Skessuhorn


Skessuhorn - 13.06.2007, Side 2

Skessuhorn - 13.06.2007, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 hákarlar með Hamri Skipverjar á Hamri SH 224 frá Rifi lönduðu tveimur hákörlum í heimahöfn í síðustu viku sem þeir höfðu fengið á djúpslóðinni fyrir vestan, alveg undir ísnum. Kristinn Friðþjófsson, útgerðarmaður segir að það sé orðið mjög sjaldgæft að koma með hákarl að landi. Það sé af sem áður var þegar hákarlinn var í Kollálnum og eyðilagði hölin, sérstaklega beinhákarlinn. Nú þurfi að fara á kaldari hafssvæði á meira dýpi fyrir norðan til að fá hákarl. Hildibrandur Bjarnason í Bjarnarhöfn fékk hákarlana til verkunar. -kóp/ Ljósm. Tómas Alfonsson Til minnis Við minnum á 17. júní sem verður á sunnudaginn. Við hvetjum alla til að skella sér út í góða veðrið (sem við treystum á að verði) og syngja og tralla Hæ hó jibbíi-jei. Bæjarfélög um allt Vesturland standa fyrir dagskrá. VeJfyrhorffyr Það verður hæglætisveður, skýjað með köflum og dálítil væta vestantil á landinu á næstu dögum. Hiti 8 til 15 stig. í byrjun næstu viku lítur út fyrir austanátt með hlýnandi veðri. Spfyrnin| vikfynnar Lesendur Skessuhorns eru óvenju sammála þegar kemur að spurningu síðustu viku. Þá töldu 77% svarenda að tekið væri of vægt á akstri undir áhrifum áfengis- eða vímuefna. Þar að auki svöruðu 10% þeirri spurning já, frekar. Nokkrir, eða 3% töldu að svo væri alls ekki og 5% líklega ekki. Þá vissu 5% svarenda ekki hvort svo væri eður ei. Næst spyrjum við: „Verður gott veður í sumar?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlendiníjivr ViKunnar Vestlendingur vikunnar að þessu sinni er Jónína Erna Arnardóttirfrumkvöðull IsNord tónlistarhátíðarinnar sem skipulagði hina frumlegu og stórkostlegu tónleika í Grábrókargíg á sunnudaginn var. Orkuveitan úthlutar styrkjum Á stjórnarfundi í Orkuveitu Reykjavíkur síðastliðinn föstudag urðu formannsskipti í stjórn þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson, hefur tekið sæti í ríkisstjórn. I stað hans var Haukur Leósson kosinn stjórnarformaður fyrirtækisins. Þá var upplýst um arðgreiðslur til eignaraðila og fær Akraneskaup- staður 85 milljónir í arð og Borg- arbyggð 15 milljónir. Á sama fundi var einnig úthlut- að styrkjum að upphæð krónur 36 milljónir úr fyrirtækinu og runnu nokkrir þeirra til aðila á Vestur- landi. Á meðal þeirra sem hlutu styrki að þessu sinni voru Mark- aðsskrifstofa Akraness ein milljón króna og IsNord tónlistarhátíð í Borgarnesi vegna tónleika í gíg Grábrókar krónur 500 þúsund. Til íþrótta- og æskulýðsmála í Borgarbyggð runnu krónur 1,7 milljónir, til Iþróttabandalags Akraness kr. 500 þúsund vegna heilsuátaks IA og Umhverfisnefnd Akraness hlaut eina milljón króna til stígagerðar í friðlandi Innsta- vogsness. mm Samkomulag um aðalskipulag Borgarbyggð og Landlínur undirrituðu í síðustu viku sam- komulag vegna aðalskipulags- vinnu fyrir allt landsvæði Borg- arbyggðar. Landlínur áttu lægsta tilboðið í verkið, líkt og Skessuhorn hefur greint frá, en fjórir aðilar buðu í það. Verk- efhið felst m.a. í því að vinna greinargerð og skipulagskort með skýrri stefnumörkun allra landnotkunarflokka. Þar að auki verða umhverfisáhrif Pál S. Brynjarsson, sveitarstjóri og Sigurtjörgu Ósk Askelsdóttur framkvæmdastjóra Landlína staðfestu samninginn. Ljósm. borgarbyggd.is skipulagsáætlunar metin. Markmiðið er að móta stefnu um uppbyggingu sveitarfé- lagsins með tilliti til þarfa dreifbýlis jafnt og þéttbýlis. Verkinu á að ljúka á næsta ári. Nýr starfsmaður sveitarfé- lagsins, Sigurjón Einarsson sem nýverið hóf störf á ffam- kvæmdasviði, mun halda utan um samskipti við fyrir- tækið. kóp Sumarbústaður brann til grunna Síðdegis á miðvikudag í hðinni viku kom upp eldur í sumarbústað í landi Beigalda í Borgarbyggð, en húsið stendur skammt vestan við Gufuá í fyrrum Borgarhreppi. Slökkvilið Borgamess var kallað út en húsið brann á innan við klukku- stund og varð því ekki við neitt ráð- ið. Auk hússins, þurftu slökkviliðs- menn að slökkva glæður í logandi lyngi og sinu umhverfis húsið til að hefta útbreiðslu elds í gróðrinum. Eigandi sumarhússins var að vinna utan við það þegar hann varð var við þmsk innandyra og þegar hann opnar útidyrahurðina varð mikil HúsiS alelda. Ljósm. Eva