Skessuhorn


Skessuhorn - 31.01.2007, Qupperneq 1

Skessuhorn - 31.01.2007, Qupperneq 1
Þessir duglegu krakkar, þau Almar Geir Alfreðsson, Hekla Rdn Kjartansdóttir, Karen Eva Jónsdóttir, Katrín Lind Lúívíksdóttir og Sigur- jón Bergsteinsson, auk Róberts Leós sem ekki komst í myndatöku, heimsóttu Rauða kross húsið á Akranesi í síðustu viku með afrakstur jjár- sófnunar sem þau réðust í til styrktar Rauða krossinum. Krakkamir, sem öll eru sjö ára, söfiiuðu hvorki meira néminna en 1.905 krónum. Rauði kross Islands þakkar þeim kærlega jyrir stuðninginn. Upphœðin sem árlega sajhast í hlutaveltum bama hér á landi hleypur á hund- ruðum þúsunda króna og er notuð til að aðstoða böm sem eiga um sárt að binda víðs vegar í heiminum. Umhverfisstofiiun felst ekki á vegagerð við Grunnafjörð Meðal efnis: • Þráinn Gísla í viðtali.Bls. 14-15 • Skot- og sprengju- svæði.........Bls. 4 • Efla þjónustusvæði á Snæfellsnesi ....Bls. 2 • Hægfara gjöf og 80 punktar.......Bls. 22 • Flest slys í Norðurárdal og St.tungum ...Bls. 6 • Söfnun véla líklega landhreinsun....Bls. 6 • Vilja stækka Hyrnutorg.....Bls. 6 • Geta valið um félagsaðild..Bls. 10 • Hátísku víkingaskip..Bls. 12 • Breyttar afsláttarreglur fasteignagj..Bls. 13 • Nýskráðum ehf. fækkar.......Bls. 24 • Framboðsmál áfullt..........Bls. 2 • Aðlaga grunnskólanám menntaskóla ..Bls. 24 • Bærinn kaupir fasteignir....Bls. 4 • Hanaslagur og fleira fjör..Bls. 23 • Sigrún Birna með dans- námskeið.....Bls. 23 • Hættir milligöngu um vínleyfi...Bls. 8 • Skiptar skoðanir um skipulagsmál ..Bls. 10 • Skemmdarvargar skemma fyrir...Bls. 24 • Æskan á Vesturlandi..Bls. 22 • Melabú í umhverfismat...Bls. 2 v J IIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIlllll Árni Bragason, forstöðumaður náttúruverndar- og útivistarsviðs Umhverfisstofnunar segir stofnun- ina leggjast gegn hugmyndum um lagningu vegar um eða við Grunna- fjörð. Eins og ffam hefur komið í Skessuhorni hefur staðfesting aðal- skipulags Skilmannahrepps og Leirár- og Melahrepps, sem nú til- heyra Hvalfjarðarsveit beðið stað- festingar umhverfisráðherra síðan í fyrravor. I aðalskipulaginu er gert ráð fyrir vegagerð við Grunnafjörð sem styttir leiðina milli Akraness og Borgarness. Grunnafjörður var friðlýstur árið 1994 og er því á nátt- úruminjaskrá. Þá er svæðið eitt þriggja svæða á Islandi á skrá Rams- ar sáttmálans um endurheimt vot- lendis. Arni segir að samkvæmt friðlýs- ingunni megi ekki raska sjávarföll- um í firðinum og því geti stofhunin ekki samþykkt lagningu vegar um fjörðinn. Aðspurður hvort eitthvað sé því til fyrirstöðu að leggja brú utan friðlandsins sem ekki hefur áhrif á sjávarföll í firðinum vildi Árni ekki segja til um því slíkar hugmyndir hefðu ekki verið í um- ræðunni. Hann segir Grunnafjörð mikilvægt svæði fýrir ýmsar fugla- tegundir og nefnir í því sambandi haförn. Þá sé svæðið mjög mikil- vægt svæði fyrir rauðbrysting sem kemur þar við tvær vikur á vori