Skessuhorn - 31.01.2007, Page 19
^atssunu^
MIÐVIKUDAGUR 31. JANUAR 2007
19
Sturla Böðvarsson og
Hvalfjarðargöngin
Mikið hefur verið skrifað um
I Ivalíjarðargöngin, tilm-ð þeirra og
hagkvæmni. Tilurð þeirra er sú að
stjórnarmenn við Járnblendiverk-
smiðjuna á Grundartanga áttu hug-
myndina og leituðu samstarfs við
bæjarstjóm Akraness og síðar Vega-
gerð ríkisins og ríkisstjórn. Þetta
mannvirki, einhver mesta sam-
göngubót hér á landi er borin uppi
að langmestu leyti af Vesdendingum
og þá sérstaklega Akurnesingum,
með gjaldtöku í gegnum göngin.
Aðrar samgöngubætur em alfarið
bomar uppi af öllum landsmönnum.
Þetta misræmi á kostnaði við að nota
vegakerfi landsins er, að stómm hluta
vegna, samgönguráðherra landsins,
Sturlu Böðvarssonar, fyrsta þing-
manns kjördæmis okkar.
Eg veit að sérstök lög vom sett, í
sambandi við byggingu ganganna,
sem S.B. skýtur sér á bak við þegar á
hann er deilt varðandi gjaldið í gegn-
um göngin. Það var einnig gert, þeg-
ar fyrst var sett slitlag á milH þéttbýl-
isstaða á Islandi þ.e. frá Keflavík til
Ilafnarfjarðar. Þá var sett á veggjald,
til greiðslu á þessari framkvæmd og
var settur upp vegartálmi rétt sunnan
við Haínarfjörð til innheimm
veggjaldsins. Þetta mæltist mjög illa
fyrir og kröfðust Suðumesjamenn
þess að þessari gjaldtöku yrði hætt,
stuttu eftir að hún var tekin upp,
vegna þess að þeir bæm, að lang-
mestu leyti kostnaðinn af þessari
vegarffamkvæmd. Efdr nokkrar um-
ræður um málið, viðurkenndu
stjómvöld rök Suðumesjamanna og
felldu gjaldið niður (kannski vegna
þess að fyrsti þingmaður Suðumesja
var sjálfstæðismaðurinn Ólafur
Thors). Á Mðnum árum var annar
kostnaðarsamur áfangi gerður á
þessari sömu leið fyrst og femst að
kröfu Suðumesjamanna, þ.e. tvö-
földun Reykjanesbrautar, sem er
mikil samgöngubót fyrir alla lands-
menn, en þó ekki hvað síst fyrir
Suðurnesjamenn. Um veggjald á
þessari leið hef ég ekki heyrt getið og
gaman væri ef samgönguráðherra
gæti útskýrt hversvegna það er svo.
Hvalfjarðargöngin em hagkvæm-
asta vegaframkvæmd sem gerð hefur
verið hér á landi á síðustu áratugum.
Að láta hluta landsmanna bera allan
kostnað af henni er til skammar fyrir
núverandi
stjórnvöldum.
Það gengur
jafnvel gegn
jafnræðisreglu
stjónarskrár-
innar að skatt-
leggja hluta
landsmanna
umfram aðra.
Spamaður rík-
isins af þessari ffamkvæmd er margs
konar. Þar vil ég fyrst telja spamað
vegna styrks til reksturs Akraborgar,
sem var kominn til ára sinna og
þurfti mikillar endumýunar við, ef
ekki að kaupa nýtt skip. Annað er
spamaður við að tvöfalda brú yfir
Laxá í Kjós og viðhalds vegarins um
Ilvalfjörð og síðast en ekki síst að
slysatíðni á veginum um Iívalfjörð
hefur engin orðið, síðan göngin
komu en hefðu orðið samkvæmt
staðaltölum mn 10-12 dauðsföll á
sama táma, fyrir utan önnur slys og
tjón á farartækjum.
