Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 10

Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 10
SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Erla Bolladóttir hefur ákveðið að stefna íslenska ríkinu á næstu dögum vegna höfnunar endurupptöku- nefndar á beiðni hennar um endur- upptöku dóms hennar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Hún segir tækni- lega ágalla vera á dómi Hæstaréttar frá árinu 1980, þeir einir og sér ættu að duga til að mál hennar yrði tekið upp að nýju. „Ég krefst þess að nið- urstaða endurupptökunefndar í mínu máli verði ógilt,“ segir Erla. Þeir Sævar Ciesielski, Kristján Viðar Viðarsson, Tryggvi Rúnar Leifsson, Guðjón Skarphéðinsson og Albert Klahn Skaftason voru sýkn- aðir af Hæstarétti 27. september í fyrra eftir að endurupptökunefnd hafði fallist á það í febrúar 2017 að þeir fengju mál sín tekin upp að nýju. Þrír þeirra fyrstnefndu voru sakfelld- ir í Hæstarétti í febrúar 1980 fyrir manndráp með því að hafa orðið Guð- mundi Einarssyni að bana í janúar 1974 og Albert var sakfelldur fyrir að hafa tálmað rannsókn málsins. Guð- jón, Kristján og Sævar voru að auki sakfelldir fyrir að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana í nóvember 1974. Sævar og Kristján voru einnig, auk Erlu, fundnir sekir um meinsæri í málinu með því að hafa í sameiningu lagt á ráðin um að bera sakir á fjóra menn. Nefndin féllst ekki á að taka þá dóma upp. Erla segir niðurstöðuna hvað sig varðar alvarlega gallaða, ekki síst tæknilega. „Upphaflega var ég ákærð fyrir meinsæri gagnvart fjórum sak- lausum aðilum og dæmd fyrir það í sakadómi sem þá var. Þessum dómi var áfrýjað til Hæstaréttar þar sem hann var staðfestur. Þetta meinta meinsæri nær til þriggja manna en ekki fjögurra. Ég bar sakir á þá Ein- ar Bollason, Sigurbjörn Eiríksson og Magnús Leópoldsson en sá fjórði, Valdimar Olsen, sem ég var dæmd fyrir að bera meinsæri gegn, kemur hvergi fram í málsskjölum utan það að ég sagði á einum stað að Sævar [Ciesielski] hefði sagt að hann hefði verið á tilteknum stað. Þetta er yfir- sjón á öllum stigum málsins og að mínu mati og Ragnars Aðalsteins- sonar, lögfræðings míns, nóg til að taka málið upp aftur,“ segir Erla. Ekki ein lína á 1.047 síðum Hún segir að þegar hún lagði fram beiðni um endurupptöku málsins hafi verið beðið um umsögn Davíðs Þórs Björgvinssonar, setts ríkissaksókn- ara í málinu. Í henni sé m.a. gerð sú athugasemd við umsókn Erlu að hún hafi ekki verið í einangrun þann til- tekna dag sem hún skrifaði undir skýrslu þar sem hún ber áðurnefnda menn sökum og því hafi ekki verið forsenda til endurupptöku. „Ekkert tillit er tekið til þess að ég var þá nýkomin úr átta daga gæsluvarðhaldi þar sem ég hafði verið þvinguð til að skrif undir vitnisburð um manndráp.“ Í umsögn sinni hélt Davíð Þór þeim möguleika opnum að endurupptöku- nefndin gæti farið fram á nánari rök starfshóps, sem skipaður hafði verið af innanríkisráðherra vegna málsins. Í kjölfarið var boðað dómþing þar sem Erla fór fram á að þeir þrír rann- sóknarmenn sem mest unnu að rann- sókninni á Guðmundar- og Geirfinns- málinu, yrðu einnig kallaðir fyrir sem vitni. Hún segir að þar hafi þeir orðið uppvísir að ósannsögli. Í tengslum við endurupptöku- beiðnina gerðu Jón Friðrik Sigurðs- son, prófessor í sálfræði, og Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur greiningu á því hvernig sálarástandi Erlu gæti hafa verið háttað þegar hún skrifaði undir áðurnefnda játn- ingu eftir að hafa verið í einangrun og sætt pyntingum og harðræði. Hún segir að í skýrslu endurupptöku- nefndar, sem telur 1.047 síður, hafi ekki verið gerð grein fyrir niðurstöð- um þeirra Jóns og Gísla. „Ekki einu sinni einni línu var varið í það. Ekki var heldur minnst á að saksóknari hafði mælt með endurupptöku máls- ins míns eftir