Sumni Slökkviliðsmenn úr Borgarnesi eru hér aí slökkva síðustu glœðurnar undir bárujáms- plötunum en húsið brann til grunna eins og sjá má. Ljósm. MM sprenging og húsið varð alelda á svipstundu. „Það var ekkert hægt að gera. Eg þakka mínum sæla fyrir að enginn var inni í húsinu,“ sagði eldri maður, eigandi hússins í sam- tali við Skessuhorn. Húsið var 55 fermertrar að stærð og tæplega 40 ára gamalt, þriðja elsta sumarhúsið sem upphaflega reis á þessum slóðum vestan Gufu- ár. Húsið var ótryggt en eigandi þess sagði tilfinningalegt tjón meira en fjárhagslegt. Hann taldi sjálfur líklegt að kviknað hafi í út frá olíu- ofni sem hann notaði til kyndingar, en vildi þó ekkert fullyrða um það. mm Sturla heiðraður af Samstöðu Samstaða, áhugahópur um slysa- lausa sýn í umferðinni, afhenti sl. fimmtudag Sturlu Böðvarssyni, fyrrverandi samgönguráðherra, fyrstu heiðursverðlaun samtak- anna fyrir framlag hans til umferð- aröryggismála. Steinþór Jónsson, formaður Samstöðu, afhenti Sturlu heiðursverðlaunin í athöfn sem fór fram í Forvarnahúsi Sjó- vár. Sagði Steinþór hann verðugan þeirra fyrir góðan árangur og nýj- ar áherslur í umferðaröryggismál- um. Verðlaunin eru pennasett með áletruninni: Heiðursverðlaun Samstöðu - þakklæti fyrir góð verk í þágu umferðaröryggis. mm Krislján L. Möller sasngönguráðhetra tekur við kefli Samstöðu, grasrótarsamtaka um slysalausa sýn, úr hendi Sturlu Böðvarssonar, jýrrverandi samgónguráðherra. Steinþór Jónsson, formaður Samstöðu fylgist með. Keflimi er ætlað að vera í samgönguráðuneyt- inu og minna m.a. á sifellda þörffyrir bættum umferðarmannvirkjum hér á landi. Eldri kona lést BORGARFJÖRÐUR: Eldri kona lést í heimasundlaug á bæ í Lundarreykjadal um miðjan dag á sunnudag. Tvíbýlt er á bænum og kom heimilisfólkið á hinum bænum að konunni látinni nokkru eftir að hún hafði látið vita af sér og sagst ætla í laugina. Lífgunartiiraunir hófust strax og að var komið og var þeim haldið áfram eftir að lögregla og lækn- ar komu á staðinn en báru ekki árangur. Tildrög slyssins eru ekki ljós og er unnið að rann- sókn þess, samkvæmt upplýsing- um ffá lögreglunni í Borgarnesi. -bgk Fjölgar um tvo kennara við Toska AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að fjölga stöðu- gildum við Tónlistarskóla Akra- ness um tvö. Þetta var gert að tillögu sviðsstjóra fræðslu-, tóm- stunda- og umhverfissviðs og er fjárveitingu vísað til endurskoð- unar fjárhagsáætlunar 2007. Með þessu er verið að bregðast við aukinni aðsókn í skólann, en biðlistar hafa verið að honum undanfarið. Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari, segist ekki reikna með að með þessu takist að tæma biðlistana alveg, en þetta eigi að geta tekið dágóðan kúf af þeim. Nýja mannvirkið verði nýtt betur með þessu. Aukin að- sókn í Tónlistarskólann sé til marks um það hve bæjarfélagið fer ört stækkandi, en íbúum Akraness hefur fjölgað um 2,2% ffá síðustu áramótum. kóp Víðtæk leit að kajakfólld VESTURLAND: Víðtæk leit var gerð að tveimur erlendum kajakræðurum sem hugðust sigla frá Garðskaga að Snæfells- nesi á laugardag. Þegar ekki hafði spurst til fólksins á sunnu- dag var leit hafin þar sem þátt tóku hátt í 20 björgunarsveitir á vestan- og suðvestanverðu land- inu, þyrla, fokkerflugvél, flugvél úr Borgarnesi og ýmis fleiri björgunartæki. Björgunar- sveitarmaður ffá Tálknafirði fann síðan fólkið klukkan 10 á mánudagsmorgun í tjaldi við Sjöundá á Rauðasandi á Barða- strönd. Ekkert amar að því og virtist það furðu lostið yfir öllu umstanginu og hafði greinilega ekki gert sér grein fyrir ábyrgð og viðbúnaði íslenskra björgun- araðila. Fólkið bar því við að það hafi sent tölvupóst með upplýs- ingum um hagi sína, en póstur- inn hafi verið sendur á rangt netfang. -mm Sveitarfélagið rekið með hagnaði DALABYGGÐ: Sveitarfélagið Dalabyggð var rekið með hagnaði síðasta ár samkvæmt ársreikningi sem lagður hefur verið fyrir sveit- arstjóm. Að sögn Gunnólfs Lár- ussonar sveitarstjóra era horfurn- ar einnig góðar fyrir þetta ár þrátt fyrir miklar ffamkvæmdir á veg- um sveitarfélagsins á þessu ári. „Það er ekki hægt að gera ráð fyr- ir eins góðri útkomu, en við erum bjartsýn eins og staðan er núna,“ sagði Gunnólfur. -bgk

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.