Morgunblaðið - 14.05.2019, Side 4

Morgunblaðið - 14.05.2019, Side 4
E inhvern veginn hef ég alltaf heillast af lögunum sem fylgja ekki straumnum og helst ekki þessum sem eru flutt á ensku. Ég vil heyra móðurmálin. Mitt uppáhalds, uppáhalds Eurovision-lag frá upphafi er „C’est Le Dernier Qui A Parlé Qui A Raison“ með Aminu Anabi sem keppti fyrir hönd Frakklands árið 1991 en það var einmitt árið sem við sendum Nínu með Eyva og Stebba. Svo er Lapponia frá Finnlandi lag sem kemur mér alltaf í stuð. Lagið er jolly, búningurinn sjúkur og bak- raddaguttarnir náttúrlega eins kyn- þokkafullir og hægt er að vera í vel gyrtum 70’s buxum.“ Um leið og Díana sá Hatarana stíga á stokk var enginn vafi í hennar huga á að hópurinn myndi sigra og keppa svo fyr- ir Íslands hönd í Ísrael. „Sumir eru samt eitthvað að fárast yfir boðskapnum og búningunum en ég er persónulega mjög hrifin af þessu lúkki. Mér finnst frábært að sjá eitthvað sem er, því miður, talið ósiðlegt og óvið- eigandi fá að skína í dagsbirtunni.“ Það hefur alltaf loðað við keppnina að vera einhverskonar heimsárshátíð homma. Veistu hver ástæðan fyrir þessu getur verið? „Já, það er kannski ekkert flókið. Í Eurovision er yfirleitt öllum tekið fagn- andi, ekkert nema gleði og glimmer, öll- um regnbogans litum tjaldað til og allir glaðir saman. Hinsegin fólk elskar jú fjölbreytileikann.“ Hvað um Eurovision-partí? Eru þau hefð hjá þér og þínum? „Já, heldur betur! Ég og nokkrar vin- konur mínar höfum haldið júró-partí á hverju einasta ári í nokkur ár. Hefðin okkar er meðal annars þannig að við eldum alltaf eitthvað öðruvísi frá all skonar Evrópulöndum og auðvitað verður alltaf að vera gott freyðivín. Við erum reyndar bara fjórar og höfum ekki leyft mörgum að trufla okkur við þessa merkilegu athöfn enda þurfum við að hlusta á hvert lag af mikilli and- takt og leyfum ekkert ónæði.“ Hefur þú einhvern tíma haldið út í pílagrímsferð á sjálfa keppnina? „Já! Ég fór út þegar Hera keppti fyr- ir okkur í Noregi en þar sem allt var svo dýrt þarna þá myndi ég frekar fara til ódýrara lands í næsta skipti og gera þá meira úr ferðinni. Þegar við vorum í Noregi kynntumst við búningahönn- uðunum sem voru með hópnum frá Hvíta-Rússlandi, sátum með þeim á ein- verjum hótelbar og horfðum á for- keppni en þetta góða fólk átti heiðurinn að fiðrildavængjunum sem flestir muna eftir.“ Hvað ef þú sjálf yrðir valin sem fulltrúi Íslands í Eurovision? Hvernig yrði atriðið þitt? „Ef ég gæti nú sungið skammlaust myndi ég alveg elska að keppa fyrir hönd Íslands. Ég myndi líklega mæta í einhverskonar blikkandi regnboga, glimmer samfestingi með plíseruðum vængjum og syngja hádramatíska ball- öðu á íslensku. Að sjálfsögðu myndi ég þurfa öfluga vindvél og Regínu Ósk, Friðrik Ómar, Heru Björk, Siggu Bein- teins, Helgu Möller og Eirík Hauks sem bakraddir. Þau eru öll sjóaðir Eurovisi- nfarar og kunna þetta upp á tíu. Svo eru þau líka bara svo skemmtileg!“ Myndi syngja hádramatíska ballöðu og nota öfluga vindvél Þúsundþjalasmiðurinn og fjöllistakonan Díana Omel er rosalegur Eurovision-aðdáandi. Hún elskar búningana, menningarheimana og að eigin sögn, þetta snarruglaða „show“ sem er í kring um þessa margrómuðu (og ekki) keppni. Margrét Hugrún Gústavsdóttir | margret.hugrun@gmail.com Morgunblaðið/Hari Díana Omel er forfallinn Eurovision-aðdáandi. 4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.