Skessuhorn


Skessuhorn - 31.01.2007, Side 12

Skessuhorn - 31.01.2007, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2007 aSESSlíHOBM Nýtískulegt vfldngaskip verður vonandi sjósett í sumar Á ferð sinni um Stykkishólm í lið- inni viku leit blaðamaður Skessu- horns við í skipasmíðastöðinni Skipavík, en þar standa yfir miklar framkvæmdir við tilkomumikla vík- ingaskútu. Eins og áður hefur kom- ið fram hér í blaðinu verður skútan nákvæm efidrlíking af einu þekktasta skipi víkingaaldar, Gauksstaðaskip- inu, en þó búin allri nýjustu tækni og aðbúnaði fyrir sldpshöfn. Sá sem stendur á bak við fram- kvæmdina er Sigurjón Jónsson, en hann ætlar sjálfur að nota skútuna og sigla um heimsins höf ásamt konu sinni. Verður svefnpláss fyrir allt að sex manns um borð, þrjár sturtur, salerni og loftkæling svo eitthvað sé nefnt, ásamt því að um borð verða öll fullkomnustu siglingatæki sem völ er á í dag. Mastrið á skútunni verður hátt í átján metra hátt, sams konar og notað er í kappsiglinga- skútur og seglið sérstakt hátæknisegl sem gerir það að verkum að skútan mun ná allt að fjórtán mílna hraða í góðum byr. Tvær öflugar vélar munu síðan knýja skútuna áffam þegar þurfa þykir. Þegar blaðamann bar að garði voru a.m.k. átta manns að störfúm við smíðina, mikill ys og þys á verkstæðinu. Skútan er nú að taka á sig endanlega mynd að utan en mikið er eftir innanborðs áður en verkinu lýkur. Stefnan tekin á Bahamaseyjar I upphafi lagði Sig- urjón ffam aðeins eina skipun til þeirra sem komu að smíðun skút- unnar, en það var að handbragðið ætti að vera fullkomið eins og við hljóðfærasmíð. Hann ráðgerir að skútan verði tilbúin í sumar og að vilji þeirra hjóna sé að sigla á skútunni til Bahama- seyja í framtíðinni. Kringum þær eyjar er sérlega mikið grunn- sævi og því heppilegt Sigurjón Jónsson í Skipavtk stýrir smíðinni. að fara um á skútu sem þessari, en hún ristir sérlega grunnt. Aðspurður um hvemig honum datt í hug að smíða sér víkingaskútu segir Sigur- jón kíminn hugmyndina hafa komið er hann var staddur í Miðjarðarhaf- inu við skútusiglingar. Þar hafi hon- um verið litdð yfir allar trefjaplasts- skútumar í höfninni og þær mirmt sig einna helst á fljótandi ffystikistur. Datt honum þá í hug að hefja smíði á fallegri víkingaskútu. Að sjálfeögðu vonast Sigurjón til að geta gert sér og fyrirtækinu ábata úr smíðuðun- um og fengið aðra til þess að panta og kaupa slíkar skúmr hjá þeim í Skipavík. KH Aðspurður segist Sigurjón um hvemig hann hajifengið hugmyndina að smíii víkingaskút- unnar, að hann hafi verið staddur í Miðjarðarhafinu við skútusiglingar. Þar hafi honum verið litiðyfir allar trefiaplastsskútumar í höfninni og þœr minnt sig einna helst á fljótandi frystikistur. Hér er nýja skútan að taka á sig endanlega mynd að utan þótt 18 metra hátt mastrið vanti enn. Konur læra frumtamningu hjá Reyni Frá vinstri er: Kolbrún Birgisdóttir, Vilhorg Smáradóttir, Björk Jakobsdóttir, ReynirAð- alsteinssan, Heiðdís Sesselja (Regzý) Guttormsdóttir, Edda Þorvaldsdóttir, Sigríður Jórns- dóttir og Birta Berg Sigurðardóttir. Um síðustu helgi stóð endur- menntunardeild Landbúnaðarhá- skóla Islands fyrir ffumtamninga- námskeiði á Mið-Fossum. Nám- skeiðið var ætlað þeim sem vilj læra að ffumtemja sín tryppi sjálfir og því komu þátttakendur með sín eig- in hross sem þeir unnu með alla helgina. Lögð var áhersla á frum- nálgun við hestinn, hvemig vinna á traust hans og þannig lagður grunnur að árangursríkri samvinnu manns og hests. Það sérstæða við hópinn sem þátt tók í námskeiðinu var að enginn karlmaður var í hópnum. Konumar vora þar alls- ráðandi, með sín eigin hross og Reyni Aðalsteinsson sem leiðbein- anda. Að loknu námskeiði var lagt á ráðin varðandi næstu skref í tamn- ingu hrossanna og því spennandi að sjá hver árangurinn verður í lok vetrar. AHB Minni og meðalstór fýrirtæki gegna þýðingarmiklu hlutverki í íslensku viðskiptalífi Landsbankinn hefur á aö skipa um 150 sérhæfðum starfsmönnum í fyrirtækjaþjónustu sem kappkosta að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og trausta fjármálaráðgjöf. Þannig er minni og meðalstórum fyrirtækjum gert kleift að dafna og ná settu marki og á sama tíma stuölum við saman að fjölbreyttu og kraftmiklu viðskiptalífi á íslandi. Landsbankinn er með vfðtækasta útibúanet á landinu. Það tryggir viðskiptavinum okkarfrábæra þjónustu og persónulega ráðgjöf sem tekur mið af þörfum hvers og eins. Hafðu samband í síma 410 4000 eða með tölvupósti á fyrirtaeki@landsbanki.is og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.