Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
STÖKKTU
ÍSÓL&SAND
Costa del Sol 27. ágúst í 7 nætur Frá kr. 89.995
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Costa del Sol 27. ágúst í 7 nætur Frá kr. 109.995
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
ALLT INNIFALIÐ
Tenerife 26. ágúst í 10 nætur Frá kr. 69.995
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Tenerife 28. ágúst í 7 nætur Frá kr. 59.995
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.s
Samtök iðnaðarins (SI) telja að full
ástæða sé fyrir peningastefnunefnd
Seðlabankans að stíga annað skref í
lækkun stýrivaxta við næstu vaxta-
ákvörðun, sem kynnt verður 28.
ágúst. Þetta kemur fram í nýútkom-
inni hagfræðilegri greiningu SI.
Samkvæmt þeirri greiningu er að
finna skýr merki um samdrátt í hag-
kerfinu eftir átta ár af samfelldum
hagvexti.
„Verðbólga og verðbólguvænting-
ar hafa haldist við markmið um
nokkurn tíma og gefur það Seðla-
bankanum svigrúm til að lækka vexti
til þess að hjálpa fyrirtækjum og
heimilum að takast á við niðursveifl-
una. Seðlabankinn hefur lækkað
vexti um 0,75 prósentur síðan í maí á
þessu ári. Meginvextir Seðlabank-
ans, þ.e. vextir á sjö daga bundnum
innlánum, eru nú 3,75% og er nægt
svigrúm til að lækka þá,“ segir í
greiningu SI.
„Á margan hátt eru sérstakar að-
stæður uppi en við búum svo vel,
ólíkt því sem er á meginlandi Evr-
ópu, þar sem er ekki hægt að grípa til
vaxtanna til að mæta samdrætti í
hagkerfinu. Við eigum að vera
óhrædd við að beita því. Sérstaklega
þar sem verðbólgan er bara rétt yfir
verðbólgumarkmiði og verðbólgu-
væntingar eru það líka,“ segir Ing-
ólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í
samtali við Morgunblaðið.
Hann bendir einnig á að nýjar
mælingar frá Seðlabankanum á
væntingum markaðsaðila sýni að
verðbólguvæntingar þeirra hafa
minnkað frá síðustu mælingum. „Það
gefur Seðlabankanum gott svigrúm
til að lækka stýrivexti og auðvelda
heimilum og fyrirtækjum að takast á
við samdrátt,“ segir Ingólfur.
Í greiningu SI segir að uppruni
samdráttarins sé í útflutningi en eft-
ir mikla fjölgun allt síðastliðið hag-
vaxtartímabil hefur erlendum ferða-
mönnum fækkað nokkuð í ár. Nemur
fækkunin ríflega 13% á fyrstu sjö
mánuðum þessa árs. Samhliða hefur
dregið úr tekjum af erlendum ferða-
mönnum en samdráttur hefur m.a.
verið í tekjum af flugi, gistingu, veit-
ingarekstri og bílaleigu.
Atvinnuleysi mældist 3,4% (6.831
einstaklingar) í júlí á landinu í ár. Á
sama tíma í fyrra var atvinnuleysi
2,2% (2.662 einstaklingar). Samhliða
þessari þróun hefur hægt á vexti
einkaneyslu. Ásamt því er undirbún-
ings- og framkvæmdatími orðinn
langur í flestum verkefnum á sviði
byggingar- og mannvirkjagerðar.
Samdráttur í sementssölu og inn-
flutningi byggingarefnis ásamt
fækkun skoðaðra krana á vinnustað
og erlendra starfsmanna í bygging-
ar- og mannvirkjaiðnaði ber merki
um breyttan gang í fjárfestingu í
hagkerfinu.
Stýrivaxtalækkun til móts við samdrátt
Samtök iðnaðarins hvetja peningastefnunefnd til að lækka stýrivexti „Gott svigrúm til að lækka
stýrivexti og auðvelda heimilum og fyrirtækjum að takast á við samdrátt,“ segir aðalhagfræðingur SI
Fjöldi skoðaðra krana
Alls í janúar til júlí 2015-2018
250
200
150
100
50
0
2015 2016 2017 2018 2019
Heimild: Samtök iðnaðarins
Atvinnuleysi skv. skráningu á vinnumiðlunum
4,0%
3,0%
2,0%
1,0%
0%
2018 2019
Heimild: Samtök iðnaðarins
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
2,2%
3,4%
Hugmyndir eru um að gera miklar breytingar á miðbæ
Hafnarfjarðar. Á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar
(hafnarfjordur.is) eru birt drög að skýrslu um skipulag
miðbæjarins og hugmyndavinna Trípólí arkitekta
vegna nýrrar uppbyggingar í miðbænum.
