Skessuhorn


Skessuhorn - 13.06.2007, Page 20

Skessuhorn - 13.06.2007, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 ^saum/K. GT tækni á Grundartanga fagnaði fimm ára afinæli Fyrirtækið GT tækni fagnaði fimm ára afmæli sínu á föstudaginn var í nýjum húsakynnum á Grund- artanga. Blásið var til veglegrar veislu fyrir starfsmenn, maka og velunnara fyrirtækisins, með léttri tónlist og veitingum. Þá söng Grundartangakórinn, undir stjórn Atla Guðmundssonar nokkur sér- valin lög. GT tækni sér um tækni- og við- haldsþjónustu fyrir Islenska járn- blendifélagið, Klafa, Spöl og fleiri fyrirtæki á sviði véla, rafinagns og farartækja. Fyrirtækið hefúr verið í stöðugum vexti og tekið upp ýmsar nýjungar í þjónustuframboði sínu svo sem á sviði verslunar, innflutn- ings, tækja - og bílaleigu ásamt sér- ffæðiþekkingu í bókhalds- og tolla- Nýtt iðnaðarhús GT tœkni á Grundartanga. málum. Hvatinn að stofnun GT tæknis var sú hugmyndaff æði innan Elkem, móðurfélags Islenska jám- blendifélagsins, að hvert fram- leiðslufyrirtæki innan þeirra vé- banda ætti að einblína á kjarnastarf- semi sína. Því ætti ýmis þjónusta við þá starfsemi að vera í höndum þeirra aðila sem gerðu hana að sinni kjarnastarfsemi og var GT tækni stofnað af þeim sökum sem sjálfstætt verktakafyrirtæki. Að sögn Bolla Arnasonar, ffam- kvæmdastjóra fyrirtækisins hefúr GT tækni þroskast hratt og vel og er í góðum tengslum við nánasta umhverfi sitt og atvinnulíf. Þá hef- ur fyrirtækið stækkað jafiit og þétt og er orðið að vinnustað með 65 starfsmönnum á ólíkum sviðum. I ávarpi Bolla á afmælishátíðinni kom ffam að fjársóður fyrirtækja felist í starfsmönnum þeirra og hef- ur GT tækni haft því láni að fagna að haldast vel á mönnum þar sem hver og einn leggur sitt af mörkum til að starfsandinn haldist góður. „Það sem mestu máli skiptir er að við vinnum að því að efla hvort annað félagslega og faglega til þess að standa vel að vígi. Við hjá GT tækni teljum okkur best á okkar sviði í dag og við ætlum að halda því þannig og eflast enn frekar við- skiptavinum okkar til hagsbóta“, segir Bolli og bætir við að með nýrri byggingu skapist einnig svig- rúm til að taka á framtíðinni með enn meiri festu og einbeitni. kóó Grundartangakórinn tók létta sveiflu, ekki amalegt aó hafa heilan karlakór af svœðinu. stjóra GT tœkni. Sérhæfir sig í grjót- og torfhleðslum Unnsteinn Elíasson ffá Ferju- bakka í Borgarfirði hefur um fjórtán ára skeið sérhæft sig í gerð grjót- og torfhleðslna. Iðnina lærði harm af föðurafa sínum sem var grjót- hleðslumaður en auk þess hefur hann starfað með Ara föðurbróður sínum. Handverk þetta kunna fáir hér á landi og er talið að innan við tugur einstaklinga geti með sanni tklað sig fagmenn í hleðslum. Vel gerð grjóthleðsla er ekki síður hand- verk en iðn þar sem saman þarf að fara útsjónarsemi og fallegt hand- bragð til að hleðslumar verði falleg- ar á að líta og traustar. A undanföm- um árum hafa grjóthleðslumenn haft í nógu að snúast, enda fámenn- ur hópur eins og áður segir. Við endurgerð gamalla húsa em völund- ir sem þessir t.d. ómissandi til að endurhlaða fomar hleðslur undir húsum og umhverfis þau. Þá