Morgunblaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 0. M A Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 109. tölublað 107. árgangur
LÓA OG ÓLIVER
LIFA Á JAÐR-
INUM Í EDEN
JENNY
SAGT UPP
HJÁ ÍBV
SÝNING HALL-
GRÍMS HELGA
KLOF & PRÍ$
ÍÞRÓTTIR UNDIRLIGGJANDI ÓGN 28ÍSLENSK KVIKMYND 29
Sveitarfélög
» Besti ársreikningur Reykja-
nesbæjar í 25 ár.
» Rekstrarafgangur Garða-
bæjar 806 milljónir í stað 468
milljóna skv. áætlun.
» Rekstur í jafnvægi á Akureyri.
Guðrún Erlingsdóttir
Ómar Friðriksson
Rekstrarniðurstöður úr ársreikning-
um stærstu sveitarfélaga landsins
eru betri en fjárhagsáætlanir gerðu
ráð fyrir miðað við niðurstöður A- og
B-hluta sveitarsjóða. Niðurstöðurn-
ar eru einnig jákvæðari, en bráða-
birgðaniðurstaða Hagstofunnar frá
því í mars fyrir allt landið gerði ráð
fyrir 7,5 milljarða halla.
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir að víða hafi sveitarfélög skilað
ágætis niðurstöðum og vel hafi til
tekist. Það sé ánægjulegt að niður-
stöður ársreikninga séu í samræmi
við áætlanir en hagnaður sé í svipuðu
hlutfalli og verið hefur.
„Það verður að taka með í reikn-
inginn að góðærið nær ekki út um
allt land og hefur meiri áhrif í þétt-
býli en dreifbýli. Loðnubrestur hef-
ur einnig gríðarleg áhrif á sjávar-
byggðir,“ segir Aldís sem bætir við
að sveitarfélögin hafi fjárfest og
staðið myndarlega að uppbyggingu
þjónustu vegna fjölgunar íbúa. Það
sé nauðsynlegt að stíga varlega til
jarðar og vinna að því að fyrirhuguð
áform um frystingu framlaga úr
jöfnunarsjóði nái ekki fram að ganga
enda séu blikur á lofti.
Afkoma betri en spáð var
Stærri sveitarfélögin skila jákvæðum ársreikningum Góðærið nær ekki á
landsbyggðina Hagnaður í svipuðu hlutfalli og verið hefur Blikur á lofti
MÓviss afkoma næstu ár »6
Morgunblaðið/Hari
Nýtt Landsbankinn opnar á nýjar greiðsluleiðir.
Landsbankinn er fyrstur viðskiptabankanna þriggja
til að bjóða upp á greiðsluleiðir fyrir allar tegundir
farsíma. Nú geta viðskiptavinir hans nýtt sér Apple
Pay en einnig leið sem sniðin er að þörfum þeirra
sem notast við farsíma með Android-stýrikerfið.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbank-
ans, segir þá ákvörðun að efna til samstarfs við
Apple á þessu sviði til þess gerða að einfalda við-
skiptavinum að eiga viðskipti í verslunum, snjall-
forritum og netverslunum.
Spurð út í samstarfið við Apple segir hún að
Apple sé markaðsráðandi á heimsvísu í þessum efn-
um og því hafi legið fyrir að þessi leið væri mikilvæg
til að tryggja viðskiptavinum Landsbankans sem
besta þjónustu. Það sé eitt skref af mörgum sem
bankinn taki þessi misserin til að tryggja sem besta
þjónustu.
Nýverið birti bankinn uppgjör fyrir fyrsta árs-
fjórðung og reyndist hagnaður af starfsemi hans 6,8
milljarðar króna. Lilja Björk segir að nú sé rekstur
bankans í góðu jafnvægi og horfurnar góðar. »12
Opnar á flestar
greiðsluleiðir
Samstarf við risann Apple
Nýtt tónverk hljómsveitarinnar Ham ómaði við
innsetningu á verki fulltrúa Íslands á Feneyja-
tvíæringnum, Hrafnhildar Arnardóttur/
Shoplifter. Verk Shoplifter, sem ber nafnið
Cromo Sapiens, einkennist af gervihári, hljóði
og aðlaðandi áferð sem leiðir áhorfendur í
gegnum þrjú ólík rými; drungaleg hellakynni,
litríka hvelfingu og himneskt hreiður.
Litagleði á Feneyjatvíæringnum
Ljósmynd/Nína Hjálmarsdóttir
Unnið er að því hjá Akranes-
kaupstað að útfæra hugmyndir um
að ferjusiglingar hefjist að nýju á
milli Reykjavíkur og Akraness.
Boðið var upp á slíkar siglingar
sumarið 2017 þegar ferjan Akra-
nes, sem var leigð frá Noregi, sigldi
þessa leið. Aðsókn var minni en
áætlað hafði verið af ýmsum ástæð-
um; verkefnið var ekki arðbært og
rekstraraðilinn hefði þurft stærra
mótframlag frá sveitarfélögunum
og lögðust siglingarnar af.
Núverandi hugmynd gerir m.a.
ráð fyrir að um tilraunaverkefni
verði að ræða sem standi í þrjú ár
og kosti 60 milljónir á ári. »14
Hugmyndir um ferju
yfir Faxaflóann
Umhverfis- og heilbrigðisráð
Reykjavíkur hefur samþykkt að sel-
ir fái friðhelgi á strandsvæðum og
við árósa í Reykjavík. Ráðið vill að
allri veiði á bæði land- og útsel
verði hætt innan lögsögu borg-
arinnar. Þá hvetur ráðið þá sem
stunda netaveiði í Faxaflóa til að
gera sitt til að koma í veg fyrir að
selir lendi í netum.
Varla er hægt að segja að selir
hafi verið veiddir fyrir landi
Reykjavíkur undanfarin ár, að sögn
Guðmundar Björnssonar, rekstrar-
stjóra meindýravarna hjá Reykja-
víkurborg. Hann telur að þrír selir
hafi verið veiddir á þrjátíu árum
síðan hann hóf störf. »4
Morgunblaðið/Ómar
Landselur Urta lætur vel að ungum kópi
sínum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Selveiðum verði
hætt í Reykjavík
Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-
dómstólsins, telur of seint að neita upptöku þriðja
orkupakkans, slíkt geti teflt aðild Íslands að EES-
samningnum í tvísýnu. Þetta kom fram í álitsgerð
sem hann kynnti utanríkismálanefnd Alþingis í
gær. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður
nefndarinnar, segist sátt við svör Baudenbachers
um að Íslendingar þurfi ekki að hafa áhyggjur af
því að missa forræði yfir auðlindinni eða verða
skyldaðir til þess að leggja sæstreng frá landinu.
Hún segir að EFTA-ríkin í sameiginlegu EES-
nefndinni muni senda frá sér yfirlýsingu í dag þar
sem sérstaða Íslands varðandi innri raforkumark-
að verði áréttuð. »2 og 14
EFTA-ríkin árétta
sérstöðu Íslands
Ekki er langt
í að verklegar
framkvæmdir
geti hafist við
lagningu nýrr-
ar háspennu-
línu Kröflulínu
3, en undirbún-
ingur er á loka-
stigi.
Kröflulína 3, sem verður 220 kw
loftlína, mun liggja milli Kröflu og
tengivirkis í Fljótsdal. Henni er
ætlað að tryggja stöðugleika raf-
orkukerfisins á Norður- og Aust-
urlandi með betri samtengingu
kerfanna og framleiðslu-
eininganna á Þeistareykjum og í
Fljótsdal.
Kostnaður við Kröflulínu 3 er
áætlaður tæpir átta milljarðar.
Stefnt er að því að framkvæmdum
ljúki í lok næsta árs. »4
Kröflulína 3 tekin í
notkun á næsta ári