Skessuhorn - 13.06.2007, Síða 9
Þjóðhátíð á Akranesi 2007
'
Dagskrá hátíðarhalda á 17. júní á Akranesi
m
Ekki missa af frábærri
dagskrá á 17. júní!
Dagskráin á 17. júní miðar að því að fjöl-
skyldan finni öll eitthvað við sitt hæfi, allt
frá þjóðhátíðarmorgni á Safnasvæðinu,
skemmtilegri barnaskemmtun á
Jaðarsbökkum til glæsilegrar fjölskyldu-
hátíðar í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum
um kvöldið. Kynntu þér dagskrána vel
og taktu virkan þátt í skemmtilegri
þjóðhátíð! Sjáumst hress!
Karíus og Baktus
verða á Skaganum!
Sígilt leikrit sem stenst tímans TÖNN! Grallaraleg tónlist í
flutningi 200.000 naglbita. Ófrýnilegu grallararnir Karíus og
Baktus munu gera allt vitlaust á 17. júní. Þeir höggva,
berja, öskra og heimta I munninum á Jens, sem gefur þeim
nóg af sætindum! Þeir eru svakalegir og skemmtilegir, hæt-
tulegir og hlægilegir í senn, svo sæluhrollur hríslast niður
bakið á áhorfendum. Ekki missa af þessum skrítnu og
skemmtilegu náungum sem enginn vill fá í heimsókn!
Akraneskaupstaður óskar Skagamönnum
og landsmönnum öllum gleðilegrar
þjóðhátíðar!
Þjóðhátíðardagurinn verður viðburðaríkur á Akranesi í ár.
Hátíðin fer fram með hefðbundnu sniði en aðalhátíðin
verður haldin á Jaðarsbökkum. Kynntu þér dagskrána og
taktu virkan þátt í þessum skemmtilegasta degi ársins!
Dagskrá dagsins er sem hér segir:
10:00-12:00 Þjóðlegur morgun á Safnasvæðinu
Byrjaðu þjóðhátíðardaginn með fjölskyldunni á Safnasvæðinu í léttri og þjóðlegri stemningu.
Stundum er erfitt að bíða eftir því að allt fjörið hefjist á 17. júní og því tilvalið að taka forskot á
skemmtilegan dag og mæta á Safnasvæðið!
• Andlitsmálun, blöðrur og fánar!
• Hestamannafélagið Dreyri teymir hesta undir börnum
• Skemmtilegur ratleikur fyrir börn á öllum aldri
• Þjóðlegt morgunkaffi - sannkallaður "Þjóðhátíðarbröns" í Garðakaffi
• Opið og ókeypis á öll söfnin
• Allir hvattir til að mæta í þjóðbúningum - þeir sem mæta í þjóðbúningi fá sérstakan glaðning!
• Þjóðleg tónlist, harmónikuspil og ættjarðarlögin hljóma um svæðið.
13:00 Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju
Sr. Björn Jónsson messar í fjarveru sóknarprests.
Hátíðarræða: Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, nýstúdent
14:00 Hátíðardagskrá á Akratorgi
Fánahylling á Akratorgi
Ávarp bæjarstjóra, Gísla S. Einarssonar.
Ávarp fjallkonu
Hátíðarræða dagsins
Kirkjukór Akraneskirkju syngur við athöfnina
Skrúðganga að lokinni dagskrá upp á Jaðarsbakka.
14:00 -18:00 Safnasvæðið að Görðum
Glæsilegt kökuhlaðborð í Garðakaffi að hætti hússins.
14:30 -17:00 Kaffisala í safnaðarheimilinu Vinaminni á vegum
Kirkjunefndar Akraneskirkju
j 15:00-17:00 Barnaskemmtun í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum
Skrúðgangan sem fer frá Akratorgi endar við fþróttahúsið á Jaðarsbökkum þar sem boðið verður
upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á öllum aldri.
Þrautabraut fyrir 2 - 5 ára í íþróttahúsinu!
Hið sígilda leikrit “Karíus og Baktus” eftir Thorbjörn Egner, sem sýnt
hefur verið víða um land við miklar vinsældir.
I
| Kalli á þakinu kíkir í heimsókn!
Ýmsar þrautir og leikir, glens og gaman á svæðinu.
Hringekjur og hoppkastalar
Listasetrið Kirkjuhvoll - Samsýning þriggja kvenna sem starfrækt hafa
vinnustofur saman í Hafnarfirði undir nafninu Gallerí Klettur frá 1991. Þær sem sýna eru: Erla
Sigurðardóttir, Steindóra Bergþórsdóttir og Katrín Pálsdóttir.
20:30 Fjölskylduskemmtun á Jaðarsbökkum
Frábær fjölskylduskemmtun í iþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Þú mátt ekki missa af þessu!
Fram koma m.a.:
• Hljómsveitin Plasma!
• Hinar einu og sönnu Hara-systur
• Jóhannes Kristjánsson, eftirherma flytur hátíðarræðu eins og honum einum er lagið!
• Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar
• Hemmi Gunn - eldhress að vanda
• Hin frábæra hljómsveit Baggalútur heldur uppi stuðinu á frábæru fjölskylduballi!