Skessuhorn - 31.01.2007, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2007
§SagSSUH©EKI
Endurbætur á
Lyngbrekku
BORGARBYGGÐ: Á síðustu
dögum hafa staðið yfir nokkrar
endurbætur á félagsheimilinu
Lyngbrekku á Mýrum. Um er
að ræða lagfæringar á hita- og
rafmagnsmálum í húsinu og var
það Glitnir ehf í Borgamesi
sem vann verkið. Meðal þess
sem gert hefur verið er að sett-
ir voru nýir hitablásarar í sal-
inn, gerðar endurbætur á lýs-
ingu og rafmagnstenglar lag-
færðir. Þá hefur raf-
magnstenglmn verið bætt við á
sviðinu og lýsing þar verið auk-
in. Bygging félagsheimilisins
Lyngbrekku hófst árið 1959, en
það var vígt fullklárað árið
1967. Húsið er 433 m2 að
helmingi til í eigu Borgar-
byggðar og sinn hvor fjórð-
ungshlutinn er í eigu ung-
mennafélaganna Björns Hít-
dælakappa og Egils Skalla-
grímssonar. -jh/gj
Óhöpp án
meiðsla
BORGARFJÖRÐUR: í Borg-
amesi hefur verið talsvert verið
um umferðaróhöpp í Iiðinni
viku en þó vom engin alvarleg
slys á fólki. Okumaður sendi-
bfls, sem blindaðist af ljósum
bifreiðarinnar sem kom á móti
við Bifröst, endaði úti í skurði
og urðu talsverðar skemmdir á
bflnum. Einnig sá ökumaður á
eftir öðra framhjóli bifreiðar
sinnar við Svignaskarð, en náði
að halda biffeiðinni á veginum
og varð ekki meint af. Þá varð
bílvelta á Hvanneyri en þar
sofhaði ökumaður undir stýri.
Ekki er grunur um ölvun. Þá
varð árekstur tveggja bíla á
brúnni yfir Hítará, eins og lesa
má um á öðrum stað í blaðinu í
dag. Loks vora nokkur umferð-
arlagabrot ffamin í umdæminu.
Einn ökumaður var tekinn fyrir
ölvun við akstur. -kh
Danski kúrinn
BORGARBYGGÐ: Tíu vikna
námskeið hjá íslensku vigtar-
ráðgjöfunum í Danska kúmum
- að læra að borða sig granna/n,
hófst í gær 30. janúar í Grunn-
skólanum í Borgamesi. Síðast-
liðið haust var haldið námskeið
á Akranesi og í Borgarnesi á
vegum kúrsins og léttist hópur-
inn til samans um 300 kíló. Á
íslandi fóra 24 tonn á liðnu ári
hjá þátttakendum í kúrnum hér
á landi. Námskeiðið er fyrir
börn og fullorðna sem vilja læra
að breyta mataræðinu hjá sér.
Snæddur er allur almennur
matur og er ekki um að ræða
megrunarkúr heldur miklu
fremur breyttan lífsstfl. Nánari
upplýsingar veitir Sigrún Sól-
mundardóttir í Belgsholti í
síma 692-9381. -mm
Fíkniefhi finnast
AKRANES: Lögreglan á Akra-
nesi handtók í nótt þrjá menn
sem hún grunaði um fíkniefna-
misferli. Við leit á mönnunum
og í einni biffeið fundust tæp-
lega 6 grömm af ætluðum fíkni-
efnum. Mennirnir viðurkenndu
eigu sína á efnunum og sögðu
þau vera amfetamín. Eftir yfir-
heyrslu hjá lögreglu voru
mönnunum sleppt og telst mál-
ið upplýst.
-mm
Nýr sauðfjársamningur frágenginn
Guðni Agústsson landhúnaðarráðherra ogjóhannes
Sigfússon, formaóur Landssambands sauðfjárbœnda
undirrituðu samninginn. Ljósm. bondi.is
Rfldsstjómin og Bændasamtök ís-
lands undirrituðu sl. fimmtudag nýj-
an samning um starfsskilyrði sauð-
fjárræktarinnar. Samingurinn er
undirritaður með fyrirvara um sam-
þykki Alþingis, en hann gildir í 6 ár
ffá 1. janúar 2008 til 31. desember
2013. Markmið samningsins eru að
efla sauðfjárrækt sem atvinnugrein
og bæta afkomu sauðfjárbænda, að
stuðla að nýhðun í hópi sauðfjár-
bænda og styrkja búsetu í dreifbýli.
Þá er samningnum ætlað að stuðla
að framþróun í sauðfjárrækt, örva
markaðsvitund bænda og afurða-
stöðva og ýta undir að sauðfjárrækt
sé stunduð í samræmi við umhverf-
isvemd, landkosti og sjálfbæra land-
nýtingu.
I samningnum er meðal annars
ákvæði um að framlög ríkisins
hækka um 300 milljónir kr. og nema
þannig 3.348 millj. kr á fyrsta ári
samningsins. Framlögin
lækka síðan í áföngum á
samningstímanum um
nær 1 % á ári að raunvirði.
