Morgunblaðið - 22.08.2019, Qupperneq 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
NÝR OG GLÆSILEGUR
RANGE ROVER EVOQUE
VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
landrover.is
LAND ROVER
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
Range Rover Evoque. Verð frá: 7.890.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
1
3
9
Að kvíða fyrir; er það í lagi eða slæmt
fyrir börn? Haustið er tími breytinga
hjá mörgum börnum. Eftir sumarfrí
byrjar skólinn, kannski í fyrsta
skipti, kannski á nýjum stað eða bara
sami skólinn aftur
– en skólabyrjun
er mörgum börn-
um kvíðvænleg.
Smávegis óöryggi
eða kvíði eru al-
geng viðbrögð
þegar börn
standa frammi
fyrir breytingum
eða nýjum að-
stæðum. Kvíði
veldur vanlíðan
en getur líka verið
gagnlegur til að verja börn hættum
og gera þau varkár við ákveðnar að-
stæður. Kvíði að ákveðnu marki er
eðlilegur hluti þroskaferlisins.
Vandinn verði viðráðanlegur
Frá unga aldri mæta börn áskor-
unum með flótta, þörf fyrir hug-
hreystingu, tregðu við að taka
áhættu eða hjálparleysi. Yfirleitt
leysist vandinn þegar barnið lærir að
takast á við aðstæðurnar eða þær
breytast. Ef barn lærir færni til að
komast yfir hræðsluna verða engin
varanleg slæm áhrif. Til að auðvelda
börnum að aðlagast kvíðavekjandi
aðstæðum geta foreldrar:
Viðurkennt áhyggjur barnsins og
tekið mark á þeim.
Hlustað á og reynt að skilja
hvernig barnið upplifir og túlkar
aðstæðurnar, leiðrétt svo misskiln-
ing eða rangtúlkanir mildilega.
Sýnt þolinmæði og hvatt barnið til
að nálgast hræðsluvaldinn skref
fyrir skref uns hann venst og verð-
ur viðráðanlegur.
Óttast framandi aðstæður
Mörg ung börn sýna merki um
hræðslu við ókunnuga og aðskilnað
frá foreldrum en flest eru laus við að-
skilnaðarkvíða við upphaf grunn-
skóla. Börn geta þó áfram óttast
nýjar, framandi aðstæður og upplifað
raunverulega eða ímyndaða ógn til
dæmis af hundum, myrkri, trúðum,
skrímslum eða geimverum. Þegar
börn eldast, þroskast, læra nýja
hluti og öðlast aukinn skilning bein-
ist óttinn að raunverulegri hættum,
innbrotsþjófum, sírenuhljóði, óveðri,
veikindum eða ógnandi fólki. Með
reynslunni læra þau að áhættan er
ekki endilega yfirvofandi en er til og
er misnálæg.
Á unglingsárunum verður félags-
leg staða og samanburður við aðra æ
mikilvægari og getur valdið kvíða
um frammistöðu eða viðurkenningu í
félagahópnum. Upplýsingar um
sjúkdóma eða samfélagshættur geta
leitt til kvíða um eigið öryggi og
áhyggjur af stríði og loftslagsbreyt-
ingum verða algengari með aldr-
inum.
Stöðugt á nálum
Hvort kvíði verður vandamál er
ekki háð því hverju áhyggjurnar
beinast að, heldur því hver áhrifin á
barnið eru. Þörf er á aðstoð ef:
Barnið upplifir óhóflegar áhyggjur
eða vanlíðan umfram tilefni
Áhyggjur og flótti eru sjálfvirk
viðbrögð barns við margar að-
stæður
Barnið er stöðugt á nálum
Hvatning og stuðningur hjálpa
barninu ekki að komast gegnum
aðstæðurnar
Barnið fer auðveldlega í uppnám
þegar aðstæður gera kröfur
Barnið síendurtekur spurningar
til hughreystingar, er óhuggandi
eða tekur ekki skynsamlegum
rökum
Minnkuð þátttaka barnsins eða
fjölskyldunnar út á við, í skóla,
með vinum, í fjölskylduboðum eða
afþreyingu
Líkamlegar umkvartanir til að
sleppa undan kröfum
Miklar fyrir fram áhyggjur,
klukkutímum, dögum, vikum áður
en eitthvað stendur til
Svefntruflanir, erfitt að sofna eða
martraðir
Fullkomnunarárátta og sjálfs-
gagnrýni
Ofurábyrgð, stöðugt reynt að geðj-
ast öðrum
Endalausar dekstranir til að barn-
ið sinni hversdagslegum viðfangs-
efnum og huggunarþörf vegna
vanlíðunar í venjulegum aðstæðum
Hörmungarhyggja
og svartsýni
Langvarandi kvíði er hamlandi,
hindrar eðlilega þátttöku í daglegu
lífi og getur valdið tregðu við að fara
út af heimili, til dæmis í skóla. Kvíði
truflar líka einbeitingu og getur leitt
til óraunsæis, hörmungarhyggju, nei-
kvæðni og svartsýni. Tilfinning fyrir
að vera öðruvísi veldur kvíðnum
börnum viðbótarálagi. Við þessar að-
stæður er fagleg aðstoð mikilvæg.
Nánari upplýsingar og gagnleg ráð
má til dæmis finna hjá heilsugæsl-
unni og heilsuvera.is.
Heilsuráð
Gyða Haraldsdóttir
sálfræðingur og forstöðumaður
þroska- og hegðunarstöðvar Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins.
Kvíði og hræðsla verði viðráðanleg
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Púsluspil Hver steinn í lífsins gangbraut þarf að vera á réttum stað og stundum þarf aðstoð til að dæmið gangi upp.
Gyða
Haraldsdóttir
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.