Morgunblaðið - 14.05.2019, Page 10

Morgunblaðið - 14.05.2019, Page 10
S kjöldur flutti til Noregs fyrir um áratug og býr nú og starfar í Stav- anger, ekki aðeins sem hár- greiðslumaður heldur einnig sem stílisti, dragdrottningin Mio Amore og söngvari. Hann er með glæsilega og fjöl- breytta ferilskrá en á henni er meðal annars ferð á Eurovision-keppnina í Aþenu þar sem hann tók að sér að sjá um hárskraut dívunnar og vera henni innan handar með búninga um- stangið sem henni fylgdi. Skjöldur hefur verið mikill Eurovision- aðdáandi frá því hann man eftir sér. Euro- vision-keppnin var til að mynda alltaf haldin hátíðleg á hans heimili og barnaskólakenn- arinn hans mikill aðdáandi. „Kennarinn stóð til dæmis fyrir kosningu í bekknum sem mér fannst alveg geggjað spennandi. Ég hef alltaf elskað Eurovision! Lögin eru bæði góð og slæm en það er þessi yndislegi menningararfur, frá öllum þessum löndum sem koma saman og reyna að gera sitt besta á þremur mínútum. Svo eru það allir þessir klikkuðu búningar og dásamlega hræði- legu atriði sem standa alltaf fyrir sínu,“ segir Skjöldur og hlær. „Það sem er líka svo fyndið með keppnina er að flestir hafa mjög sterkar skoðanir á henni, líka fólk sem horfir aldrei á hana,“ bætir hann við. Töff og sætir strákar í gullskóm Líkt og með okkur flest þá er eitt Euro- vision-atriði sem á sér sérstakan stað í hjarta hans. „Ég man eftir þessu eins og það hefði gerst í gær. Þetta var lagið Diggi loo diggi ley með Herreys frá Svíþjóð. Árið var 1984 og ég fimm ára. Þarna stóðu þrír rosalega töff og sætir strákar í GULLSKÓM sem ég hafði auðvitað aldrei séð í minni sveit. Í Reykhólasveit í Barðastrandarsýslu þrömmuðum við jú á gúmmístígvélum og vinnuklossum sem voru tískan í Kaupfélaginu það misserið.“ Hannaði höfuðskrautið fyrir Sylvíu Nótt úr fjaðurkústum Eins og áður segir var Skjöldur í fremstu víglínu með Sylvíu Nótt árið 2006. Hann segir ferðina þá erfiðustu, en um leið skemmtileg- ustu sem hann hefur farið í og að undirbúning- urinn hafi verið gríðarlegur. „Ég vil leyfa mér að fullyrða að enginn íslenskur listamaður hef- ur farið út með jafn margar ferðatöskur og hún Sylvía okkar. Við erum að tala um fjall!“ Við hönnun höfuðskrauts dívunnar notaðist Skjöldur við ýmsa afganga sem hann gróf upp í búningasafninu hjá RÚV og fjaðurkústa sem hann fann á markaði í miðborg Aþenu. „Búningurinn varð ekki tilbúinn fyrr en á allra síðustu sekúndum enda þurftum við að sauma fjaðurdótið fast við hárið á greyinu svo það hryndi ekki úr í miðju atriði. Ég man að ég sagði við einhvern í hópnum að ef þetta væri líf poppstjörnunnar væri ekki að undra að þær færu stundum yfir um. Þetta var keyrsla sem stoppaði ekki í mínútu. Búningum, hári og förðun var breytt fyrir hverja uppákomu og hvert viðtal. Mig minnir að þetta hafi verið sirka sex sinnum á dag í þær tvær vikur sem við vorum þarna. Þrátt fyrir hasarinn var þetta líka tveggja vikna hláturskast enda geggjaður hópur og viðbjóðslega fyndið fólk.“ Ást og hatur á Hatara Skjöldur segir að bæði Norðmenn og allir sem hann hefur talað við um keppnina í ár bæði elski og hati framlagið okkar en það sé al- veg rétt spilað að senda konsept-atriði út í ár en ekki hefðbundið popplag. „Sko. Við höfum ekki beint verið að slá í gegn í þessari keppni síðustu ár svo það er full- komið að við séum með svona konsept-atriði núna. Ég lofa að það verður talað um okkur og það eru 50/50 líkur á því að því verði vel tekið. Annaðhvort munu kjósendur og dómnefndir elska það eða skella á lista yfir tíu verstu atriði Eurovision-sögunnar. Það skiptir samt engu máli. Málið er að skapa list og skemmtun enda getur þessi vettvangur opnað fyrir allskonar möguleika um allan heim.“ Getur ekki hugsað sér að missa af Elton John Eins og við má búast er Skjöldur búinn að skipuleggja tvö stórfengleg partí fyrir undan- úrslitin 14. og 16. maí, í hinni frægu Litagötu í Stavanger, en því miður, og ekki, missir hann af úrslitakvöldinu 18. þar sem þeir maðurinn hans, Magnús Jóhann Cornette halda í píla- grímsferð til Kaupmannahafnar að sjá Elton John. „Þetta er seinasta tónleikaferðalagið hjá kallinum og við getum bara ekki misst af því!“ „Ég hef alltaf elskað Eurovision!“ Fjölmargir kannast við skemmtikraftinn og hár- greiðslumanninn Skjöld Eyfjörð sem rak lengi hárstofuna Skjöldur 101 í miðborginni og kom reglulega fram í skemmti- legum blaðaviðtölum. Margrét Hugrún Gústavsdóttir margret.hugrun@gmail.com Skjöldur hefur alltaf elskað allt sem tengist Eurovision. Skjöldur Eyfjörð er meistari í að setja upp mörg andlit. Dívurnar verða ekki mikið flottari en Skjöldur í konufötum. 10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019 „Þarna stóðu þrír rosalega töff og sætir strákar í GULL- SKÓM sem ég hafði auðvitað aldrei séð í minni sveit. Í Reykhólasveit í Barða- strandarsýslu þrömmuðum við jú á gúmmístígvélum og vinnuklossum sem voru tískan í Kaupfélaginu það misserið.“ „Búningurinn varð ekki tilbúinn fyrr en á allra síðustu sekúndum enda þurftum við að sauma fjaðurdótið fast við hárið á greyinu svo það hryndi ekki úr í miðju atriði.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.