Morgunblaðið - 18.05.2019, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019
Langanesbyggð leitar að framfarasinnuðum, skapandi og
farsælum leiðtoga til að stýra Grunnskólanum á Þórshöfn
frá og með næsta skólaári
Skólastjóri er fyrst og fremst faglegur leiðtogi sem þarf að fylkja liði um stefnu skólans og árangur-
sríka starfshætti. Leitað er að bjartsýnum og lausnamiðuðum einstaklingi með mikinn metnað,
sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á velferð og framfarir nemenda í góðu
samstarfi við starfsfólk og foreldra. Skólastjóri stýrir og ber ábyrgð á daglegum rekstri, mannauðs-
málum og annarri starfsemi skólans og að skólastarf sé í samræmi við lög og reglugerðir.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun og leyfisbréf grunnskólakennara
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og nýjungum í skólastarfi er skilyrði.
• Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er æskileg.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og kennslufræða er æskileg.
• Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi, sveiganleika og hæfni í
mannlegum samskiptum.
• Góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði er kostur
• Gerð er krafa um vammleysi. s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á
vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókn fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt greinargerð þar sem m.a. komi fram ástæða umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins.
Starfsfólk Grunnskólans á Þórshöfn hefur tekið virkan þátt í þróunarstarfi á síðustu árum þar sem
lögð hefur verið áhersla á þróun fjölbreyttra kennsluhátta, teymisvinnu og á aukna lýðræðislega
þátttöku nemenda í skólastarfinu. Framundan er áframhaldandi spennandi skólaþróun.
Unnið er að því að koma á sameiginlegri skólastjórn Grunnskólans á Þórshöfn og leikskólans
Barnabóls. Skólastjórn sér um og stjórnar sameiginlegum verkefnum og stefnumótun.
Hvor skólastjóri um sig sinnir daglegri stjórn á hvorum stað en munu m.a. sjá sameiginlega um
mannaráðningar og hafa þannig stjórnunarlegan stuðning hvor af öðrum.
Umsóknarfrestur er til 31. maí og skulu umsóknir sendar rafrænt á netfangið elias@
langanesbyggd.is
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Elías Pétursson, sveitarstjóri í síma 4681220 eða 8920989, netfang: elias@langanesbyggd.is
Gunnar Gíslason, ráðgjafi í síma 8921453, netfang: gg@akmennt.is
Skólastjóri óskast til starfa við
Grunnskólann á Þórshöfn
Í Grunnskóla Þórshafnar eru tæplega 70
nemendur og starfsmenn eru um 25.
Starfsemi skólans einkennist af kraft-
miklu og framsæknu skólastarfi. Sam-
hliða skólanum er rekinn tónlistarskóli og
hefð er fyrir öflugu íþróttastarfi fyrir alla
aldurshópa skólans.
Langanesbyggð er öflugt og vaxandi
sveitarfélag með spennandi framtíðar-
möguleika. Á Þórshöfn búa um 400
manns í fjölskylduvænu umhverfi. Skólinn
var endurnýjaður árið 2016 og er öll
aðstaða og aðbúnaður til fyrirmyndar. Nýr
leikskóli er í byggingu og verður tekin
í gagnið í sumar Gott íbúðarhúsnæði
er til staðar og öll almenn þjónusta er á
Þórs höfn. Á staðnum er gott íþróttahús
og inni sundlaug og Ungmennafélag
Langa ness stendur fyrir öflugu íþrót-
tastarfi. Í þorpinu er mikið og fjölbreytt
félagslíf. Samgöngur eru góðar, m.a. flug
fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um
Akureyri. Í næsta nágrenni eru margar
helstu náttúruperlur landsins og ótal
spennandi útivistarmöguleikar, s.s. fall-
egar gönguleiðir og stang- og skotveiði.
Langanesbyggð leitar að fólki á öllum
aldri, af báðum kynjum, með margs
konar menntun og reynslu. Í samræmi
við jafnréttis áætlun Langanesbyggðar eru
karlar jafnt sem konur hvött til að sækja
um störf hjá sveitarfélaginu.
Lögmaður
Borgarlögmaður
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Starf lögmanns hjá embætti borgarlögmanns er laust til umsóknar.
Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf í starfsumhverfi þar sem reynir á góða alhliða þekkingu á flestum réttarsviðum
lögfræðinnar. Áhersla er lögð á símenntun og miðlun þekkingar milli starfsfólks. Embætti borgarlögmanns er með
aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur og þar eru stöðugildi átta lögmanna auk skrifstofustjóra.
Um er að ræða fullt starf og greiðast laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Stéttarfélags lögfræðinga.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ebba Schram borgarlögmaður í síma 411 4100 eða í gegnum netfangið
ebba.schram@reykjavik.is.