Starfshópur um skipulag miðbæjar Hafnarfjarðar
var skipaður 28. mars 2019. Hlutverk hans er m.a. að
gera tillögu um áframhaldandi vinnu við skipulag mið-
bæjarins. Starfshópurinn lagði til að Trípólí arkitektar
vinni áfram að deiliskipulagi miðbæjarins á grundvelli
vinnu sem stofan skilaði. Þá höfðu borist hugmyndir
frá þremur arkitektastofum.
Lagt er til að verkefninu verði skipt í áfanga og að
byrjað verði á Strandgötunni, sem sögð er vera hjarta
bæjarins. Áhersla verði lögð á tengingu hennar við
nærliggjandi hverfi. Uppbygging við Fjarðargötu og
breytingar á henni gætu verið í 2. áfanga. Efla á teng-
ingu strandlengjunnar og hafnarinnar við miðbæinn.
„Miðbær Hafnarfjarðar er annar af sögulegum mið-
bæjarkjörnum á stórhöfuðborgarsvæðinu ásamt því að
vera miðstöð opinberrar þjónustu. Hann þarf að efla
enn frekar sem einn af helstu kjörnum verslunar, þjón-
ustu og menningar,“ segir í tillögum starfshópsins.
Í greinargerð með hugmyndum Trípólí arkitekta
segir m.a. að í stað núverandi bílastæða- og hrað-
brautaskipulags komi nýbyggingar með lifandi jarð-
hæðum meðfram nýju breiðstræti.
Íbúar í Hafnarfirði og aðrir sem hagsmuna eiga að
gæta geta gert athugasemdir við hugmyndirnar til og
með 20. september. gudni@mbl.is
Hugmyndir um breyttan
miðbæ Hafnarfjarðar
Nýbyggingar komi í stað
bílastæða og hraðbrauta
Teikning/TRÍPÓLÍ arkitektar
Hafnarfjörður Hugmyndir að breytingum á miðbænum.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og fjöldi sjálf-
boðaliða lögðu Marglyttunum og Bláa hernum lið við
að hreinsa fjöruna í Mölvík við Grindavík í gærkvöldi.
„Við hreinsuðum upp um tvö tonn af drasli og það voru
ábyggilega 50-60 manns við þetta,“ sagði Soffía Sigur-
geirsdóttir, sem er í sundhópnum Marglyttunum. Þær
ætla að synda yfir Ermarsund 4. september, meðal ann-
ars til að vekja athygli á plastmengun í sjónum.
Ljósmynd/Marglytturnar-Blái herinn
Fjarlægðu tvö tonn af drasli úr fjörunni
Guðni Einarsson
Arnar Þór Ingólfsson
Félag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni samdi í gær við annan af
tveimur kaupendum sem höfðað
höfðu mál á hendur félaginu vegna
Árskóga. Kaupandinn fékk íbúðina
afhenta og aðfararbeiðni sem hann
hafði höfðað var felld niður. Kaup-
endur hinnar íbúðarinnar lýstu því
yfir í gær að þeir teldu réttast að
halda innsetningarmálinu til streitu
á meðan félagið færi fram með þeim
hætti sem það hefði gert. Að
óbreyttu verður málið því tekið fyrir
á morgun í héraðsdómi.
„Það þjónaði hagsmunum skjól-
stæðings míns að ganga frá þessu
samkomulagi og ég lít nú svo á að
með því að gera þessa kröfu sem við
gerðum fyrir dómi, um beina aðför
og innsetningu í íbúðina, hafi félagið
ekki verið í neinni stöðu til annars en
að ganga til samninga við okkur og
klára það,“ sagði Sigurður Kári
Kristjánsson lögmaður. Skjólstæð-
ingur hans, 87 ára gömul kona,
samdi í gær um að fá íbúðina af-
henta. Efni samkomulagsins er
trúnaðarmál.
„Ég held að árangurinn hafi verið
góður og mín kona bara sátt, svona
eins og hægt er eftir ótrúleg sam-
skipti við þetta félag sem hljóta að
vera fordæmalaus,“ sagði Sigurður.
Í gær var búið að ræða við 53
kaupendur að íbúðum í fjölbýlishús-
unum tveimur sem félagið reisti í
Árskógum. Þar af voru 39 búnir að
skrifa undir skilmálabreytingu um
hærra kaupverð, samkvæmt frétta-
tilkynningu. Fimmtán voru að hugsa
málið og eftir var að ræða við ellefu
kaupendur. Það verður gert á næst-
unni. Þeir voru allir með afhend-
ingardaga í september. Búið var að
selja 65 af 68 íbúðum.
Sömdu við áður
ósáttan kaupanda
Hinn heldur innsetningarmáli áfram