Skessuhorn - 13.06.2007, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 13. JUNI 2007
jiicsaiinu^.
t
Andlát:
Páll Guðbjartsson í Borgamesi
Páll Guðbjartsson, fyrrum
forstjóri Vírnets hf. í Borgarnesi
lést 8. júní síðastliðinn, 75 ára að
aldri. Hann fæddist á Láganúpi í
Kollsvík í Rauðasandshreppi 4.
ágúst 1931, yngstur 10 barna
hjónanna á Láganúpi. Páll hafði
alla tíð ramma taug til
æskustöðvanna í Kollsvík þótt
snemma hleypti hann
heimdraganum.
Hann gekk í Samvinnuskólann
í Reykjavík veturna 1951 - 1953
og dvaldi á vegum
Samvinnuskólans í Stokkhólmi
1953 - 54 við nám og starf. Hann
vann ýmis verslunar- og
skrifstofustörf til ársins 1958 en
færði sig þá um set í Borgarfjörð
þar sem hann hefur búið síðan.
Gerðist fyrst kennari við
Samvinnuskólann á Bifröst til
ársins 1965 þegar hann tók við
starfi aðalbókara hjá Kaupfélagi
Borgfirðinga í Borgarnesi. Arið
1972 var hann ráðinn
framkvæmdastjóri hjá Vírneti hf.
og starfaði þar óslitið til ársins
1999 þegar hann komst á
efdrlaunaaldur. Páll var farsæll
stjórnandi Vímets sem efldist í
stjórnunartíð hans.
Páll hafði mikinn áhuga á sögu
og náttúm landsins og hafði yndi
af útivist. Áhugamálum sínum
gaf hann aukið vægi eftir að
erlinum á vinnumarkaðinum lauk
og samtvinnaði þau ýmsum
verkefnum sem hann tók sér fyrir
hendur samfélaginu til heilla.
Þannig vann hann m.a. fyrir
Safnahús Borgarfjarðar við
uppsetningu sýninga og
heimildaskráningu. Skráði hann
t.d. sögu verslunar í Borgamesi.
Páll var virkur félagsmálamaður,
starfaði m.a. í Lionsklúbbi
Borgarness og
Oddfellowstúkunni Agli á
Akranesi. Einnig starfaði hann
með Björgunarsveitinni Brák, í
Norræna félaginu,
Skógræktarfélaginu og í Félagi
eldri borgara í Borgarnesi síðustu
árin. Þá keypti hann sér lítinn bát
á efri ámm, aflaði sér réttinda á
hann og réri sér til gamans.
Einnig aflaði hann sér
leiðsögumannsréttinda og
samþætti þannig áhugamál sín og
miðlaði þekkingu sinni til
annarra. Páll gegndi fjölda
trúnaðarstarfa; var í kjörstjórn
síns kjördæmis, sýslunefhd og
barnaverndarnefhd svo dæmi séu
nefhd auk þess sem hann var
síðasti hreppstjóri
Borgarneshrepps.
Eftirlifandi eiginkona Páls er
Herdís Guðmundsdóttir. Saman
áttu þau tvö börn auk þess sem
Herdís átti fyrir eina dóttur sem
þau ólu upp. Dótturson sinn ólu
þau einnig upp.
Utför Páls Guðbjartssonar
verður gerð frá Borgarneskirkju
laugardaginn 16. júní klukkan 14.
mm
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Herdís Gudmundsdóttir,
Þverfelli í Lundarreykjadal
lést á heimili sínu 10. júní. Að hennar eigin ósk verður
útförin gerð í kyrrþey og þeim sem vilja minnast
hennar er bent á minningarsjóð Björns Rúnarssonar í
vörslu Sparisjóðs Mýrasýslu.
Kristján og Inga Helga Björnsbörn og fjölskyldur.
Ragnheiður Sigurðardóttir frá Kolsstöðum.
hennar heimanmundur og nú
hefur hann villst af leið og lent á
Hvanneyri. Verkin á sýningunni
eru öll gjafir sem Ragnheiður gaf
Borgfirðingum vinum sínum og
þeir sjálfir hafa komið með þær á
sýninguna. Meðal þess sem hún
hefur gert eru 234 sængurverasett
sem hún gaf nýfæddum börnum.
Þau eru mikil hagleiksverk og
Ragnheiður heklaði blúndur og
milliverk á þeim. Þá hefur hún gert
hundruði klukkustrengja og
saumahnalla, en það eru stólar
með geymslurými fyrir hannyrðir.
Ragnheiður hefur einnig stundað
postulíns- og ljósmyndamálun.