vitnisburði starfshóps innanríkisráðuneytisins,“ segir Erla. Eftir áðurnefnda niðurstöðu Hæstaréttar óskaði Erla eftir fundi með Katrínu Jakobsdóttur forsætis- ráðherra til að ræða framhald máls- ins við hana. Katrín varð við þeirri ósk og þær hittust í lok desember í fyrra. „Mín ósk var að það yrði hægt að semja við mig utan dómskerfisins og spara þannig bæði tíma, álag og fé sem myndi fara í málarekstur. Katrín sagðist ætla að kanna málið nánar sjálf með sínu fólki, eins og hún orð- aði það. Ég var ánægð með það. En síðan þá hef ég ekkert heyrt frá forsætisráðuneytinu, þrátt fyrir að hafa ítrekað haft samband,“ segir Erla. Í janúar síðastliðnum lagði Erla einnig fram kröfu á hendur ríkinu um skaðabætur vegna einangrunar sem hún var látin sæta árið 1976. „Ég hef engin svör fengið við þessari kröfu,“ segir hún. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir að meðferð málsins hafi tekið lengri tíma innan ráðuneytis síns en búist hafði verið við. „Mér þykir það leitt,“ segir Katrín. „Ég mun taka þetta mál upp á nýjan leik innan forsætisráðuneytisins í haust.“ Katrín segir að dómsmál, sem Guð- jón Skarphéðinsson, einn þeirra sem sýknaður var í málinu, hefur höfðað gegn ríkinu til greiðslu bóta muni vafalaust hafa áhrif á framþróun málsins í heild og á aðra aðila máls- ins. „En við munum taka upp þráðinn varðandi þá sem ekki eiga jafn lög- varða hagsmuni í málinu.“ Gat ekki staðið vaktina lengur Daginn sem niðurstaða Hæsta- réttar lá fyrir í september í fyrra sagði Erla í viðtali við mbl.is að hún hygðist kæra niðurstöðu endur- upptökunefndar. – Hvers vegna gerðirðu það ekki fyrr en nú, tæpu ári síðar? „Ég var alltaf að vonast eftir svör- um frá Katrínu Jakobsdóttur. Önnur ástæða er að ég varð fyrir miklu áfalli í kjölfar höfnunar endurupptöku- nefndar. Það var í fyrsta skiptið, síð- an þetta allt byrjaði, að mér fannst ég ekki geta meira. Skyndilega þekkti ég ekki sjálfa mig; ég, sem hef alltaf staðið mína vakt, gat ekki meira. Ég var á sama stað og ég tel að Sævar hafi verið á þegar hann ákvað að snúa baki við lífinu og ég greindist síðar með alvarlegt tilfelli áfallastreitu- röskunar,“ segir Erla, sem síðan þá hefur ekki getað stundað vinnu sína en nýtur sálfræðimeðferðar sem hún segir gagnast sér vel. Spurð, hver væri ásættanleg niðurstaða í málinu að hennar mati segir hún að það væri að þau þrjú sem voru dæmd fyrir meinsæri yrðu sýknuð af þeim sökum. „Á meðan við erum enn dæmd sek fyrir meinsæri þá stendur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagnvart okkur hvernig þessi rannsókn var fram- kvæmd. Þangað til þetta hefur verið leiðrétt er þetta mál ekki búið, hvorki fyrir okkur, fjölskyldurnar okkar né íslensku þjóðina. Ég er ekki tilbúin að gefast upp.“ Ég er ekki tilbúin að gefast upp  Erla Bolladóttir hyggst stefna ríkinu vegna höfnunar endurupptökunefndar  Forsætisráðherra hyggst taka málið upp fljótlega innan ráðuneytis síns  Fékk áfall í kjölfar höfnunar á endurupptöku Morgunblaðið/Eggert Erla Bolladóttir „Ég krefst þess að niðurstaða endurupptökunefndar í mínu máli verði ógilt,“ segir Erla sem hyggst stefna íslenska ríkinu. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 Tjarnarbíó - Listasafn Íslands - Ráðhús Reykjavíkur - Hard Rock Cafe - Borgarbókasafn 4.-8. SEPTEMBER www.reykjavikjazz.is facebook.com/Rvk.jazz miðasala á tix.is 20 ára Aldur Erlu þegar fyrst var tekin af henni skýrsla vegna Guðmundarmálsins. 239 dagar Svo lengi sat Erla í gæsluvarðhaldi. 3 ár Lengd fangelsisdóms Erlu í Hæstarétti 1980. 2018 Hæstiréttur sýknar Sævar, Kristján, Tryggva, Guðjón og Albert af manndrápi eftir að endurupptaka dóma þeirra var heimiluð. 2019 Árið sem Erla kærir íslenska ríkið vegna höfnunar Endurupptökunefndar. MÁL ERLU BOLLADÓTTUR »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.