Samflokksmaður S.B. Guðjón
Guðmundsson kom með tillögu um
niðurfelhngu gjaldsins haustið 2003,
þar sem hann sá, eins og allir heilvita
menn, það óréttlæti sem þetta gjald
er, en S.B. greiddi atkvæði gegn
henni og felldi hana.
Einhverju sinni var ég áheyrandi á
tal tveggja manna um kostaðinn veg-
an gjaldsins. Sagði annar að það
hefði kostað sig um 200 þúsund á
síðasta ári að stunda vinnu sína í
R.vík. Hinum varð þá að orði: „Eg
held að S.B. sé einhver mesti pen-
ingaplokkari okkar Skagamanna."
Margt er það fleira sem tína mætti til
um skaðsemi þessa gjalds fyrir okkur
Skagamenn. T.d. að Sjúkrahús Akra-
ness hefur misst af þjónustu við sjúk-
linga úr R.vík vegna gjaldsins, bæði á
handlækningadeild og fæðingadeild.
Kosmaður aðstendanda upp á 2000
kr. fyrir hálftíma aksmr í heimsókn
til sjúklings er gjald sem fólk sættir
sig ekki við. Stjómmálamenn sem
haga sér svona við umbjóðendur
sína, eiga sldlið að fá flengingu. Eg
skora því á alla Vestlendinga og ekld
síst Skagamenn að strika Sturlu
Böðvarsson út af þingi.
Hafsteinn Sigurbjömsson.
Frá hcegri eru Bjöm Ingi Hrafnsson, stjómarformaður Faxaflóahafna sf Amheiður
Hjörleifsdóttir, sóknamefndarformaður Saurbcejarsóknar, Hermann Þorsteinsson, for-
maður Kjalar og Gtsli Gíslason, hafnarsjóri Faxaflóahafna.
Styrkja Saurbæjarldrkju
og Kjöl
Nýlega samþykkti stjóm Faxaflóa-
hafna sf. að veita Hallgrímskirkju í
Saurbæ 500.000 króna styrk og
Slysavamardeildinni Kjöl á Kjalar-
nesi sömu upphæð. Styrkurinn til
Hallgrímskirkju í Saurbæ er veitmr í
tilefni 50 ára vígsluafmælis kirkjunn-
ar en féð á að nota í verkefni sem
nefnt er Saurbær; saga og menning.
Verkefnið tekur til ýmissa mála er
varða sögu staðarins og einnig verk-
legra ffamkvæmda svo sem byggingu
bflastæðis, bætts aðgengi að sáluhliði
og gerð móttökutorgs við kirkjuna.
Slysavamadeildin Kjölur starfar á
Kjalamesi og er því í næsta nágrenni
við Grundartangahöfn og Hvalfjarð-
argöng og hefúr m.a. sinnt slysa-
varnamálum sem snerta starfsemi
haftíarinnar. Bjöm Ingi Hrafnsson,
stjómarformaður Faxaflóahafiia sf.
afhenti styrkina og hvatti viðtakend-
ur til að halda áffarn góðu starfi. Arn-
heiður Hjörleifsdóttir, formaður
sóknarnefndar Saurbæjarsóknar og
Hermann Þorsteinsson, formaður
Kjalar þökkuðu veittan smðning.
MM
Aðstæður karla og kvenna í
dreifbýli kannaðar
Nýverið vom sendir spurninga-
listar um starfs- og félagsleg skil-
yrrði karla og kvenna í dreifbýli á Is-
landi inn á rúmlega tvö þúsund
heimili í dreifbýli. Það er jafnréttis-
nefnd Bændasamtaka Islands sem
stendur að könnun þessari í sam-
vinnu við Rannsóknar- og þrótmar-
miðstöð Háskólans á Akureyri. Til-
efni rannsóknarinnar era þær miklu
þjóðfélagslegu breytingar sem átt
hafa sér stað á síðustu áratugum.
