Skessuhorn - 31.01.2007, Qupperneq 22
22
MIÐVIKUDAGUR 31. JANUAR 2007
gHÉSSIiBiöiaKl
Spuming
vikimnar
Hvað finnst þér
skemmtilegast að
gera hér í nýja
leikskólanum?
(spurt í nýja leikskólanum í
Stykkisbólmi)
Viktor Brimir Asmundsson,
5 ára
Mérfmnst lang skemmtilegast að
leika mér inni í hreyfileik.
Þórhildur Hólmgeirsdóttir,
5 ára
Að renna mér t ró'rinu úti
Rúna Bima Jóbannesdóttir,
6 ára
Mérfmnst stóru kubbamir
skemmtilegastir
Sigurður (Siggi) Guðmundsson,
5 ára
Það er mest spennandi að fara í
smellikubbana hér inni en úti er
klifrukastalinn ótrúlega skemmti-
legur.
Gísli fagnar fertugsafmæli sínu
Fékk m.a. hægfara ökutæki og 80 punkta í ökuferilsskrána að gjöf
Síðastliðinn föstudag varð Gísli
Einarsson, fféttamaður, kúnstner
og fyrrum ritstjóri Skessuhorns fer-
tugur. Af því tilefni bauð hann vin-
um og ættingjum til veislu mikillar
og óvenjulegrar í Landsnámssetr-
inu í Borgarnesi. Forsýndi hann í
upphafi leikverk sitt; Mýramann-
inn, en frumsýning þessarar léttkó-
medíu var síðan á laugardeginum
(sjá leikdóm BG hér í blaðinu).
Mýramanninn tileinkar Gísli for-
eldrum sínum, þeim Auði og Einari
sem eru, sbr. orð hans í leikskrá
„hið ágætasta fólk, merkilegt
nokk.“ Eftir sýninguna var slegið
upp veislu með fjölbreyttri dagskrá.
Meðal atriða má nefna að systkini
Gísla ffumsýndu myndband með
tillögu að síðasta þætti Gísla af „Ut
og suður“ þar sem hann ræðir ald-
urhniginn við sjálfan sig á æsku-
slóðum í Lundarreykjadal. Með
hlutverk Gísla á eldri árum fór
Brynjólfur bróðir hans, en Gísla
ungan lék Einar Friðfinnur 10 ára
systursonur hans og fórst þeim báð-
Lundarreykjadalurinn á einu bretti.
um verkið vel úr hendi. Allar systur
Gísla tóku virkan þátt í framleiðslu
þáttarins, en þær hugsa honum, að
sögn, þegjandi þörfina þar sem
hann hefur í gegnum tíðina gert
ómælt grín að þeim við hin ýmsu
tilefhi án þess að þær gætu haldið
uppi vörnum.
Afmælisbarninu voru færðar
ýmsar góðar gjafir. Má þar nefna að
vinir Gísla og fyrrum nágrannar
færðu honum hluta Lundarreykja-
dals í formi nýlistaverks þar sem
kenndi ýmissa grasa í bókstaflegri
merkingu auk sýnishorns af girð-
ingarafrekum Gísla, frægum holum
og merktum steinum í vegi þeirra
og ýmsu öðru. Vildu nágrannamir
þannig þakka honum trygglyndi við
heimahagana og færa fjallið til Mú-
hammeðs þar sem sá síðarnefndi
hefði kosið að búsetja sig á Mýrun-
um. Þá var Gísla færð bifreið að
gerðinni Land Rover árgerð 1966
að gjöf með þeim orðum að oft væri
það svo að sá eldri hefði vit fyrir
þeim yngri, með vísan í að ökutæk-
ið væri þeim sérstöku
kostum búið að kom-
ast alls ekki á þann
hraða sem Gísli væri
frægastur fyrir að
vilja aka á. Allir gest-
ir samkvæmisins
færðu síðan afmælis-
barninu einn punkt
úr ökuferlisskrám
sínum og fékk hann
þannig yfir 80 nýja
punkta í ökuferils-
skránna til að grípa
til ef á þarf að halda.
