Skessuhorn - 13.06.2007, Qupperneq 22
22
MIÐVIKUDAGUR 13. JUNI2007
^SUHUkí
• •
Hér eru hjónin Öm og Svana meó bamabami sínu, Ömu Ösk Jónsdóttur, heima í stofunni aó Leynisbraut á Akranesi.
ur og við eigum alveg eftir að prófa
það,“ segir Orn fullur tilhlökkunar
og bætir því við að í næstu viku
verðtir jómífúarferðin farin á nýja
hjólhýsinu.
Aðspurður um breytingar í
starfsgreininni eftir 50 ár á sjó segir
hann. „/'Vllur búnaður er mun betri
núna en jafnframt flóknari og öllu
stýrt með tölvum. Þetta var nú ein-
faldara þegar ég byrjaði en nú er allt
gjörbreytt,“ segir hann. Hann hefur
þó aðlagast fljótt þessari nýju tækni.
„Svo er skelfilegt að sjá heilu pláss-
in flosna upp þegar kvótinn er seld-
ur í burtu svo kerfið er greinilega
ekki að virka,“ segir hann og skilur
ekki alveg hverju stjómvöld hafa
verið að stýra þessum málum. „Það
er eins og þeir hafi ekki vitað hvað
þeir vom að gera og farið út af veg-
inum einhversstaðar á leiðinni,"
segir hann og segist þess fúllviss að
kvótakerfið hefði aldrei verið sam-
þykkt eins og það er í dag.
Orn er sáttur við lífið í faðmi fjöl-
skyldunnar og sér ekki eftir neinu.
„Eg hef verið heppinn í gegnum
tíðina, unnið með góðu og
skemmtilegu fólki í góðum útgerð-
um og aldrei lent í lífsháska. Ég
hefði ekki viljað gera neitt öðravísi
enda þekki ég ekkert annað en sjó-
mennsku," segir Om að lokum.
kóó
Öm Helgason var heiðraður á sjómanndaginn eftir 50 ár á ýónum. Hér óskar Kristján
Pétursson, skipsljóri hmum til hamingju.
barnabörn og fjögur barnabarna-
börn.
„Þessi viðurkenning kom kannski
ekki mjög á óvart, það em fáir hér
með jafn langan og svo samfelldan
annað sem til fellur og hluti sem
setið hafa á hakanum eins og garð-
urinn. Nú er líka einfaldara að leyfa
sér að fara eitthvað. Við hjónin
keyptum okkur stórt hjólhýsi í vet-
ason heiðraður eftir 50 ár á siónum
Örn Óskar Helgason er fæddur í
Reykjavík árið 1936 en flutti til
Akraness þegar hann er aðeins 21
árs gamall þar sem leiðin lá á sjóinn.
Hann lauk vélstjóranámi frá Fiski-
félagi Islands og starfaði sem vél-
stjóri allt til ársins 2005. Örn byrj-
aði feril sinn hjá Sigurfara en starf-
aði lengst af á Höffungi. Hann var
heiðraður á sjómannadaginn síðasta
fyrir metnaðarfullt starf í sjó-
mennsku á hálfa öld. Örn er giftur
Svönu Jónsdóttur, húsmóður og
saman eiga þau fjögur börn, tíu
starfsaldur og ég,“ segir Örn þegar
blaðamaður hitti hann að máli. Örn
hefur ekki getað slitið sig alveg ffá
sjónum því að undanförnu hefur
hann skotist í einn og einn túr ef
vélstjóra hefur vantað. „Það er oft
erfitt að fá vélstjóra og þess vegna
hef ég farið einstaka sinnum. En nú
stefnir allt í að ég slíti mig alveg frá
sjónum", segir hann. „Það er ágætt
að vera kominn í land þó líf manns
gjörbreytist. Mér leiðist nú samt
ekki, ég finn mér alltaf eitthvað að
dunda við. Ég eyði tíma í eitt og
«PS 1
Er að skapa með myndavéliimi
Ljósmyndir: Ragnheiður Stefánsdóttir.
Ragnheiður Stefánsdóttir opnaði
sína fyrstu ljósmyndasýningu í
Safiiahúsinu í Borgarnesi 8. júní
síðastliðinn og em allar myndirnar
til sölu. Blaðamaður Skessuhorns
kíkti til Ragnheiðar mitt í önnum
hennar við að koma sýningunni
upp.
