Skessuhorn - 13.06.2007, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007
21
Nýr stj ómarfomiaður
Orkuveitu Reykjavíkur
Föstudaginn 8. jóní sl. var hald-
inn síðasti fundnr fyrrverandi
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.
En eins og flestir vita eru Akranes
og Borgarbyggð meðeigendur að
fyrirtækinu.
Þar var meðal annars úthlutað
styrkjum að upphæð rúmlega 36
milljónum króna. Á meðal þeirra
sem hlutu styrk að þessu sinni voru
Markaðsskrifstofa Akraness 1 mkr.,
Isnord -tónlistarhátíð í Borgarnesi
vegna tónleika í gíg Grábrókar kr.
500 þús., Iþrótta- og æskulýðsmál í
Borgamesi, kr. 1,7 mkr., Iþrótta-
bandalag Akraness kr. 500 þús.
vegna heilsuátaks IA og Umhverfis-
nefnd Akraness 1 mkr. til stígagerð-
ar í friðlandi Innstavogsness. Auk
þess var upplýst á fundinum um
arðgreiðslur til eignaraðila og fær
Akraneskaupsstaður rúmar 85 mkr.
í arð og Borgarbyggð rúmlega 15
mkr.
A þessum fundi lét Guðlaugur
Þór Þórðarson af starfi sem stjórn-
arformaður Orkuveitu Reykjavíkur.
Vegna þessa bókuðum við Bjarki
Þorsteinsson, áheyrnarfulltrúi
Borgarbyggðar, eftirfarandi:
„Við undirritaður þökkum Guð-
laugi Þór Þórðarsyni, fyrir gott og
árangursríkt starf sem formaður
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Á
liðnu starfsári stjórnarinnar hefur
líklega aldrei verið unnið jafh vel á
jafn skömmum tíma og á svo já-
kvæðan hátt, að umhverfismálum á
vegum fyrirtækisins. Um leið og
við fæmm Guðlaugi bestu þakkir
okkar fyrir framlag hans óskum við
honum velfarnaðar og farsældar í
krefjandi starfi á nýjum vettvangi.“
Gunnar Sigurðsson og Bjarki Þor-
steinsson.
Undir bókun okkar tóku þeir
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri
Orkuveitunnar og Hjörleifur B.
Kvaran aðstoðarforstjóri.
A aðalfundi Orkuveitunnar, sem
haldinn var sama dag, var síðan
Haukur Leósson kosinn nýr stjórn-
arformaður.
Gunnar Sigurðsson
Forseti bœjarstjórnar Akraness.
www.skessuhorn.is
Skólastjóri
Óskast í grunnskólann á Reykhólum
Reykhólaskóli er góður fámennur grunnskóli með 30 nemendur í
1-10. bekk
Meginhlutverk skólastjóra veröur:
• Að vera leiðtogi skólans og veita faglega forystu á sviði kennslu
og þróunar í skólastarfi
• Að stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
Menntunar og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun að lágmarki. Stjórnunarnám æskilegt
• Reynsla og stjórnunarhæfileikar
• Reynsla af kennslu og vinnu með börn og unglinga
• Lipurð í mannlegum samskiptum
Staðan er laus frá og meö 1. ágúst 2007
Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og störf auk
annarra gagna er málio varðar
Umsóknarfrestur er til 20. júní 2007
Laun er skv. Kjarasamningi LN og KÍ.
Á Reykhólum er gott mannlíf, mikil náttúrufegurð og gott að búa.
| Upplýsingar um skólann veitir Áslaug Guttormsdóttir, skólastjóri, í
| síma 434-7806 eða 434 7731
| Sjá heimasíðu skólans:
s http://www.skolatorg.is/kerfi/reykholaskolL/skoli og á heimasíðu
Reykhólahrepps: www.reykholar.is
Sveitarstjóri Reykhólahrepps,
sími 434-7880
Saman erum við sterk
All Settses Group,- Vpplifðu allt á Vesturlandi
All Senses Group - Upplifðu allt á Vesturlandi
er samstarfsverkefni 23 ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi.
Meginmarkmið hópsins er að kynna og markaðssetja
Vesturland, auka gæði í ferðaþjónustu á svæðinu og efla
tengslanet okkar.
Við vinnum saman að nokkrum kynningum á ári og
höldum námskeið og vinnufundi.
Samstarfið er gefandi og
skemmtilegt og fékk
Frumkvöðlaverðlaun Vesturlands
fyrir árið 2006.
Ef þú vilt slást í hópinn skaltu
endilega hafa samband við Þórdísi
G. Arthursdóttir, verkefnisstjóra í
síma 895 1783 eða
info@westiceland.is
fyrir 20. júní n.k.
SUMARVINNA!!!
Okkur vantar ennþá einn frískan starfskraft í slátt og
garðyrkjustörf á Hvanneyri í sumar. Viðkomandi þarf að
vera 17 ára eða eldri, helst með einhverja reynslu af
vélum og að geta hafið störf strax.
Upplýsingar veitir garðyrkjustjóri Landbúnaðarháskólans
Tryggvi Marinósson í síma 843 5306 eða 433 5000.
Landbúnaðarháskóli íslands,
-Háskóli lífs og lands-