á Ítalíu dagana 30. september - 5. október nk. Andri keppir í frjálsum íþróttum og Freyr í sundi. íþróttasam- band fatlaðra sendir 25 ís- lenska kepp- endur á leik- ana, sem munu taka þátt í fimm g r e i n u m ; boccia, fim- leikum, frjáls- um íþróttum, keilu og sundi. Leikarnir eru í fyrsta skipti fyrir ákveðinn aldurshóp en keppendur Freyr Karlsson. Andri Jónsson. verða á aldrinum 12-21 árs. Fyrirkomulag keppni á leikum Special Olympics er gjörólíkt keppni á hefðbundnum mótum og allir keppa aðeins við sína jafn- ingja. MM Bjarni sá besti og Heimir efnilegastur <« * !► í * V

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.