Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 14

Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 NÝR OG GLÆSILEGUR RANGE ROVER EVOQUE VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR landrover.is LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 525 6500 Range Rover Evoque. Verð frá: 7.890.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 9 5 1 3 9 Að kvíða fyrir; er það í lagi eða slæmt fyrir börn? Haustið er tími breytinga hjá mörgum börnum. Eftir sumarfrí byrjar skólinn, kannski í fyrsta skipti, kannski á nýjum stað eða bara sami skólinn aftur – en skólabyrjun er mörgum börn- um kvíðvænleg. Smávegis óöryggi eða kvíði eru al- geng viðbrögð þegar börn standa frammi fyrir breytingum eða nýjum að- stæðum. Kvíði veldur vanlíðan en getur líka verið gagnlegur til að verja börn hættum og gera þau varkár við ákveðnar að- stæður. Kvíði að ákveðnu marki er eðlilegur hluti þroskaferlisins. Vandinn verði viðráðanlegur Frá unga aldri mæta börn áskor- unum með flótta, þörf fyrir hug- hreystingu, tregðu við að taka áhættu eða hjálparleysi. Yfirleitt leysist vandinn þegar barnið lærir að takast á við aðstæðurnar eða þær breytast. Ef barn lærir færni til að komast yfir hræðsluna verða engin varanleg slæm áhrif. Til að auðvelda börnum að aðlagast kvíðavekjandi aðstæðum geta foreldrar:  Viðurkennt áhyggjur barnsins og tekið mark á þeim.  Hlustað á og reynt að skilja hvernig barnið upplifir og túlkar aðstæðurnar, leiðrétt svo misskiln- ing eða rangtúlkanir mildilega.  Sýnt þolinmæði og hvatt barnið til að nálgast hræðsluvaldinn skref fyrir skref uns hann venst og verð- ur viðráðanlegur. Óttast framandi aðstæður Mörg ung börn sýna merki um hræðslu við ókunnuga og aðskilnað frá foreldrum en flest eru laus við að- skilnaðarkvíða við upphaf grunn- skóla. Börn geta þó áfram óttast nýjar, framandi aðstæður og upplifað raunverulega eða ímyndaða ógn til dæmis af hundum, myrkri, trúðum, skrímslum eða geimverum. Þegar börn eldast, þroskast, læra nýja hluti og öðlast aukinn skilning bein- ist óttinn að raunverulegri hættum, innbrotsþjófum, sírenuhljóði, óveðri, veikindum eða ógnandi fólki. Með reynslunni læra þau að áhættan er ekki endilega yfirvofandi en er til og er misnálæg. Á unglingsárunum verður félags- leg staða og samanburður við aðra æ mikilvægari og getur valdið kvíða um frammistöðu eða viðurkenningu í félagahópnum. Upplýsingar um sjúkdóma eða samfélagshættur geta leitt til kvíða um eigið öryggi og áhyggjur af stríði og loftslagsbreyt- ingum verða algengari með aldr- inum. Stöðugt á nálum Hvort kvíði verður vandamál er ekki háð því hverju áhyggjurnar beinast að, heldur því hver áhrifin á barnið eru. Þörf er á aðstoð ef:  Barnið upplifir óhóflegar áhyggjur eða vanlíðan umfram tilefni  Áhyggjur og flótti eru sjálfvirk viðbrögð barns við margar að- stæður  Barnið er stöðugt á nálum  Hvatning og stuðningur hjálpa barninu ekki að komast gegnum aðstæðurnar  Barnið fer auðveldlega í uppnám þegar aðstæður gera kröfur  Barnið síendurtekur spurningar til hughreystingar, er óhuggandi eða tekur ekki skynsamlegum rökum  Minnkuð þátttaka barnsins eða fjölskyldunnar út á við, í skóla, með vinum, í fjölskylduboðum eða afþreyingu  Líkamlegar umkvartanir til að sleppa undan kröfum  Miklar fyrir fram áhyggjur, klukkutímum, dögum, vikum áður en eitthvað stendur til  Svefntruflanir, erfitt að sofna eða martraðir  Fullkomnunarárátta og sjálfs- gagnrýni  Ofurábyrgð, stöðugt reynt að geðj- ast öðrum  Endalausar dekstranir til að barn- ið sinni hversdagslegum viðfangs- efnum og huggunarþörf vegna vanlíðunar í venjulegum aðstæðum Hörmungarhyggja og svartsýni Langvarandi kvíði er hamlandi, hindrar eðlilega þátttöku í daglegu lífi og getur valdið tregðu við að fara út af heimili, til dæmis í skóla. Kvíði truflar líka einbeitingu og getur leitt til óraunsæis, hörmungarhyggju, nei- kvæðni og svartsýni. Tilfinning fyrir að vera öðruvísi veldur kvíðnum börnum viðbótarálagi. Við þessar að- stæður er fagleg aðstoð mikilvæg. Nánari upplýsingar og gagnleg ráð má til dæmis finna hjá heilsugæsl- unni og heilsuvera.is. Heilsuráð Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur og forstöðumaður þroska- og hegðunarstöðvar Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. Kvíði og hræðsla verði viðráðanleg Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Púsluspil Hver steinn í lífsins gangbraut þarf að vera á réttum stað og stundum þarf aðstoð til að dæmið gangi upp. Gyða Haraldsdóttir Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.