Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 3
Heildsala
í Reykjavík óskar eftir fólki eldra en 35 ára í
framtíðarstörf í afgreiðslu og í skrifstofu
vinnu, 50% vinna, þarf að tala og skrifa góða
íslensku. Umsóknir sendist á box@mbl.is
merkart: ,,H - 26526”
Starfsfólk óskast
Starfskraftur óskast við uppsetningu.
Einnig vantar starfkraft við framleiðslu.
Áhugasamir sendi á ellert@alnabaer.is
Heildsala
í Reykjavík óskar eftir duglegum
skólakrökkum í sumarvinnu.
Umsóknir sendist á box@mbl.is, merktar:
,,R - 26527”.
Landssamband kúabænda auglýsir laust til um-
sóknar starf verkefnastjóra. Starfið felst í grein-
ingu á íslenskum nautakjötsmarkaði og markaðs-
færslu íslenskrar nautakjötsframleiðslu. Skrifstofa
Landssambands kúabænda er í Bændahöllinni við
Hagatorg í Reykjavík og möguleiki á skrifstofu til
umráða þar en starfið er auglýst án búsetuskilyrða.
Starfinu gætu fylgt einhver ferðalög ef nánari út-
færsla verkefnisins í samráði við stjórn LK krefst
þess. Um er að ræða 100% vinnuhlutfall fyrir einn
starfsmann í 12-18 mánuðir en skil á lokaskýrslu eru
áætluð fyrir lok árs 2020. Vinnutilhögun og vinnutími
verður eftir nánara samkomulagi við stjórn.
Verkefnið sem um ræðir snýr meðal annars að
greiningu á framleiðslukostnaði og getu, samræm-
ingu í framleiðslu og eftirspurn, úttekt á sam-
keppnisstöðu íslensks nautakjöts ásamt markaðs-
yfirferð og úrvinnslu í framsetningu, merkingum,
straumum og stefnum þegar kemur að vörufram-
setningu og þróun nautakjöts.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Viðeigandi greiningar, markaðsátak og
ráðstafanir samkvæmt verklýsingu
• Áætlanagerð, undirbúningur og frágangur
• Upplýsingaöflun og úrvinnsla þeirra með
aðgerðum til úrbóta
• Samskipti við og vinna með bændum,
ráðunautum, samtökum bænda, ráðuneytum,
sláturleyfishöfum, ráðgjöfum og öðrum stofnunum
til aðgerða í markaðsmálum
• Samskipti við og upplýsingagjöf til stjórnar og
framkvæmdarstjóra Landssambands kúabænda
m.a. með áfangaskýrslum
• Lokaskýrsla verkefnis og kynningafundir/-
kynningaefni
• Komið gæti til annarra tilfallandi verkefna í
tengslum við starfsumhverfi
Hæfnikröfur
• Þekking og reynsla af nautgriparækt eða
matvælaiðnaði er kostur
• Einhver þekking á stoðkerfi landbúnaðar, helstu
stofnunum og félagskerfi bænda er kostur
• Mjög gott vald á íslensku er nauðsyn,
önnur tungumálakunnátta er kostur
• Góð tölvukunnátta er nauðsyn,
reynsla af skýrslugerð er kostur
• Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, vera
ábyrgur, vandvirkur og talnaglöggur
• Jafnframt að vera jákvæður og hafa góða hæfni í
mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veitir:
Jóhanna María Sigmundsdóttir, framkvæmdarstjóri
LK í síma 845-1859 eða gegnum netfangið
lk@naut.is
Umsóknir óskast sendar á lk@naut.is og þeim skal
fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2019.
Verkefnastjóri hjá Landssambandi kúabænda
Leita að starfi
í hugbúnaðargeiranum
Er tölvunarfræðingur með BS gráðu frá HR.
Einnig get ég tekið að mér verkefni s.s. forritun,
einfalda heimasíðugerð og viðgerðir.
Hægt er að hafa samband við mig bæði í sima
849 8985 eða netf. kristofer85@yahoo.com
Sérkennari óskast
Heilsuleikskólinn Kæribær og Kirkjubæjarskóli
á Síðu í Skaftárhreppi óska eftir að ráða í stöðu
sérkennara fyrir skólaárið 2019-2020.