Samningurinn er nokkuð
einfaldaður ffá núgild-
andi samningi. Greiðslu-
leiðum til bænda er fækk-
að, jöfhunargreiðslum er
breytt í beingreiðslur auk
þess að undanþága ffá út-
flutningsskyldu er felld
niður í áföngum. Utflum-
ingsskylda fellur svo niðtu
frá og með framleiðsluárinu 2009.
Nýmæh í samningnum er sérstakt
ákvæði um veitingu fjármuna til að
efla nýhðun í stétt sauðfjárbænda.
Þá eru framlög til gæðastýrðrar
sauðfjárffamleiðslu aukin og verða
hærra hlutfah af greiðslum til bænda
af samningsfé en samkvæmt núgild-
andi samningi.
Bændur sem eru orðnir 64 ára
eiga nú kost á að gera samning um
búskaparlok án þess að tapa rétti til
beingreiðslna. Frá núgildandi samn-
ingi rfldsins við bændur er ekki
breytt greiðslum vegna ullarfram-
leiðslu og ákvæði tun aðilaskipti að
greiðslumarki eru óbreytt.
MM
Guðmundur Þorvaldsson
opnar málverkasýningu
Guðmundur Þorvaldsson hefur
opnað málverkasýningu í anddyri
Sjúkrahússins og heilsugæslustöðv-
arinnar á Akranesi. Sýningin ber
heitið „Héðan og þaðan.“ Á sýn-
ingunni eru 16 ohumálverk sem
máluð hafa verið á undanförnum
misserum. Eins og nafh sýningar-
innar ber með sér hefur listamaður-
inn sótt sér víða fanga en einkum
þó í umhverfi Akraness og ná-
grennis. Guðmundur er Skagamað-
ur og hefur stundað málaralist
mörg undanfarin ár í frístundum.
Hann er að mestu sjálfmenntaður
en stundar nú nám í kvöldskóla
Myndlistarskóla Mosfellsbæjar. HJ
Laun dagforeldra
hækka í Borgarbyggð
Ný gjaldskrá um greiðslur til
dagforeldra í Borgarbyggð hefur
verið samþykkt og tekur hún gildi
1. mars næstkomandi. Að sögn Ást-
hildar Magnúsdóttur, ffæðslustjóra
hafa niðurgreiðslur til dagforeldra
verið hækkaðar verulega, sem
hækkar laun þeirra en breytir engu
hjá þeim sem þjónustuna nýta. „Við
þurftum að taka á þessum málum,
dagmæðrum hafði fækkað verulega
í sveitarfélaginu og með þessum að-
gerðum geta laun þeirra hækkað.
Ég er afar ánægð með að sú ákvörð-
un hafi verið tekin að horfa til
þeirra sveitarfélaga sem eru að
standa sig best í þessum málum, en
efrir því sem við komust næst er
það Garðabær."
Ásthildur bætti við að mikill
skortur hefði verið á dagmæðrum í
Borgarbyggð og því sár vöntun á
þeirri þjónustu sem þær veita.
Sveitarfélagið hefði meðal annars
mætt þeim vanda með því að leyfa
að 18 mánaða börn yrðu tekin inn á
leikskólana. Með þessum aðgerð-
um er vonast til að fleiri sjái sér hag
í því að starfa á þessum vettvangi.
BGK
Fortuna hættir milligöngu um
áfengisveitingaJeyfi til IA
Veitingafyrirtækið Fortuna á Is-
landi ehf. hefur tilkynnt stjórn
Iþróttabandalags Akraness og aðild-
arfélögum þess að fyrirtækið muni
ekki hafa milligöngu um áfengisveit-
ingaleyfi vegna skemmtana á vegum
IA og aðildarfélaga þess eins og ver-
ið hefur á síðustu árum. I bréfi sem
fyrirtækið sendi IA, sýslumanninum
á Akranesi og bæjaryfirvöldum kem-
ur ff am að tilefni þessarar ákvörðun-
ar „sé sú almenna umræða og ffétta-
flutningur sem fram hefur farið síð-
ustu daga og vikur í tengsltun við
vínveitingar og vínveitingaleyfi inn-
an veggja íþróttahúsa Akraneskaup-
staðar eða annarra bygginga sem
tengjast íþrótta- og æskulýðsstarfi,"
segir orðrétt í bréfinu.
Fram kemur að fyrirtækið hafi
komið að mörgum þeim skemmtun-
mn sem IA og aðildarfélög þess hafa
staðið fyrir síðustu ár. I þeim tilfell-
um sem vínveitingar hafa verið við-
hafðar hafi fyrirtækið sótt um vín-
veitingaleyfi í eigin nafni án þess að
koma að skipulagningu eða efttirliti
með vínsölunni né haff af henni
beinan hag. Með milligöngunni hafi
fyrirtækið talið sig vera að leggja
starfsemi íþróttafélaganna hð og um
leið að auðvelda skemmtanahald á
þeirra vegum.