Effir ræðuhöld og
góðan viðurgjörning
var stiginn dans und-
ir öruggri forystu
hins trausta vinar; fé-
lagsmálaráðherrans
og annarra meðlima í
hljómsveitinni Upp-
lyftingu.
MM
„Traustur vinur“ íflutningi þeirra Sigurðar Dagbjartsson-
ar, Magnúsar Stefánssonar og Kristjáns B Snorrasonar t
„Víagra“ eða Upplyftingu.
Gísli ásamt eiginkonu sinni Guðrúnu Huldu og frumburðinum Rakel.
Við Land Roverinn góða tilbúinn í langferð.
Sýningu Mýramannsins tileinkar Gísli foreldrum sínum þeim Einari ogAuði.
Æskan á Vesturlandi
Líf Lárusdóttir.
í ýmsu sem betur má fara.
Æskan á Vesturlandi er nýr
vikulegur þáttur í Skessuhomi
sem ætlunin er að verði firam til
vorsins - og jafinvel lengur. I
þessum pistli gefiim við unga
fólkinu okkar orðið um hvaðeina
sem það vill tjá sig um. Umsjón
með efni hafa starfsmenn æsku-
lýðsmiðstöðva á Vesturlandi.
Heiðrún Janusardóttir, verkefh-
isstjóri æskulýðs- og forvamar-
mála á Akranesi á frumkvæðið að
því að þættinum er komið af stað
og mun hún safha inn efni frá
öllum æskulýðsmiðstöðvum á
Vesturlandi. Skessuhom færir
henni bestu þakkir fyrir og hvet-
ur unglinga til að setja sig í sam-
band við Heiðrúnu hafi þeir á-
huga á að skrifa í þáttinn.
Verum bjartsýn og
byggjum á hinu góða
Fyrir nokkrum vikum las ég í
dagblaði að Akranesbær væri eitt af
best settu sveitarfélögunum á Is-
landi. Eg gladdist yfir þessari ffétt
því að sjálfsögðu lesum við allar
fféttir sem berast ffá Akranesi og
fjalla um bæinn okkar eða bæjar-
búa. A síðum dagblaðanna birtast
einnig fréttir sem eru ekki jafn
skemmtilegar. Ungt fólk hefur hins
vegar áhuga á að lesa fféttir sem
fjalla um eitthvað jákvætt. Fréttir
sem eru upp-
byggilegar. Hér á
Akranesi er svo
margt að gerast
sem er jákvætt.
Við getum bent á
fjölmörg dæmi.
Við höfum hins
vegar orðið vör
við að tækifæra til
að fagna eru ekki
nýtt heldur
hamrað á öðru
sem betur má
fara. Af hverju?
Eg bara spyr.
Ég minni Akurnesinga á allt hið
góða sem ungt fólk er að gera. Við
skulum ræða um affek skólahljóm-
sveitarinnar, Þjóðlagasveitina,
söngleiki í Grundaskóla, sjávarút-
vegsþema, Rokkprógrammið ungir
gamlir og fjölda annarra ffábærra
viðburða.
Ungt fólk á Akranesi hvetur bæj-
arstjórn Akraness og Akurnesinga
til að hugsa stórt. Hugsa til ffam-
tíðar. Hér eru endalaus sóknarfæri
á öllum sviðum. Bærinn er að
stækka, atvinnutækifærum fjölgar,
bættar samgöngur efla tengslin og
svo mætti lengi telja. Við skulum
sameinast um allt það jákvæða og
byggja síðan á því til að gera betur
Við unga fólkið komum stolt
fram fyrir hönd okkar bæjar í
íþróttakeppnum, á tónleikum, á
leiksýningum og bara dags dag-
lega. Við erum Akurnesingar og
ætlum að bera höfuð hátt og gera
alltaf okkar besta. Ég held að þið
hin sem eruð fullorðin mættuð oft-
ar vera bara stolt af okkur í stað
þess að sjá það sem betur má fara
hjá einstaka manni. Unglingsárin
eru stundum tími mikilla átaka. Ég
minni hinsvegar okkur öll á að án
átaka verður enginn þroski.
Kveðja,
Ltf Lárusdóttir, formaður
Nemendafélags Grundaskóla
á Akranesi.
Frá diskó-balli í Brekkubcejarskóla M.janúar 2001.