Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 6

Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 NÝ VER SLUN Í MÖRKI NNI 3 OG UND IRHLÍÐ 2 AKUR EYRI ÓTRÚLE G OPNU NAR- TILBOÐ OPNUN AR TILBOÐ Mörkin 3 • Reykjavík | Undirhlíð 2 • Akureyri Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íslandspósti er ekki heimilt sam- kvæmt núgildandi lögum að ákveða einhliða að hætta að gefa út frímerki. Póst- og fjarskiptastofnun bendir þó á að nokkur óvissa ríki um það hvernig þessum málum verði háttað eftir að ný lög um póstþjónustu taka gildi um áramót en þá fellur niður einkaréttur Íslandspósts. Ekki hefur verið gefin út reglugerð um það efni. Ríkið hefur einkarétt á að gefa út frímerki og hefur falið fyrirtæki sínu, Íslandspósti, framkvæmdina. Fyrir- tækið hefur starfrækt sérstaka skrif- stofu, Frímerkjasölu Póstsins, til að gefa út og selja frímerki. Ákveðið hefur verið að draga þessa starfsemi mjög saman og er það liður í hagræð- ingaraðgerðum fyrirtækisins. Geta ekki leyft sér lúxus „Það hefur verið metnaðarfull og flott starfsemi við útgáfu á nýjum frí- merkjum til sölu til safnara, ekki síst erlendis. Frímerkjasöfnun er áhuga- mál sem fer dvínandi og tekjurnar hafa minnkað mikið,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts. Hann segir að þessi starfsemi sé nú rekin með 30-40 milljóna króna tapi á ári. Sex starfsmenn hafa unnið við Frímerkjasölu Póstsins en verið er að fækka þeim niður í þrjá. Jafn- framt hefur verið ákveðið að dreifa þeirri útgáfu frímerkja sem boðuð hafði verið á lengri tíma, út allt næsta ár og jafnvel lengur. „Í þess- um aðgerðum sem við stöndum í, að segja upp starfsfólki og spara, er þetta lúxus sem við getum ekki leyft okkur.“ Hann segir að lagalegt hlutverk Íslandspósts að eiga til frímerki til burðargjalda sé tryggt. Fyrirtækið eigi miklar birgðir af frímerkjum sem dugi til margra ára, allan þann tíma sem fólk muni senda bréf. Birgir bendir á að frímerktum bréf- um hafi fækkað mjög, stærstur hluti bréfapósts sé stimplaður glugga- póstur. Þá hafi það rétt til að endur- prenta eldri frímerki, ef á þurfi að halda. Við undirbúning hagræð- ingaraðgerða Íslandspósts var leitað álits Póst- og fjarskiptastofnunar á því hvort Íslandspóstur geti ákveðið einhliða að hætta að gefa út frímerki. Svarið er að það er ekki heimilt á grundvelli núgildandi laga. Ný lög um póstþjónustu taka hins vegar gildi um áramót og þá fellur niður einkaréttur Íslandspóst á tiltekinni starfsemi. Ríkið hefur framselt einkarétt til útgáfu frímerkja til Íslandspósts á grundvelli samnings um alþjónustu. Í nýju lögunum eru heimildir til að kveða á um að alþjónustuveitandi skuli gefa út frímerki. Reglugerð með lögunum hefur hins vegar ekki verið gefin út og því ríkir ákveðin óvissa um vilja stjórn- valda í þessu efni. Þá eru í gangi viðræður ríkisins og Íslandspósts um þjónustusamning sem taka á gildi þegar einkaréttur- inn fellur úr gildi. „Ef mönnum finnst útgáfa nýrra frímerkja mikil- væg menningarleg starfsemi og ríkið vill að þau séu gefin út er eðlilegt að ákvæði um það séu tekin inn í þjón- ustusamning. Reksturinn getur ekki borið tapið lengur,“ segir Birgir. Eiga frímerki til notkunar í mörg ár  Óvissa ríkir um útgáfu nýrra frímerkja þegar ný póstlög taka gildi  Starfsemin rekin með tapi Útgáfa Töluverð starfsemi er við útgáfu og sölu nýrra frímerkja. „Mér líst ekki vel á það,“ segir Gísli Geir Harðarson, formaður Landssambands íslenskra frí- merkjasafnara, um samdrátt í frímerkjasölu Póstsins. „Þeir eru að koma sér undan skyldu að gefa út frímerki. Það er slæmt séð frá sjónarhóli safn- ara og ferðafólks sem vill senda heim bréf með frímerki. Ekkert evrópst ríki hefur gengið svo langt.