Fréttablaðið - 14.09.2019, Síða 96

Fréttablaðið - 14.09.2019, Síða 96
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Óttars Guðmundssonar BAKÞANKAR Á síðustu dögum og vikum hefur umferðarþunginn í Reykjavík og nærsveitum aukist til muna. Fjölmiðlar birta daglega raunasögur um Mos- fellinga sem sátu í bílum sínum 1-2 klukkustundir til að komast til höfuðborgarinnar. Námfúsir nemar í HR voru þrjá tíma að kom- ast frá Bústaðavegi inn í Nauthóls- vík. Bílum hefur fjölgað gífurlega á liðnum árum en vegirnir ekki lengst að sama skapi. Svo bætast við allir útlendingarnir á bílaleigu- bílum sem hvorki þekkja umferð- arreglur né kunna að keyra. Þjóðin vill sinn einkabíl enda ferðast einungis börn og sérvitringar á reiðhjóli eða í strætó. Ástandið batnar ekki og þessir umferðar- hnútar eru komnir til að vera. Bifreiðaframleiðendur verða að svara þessu með auknu framboði af af þreyingar- og skemmtiefni til að stytta fólki stundir. Vélarstærð skiptir æ minna máli vegna þess að hraðinn í biðröðunum er takmark- aður. Í staðinn geta menn hannað sjónvarpsskjái og leiki sem henta biðtímanum. Leikjaframleiðendur geta búið til tölvuleiki sem stjórna má úr stýrinu. Með samstilltu tölvuátaki gætu margir ökumenn leikið hver við annan meðan beðið er. Hægt væri að bjóða upp á alls konar námskeið og kennsluefni fyrir fólkið í röðunum. Venjulegur Mosfellingur ætti auðveldlega að geta lært ítölsku og þýsku í þar til gerðu tungumálaforriti fyrir raðir í stað þess að bölsótast út í borgar- stjórnarmeirihlutann. Nemendur HR gætu stórbætt námsárangur sinn með því að nota tímann í röðinni. Nuddtæki fyrir höfuð og axlir ætti að vera í hverjum bíl. Þannig má nýta raðirnar á uppbyggilegan hátt. Menntuð og jákvæð þjóð stígur út úr bílnum sínum með bros á vör eftir 2-3 skemmtilegar klukkustundir í umferðarteppu. Í röðinni NÝTT EDSBRUK rammi B30×H40cm 1.390,- 990 KR/KG 1.990 Verð áður: FYRIR SVANGA FERÐALANGA *0,5 l gos í plasti frá Ölgerðinni. Tilbúin vara, ekki hægt að breyta. PANINI OG GOS* COMBO VERÐ: 499KR 1 4 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 9 6 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 C 4 -6 7 D C 2 3 C 4 -6 6 A 0 2 3 C 4 -6 5 6 4 2 3 C 4 -6 4 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.