Fréttablaðið - 14.09.2019, Qupperneq 28
ÞETTA VAR HRÆÐILEGA
ERFITT. ÉG VAR ALVEG AÐ
DEYJA, MÉR LEIÐ SVO ILLA
AÐ ÞURFA AÐ SKAMMA
BARNIÐ.
Ingvar E. Sigurðsson
EN ÉG MEINA, ÞETTA ER
PABBI MINN, ÞANNIG AÐ
ÞAÐ ÞÝÐIR EKKERT AÐ
VÆLA YFIR ÞVÍ.
Ída Mekkín Hlynsdóttir
Ingvar E. Sigurðsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir eru í burðarhlutverkum k vik-myndarinnar Hvítur, hvítur dagur sem hverfist um þrúg-andi harm lögreglustjórans
Ingimundar sem missir eiginkonu
sína í bílslysi og samband hans við
dótturdótturina, Sölku, sem syrgir
ömmu sína á meðan hún er helsta
haldreipi afa síns í tættri tilverunni.
Ída Mekkín er nýorðin ellefu ára,
dóttir leikstjórans Hlyns Pálma-
sonar sem vissi greinilega hvað
hann var að gera þegar hann skrif-
aði handrit myndarinnar með þau
í huga. Samleikur þeirra er alveg
magnaður og „Ída hefur í fullu tré
við stórleikarann þannig að mann
sundlar á köf lum andspænis til-
finningadýptinni sem þau töfra
fram á tjaldinu“, svo gripið sé niður
í gagnrýni Fréttablaðsins um mynd-
ina.
„Það var mjög, mjög fínt bara. Við
urðum mjög náin á setti,“ segir Ída
Mekkín þegar hún er spurð hvernig
hafi verið að leika á móti stórleikar-
anum Ingvari. „Það þarf tvo í tangó
og það passa ekkert allir saman,“
segir Ingvar og bendir á að orkan
sem myndast á milli fólks verði
stundum þannig að það geti ekki
dansað.
Stresslaus leikur
„Strax þegar við hittumst þá bara
fundum við að þetta yrði ekki
vandamál. Það er eins og við höfum
einhverjar gamlar minningar í
farteskinu, næstum í genunum á
okkur, þannig að börn eru oft miklu
skynsamari en við höldum. Miklu
klárari.
Jafnvel þótt þau geti ekki komið
því í orð þá hafa þau þessa skynjum
og skynsemi. Eins og Ída Mekkín.
Hún veit að hún er í vinnunni og
veit að mikið er í húfi. Að það er
verið að vinna að einhverju sem
þarf að koma vel út,“ segir Ingvar og
heldur áfram eftir smá umhugsun:
„Án þess að það sé nokkurt stress.
Engin pressa. Þetta var meira eins
og að leika sér, skapa, búa eitthvað
til. Það getur verið mjög spenn-
andi. Þú getur verið að teikna, búa
til tónlist eða eins og í þessu tilfelli
þar sem við vorum líka að leika
okkur. Við lékum okkur á píanóinu
og svona inn á milli en síðan þegar
kameran er í gangi er smá pressa á
okkur en það er samt alltaf þessi
leikur og þetta góða samband sem
rofnaði aldrei.“
Ætlar að verða hestakona
Ída Mekkín segir aðspurð að kvik-
myndagerðin hafi stundum reynt
á þolinmæðina. „Ég var stundum
óþolinmóð en það var alltaf einhver
á setti sem var ekki að gera neitt og
maður gat farið til og hangið með.
Eftir á er ég alveg til í að leika
meira en þetta var stundum leiðin-
legt á meðan. En þegar maður
hugsar til baka þá var þetta alveg
skemmtilegt, skilurðu,“ segir hún
og bætir við að hún geti vel hugsað
sér að leika meira.
„Jújú, ég er alveg með það í huga
en ekkert þannig að ég sé harð-
ákveðin í að verða leikkona. Ég ætla
að verða hestakona en ætla að leika
inn á milli. Ef það kemur eitthvað
spennandi.“
Erfitt að gráta
Hvítur, hvítur dagur er mikið til-
finningadrama og tók þannig á
köflum eðlilega á leikarana og bæði
nefna þau senu þegar Ingimundur
missir tökin og tekur reiði sína út á
barnabarninu. „Á sumum pörtum
tók þetta á aðeins. Til dæmis senan
fyrir utan bílinn þegar Ingimundur
var að skamma mig.“
Hún segir að það hafi þó ekki
verið erfiðast að horfa á Ingvar, vin
sinn, umturnast. „Það var meira að
fara að gráta hægt, skilurðu? Það var
svolítið erfitt.“
Ingvari var greinilega óljúft
að þurfa að græta Ídu Mekkín en
„maður tekur hana bara í fangið
inn á milli og auðvitað var þetta
erfitt fyrir hana. Og erfitt fyrir mig
líka. Þetta var hræðilega erfitt. Ég
var alveg að deyja, mér leið svo illa
að þurfa að skamma barnið,“ segir
hann. „En hún skildi ósköp vel hvað
var í gangi. Að við erum að búa til
bíómynd sem þarf að leika. Þótt hún
sé bara ellefu ára þá skilur hún það.“
Ingvar er bara frábær
Ída Mekkín segir pabba sinn, leik-
stjórann, og Ingvar hafa hjálpað
henni mikið. Hvor á sinn hátt.
„Pabbi hjálpaði mér náttúrlega með
leikinn, eða þannig, og sagði mér
að það væri betra að ég gerði þetta
svona eða svona. Í gegnum árin er
hann búinn að gera stuttmyndir,
vídeó og svoleiðis með mér þann-
ig að maður er aðeins vanur þessu,“
segir hún og víkur síðan að mót-
leikaranum.
„En sko, Ingvar, hann hjálpaði
mér mjög mikið með að muna texta
og að geta leikið vel, eða þannig. Út
af því að ef sá sem leikur á móti
manni er ekki góður þá er maður
sjálfur alveg bara út í hött, einhvers
staðar bara, þú veist. Veit ekkert
hvað maður á að gera.
En síðan eins og Ingvar, hann
er náttúrulega bara alveg frábær
leikari. Og leikur rosalega vel inn í
hlutverkin sín og allt það og þá er
eiginlega auðveldara að leika sjálf-
ur. Ég hefði örugglega aldrei getað
munað neinn texta ef ég hefði ekki
verið með hann á móti mér. Þá hefði
ég verið alveg bara „öhhh …“.
Dásamlegur tími
Ingvar vill þó ekki gera of mikið úr
sínu framlagi. „Það getur vel verið
að ég hafi einhvern tímann sagt
eitthvað við hana. Að prófa að gera
svona eða hitt og þetta, en þetta var
bara ekkert vandamál með hana.
Pabbi hennar sá um að leik-
stýra okkur og við gerðum eins og
hann sagði en lékum okkur líka og
spunnum. Þetta var alveg dásam-
legur tími og stórkostlegt samband
á milli okkar þótt ég segi sjálfur frá.
Það skiptir svo miklu máli.“
„Hefði verið
alveg bara
öhhh …“
Samleikur Ingvars E. Sigurðssonar og Ídu
Mekkínar í Hvítur, hvítur dagur er undur-
samlegur enda náðu þau vel saman og áttu
samverustundir við gerð myndarinnar.
Ingvar þekkir af eigin raun hvern-
ig er að eiga börn sem spreyta sig
fyrir framan tökuvélina en hann
lék í Kaldaljósi 2004 ásamt börnum
sínum, Ásláki og Snæfríði.
„Ég man eftir því að þegar þau
voru eitthvað að leita til mín þá
sagði ég bara við þau: „Þið eruð með
leikstjóra og þið treystið honum.“
Hilmar Oddsson leikstýrði Kalda-
ljósi og Ingvar segir hann alveg hafa
boðið honum upp á að skipta sér af.
„Ég sagði að það yrði bara f lókið ef
ég færi að blanda mér í þetta.“
Pabbi stundum pirrandi
En hvernig fannst Ídu Mekkín að
þurfa að lúta í einu og öllu fyrir-
mælum leikstjórans sem vitaskuld
er einvaldur á tökustað?
„Sko, það var stundum svolítið
pirrandi en samt mjög fínt. Ef þetta
hefði verið með einhverjum öðrum
leikstjóra, sem hefði verið alveg eins
og pabbi hefði þetta örugglega verið
miklu verra. En ég meina, þetta er
pabbi minn þannig að það þýðir
ekkert að væla yfir því.“
Í kvikmyndahátíðaskapi
Þótt tökur séu langt að baki og
myndin hafi verið frumsýnd er
vinnu leikaranna ekki lokið. Kynn-
ingarstarf og kvikmyndahátíðir taka
við. Þrátt fyrir gott gengi hingað til
segir Ingvar að þetta sé í raun rétt að
byrja en góðu heilli þá eru leikfélag-
arnir ekki síður góðir ferðafélagar.
„Ég fór á Cannes. Það var mjög
gaman að upplifa eitthvað nýtt,“
segir Ída Mekkín sem fékk að kynn-
ast stressinu í hátíðarbransanum.
„Það var samt lítill tími. Þetta var
svo tímaþröngt, skilurðu. Maður
þurfti alveg að mæta á slaginu og ef
maður mætti of seint þá var maður
búinn að missa af öllu og það var nú
varla hægt að seinka neinu af því að
það voru svo margir þarna. Maður
var bara hlaupandi á milli staða.
Endalaust.
Síðast fórum við til Póllands og
það var aðeins betra og skemmti-
legra. Við erum alltaf á ferðinni og
gerum alltaf eitthvað saman; ég,
pabbi og Ingvar og ef það er einhver
annar þá tökum við hann bara líka
með. Eins og í Póllandi. Þá fórum við
í einhvern dýragarð einhvers staðar.
Það var mjög flott reyndar.“
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
Afi öskrar á dótturdótturina í sársaukafullu atriði sem tók á þau bæði, Ídu
Mekkín og Ingvar, sem fannst hræðilegt að þurfa að öskra á barnið.
Ingvar og Ída Mekkín túlka afa og barnabarn með látlausum tilþrifum í Hvítur, hvítur dagur. Þau tengdu strax þegar
þau hittust og eru hinir mestu mátar og hafa ekki síður skemmt sér í eftirleiknum. MYND/PIERRE CAUDEVELLE
1 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
C
4
-9
9
3
C
2
3
C
4
-9
8
0
0
2
3
C
4
-9
6
C
4
2
3
C
4
-9
5
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K