“ Enginn geng- ið svo langt FORMAÐUR SAFNARA Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þetta er ákaflega vandræðalegt fyrir Banda- ríkin og lýsir nokkuð vel því ástandi sem ríkir í Hvíta húsinu, en þeir sem fylgst hafa með hafa margir hverjir haft orð á því að þar ríki óstjórn, stefnuleysi og algjör skortur á lang- tímahugsun,“ segir Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið og vísar í máli sínu til ákvörðunar Donalds Trump Bandaríkja- forseta þess efnis að hætta skyndilega við opinbera heimsókn sína til Danmerkur. Voru þá einungis 12 dagar í fyrirhugaða heimsókn. Danskir fréttamiðlar greina frá því að undirbúningur heimsóknarinnar hafi verið langt á veg kominn þar í landi og tóku m.a. fulltrúar hersins, lögreglu og stjórnsýslu þátt. Skyndilegur viðsnúningur Bandaríkjaforseta, sem tilkynnt var um í færslu á Twitter, kom Dönum því í opna skjöldu. Stefanía segir ljóst að Trump hafi tekið þessa ákvörðun svo gott sem án nokkurs samráðs því sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku og embættismenn Hvíta hússins virðast hafa fyrst frétt af þess- ari ákvörðun forsetans í fjölmiðlum. „Hann fer sínu fram og er mjög hvatvís, en í gegnum þessar Twitter-færslur tekst honum mjög vel að koma sér inn í umræðuna og tala til aðdáenda sinna í Bandaríkjunum. En þeir eru kannski ekki mjög vel að sér í efnahags- og utanríkismálum þótt þeim finnist hugmyndir Trumps sniðugar,“ segir hún og heldur áfram: „Að hætta við heimsókn til Danmerkur er sennilega bara ákvörðun sem hann tekur í ein- hvers konar þreytukasti – það er engin taktík á bak við þessa ákvörðun forsetans. Hann hef- ur bara pirrast og ekki nennt að koma. Það eru sennilega engar skýringar á þessu aðrar en persónulegar ástæður Trumps.“ Úr takti við stefnu Bandaríkjanna Bandaríkin og Danmörk hafa um langt skeið átt í farsælu sambandi, m.a. á sviði ör- yggis- og varnarmála. Þannig eru Danir t.a.m. eitt þeirra ríkja sem stofnuðu Atlantshafs- bandalagið (NATO) árið 1949. Stefanía segir þessa óvæntu ákvörðun Bandaríkjaforseta munu skaða samskiptin og stuða önnur ríki Evrópu. „Nú er von á Mike Pence [varaforseta Bandaríkjanna] til Íslands í þeim tilgangi að styrkja enn betur samskiptin við landið á sviði varnarmála, enda er Norður-Atlantshafið að verða mikilvægt á nýjan leik. Það rímar ekki vel við áherslu Bandaríkjamanna á að efla áhrif sín á Norður-Atlantshafi að hætta með þessum hætti við heimsókn til Danmerkur,“ segir hún og heldur áfram: „Þetta er úr takti við utanríkis- og varnarmálastefnu Bandaríkj- anna.“ Morgunblaðið setti sig í samband við nokkra sérfræðinga á sviði utanríkismála og fyrrver- andi sendiherra vegna málsins. Þeir báðust allir undan viðtali en nokkrir þeirra sögðu erf- itt að kafa djúpt í þessa ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta út frá hefðbundnum reglum um samskipti þjóða. Forsetinn færi einfaldlega sínu fram. »32 Engin taktík á bak við ákvörðunina  Viðsnúningur Trumps er ákaflega vandræðalegur fyrir Bandaríkin, segir stjórnmálafræðingur AFP Leiðtogi Donald Trump Bandaríkjaforseti mun ekki sækja Dani heim í september. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Óvenjumikið hefur verið um minka í borgarlandinu í sumar að sögn Guð- mundar Björnssonar, rekstrarstjóra meindýravarna Reykjavíkurborgar. Morgunblaðinu barst ábending um mink í Dalseli í Seljahverfi á dög- unum, en Guðmundur segir það fá- títt að minkar láti sjá sig í íbúðar- hverfum. Yfirleitt haldi þeir sig við vötn og ár þótt það komi fyrir að þeir færi sig nær híbýlum manna. Hvolparnir farnir á stjá „Það hefur verið óvenjumikið um þá í sumar,“ segir Guðmundur og nefnir að nú séu hvolpar farnir á stjá burt frá læðunum og stundum hætti þeir sér frá kjöraðstæðunum við ár og vötn. „Ef þeir fara frá vötnunum og ánum villast þeir stundum og þá halda þeir bara áfram. Hann gæti þess vegna komið úr Kópavogi. Það er ómögulegt að segja hvaðan þeir koma,“ segir Guðmundur, sem kveðst heldur ekki hafa sérstaka skýringu á fjöldanum í sumar. „Dýrastofnar fara bara upp og niður og það er greinilega einhver upp- sveifla núna,“ segir hann og nefnir að hinum aukna fjölda minka hafi fylgt fjöldi ábendinga borgarbúa. „Við höfum eiginlega verið með annan fótinn við þessar ár og vötn síðustu þrjár vikurnar,“ segir Guð- mundur. „Það hefur verið annasamt hjá okkur í þessum málum en minna í rottumálum. Menn ættu að vera ánægðir með það,“ segir hann. Óvenjumikið um minka í borgarlandinu í sumar  Meindýraeyðar verið með annan fótinn í ám og vötnum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Minkar Villtir minkar hafa víða sést í Reykjavík. Þessir tilheyrðu þó búi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.