Sýningin var hluti af
Borgfirðingahátíð.
kóp
Handverk Ragnheiðar er mjög fjölbreytt.
Heimanmundurmn sem
villtist til Hvanneyrar
Um síðustu helgi var sýning á dóttur ffá Kolsstöðum í Hvítár-
verkum Ragnheiðar Sigurðar- síðu. Sýningin nefndist „Heiman-
Fjöldi saumahnalla var á sýningunni sem vöktu athygli gesta.
mundurinn sem villtist af leið“ og
var í gamla leikfimihúsinu á
Hvanneyri. A sýningunni var hluti
af þeirri handavinnu sem
Ragnheiður hefur unnið í gegnum
ævina. Þó verkin hafi fyllt heilan
leikfimisal eru þau aðeins dropi í
hafið á ævistarfinu. Ragnheiður
sagði í samtali við Skessuhorn að
henni þætti lítt gaman að þessi
sýning væri komin á laggirnar.
Þrátt fyrir alvörusvip var ekki laust
við að blikaði á glampa í augum við
þessa fullyrðingu. Þá sagðist hún
ekki kunna við hve allt væri
forgengilegt í nútímanum. Sjálf
hefði hún búið í sama húsinu
áratugum saman og hefði átt sama
ísskápinn og sama rúmið allan
þann tíma. Það eina sem væri að
væri að hún hefði verið
karlmannslaus alla ævi og hún
gréti sig í svefn á hverju kvöldi yfir
þeirri staðreynd. Koddinn hennar
væri orðinn örþunnur eftir allan
grátinn og vílið.
Þannig er stutt í glettnina hjá
Ragnheiði, en hún giftist aldrei og
segja má að handavinnan sé
Skólaakstur
í útboð
HVALFJARÐARSVEIT:
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
hefur samþykkt að framlengja
núverandi samninga um skóla-
akstur til áramóta en bjóða akst-
urinn út frá áramótum. Samn-
ingar um skólaakstur runnu út
fyrir ári og voru þá framlengdir
um eitt ár. Tillaga um útboð var
lögð fram á fundi sveitarstjórnar
8. maí og kom þá umkvörtun um
að hún væri fullseint fram kom-
in. Var tillögunni frestað og
málið kannað betur og lagt að
nýju fyrir fund sveitarstjómar
sem ffarn fór þann 5. júní og
samþykkt þar. Sigurður Sverrir
Jónsson, sveitarstjórnarmaður,
tók ekki þátt í umræðum um
málið, en hann er einn þriggja
verktaka sem sjá um aksturinn
nú. Ríkiskaup mun aðstoða við
útboðið og Einar Orn Thorlaci-
us, sveitarstjóri vonast til að út-
boðið geti farið ffarn í haust, en
það þarf að fara ffam á Evrópska
efnahagssvæðinu.
kóp
Samkeppni um
götuheití
STYKKISHÓLMUR: Skipu-
lags- og byggingarnefhd Stykk-
ishólmsbæjar hefur óskað eftír
tíllögum frá bæjarbúum um nafh
á götu sem mun hggja í gegnum
fyrirhugað athafnasvæði suður af
kirkjugarðinum. Skilaffesmr á
tillögum er til 22. júní. Tillögum
skal skilað í lokuðu umslagi
merkt „tillaga - götuheiti" í af-
greiðslu Ráðhússins, Hafnar-
götu 3. Frekari upplýsingar um
samkeppnina og legu götunnar á
aðalskipulagi má finna á skrif-
stofu Ráðhússins, eða á heima-
síðu Stykkishólmsbæjar.
-kóp
Brákarey skipu-
lögð í sumar
BORGARBYGGÐ: Vinna
við deiliskipulag Brákareyjar í
Borgamesi fer í gang í sumar.
Eins og fram hefur komið í
fréttum Skessuhorns ákvað
sveitarstjóm Borgarbyggðar að
ganga tíl samninga við Kanon
arkitekta um deiliskipulag eyjar-
innar. Páll S. Brynjarsson, sveit-
arstjóri sagði í samtali við
Skessuhorn að nú þyrfti að fara
að skoða hvernig staðið verði að
þessari vinnu. „Þetta verður
væntanlega stóra verkefhi sveit-
arfélagsins í sumar að fara í þetta
verkefhi. I tillögum Kanon er
gert ráð fyrir blandaðri byggð í
eyjunni og skoða þarf hvemig
eyjan verður best nýtt og hvern-
ig tryggja megi sérstöðu hennar.
Því munum við ræða við höf-
undana og skoða málin eftir
það,“ sagði Páll.
-bgk