Breytingar, sem hafa einkennst af
auknum búferlaflutningum, jafnt
milli landshluta, sveitarfélaga og
landa. Þessar þjóðfélagslegu breyt-
ingar hafa haft veruleg áhrif á lífs-
kjör og breyttar fjölskylduaðstæður
sem og atvinnuhætti og menntun
landans. Störfum í svokölluðum
frumvinnslugreinum (landbúnaði
og sjávarútvegi) hefur fækkað mikið
í kjölfar aukinnar tæknivæðingar.
Þessar greinar hafa verið undir-
staða atvinnulífs á landsbyggðinni
síðusm áramgi. Einnig hafa vera-
legar breytingar átt sér stað í land-
búnaði vegna söluheimilda ffam-
leiðslurétta bæði í mjólkurfram-
leiðslu og sauðfjárrækt.
„Það á að vinna úr þessu og
skoða og athuga hvort munur sé á
aðstæðum karla og kvenna og
einnig milli svæða. Hugsunin hjá
jafnréttisneftid er að grípa inn í á
svæðum ef skilyrði era slæm og
þrýsta á stuðning eða aðgerðir,“
segir Hjördís Sigursteinsdóttir, sér-
fræðingur hjá Rannsóknar- og þró-
unarmiðstöð Háskólans á Akureyri.
Hjördís hvemr fólk til að svara
spurningalistanum og senda inn
eða senda svör sín rafrænt á slóðina
www.unak.is/kannanir
„Við höfum hugsað okkur að
nota niðurstöður könnunarinnar
sem mest en fyrst og fremst von-
umst við til að fá góða svömn. Það
verður spennandi að sjá niðurstöð-
ur og við bregðumst við með til-
teknum ráðum eftir því hvernig
þær verða,“ segir Sigrún Asta
Bjarnadóttir í jafnréttisnefnd BI.
MM/heimild: bondi.is
Tvö lið úr Borgarbyggð
í undankeppni Samfés
Vesturlandskeppnina. Annars veg-
ar var það Eva Margrét Eiríksdótt-
ir með dönsurum úr Grunnskóla
Borgarfjarðar, en Eva söng lagið
Angel með Jessicu Simpson. Hitt
atriðið sem fer á Vesturland-
skeppnina er skipað tríó með þeim
Björgu, Bjarnffíði og Bergþóra,
einnig nemendum í Grunnskóla
Borgarfjarðar, en þær sungu Lady
Marmelade úr myndinni Moulin
Rouge.
MM
Eva Margrét ásamt dónsurum.
Síðastliðið föstudagskvöld kom í
ljós hvaða keppendur færa sem
fulltrúar Borgarbyggðar í und-
ankeppni Samfés söngvakeppninn-
ar hér á Vesmrlandi. Þá stigu á
stokk sigurvegar frá undankeppn-
unum í Varmalandsskóla, Grunn-
skóla Borgarfjarðar og frá Grann-
skólanum í Borgarnesi. Fjölskipuð
dómnefnd komst ekki að niður-
stöðu um hvaða lag yrði framlag
sveitarfélagsins og varð því niður-
staðan sú að tvö keppnislið fara í
Bergþóra, Bjamfríður og Björg.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
ÞIN GLÝ SIN G AFULLTRÚI
Laust er til umsóknar starf þinglýsingafulltrúa við
embætti sýslumannsins í Borgamesi.
Starfið
Starfíð felur í sér aðkomu að þinglýsingum og öðrum verkefnum við embættið .
Startfshlutfall er 100%
Hæfisskilyrði
Góð almenn menntun, ffumkvæði og sjálfstæði, góð tölvukunnátta,
sveigjanleiki og jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum.
Laun eru skv.kjarasamningi ijármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2007.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fýrri störf skal skila
til Stefáns Skarphéðinssonar sýslumanns,
Bjamarbraut 2, 310 Borgamesi.
Athygli er vakin á því að umsóknin mun gilda í 6 mánuði ffá því að umsóknarffestur
rennur út , með vísan til 3,tl.2.mgr.2.gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum,með
síðari breytingum nr.464/1996 , sem settar em skv.heimild í 2.mgr.7.gr.laga
nr.70/1996 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi