Morgunblaðið - 10.05.2019, Side 25
Jennyjar meðan hún yrði fjarri
keppni. HSÍ neitaði og þar með telja
forsvarsmenn ÍBV að félagið hafi
ekki efni á hafa Jennyju áfram. Hún
flutti til Eyja fyrir þremur árum
ásamt eiginmanni og þremur börn-
um. Þau tjölduðu ekki til einnar næt-
ur. Keyptu sér þak yfir höfuðið enda
töldu þau sig hafa fast land undir fót-
um. Um leið losuðu þau um eignir
sínar og störf á höfuðborgarsvæðinu.
„Forsendurnar fyrir því að við
fluttum til Eyja voru þær að félagið
gæti boðið mér sambærileg laun og
ég hafði á höfuðborgarsvæðinu sam-
hliða vinnu. Ég hef verið í dagvinnu í
Eyjum auk þess sem ég hef fengið
laun frá ÍBV. Með uppsögn samn-
ingsins bresta forsendur okkar fyrir
að búa hér áfram. Kveðjurnar eru
fremur kaldar að mínu mati,“ sagði
Jenny, sem átti eftir að reka sig á
fleiri atriði sem ekki voru sem skyldi.
Samningur sá sem sem hún skrif-
aði undir var ekki samhljóða þeim
sem ÍBV sendi inn til Handknatt-
leikssambands Íslands. Upphæðir
greiðslna til Jennyjar mismunandi
auk þess sem ekkert riftunarákvæði
er í þeim samningi sem er í vörslu
HSÍ og hvergi minnst á tryggingar-
mál. „Ég held að það breyti engu
varðandi riftunina. Hins vegar þykir
mér merkilegur þessi feluleikur og
að hafa ekki allt uppi á borðinu gagn-
vart HSÍ,“ sagði Jenny.
Tveir leikmenn karlaliðs ÍBV
glíma við langvarandi meiðsli. Það
kom ekki í veg fyrir að framlengdur
var samningur við annan þeirra í
byrjun apríl þótt hann hafi lítið sem
ekkert leikið með liðinu á þessu ári.
„Mér finnst vera svolítil typpalykt af
þessu,“ sagði Jenny og bætir við að
mál hennar geti verið víti til varn-
aðar fyrir aðra leikmenn um að frá
samningum þeirra verið gengið eins
og á að gera og allt sé uppi á borðum.
„Það er óboðlegt að hægt sé að
segja fólki fyrirvaralaust upp og
skilja mann eftir í svona vondri
stöðu. Eins og staðan er í dag hef ég
ekkert félag á bak við mig, það er
mjög vont,“ sagði Jenny, sem hvetur
handboltafólk til þess að fara vel yfir
samninga þá sem það gerir og að það
sé allt uppi á borðum. Einnig að upp-
sagnarákvæði séu ekki eins opin og í
hennar tilfelli og hugað sé að trygg-
ingarmálum, ekki síst ef um lands-
liðsfólk er að ræða.
Fundinum lauk aldrei
„Mér finnst hreinlega ótrúlegt hjá
forráðamönnum ÍBV að koma svona
fram, bæði gagnvart mér í þeirri
stöðu sem ég er í og hitt að hafa ekki
alla hluti uppi á borðum og ganga frá
samningum við leikmenn sína eins
og á að gera,“ sagði Jenny og bætti
við að hún væri afar sár yfir ákvörð-
un ÍBV og einnig hvernig að henni
var staðið.
„Valið á fundarstaðnum er nú eitt
og sér afar sérstakt auk þess sem
fundinum lauk aldrei því meðan við
vorum að ræða saman komu leik-
menn meistaraflokks karla inn í klef-
ann til að skipta um föt fyrir æfingu.
Við vorum trufluð og fundinum lauk
aldrei sem slíkum. Framkoman var
mikil vanvirðing við mann, bæði sem
leikmann og persónu. Svona á ekki
að koma fram við fólk,“ sagði Jenny
sem veit ekki hvað tekur við. Tvennt
sé þó ljóst. Hún vill halda áfram að
leika handknattleik en hún hefur
engan áhuga á að leika aftur fyrir
ÍBV.