og tvær vikur að hausti. Ramsar sátt- málinn leggi ákveðnar skyldur á herðar aðildarþjóðanna og við þær verði að standa. Þegar landssvæði eru ffiðlýst ber að setja upp verndaráætlun fyrir svæðið. Það hefur aldrei verið gert hvað Grunnafjörð varðar en Árni segir það rýri ekki ffiðlýsinguna sem slíka. Hann segir lidu fjár- magni varið til þessa málaflokks á landinu og því þurfi að forgangs- raða ffamkvæmdum. Ábúendur við Grunnafjörð hafi í gegnum tíðina fylgst mjög vel með svæðinu og verndað það. Því hafi engin ógn steðjað að náttúru Grunnafjarðar og gerð verndaráætiunar ekki verið talið forgangsverkefni. Gísli S. Einarsson bæjarstjóri á Akranesi, sem lengi hefur bent á nauðsyn vegagerðar við Grunna- fjörð, sagði í samtali við Skessu- horn á dögunum að núverandi lega þjóðvegarins austan við Grunna- fjörð hefði í för með sér mun meiri hættu fyrir náttúrulíf en nýr vegur utan fjarðarins. Árni segir þessi rök ekki standast skoðun. Oryggi í flutningum, t.d. olíuflutningum, sé það mikið í dag að ekki sé nokkur ástæða til þess að breyta legu þjóð- vegarins af því tilefni. Umhverfisstofhun hefur lagt að Skipulagsstofnun að hafna aðal- skipulagi Skilmannahrepps og Leirár- og Melahrepps. Einar Orn Thorlacius, sveitarstjóri hefur ósk- að effir rökstuðningi ffá Umhverf- isstofnun vegna þess. Svör hafa ekki borist. Árni segir að innan stofhrm- arinnar sé unnið að svari við fyrir- spurn sveitarstjórans og því verði lokið á næstu dögum. HJ Horftyfir hluta þess lands sem um rœðiryfir Bmgaruog og til Borgamess Vilja byggja fyrir 2-3 þúsund manns Eykt ehf. hefur sent sveitar- stjóm Borgarbyggðar beiðni um að fá keypta 50-60 hektara af landi í eigu Borgarbyggðar, vest- an Borgarvogs í Borgarnesi, til að hyggja þar fimm til sexhundruð íbúðir á næstu 10-12 ámm. Gert er ráð fyrir að byggðin gæti rúm- að tvö til þrjú þúsund manns. Ef af öllum þeim ffamkvæmdum yrði þá rúmaði slík byggð ríflega tvöföldun núverandi íbúafjölda í Borgamesi. Borgarbyggð keypti á sínum tíma 270 hektara lands af gamla höfuðbólinu Borg til að eiga sem framtíðar bygginga- land. Enn hefur ekkert orðið af byggingaffamkvæmdum á þessu svæði. Að sögn Páls S Brynjars- sonar, sveitarstjóra í Borgar- byggð felst mikil viðurkenning í þessari beiðni frá fyrirtækinu. Hún hljóti að merkja að Eykt telji að vöxtur og viðgangur sveitarfélagins verði góður á næstu árum. Engin afstaða hefur enn verið tekin til þessa erindis, en sveitar- stjórnarmenn í Borgarbyggð hafa farið og kynnt sér sambæri- legt svæði í Hveragerði þar sem Eykt bauð á sínum tíma heildar- lausn um uppbyggingu íbúða- byggðar. Eykt er meðal stærstu verk- takafyrirtækja landsins með tæp- lega 200 starfsmenn og allan búnað sem þarf til undirbúnings og ffamkvæmda við meiriháttar byggingaverkefhi sem þetta. Fyr- irtækið er alhliða verktakafyrir- tæki bæði hvað varðar nýbygg- ingar og viðhaldsverkefni. BGK

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.