Um er að ræða 100% starf sem skiptist jafnt á milli
skólastiga.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til kennslu í leik- og/eða grunnskóla
• Menntun á sviði sérkennslu eða önnur
sambærileg menntun
• Reynsla af kennslu á báðum skólastigum æskileg
• Jákvæðni sveiganleiki og færni í samskiptum við
nemendur
• Frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Stundvísi og samviskusemi
• Reynsla af teymisvinnu
Helstu verkefni og ábyrgð:
Halda utan um öll sérkennslumál á báðum skóla-
stigum og er kennurum til stuðnings varðandi nám
og kennslu barna sem þarfnast stuðnings.
Launakjör skv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitar-
félaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknum skal skilað til Katrínar Gunnarsdóttur,
skólastjóra á netfangið skolastjori@klaustur.is.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af leyfis-
bréfi auk sakavottorðs.
Umsóknarfrestur er til og með 31.maí 2019.
Nánari upplýsingar veita Katrín Gunnarsdóttir í
síma 865 7440 eða í gegnum tölvupóst og Guðrún
Sigurðardóttir leikskólastjóri í síma 487 4803 eða í
gegnum tölvupóst á netfangið leikskoli@klaustur.is
HÚNAÞING
VESTRA
Starfssvið rekstrarstjóra
• Stjórnun þjónustumiðstöðvar í samvinnu við
veitustjóra.
• Áætlanagerð og eftirlit í samvinnu við fram-
kvæmdaráð og aðra starfsmenn sveitarfélagsins
eftir því sem við á.
• Ber ábyrgð á:
• eignasjóði
• hafnarsjóði
• úrgangsmálum
• Önnur mál á sviði umhverfissviðs í samráði við
sveitarstjóra.
• Rekstrarstjóri hefur starfsstöð í Ráðhúsi
Húnaþings vestra.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Meistarapróf í löggiltri iðngrein sem nýtist í starfi
og/eða háskólapróf í tæknigreinum kostur.
• Reynsla af verklegum framkvæmdum er
nauðsynleg.
• Reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg.
• Reynsla af áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðar- og
fjárhagsáætlanagerð er æskileg.
• Góð almenn tölvuþekking skilyrði, kunnátta á
teiknihugbúnaði er kostur.
• Leiðtogahæfni, jákvæðni, þjónustulund og
hæfni í mannlegum samskiptum er mikilvæg.
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og
skipulagshæfni.
• Geta til að tjá sig í ræðu og riti.
Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár
og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í
starfið.
Stefnt skal að því að viðkomandi hefji störf 1. júlí nk.
eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2019.
Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra Húnaþings
vestra á netfangið gudny@hunathing.is. Við hvetjum
bæði konur og karla til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Unnsteinn Óskar Andrés-
son, rekstrarstjóri umhverfissviðs Húnaþings vestra
í síma 771-4950 eða í gegnum netfangið
unnsteinn@hunathing.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Rekstrarstjóri umhverfissviðs
Laust er til umsóknar starf rekstrarstjóra umhverfissviðs sveitarfélagsins Húnaþings vestra. Um er að ræða
100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf
rekstrarstjóra umhverfissviðs.
Hvammstangi er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins með um 600 íbúa og íbúar í Húnaþingi vestra eru
1.200. Húnaþing vestra er í alfaraleið í u.þ.b. tveggja klst. akstursfjarlægð frá Reykjavík og Akureyri, vestast
á Norðurlandi og er með góðar tengingar inn á Vesturland og Vestfirði. Í Húnaþingi vestra er öll almenn
opinber þjónusta til staðar auk annarrar fjölbreyttrar þjónustu hvort sem leitað er að góðum búsetukosti
eða stað til að upplifa náttúru, sögu og mannlíf í fögru umhverfi. Möguleikar til útivistar, íþrótta, afþreyingar
og félags starfa eru fjölmargir og því er Húnaþing vestra kjörinn búsetukostur.