Þegar stuðningsmannafélag IA
óskaði aðstoðar við áramótadansleik
í íþróttahúsinu við Vesturgötu hafi
forráðamenn Fortuna kynnt sér ítar-
lega þær skyldur sem þeim væru
lagðar á herðar sem vínveitingaleyf-
ishafa og einnig leitað álits löglærðra
manna í því sambandi. Ljóst sé að
samkvæmt lögunum sé fyrirtækið að
taka á sig mikla ábyrgð, sem í sum-
um tilfellum sé ásættanleg út frá
hagsmtmum þess en í öðrum tilfell-
um ekki. Fari eitthvað úrskeiðis í
slíku skemmtanahaldi eða sölu vín-
veitinga eigi fyrirtækið það á hættu
að víhveitingaleyfi til eigin rekstrar
skerðist og fyrirtækið bíði um leið
álitshnekki.
Eins og ffam hefur komið í ffétt-
um Skessuhoms samþykkti bæjarráð
Akraness að vínveitingar yrðu á áð-
umefndum áramótadansleik. Þegar
máhð kom til formlegrar afgreiðslu
bæjarstjórnar eftir áramót felldi
meirihluti meirihluta bæjarstjómar
ákvörðun bæjarráðs. Eigendur Fort-
vma á Islandi ehf. segja í bréfi sínu að
veruleg almenn og pólitísk andstaða
sé gegn áfengisveitingum innan
veggja bygginga þar sem íþrótta- og
æskulýðsstarfsemi fer ffam og sú
umræða sem fram hefur farið að
undanfömu, þar sem nafh Fortuna
hafi verið dregið ffam, geti skaðað
ímynd fyrirtækisins og hagsmuni
þess. HJ
Þjófamir teknir
í bólinu
SVÍNADALUR: Fjórir inn-
brotsþjófar voru bókstaflega
teknir í bólinu í sumarbústað
við Eyrarvatn í Svínadal á mið-
vikudag í liðinni viku. Komið
var að þeim sofandi í bústaðn-
um sem þeir höfðu brotist inn í
og voru þeir með nokkuð af
þýfi og fikniefhum í fórum sín-
um er þeir voru handteknir. Að
sögn lögreglunnar í Borgamesi
var athugull lögreglumaður frá
Selfossi, sem var á frívakt og
staddur í sumarbústaðahverfi
við Eyrarvatn, sem uppgötvaði
að brotist hefði verið inn í bú-
stað í hverfinu og að lfldega
væru þjófarnir enn þar innan-
dyra. Hann hafði strax samband
við kollega sína og sendir voru
lögreglubflar frá Akranesi og
Borgarnesi á vettvang. „Þama
var skjótt og hárrétt brugðist
við,“ segir Theodór Þórðarson,
yfirlögregluþjónn í Borgarnesi.
Fólkið sem var handtekið er á
aldrinum 18 til 32 ára og er
grunað um að hafa verið á ferð-
inni á þessum slóðum áður og
einnig í Árnessýslu. -mm
Starfefólk fær
nýjar tölvur
HVALFJARÐARSV: Síðast-
liðinn föstudag var starfsfólki
Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit
afhentar samtals 15 nýjar far-
tölvur til afriota í starfi sínu.
Það voru þeir Hlynur M. Sig-
urbjörnsson varaoddviti og for-
maður ffæðslunefndar og Hall-
freður Vilhjálmsson oddviti
sem afhentu tölvurnar tíu
kennurum og fimm leiðbein-
endum við skólann. Tölvurnar
koma frá Tölvuþjónustu Vest-
urlands á Akranesi og eru af
Compaq gerð. -mm
Hægir á loðnu-
veiðum
HB-GRANDI: Uppsjávar-
veiðisldp HB Granda hf. fara sér
hægt við loðnuveiðar þessa dag-
ana því að sögn Vilhjálms Vil-
hjálmssonar, deildarstjóra upp-
sjávarfisks fyrirtækisins vilja
menn þar á bæ spara kvótann
þar til lengra kemur ffam á ver-
tíðina meðal annars með
hrognaffystingu í huga. Þessa
dagana er haffannsóknarskipið
Árni Friðriksson við loðnuleit
og mælingar á stofiistærð henn-
ar. Hvort hægt verður að bæta
við þann 180 þúsund tonna upp-
hafskvóta í loðnuveiðunum
verður ekki ljóst fyrr en þeim
leiðangri lýkur. -hj
Skrá myndir
Jóhanns
STYKKISHÓLMUR: Ákveð-
ið hefur verið að setja púður í
skrásetningu mynda í Ljós-
myndasafni Stykkishólms. Erla
Friðriksdóttir, bæjarstjóri segir
það hafa verið ákveðið að leggja
áherslu á að ljúka skráningu á
Ijósmyndum Jóhanns Rafnsson-
ar, en þar er um að ræða alls
konar myndir af svæðinu, bæði
af fólki og öðru. Brýnt sé að
skrá niður þetta mikla safn,
nafngreina fólkið á myndunum
og þ.h., enda dýrmætar heim-
ildir fyrir bæjarfélagið sem ekki
megi glatast.
-kh