Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • sími 540 0160 VERKEFNASTJÓRI sterkstraums Starfssvið • Skipulag og umsjón námskeiða • Handleiðsla og kennsla • Þróun og nýsköpun • Kynningarmál • Gæðamál Hæfniskröfur • Reynsla af störfum innan sterkstraums • Reynsla af forritun stýringa kostur • Reynsla af kennslu kostur • Góð samskiptahæfni • Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun • Gott vald á íslensku og ensku í tali og ritun Menntunarkröfur • Sveinspróf innan rafiðngreina sterkstraums • Menntun á fagháskólastigi innan sterkstraums • Kennsluréttindi kostur • Tæknimenntun á háskólastigi kostur RAFMENNT, fræðslusetur rafiðnaðarins, óskar eftir að ráða verkefnastjóra í sterkstraumi RAFMENNT er samstarfsvettvangur Rafiðnaðarskólans og Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins og hefur það hlutverk að bjóða fræðslu og styðja fræðslutengd verkefni með það að markmiði að uppfylla fræðsluþörf á sviði rafiðnaðar og svara þannig þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma. Félögin eru í eigu SART og RSÍ. Umsóknir skulu sendar til framkvæmdastjóra sem veitir nánari upplýsingar um starfið á netfangið thor@rafmennt.is. Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 26. maí nk. rafmennt.is Kennari Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða dönskukennara fyrir skólaárið 2019-2020. Um er að ræða 50% stöðu á haustönn og 100% stöðu á vorönn. Hæfnikröfur:  Háskólapróf í dönsku.  Kennslufræði erlendra tungumála.  Hæfni í mannlegum samskiptum. Við bjóðum:  Góða vinnuaðstöðu.  Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen starfsmanna  og þróunarstjóri gunninga@verslo.is Umsóknarfrestur er til 24. maí og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið gunninga@verslo.is Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 930 nemendur. Skólinn er bekkjarskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið. Vélavörður Dögun ehf. leitar að vélaverði á Dag SK 17. Leitað er að aðila með réttindi (750 kw). Reynsla af togveiðum æskileg. Afleysingar í nokkra túra eða fast fram á haustið. Þarf að geta byrjað strax. Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, með tölvupósti til: oskar@dogun.is og/eða olafur@reyktal.is. Nánari upplýsingar veitir Óskar Garðarsson í síma 892-1586. Dögun ehf. var stofnað árið 1983. Fyrirtækið stundar rækjuvinnslu og útgerð, og er með aðsetur á Sauðárkróki. Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 50 nemendur. Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir eru miklir íþrótta álfar og státar þorpið af glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m sundlaug og fjöldann allan af skipu lögðum íþróttatímum. Atvinnulíf er með miklum blóma og uppbygging fiskeldis og ferða þjónustu á svæðinu býður upp á mikil tækifæri. Tálknafjarðarskóli auglýsir lausar stöður umsjónarkennara og stundakennara Í Tálknafjarðarskóla eru lausar til umsóknar eftirfarandi stöður: Tvær stöður umsjónarkennara á grunnskólastigi (100% starf). Fjölbreytt og skemmtileg störf sem fela m.a. mögulega í sér list- og verkgreinakennslu. Menntunar- og hæfniskröfur: • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla • Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum • Reglusemi og samviskusemi • Hefur hreint sakarvottorð Stöður stundakennara (10% - 40% starfshlutfall). List- og verkgreinakennsla, mögulega tilfallandi kennsla í samþættum verkefnum þvert á námsgreinar. Menntunar- og hæfniskröfur: • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla • Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum • Reglusemi og samviskusemi • Hefur hreint sakarvottorð Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störfin. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2019. Upplýsingar gefur Birna Hannesdóttir skólastjóri í síma 456 2537, 868 3915. Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið skolastjori@talknafjordur.is og verður móttaka umsókna staðfest. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2019 Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir faglærðum sveinum, meisturum í húsasmíði H45 verktakar ehf Frekari upplýsingar: Kristinn@h45.is / hlynur@h45.is 697 8910 / 694 9922 RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 www.radum.is • radum@radum.is Við ráðum Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar sniðnar að þörfum viðskiptavinarins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.