Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 1

Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 1
F I M M T U D A G U R 2 2. Á G Ú S T 2 0 1 9 Stofnað 1913  196. tölublað  107. árgangur  ........ 20-60% rúm... 20-40% ara.... 20% klæði.. 20-70% FSLÁTTUR Wis 60% VER MEÐ ó ar.. H ilsu av nd tra AFSLÁTTUR Ð ÁÐUR 179.900 6 A TVEIR LITIR: GRÁR / VÍNRAUÐUR ÆVINTÝRI AÐ RENNA UPP Í EYJUM TEKIST Á VIÐ ALZHEIMER MEÐ JÁKVÆÐNI LEIKSTÝRIR HVÍTUM, HVÍTUM DEGI SAMHENT HJÓN 24 NÝ MYND HLYNS 54-55PYSJUM FJÖLGAR 16 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Á meðan við erum enn dæmd sek fyrir meinsæri stendur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn- vart okkur hvernig þessi rannsókn var framkvæmd. Þangað til þetta hefur verið leiðrétt er þetta mál ekki búið, hvorki fyrir okkur, fjölskyld- urnar okkar né íslensku þjóðina. Ég er ekki tilbúin að gefast upp.“ Þetta segir Erla Bolladóttir, sem nú hefur ákveðið að stefna íslenska ríkinu vegna höfnunar endurupp- tökunefndar á beiðni hennar um að taka upp dóm hennar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, en hún var þar dæmd fyrir meinsæri ásamt tveimur öðrum. Hinir fimm sakborningarnir í málinu fengu mál sín tekin upp og voru þeir allir sýknaðir af sakfellingu fyrir manndráp í september í fyrra. Erla er eini aðili málsins sem er gert að una við dóm sinn óbreyttan. Hún átti fund með Katrínu Jak- obsdóttur forsætisráðherra í lok síð- asta árs þar sem þær ræddu fram- hald málsins og síðan þá hefur Erla beðið frekari viðbragða frá yfir- völdum. Katrín segir að meðferð málsins hafi tekið lengri tíma en búist hafi verið við. „Mér þykir það leitt,“ segir Katrín og bætir við að hún muni taka þetta mál upp í ráðu- neyti sínu í haust. Erla segist ekki hafa kært strax eftir að niðurstaða endurupptöku- nefndar lá fyrir m.a. vegna þess að hún beið svara frá Katrínu og vegna þess að niðurstaðan varð henni mikið áfall sem hún hefur þurft að vinna úr. En nú hyggist hún ekki bíða lengur. Eina ásættanlega niðurstaðan sé að þau þrjú sem dæmd voru fyrir mein- særi verði sýknuð af þeim sökum. Erla hyggst stefna ríkinu  Hefur beðið svara frá forsætisráðherra síðan í desember  Katrín mun taka málið upp í haust  Sýkna eina ásættanlega niðurstaðan  „Ekki tilbúin að gefast upp“ Morgunblaðið/Eggert Erla „Þangað til þetta hefur verið leiðrétt er þetta mál ekki búið.“ MÉg er ekki tilbúin … »10  Íslandspósti er ekki heimilt sam- kvæmt núgildandi lögum að ákveða einhliða að hætta að gefa út frí- merki. Póst- og fjarskiptastofnun bendir þó á að nokkur óvissa ríki um það hvernig þessum málum verði háttað eftir að ný lög um póstþjón- ustu taka gildi um áramót en þá fell- ur niður einkaréttur Íslandspósts. Ekki hefur verið gefin út reglugerð um það hvernig staðið verði að frí- merkjaútgáfu í framtíðinni. Forstjóri Íslandspósts segir að Frímerkjasala Póstsins hafi verið rekin með 30-40 milljóna króna tapi á ári. Dregið verður úr starfseminni með því að dreifa útgáfu frímerkja á lengri tíma. „Í þessum aðgerðum sem við stöndum í, að segja upp starfsfólki og spara, er þetta lúxus sem við getum ekki leyft okkur,“ segir Birgir Jónsson. »6 Geta ekki leyft sér lúxus í frímerkjum Birgir Þór Bielt- vedt, sem er meirihlutaeigandi að nokkrum af vinsælustu veit- ingastöðum landsins, segir að það muni taka markaðinn 6-12 mánuði að ná nýju jafnvægi. Segir hann að offjölgun veitingastaða, hækkandi rekstrarkostnaður, arfaslappt tíðar- far síðastliðið sumar og erfiðleikar WOW air sem leiddu til gjaldþrots félagsins fyrr á þessu ári hafi litað allan markaðinn síðustu misserin. Hann segir að veitingastaðir í miðborg Reykjavíkur búi við gjör- breytt rekstrarumhverfi og að leigusalar eins og aðrir samstarfs- aðilar fyrirtækjanna verði að horf- ast í augu við hinn breytta veru- leika. Í samtali við Morgunblaðið í dag ræðir Birgir opinskátt um rekstur veitingastaðanna Glóar, Joe & the Juice, Jómfrúarinnar, Snaps, Cafe Paris og bakarísins Brauð og co á nýliðnu ári. Umsvifin eru mikil en reksturinn ber þess allur merki að kostnaður hefur aukist, samkeppnin harðnað og að veitingamenn þurfa að hafa fyrir því að láta reksturinn ganga upp. »30 og 34 Flókin staða á veitinga- markaðnum Birgir Þór Bieltvedt Rauðhólar eru röð gervigíga við Suðurlandsveg. Þeir tilheyra hinu vinsæla útivistarsvæði Heið- mörk. Það er vel þess virði að nema við Rauðhóla og skoða það sem eftir stendur af þessari nátt- úrusmíð. Gervigígarnir voru upphaflega um 80 talsins og mynduðust þegar Elliðaárhraun rann yfir votlendi og út í vatn. Mikið efni var tekið úr hólunum við gerð Reykjavíkurflugvallar á stríðsárunum. Morgunblaðið/Eggert Á rölti yfir Rauðhólana

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.