Umsóknarfrestur er til 5. júní nk.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi
til að gegna starfinu. Umsóknum skal skila rafrænt á vefsíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættispróf eða meistarapróf í lögfræði
• Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi
• Reynsla af málflutningi æskileg
• Þekking á stjórnsýslurétti er kostur
• Þekking á opinberum innkaupum og/eða útboðs- og
verktakarétti er kostur
• Góð færni til framsetningar máls í ræðu og riti
• Skipuleg og fagleg vinnubrögð
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Lipurð og færni í samskiptum
Helstu verkefni:
• Lögfræðilegar álitsgerðir og ráðgjöf til borgarstjórnar,
borgarráðs, borgarstjóra, stofnana og fyrirtækja
Reykjavíkurborgar
• Undirbúningur dómsmála og málflutningur
• Meðferð stjórnsýslumála
• Samningagerð
• Fyrirsvar vegna skaðabótakrafna sem beint er gegn
Reykjavíkurborg
• Uppgjör slysabóta á grundvelli kjarasamninga
Ráðgjafar okkar búa
r ðkr
kkgu
á auu og
a rau
a og
r
u
ga ráðgjf
capacent.is
Starfsmenn Sets hf. vinna
þessa dagana við samsetn-
ingu á rörum í nýrri stofnæð
hitaveitu Norðurorku, frá
borholu á Hjalteyri til Ak-
ureyrar. Set varð hlutskarp-
ast þegar
Norður-
orka bauð
út kaup á
einangruð-
um stál-
pípum fyr-
ir veituna,
en lögnin
sem hér
um ræðir
er alls 21
km. Verk-
efnið sem á að ljúka árið
2021 felur í sér einangrun á
16 metra löngum 500 mm
stálpípum í 710 mm hlífð-
arkápu. Rörin voru einangr-
uð í verksmiðju Set Pipes í
Þýskalandi og svo flutt til
Akureyrar. Set einangraði
einnig efni í fyrsta áfanga
stofnæðarinnar 1,9 km sem
lagðir voru innanbæjar á
Akureyri og út úr bænum á
síðasta ári. „Þetta er stór-
verkefni í okkar fram-
leiðslu,“ segir Bergsteinn
Einarsson framkvæmdastóri
Sets.
Á árunum 2002-2003 hóf
Norðurorka tilraunaboranir
eftir heitu vatni á Hjalteyri,
20 km norðan Akureyrar.
Boranir gáfu góða raun og
var strax ráðist í lagningu
aðveitulagnar til Akureyrar.
Stækkun bæjarins hefur
verið ör og nú er unnið að
nýrri aðveitu frá Hjalteyri
til styrkingar hitaveitukerf-
inu.
Bætt um
betur í vatnsöflun
Vatn fyrir hitaveituna á
Akureyri hefur hingað til
verið fengið að stórum hluta
frá Laugalandi í Eyjafjarð-
arsveit, en nú má segja að
það svæði sé fullnýtt. Borað
var, samkvæmt vísbending-
um, í tilraunaskyni eftir
heita vatni að Hjalteyri
sautján árum og skiluðu þær
athuganir góðri niðurstöðu.
Því var borhola þar virkjuð
og sett upp aðveitulögn til
Akureyri – og nú er bætt
um betur í vatnsöflun á
svæðinu og flutningi þaðan.
Aðveitulögnin nýja frá
Hjalteyri, sem Set framleiðir
rörin í, liggur að gatnamót-
um Glerárgötu og Þórunn-
arstrætis á Akureyri til
tenginga við innanbæjaræð-
ar hitaveitunnar. sbs@mbl.is
Lögn frá Hjalteyri
Set hf. með stórt verkefni fyrir
Norðurorku Hitaveiturör
Stæður Rörin eru framleidd í Þýskalandi í verksmiðju Sets
þar, en svo flutt sjóleiðis til Íslands og skipað upp nyrðra.
Bergsteinn
Einarsson
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hjalteyri Heitur reitur nú til
orkuöflunar fyrir Akureyri.
Í tilefni af gengi Íslands í
Eurovision setti Gæðabakst-
ur nú í vikulokin á markað
svonefnd hatborgarabrauð,
sem vísa til tónlistarmann-
anna Hatara sem flytja lagið
Hatrið mun sigra. „Þetta
gerðist mjög hratt. Eftir að
Ísland komst áfram að þá
hugsuðum við hvort við gæt-
um gert eitthvað sniðugt.
Einum sólarhring, það er 24
tímum seinna var búið að
hanna útlit, finna umbúðir,
þróa vöruna og koma afurð-
inni í pakka,“ segir Viktor
Sigurjónsson, sölu- og mark-
aðsstjóri Gæðabaksturs.
Hatborgarabrauð eru „tvö
berrössuð og glansandi ham-
borgarabrauð í svörtum lat-
ex-umbúðum,“ segir í frétt frá
Gæðabakstri og ennfremur.
„Útlitið er kannski svolítið
groddalegt, en þetta eru tvö
heiðarleg brauð sem eru mjúk
að innan og full af tilfinn-
ingum.“
Brauðin eru framleidd í
mjög takmörkuðu magni og
verða til á meðan birgðir end-
ast. Hatborgarabrauðin fást í
öllum helstu matvöruversl-
unum landsins. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hatarar Viktor Sigurjónsson sölustjóri með brauðin góðu.
Hatborgarabrauð
Eurovision hjá Gæðabakstri