em grjóthleðslur við kirkjugarða, mann- virki, vörðuhleðslur og skraut- veggjagerð meðal verkefúa hleðslu- meistaranna. A ferð blaðamanns um Húsafell í liðinni viku var staldrað við hjá Unnsteini Elíassyni sem þar vann við skrauthleðslu á bílastæði við þjónustumiðstöðina á staðnum. Honum til aðstoðar var Josefina Margareta Morell á Giljum en hún Unnsteinn ogjósefína vio nýja hleoslu framan vió tjónustumiðstöðina í Húsafelli. Unnsteinn framan við húsin í Englend- ingvík í Borgamesi. er hleðslunemi hjá Unnsteini. Fal- legt handbragð leyndi sér ekki þar sem birkitré vom römmuð inn í lágreistan hleðsluvegg ffaman við miðstöðina sem liggur við inn- keyrsluna að sumarhúsahverfinu. Unnsteinn sagði að verkefúin hjá sér væra næg og undanfarið hefði hann t.d. unnið að gerð hleðslu og lista- verks við Skriflu í Reykholti ásamt Páli Guðmundssyni ffá Húsafelli. Þá hefúr hann m.a. hlaðið veggi undir endurgerð hús í Englendinga- vík í Borgarnesi og ýmislegt fleira. mm Slökkviliðið í Snœfellsbæ jyrir utan slókkvistöðina í Ólafsvík með njju tœkin. Ljósm. Tómas Alfonsson. Reykköfunartæki í Ólafsvík Brunamálastofnun afhenti slökkviliðinu í Snæfellsbæ í síðustu viku kerm með tíu reykköfunar- tækjum ásamt loftbanka til að fylla á tækin. Þessu fýlgir reykvél til æf- inga. Svanur Tómasson, slökkiliðs- stjóri Snæfellsbæjar, sagði í samtali við Skessuhorn að þessi tækju yrðu geymd í Olafsvík. „Þetta er ætlað til æfinga sem og notkunar í útköllum og mun nýtast slökkviliðinu hér, á Grundarfirði, í Stykkishólmi og í Búðardal, en samvinna hefur verið á milli þessara slökkviliða. Tækin koma að góðum notum og þau munu stórbæta öryggið, við verð- um betur æfðir og þau nýtast í út- köllum.“ A næstunni verður slökkviliðinu í Stykkishólmi afhent kerra með mengunarvarnabúnaði gegn eitur- efnaslysum. Afhending tækjanna er hluti átaks Branamálastofnunar til þess að efla eldvarnir og viðbrögð við mengunarslysum um allt land, en 100 milljónum verður varið til þess. Veiting fjárins var bundin því skilyrði að slökkviliðin ættu og rækju búnaðinn í sameiningu og hafði Brunamálastofúun náið sam- ráð við slökkviliðin um hvaða bún- að skyldi kaupa og hvar hann skyldi staðsettur. Fénu hefur verið varið til kaupa á búnaði í nánu samráði við slökkviliðin í landinu. Aður hef- ur samsvarandi búnaður, kerra með reykköfunartækjum og önnur með mengunarvarnarbúnaði, verið af- hent slökkviliðunum í Akranesi og Borgamesi til sameiginlegra nota. kóp . Kaupþing í kálgarðana Á undanförnum vikum hefur Þorgrímur Þráinsson, erindreki Kaupþings banka, þeyst á milli leikskóla um landið þvert og endi- langt með garðyrkjuáhöld, fræ, könnur og annað sem þarf til að út- búa litla matjurtargarða. Háttí300 skólar þáðu boð bankans um þessa skilyrðislausu gjöf. Með henni vill bankinn leggja sitt af mörkum til að auka vitund barna um hollusm grænmetis og gefa þeim tækifæri til að sjá hvernig það verður til, vex og dafúar. Hvarvetna var Þorgrími vel tekið. Á meðfylgjandi myndum er Þorgrímur í heimsókn í leikskólan- um Klettaborg í Borgarnesi og í leikskólanum í Stykkishólmi. mm

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.