Morgunblaðið - 14.05.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.05.2019, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is Margrét Hugrún Gústavsdóttir margret.hugrun@gmail.com Auglýsingar auglysingar@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson F riðrik Ómar þekkir Eurovision- heiminn út og inn en hann keppti fyrir Íslands hönd árið 2008 ásamt Regínu Ósk Óskarsdóttur með lagið This Is My Life. Þótt Friðrik Ómar hafi ekki komist til Ísrael til að keppa í Euro- vison fyrir Íslands hönd komst hann þó til Tel Aviv því hann ráðinn til að skemmta hörðustu Eurovision-aðdáendunum ásamt Selmu Björnsdóttur og Heru Björk Þórhallsdóttur. Hvernig varð þér við þegar þér var boðið að skemmta í Ísrael? „Ég var nú mjög rólegur þar sem við höfum verið nokkuð dugleg við að koma fram fyrir aðdáendur keppninnar víðsvegar um Evrópu. En ég er hinsvegar spenntur fyrir Tel Aviv. Hef ekki komið þangað áður,“ sagði Friðrik Ómar í samtali við Morgunblaðið áður en hann hélt utan. „OGAE er félag aðdáenda keppninnar líkt og FÁSES hér heima og þeir standa fyrir við- burðum á EuroCafé sem er klúbbur sem ferðast með keppninni í raun. Þar munum við Selma og Hera koma fram ásamt fullt af fyrr- verandi keppendum,“ segir hann og bætir við: „Þetta er bara þetta eina gigg og svo verð- um við bara að túristast og vonandi náum við að mæta í salinn 14. febrúar þegar Hatari stíg- ur á svið. Við styðjum þá alla leið.“ Lagið This is my life lifir í hjörtum Euro- vison-aðdáenda. Friðrik Ómar segir að það sé bara ekkert skrýtið. „Örlygur Smári hitti hommana í hjartastað með laginu og Peter Fenner og Páll Óskar gerðu það gott með þessum texta. Við Selma munum koma fram saman og taka nokkra dú- etta og auðvitað nokkur önnur íslensk lög sem keppt hafa fyrir Íslands hönd. Það er það sem áðdáendurnir vilja. Þetta eru the „hardcore fans“! Þeir þekkja öll lögin okkar Íslendinga.“ Áður en Friðrik Ómar hélt til Ísrael setti hann saman lagalistann ásamt Selmu Björns- dóttur en annars var hann bara á því að ferðast létt. „Lagalistinn er mikilvægasti und- irbúningurinn. Annars bara léttur klæðnaður í tösku, sólarvörn númer 100, aðrar varnir og meikið,“ segir hann og hlær. Friðrik Ómar vakti athygli í undankeppn- inni hérna heima þegar hann klæddist hvítum fötum frá toppi til táar. Verður þú í hvítu föt- unum í Ísrael? „Nei, til að tóna við Selmu verður það nú eitthvað minimalískara. En við verðum flott. Tökum þetta alla leið.“ Friðrik Ómar og Selma ætla að vera í Ísrael í viku. „Við komum heim fyrir úrslitakvöldið 18. maí. Við verðum að vera á Íslandi ef við vinnum nú keppnina. Hér verður brjáluð stemning. Ég er sannfærður um að við kom- umst áfram. Sjáum svo til með úrslitakvöldið. Maður vonar það besta. Ég er þó viss um að við Íslendingar verðum sáttir með Hatara eftir keppni.“ „Við verðum að vera á Íslandi 18. maí ef við vinnum“ Poppstjarnan Friðrik Ómar Hjörleifsson tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins hérlendis í febrúar með lagið Hvað ef ég get ekki elskað? Þótt lagið hafi ekki komist áfram er Friðrik Ómar samt kominn til Tel Aviv. Marta María | mm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Fjöllistahópurinn Hatarar hefur vakið heims- athygli fyrir hegðun, tónlist og búninga. Klemens, meðlimur Hatara, er að starta nýju trendi. Að vera með gleraugu og ber að ofan. Kolbeinn Tumi Daðason og Selma Björns- dóttir eru mögulega heitasta parið í Tel Aviv. Búningar Hatara þykja svolítið ögrandi. Selma og Friðrik Ómar ásamt æstum aðdáendum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.