„Mér finnst ég eiga fullt erindi í
boltann áfram. Mér gekk vel, bæði
með landsliðinu og ÍBV. Tölfræði
vetrarins talar sínu máli. Ég er í
öðru sæti á lista yfir markverði
deildarinnar sem eru með hæstu
hlutfallsmarkvörsluna,“ sagði Guðný
Jenny Ásmundsdóttir, landsliðs-
markvörður í handknattleik, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Eggert
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
Einhvern tíma hef ég áður
minnst á nöfn íslenskra íþrótta-
mannvirkja á þessum stað í
blaðinu og hvernig sífellt fleiri
hús og vellir eru kennd við fyrir-
tæki.
Við því er svo sem lítið að
segja, félögin þurfa á fjármagni
að halda til rekstursins og fyrst
þau geta fengið aura inn í starfið
með því að ljá styrktaraðilum
nafn mannvirkisins þá er það í
sjálfu sér besta mál.
En nöfn mannvirkjanna verða
stundum ansi kostuleg. Sum
falla vel að íslensku máli, Egils-
höllin laumaði sér inn strax í
byrjun án þess að nokkur tæki
eftir og vellir kenndir við Nesfisk,
Nettó og Norðurál hljóma sæmi-
lega þó skemmtilegra væri að
þeir bæru enn nöfn Garðs, Kefla-
víkur og Akraness.
Akureyrarvöllur er nú
kenndur við veitingastaðinn
Greifann, hafi það farið framhjá
einhverjum. Ég veit ekki hversu
vel það mun venjast!
Þegar nöfnin eru erlend
verða þau stundum ankannaleg,
oft hreinlega ljót. Würth-völlur
Fylkis er nýjasta dæmið um það
og Europcar-völlurinn í Sand-
gerði er í sama flokki.
Í Vogum hét völlur fótbolta-
liðsins Þróttar um skeið Voga-
bæjarvöllur. Nú hafa Þróttarar
stigið skrefinu lengra. Í ár heitir
sá ágæti leikvangur Vogaídýfu-
völlurinn! Úff...
En KR-ingar frá hrós dags-
ins. Þeir eru á milli skipa, ekki
lengur með Alvogen í vallarnafn-
inu og ekkert nýtt komið í stað-
inn. Í leikjadagskrá KSÍ eru
heimaleikir KR nú sagðir fara
fram á Meistaravöllum. Fyrir
ókunnuga, þá liggur gata með
því nafni að vellinum. Og svo
fylgir þessu skemmtilegur hroki!
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
FH og KA mætast í fyrsta leik
þriðju umferðar úrvalsdeildar
karla í fótbolta, Pepsi Max-
deildarinnar, á grasvellinum í
Kaplakrika í kvöld klukkan 18. Lið-
in eiga það sameiginlegt að hafa
sigrað Íslandsmeistara Vals í þess-
um mánuði. FH vann Val í bik-
arnum, 2:1, á verkalýðsdaginn og
fjórum dögum síðar unnu KA-menn
góðan sigur, 1:0, á meisturunum á
Akureyri. FH-ingar verða án
Brands Olsens sem fékk rauða
spjaldið í 1:1 jafnteflinu við Víking
á mánudagskvöldið.
Miðvörðurinn öflugi Björn
Berg Bryde verður ekki með HK í
kvöld þegar liðið sækir heim ná-
granna sína í Stjörnunni. Björn er í
láni hjá HK frá Garðabæjarfélaginu
og fær því ekki að spila leikina tvo
gegn því. Þar verður skarð fyrir
skildi í vörn HK en Björn hefur
byrjað tímabilið afar vel með liðinu
og átti stórleik í 2:2 jafnteflinu
gegn Breiðabliki um síðustu helgi.
Stjarnan og HK hafa aldrei áður
mæst í efstu deild því þegar HK var
þar árin 2007-08 var Stjarnan deild
neðar, en kom upp á sama tíma og
HK féll. Liðin hafa því ekki mæst í
deildakeppni frá árinu 2006 en þá
unnu þau hvort annað á sínum
heimavelli í 1. deildinni.
Breiðablik leikur heimaleik
sinn við Víking í kvöld á Würth-
velli Fylkis, vegna framkvæmda á
Kópavogsvelli. Þetta er í fyrsta sinn
frá árinu 1981 sem Blikar leika
heimaleik í Reykjavík en þeir
spiluðu heimaleikina í efstu deild
árin 1971 til 1973 á Melavellinum.
Þar þurftu þeir einnig að mæta
Fram í fyrsta heimaleik vorið 1981.
Tveir Valsbanar hefja
3. umferðina í kvöld
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
KA Hallgrímur Mar Steingrímsson
skoraði sigurmarkið gegn Val.