Morgunblaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is
Margrét Hugrún Gústavsdóttir margret.hugrun@gmail.com Auglýsingar auglysingar@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
F
riðrik Ómar þekkir Eurovision-
heiminn út og inn en hann keppti
fyrir Íslands hönd árið 2008 ásamt
Regínu Ósk Óskarsdóttur með lagið
This Is My Life. Þótt Friðrik Ómar
hafi ekki komist til Ísrael til að keppa í Euro-
vison fyrir Íslands hönd komst hann þó til Tel
Aviv því hann ráðinn til að skemmta hörðustu
Eurovision-aðdáendunum ásamt Selmu
Björnsdóttur og Heru Björk Þórhallsdóttur.
Hvernig varð þér við þegar þér var boðið að
skemmta í Ísrael?
„Ég var nú mjög rólegur þar sem við höfum
verið nokkuð dugleg við að koma fram fyrir
aðdáendur keppninnar víðsvegar um Evrópu.
En ég er hinsvegar spenntur fyrir Tel Aviv.
Hef ekki komið þangað áður,“ sagði Friðrik
Ómar í samtali við Morgunblaðið áður en hann
hélt utan.
„OGAE er félag aðdáenda keppninnar líkt
og FÁSES hér heima og þeir standa fyrir við-
burðum á EuroCafé sem er klúbbur sem
ferðast með keppninni í raun. Þar munum við
Selma og Hera koma fram ásamt fullt af fyrr-
verandi keppendum,“ segir hann og bætir við:
„Þetta er bara þetta eina gigg og svo verð-
um við bara að túristast og vonandi náum við
að mæta í salinn 14. febrúar þegar Hatari stíg-
ur á svið. Við styðjum þá alla leið.“
Lagið This is my life lifir í hjörtum Euro-
vison-aðdáenda. Friðrik Ómar segir að það sé
bara ekkert skrýtið.
„Örlygur Smári hitti hommana í hjartastað
með laginu og Peter Fenner og Páll Óskar
gerðu það gott með þessum texta. Við Selma
munum koma fram saman og taka nokkra dú-
etta og auðvitað nokkur önnur íslensk lög sem
keppt hafa fyrir Íslands hönd. Það er það sem
áðdáendurnir vilja. Þetta eru the „hardcore
fans“! Þeir þekkja öll lögin okkar Íslendinga.“
Áður en Friðrik Ómar hélt til Ísrael setti
hann saman lagalistann ásamt Selmu Björns-
dóttur en annars var hann bara á því að
ferðast létt. „Lagalistinn er mikilvægasti und-
irbúningurinn. Annars bara léttur klæðnaður í
tösku, sólarvörn númer 100, aðrar varnir og
meikið,“ segir hann og hlær.
Friðrik Ómar vakti athygli í undankeppn-
inni hérna heima þegar hann klæddist hvítum
fötum frá toppi til táar. Verður þú í hvítu föt-
unum í Ísrael?
„Nei, til að tóna við Selmu verður það nú
eitthvað minimalískara. En við verðum flott.
Tökum þetta alla leið.“ Friðrik Ómar og Selma
ætla að vera í Ísrael í viku.
„Við komum heim fyrir úrslitakvöldið 18.
maí. Við verðum að vera á Íslandi ef við
vinnum nú keppnina. Hér verður brjáluð
stemning. Ég er sannfærður um að við kom-
umst áfram. Sjáum svo til með úrslitakvöldið.
Maður vonar það besta. Ég er þó viss um að
við Íslendingar verðum sáttir með Hatara eftir
keppni.“
„Við verðum að vera á Íslandi
18. maí ef við vinnum“
Poppstjarnan Friðrik Ómar
Hjörleifsson tók þátt í
Söngvakeppni Sjónvarpsins
hérlendis í febrúar með lagið
Hvað ef ég get ekki elskað?
Þótt lagið hafi ekki komist
áfram er Friðrik Ómar samt
kominn til Tel Aviv.
Marta María | mm@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Fjöllistahópurinn Hatarar hefur vakið heims-
athygli fyrir hegðun, tónlist og búninga.
Klemens, meðlimur Hatara, er að starta nýju
trendi. Að vera með gleraugu og ber að ofan.
Kolbeinn Tumi Daðason og Selma Björns-
dóttir eru mögulega heitasta parið í Tel Aviv.
Búningar Hatara þykja
svolítið ögrandi.
Selma og Friðrik Ómar
ásamt æstum aðdáendum.