„Það er einhver tími síðan ég
byrjaði á þessu,“ segir Ragnheiður
aðspurð um upphafið að ljós-
myndadellunni. „Ég þurffi að fara
út með hundinn og var með hann í
annarri hendi og myndavélina í
hinni. Ég smitaðist af samstarfs-
mönnunum í Norðuráli og keypti
mér Kodak vél í fyrra og hef verið
að nota hana. En nú er ég komin
með fullorðinsvél sem ég ætla
reyna að læra að nota. En flestar
myndirnar á þessari sýningu era
teknar á gömlu vélina.“
Augað þjálfast
„Ég er ekkert upptekin af því að
taka myndir af því sem margir
myndu segja að ætti að taka mynd-
ir af,“ segir Ragnheiður þegar
spurt er um myndefnið og bætir
síðan við að hún taki myndir af því
sem henni finnst sniðugt til dæm-
is skrítnu skýi eða skemmtilegum
skugga. „Augað þjálfast í því að sjá
það sem er öðruvísi. Ég er hrifin
af formum sem skuggar mynda
svo eitthvað sé nefnt. Einnig
finnst mér gaman að taka andlits-
I Skallagrímsgarði í Borgamesi.
myndir og þá helst af andlitum
með sögu.“
Myndefaið úr
Borgarbyggð
„A þessari sýningu er ég ein-
göngu með myndir úr Borgar-
byggð. Sýningin var opnuð á Borg-
firðingahátíð svo mér fannst til-
hlýðilegt að hafa þetta svona. Auð-
vitað á ég myndir frá mörgum öðr-
um stöðum, en þær bíða betri tíma.
Og nú ætla ég á námskeið til að
læra að taka myndir,“ segir Ragn-
heiður og kímir. „Fram undir þetta
hef ég getað skýlt mér á bak við það
að ég kunni ekkert að taka myndir,
enda held ég því stíft frarn að ég sé
einungis „amator." Það er verst ef
ég kemst að því í alvörunni eftir
ljósmyndanámskeiðið að ég kunni
ekkert að taka myndir.“
Og Ragnheiður heldur áfram.
„En kannski hef ég örlítdð forskot í
myndatökunni. Sem krakki og ung-
lingur teiknaði ég mikið og margir
hafa skammað mig fyrir að halda
því ekki áfram en þaðan hef ég
ábyggilega mynduppbygginguna
sem líklegast er innbyggð. Ég er því
enn að skapa, bara á annan hátt en
áður,“ sagði Ragnheiður Stefáns-
dóttir að lokum.
bgk
Hafnarfjallið með skemmtilegum skýjum, nokkuð sem Ragnheiður Stefánsdóttir,
Ragnheiði leiðist ekki að taka myndir af dhugaljósmyndari.
Utskrift nemenda á Sól-
völlum í Grundarfirði
Miðvikudaginn 30. maí sl. var út-
skrift ffá Leikskólanum Sólvöllum í
Grundarfirði. I ár vom útskrifaðir
8 nemendur og fór athöfnin ffam á
Drekadeildinni þar sem útskriftar-
nemendur mættu ásamt foreldmm
sínum og öðrum ættingjum. Nem-
endurnir settu upp hatta sem þau
höfðu búið til, foreldrafélagið gaf
þeim rós og þau fengu afhenta
ferlimöppurnar sínar.
Eftir athöfnina á Drekadeildinni
var farið í skrúðgöngu út í Kaffi 59
þar sem flatbökuveisla beið þeirra.
Þriðjudaginn 5. júní fóra krakkarn-
ir síðan í útskriftarferð sína. Vegna
veðurs var fyrirhugaðri dagskrá
breytt og farið í Stykkishólm. Þar
var byrjað að skoða Vatnasafnið og
síðan farið á Fimm fiska þar sem
allir fengu sér flatböku. Efrir mat-
inn var Norska húsið skoðað og að
þeirri heimsókn lokinni var förinni
heitið í heimsókn í leikskólann í
Stykkishólmi þar sem krakkamir
léku sér við nemendur þar og var
boðið í síðdegishressingu. Eftir
heimsóknina í leikskólann var farið
í sund og endað í Bakaríinu.
Nemendur og kennarar
Leikskólans Sólvalla.
Samkór Mýramanna á leið utan
í liðinni viku
brydduðu félag-
ar í Samkór
Mýramanna upp
á þeirri nýjung
að hafa síðustu
æfingar kórsins
fyrir utanlands-
ferð kórsins
opnar í Borgar-
neskirkju. Fimmtíu og fjcigurra manna
hópur er á leið til Italíu og Austuníkis
til að gera garðinn frægan. Dagskráin
er að mesm íslensk lög og auðvitað
verður þjóðsöngurinn sunginn í ferð-
inni. O Guðs vors land var þaulæft á
mánudagskvöld í liðinni viku þar til
textí og lag var fanð að hljóma 100%
að mati Zcusanna
Budai kórstjóra.
Ferðinni er
heitið til Mílanó
og gist fjórar næt-
ur í Veróna, kom-
ið við í Feneyjum
til að sigla á
gondólum og
kanna heimilis-
iðnað Itala. Sungið verður á tvennum
tónleikum. Aðrir eru kirkjutónleikar
þar sem aðeins má syngja kirkjutónlist
og hinir verða haldnir á torgi í Veróna.
Loks verður gist tvær nætur í Austur-
ríki og þá haldið til Veróna aftur og
þaðan haldið heim.
Þjóðsöngurinn œfðurfyrir utanfórina.
es