Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
m.
M18 FUEL™ skilar afli til að saga
á við bestu bensínknúnu keðjusagirnar.
POWESTATE™ mótor.
REDLINK PLUS™ yfirálagsvörn.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu
M18 FCHS
Alvöru keðjusög
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Fjölmenni var við opnun list- og sögu-
sýningar í Kakalaskála við bæinn
Kringlumýri í Blönduhlíð í Skagafirði
um liðna helgi, þar sem getur að líta
verk 14 listamanna frá 10 þjóðlönd-
um. Dvöldu listamennirnir í þrjár vik-
ur að Kringlumýri í vor og fengu það
verkefni að túlka sögu Þórðar kakala
Sighvatssonar, oddvita Sturlunga, er
hafði sigur yfir Ásbirningum í mann-
skæðasta bardaga Íslandssögunnar,
Haugsnesbardaga, árið 1246. Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
ráðherra opnuðu sýninguna, eins og
fram kom í Morgunblaðinu á mánu-
dag.
Sigurður Hansen hefur ásamt
eiginkonu sinni, Maríu Guðmunds-
dóttur, og fjölskyldu byggt upp
menningartengda ferðaþjónustu á
bænum, sem hófst með því að útihúsi
var breytt í Kakalaskála og Sigurður
setti upp útilistaverk á eyrunum við
Djúpadalsá, á þeim stað sem hann tel-
ur Haugsnesbardaga hafa farið fram.
Þar standa steinar fyrir bardaga-
menn beggja liða.
Hófst fyrir 10 árum
Í ávarpi við opnun sýningarinnar
sagðist Sigurður vera þakklátur fyrir
að hafa komist með verkefnið á þenn-
an stað. Upphafinu lýsti hann með
skemmtilegum hætti:
„Ég byrjaði á þessu verkefni fyrir
10 árum, með sviðsetningu á þeirri til-
gátu sem ég hef um Haugsnesbar-
daga. Ég var búinn og setja fram
þessa tilgátu og við áttum í dálitlum
vanda með að útskýra hana. Við vor-
um eitt sinn á ferðinni hér niður veg-
inn, við Maja, þá minntist ég á það við
hana að ég þyrfti að sviðsetja bardag-
ann. „Já, blessaður, gerðu það,“ sagði
hún. Það má segja að þetta hafi verið
fyrsta skrefið. Síðan hefur þetta
þróast og ég hef vaðið áfram án þess
að vita í hverju maður myndi lenda.“
Á síðasta ári var hann síðan langt
kominn með að undirbúa hljóðleið-
sögn um sýningarsal Kakalaskála.
Hafði hann séð fyrir sér listaverk í
salnum sem gætu sýnt söguna kring-
um Haugsnesbardaga. Sigurður leit-
aði ráða hjá Jóni Adólf Steinólfssyni
myndlistarmanni, sem hafði gert
róðukross sem reistur var á eyrunum
norðan við Djúpadalsá til minningar
um sama bardaga.
Jón Adólf kom með þá hugmynd að
fá listamenn víða að til að túlka bar-
dagann með verkum sínum. Auglýst
var eftir listafólki til að taka þátt.
Voru viðbrögðin mikil því hátt í 90
umsóknir bárust. Valdir voru 13 lista-
menn úr þessum hópi, frá 10 þjóð-
löndum. Sá fjórtándi var síðan Jón
Adólf sjálfur, en hver listamaður á tvö
verk á sýningunni, sem ber heitið „Á
söguslóð Þórðar kakala“.
Við opnunina voru flutt nokkur
ávörp og Karlakórinn Heimir söng,
en Sigurður er einmitt félagi í þeim
kór. Guðni Th. Jóhannesson sagði sýn-
inguna „magnaða á marga lund“ og
bera vitni um listfengi listamannanna.
Efniviðurinn væri menningararfur
okkar og saga. Vitnaði Guðni í Sigurð
Nordal, sem hefði sagt að það tvennt
varðaði sjálfstæða þjóð mestu, að
standa djúpum rótum í fornum jarð-
vegi en vera um leið umburðarlynd og
næm á nýjar hugsjónir. „Þetta er sönn
menning, þetta er alþjóðleg og þjóðleg
menning. Hana höfum við hér og
hennar fáum við að njóta saman,“
sagði Guðni og óskaði Sigurði Hansen
og fjölskyldu hans til hamingju með
sýninguna og glæsilegan Kakalaskála.
Kaldur sviti fór um ráðherra
Þórdís Kolbrún flutti einnig ávarp,
eftir að hún hafði ásamt forsetanum
fengið leiðsögn um sýninguna í fylgd
Sigurðar og Maríu. Hún sagði verkin
hafa haft mikil áhrif á sig, meiri en hún
hefði reiknað með fyrir fram, og þann-
ig yrði það án efa um fleiri sem kæmu
á sýninguna.
Hún hóf ávarp sitt á að rifja stutt-
lega upp Haugsnesbardaga.
„Þetta var hörð orrusta og óvægin
þar sem um eitt þúsund og þrjú
hundruð menn börðust svo hatramm-
lega að vel rúmlega eitt hundrað
þeirra féllu í valinn. Ég skal viður-
kenna að þegar ég áttaði mig á
stærðargráðu orrustunnar – og því að
það voru vandfundnir þeir ein-
staklingar á Íslandi sem ekki tengdust
bardaganum með einum eða öðrum
hætti – þá fór kaldur sviti um dóms-
málaráðherrann, þegar ég hugsaði til
þess ef álitamál af viðlíka stærðar-
gráðu kæmi upp í dag. Ég efa að við
gætum fundið einn einasta óvilhalla
dómara sem teldist uppfylla hæfis-
kröfur dagsins í dag sökum fjölskyldu-
tengsla, vináttu, hagsmunaárekstra
eða annarra tengsla við málsaðila,“
sagði Þórdís og uppskar hlátur við-
staddra.
Sagði hún framtak Sigurðar og fjöl-
skyldu dýrmætt. Kakalaskáli myndi
um langa tíð halda á lofti nöfnum
„fóstbræðranna“ Þórðar kakala og
Sigurðar Hansen.
„Já, blessaður, gerðu það“
Sýning um Þórð kakala opnuð í Kakalaskála í Skagafirði Forseti og ráðherra opnuðu sýninguna
Verk 14 listamanna frá 10 löndum Sönn menning, þjóðleg og alþjóðleg, sagði forseti Íslands
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Söguslóð Sigurður Hansen og María Guðmundsdóttir fylgdu Guðna Th. Jóhannessyni og Þórdísi Kolbrúnu R.
Gylfadóttur um sýninguna. Hér eru þau við verk eftir Zilvinas Balkevicius, sem sýnir Steinvöru á Keldum, systur
Þórðar kakala, hampa búrlyklinum. Sagði hún við mann sinn, Hálfdán, að fyrst hann væri slík kerling að ganga
ekki til orrustu væri réttara að hann gætti búrsins en hún fengi exina og fylgdi bróður sínum til bardaga.
Dauðastríð Hér er verk eftir listakonuna Nathalie Groeneweg frá Frakk-
landi, með ljóði eftir Sigurð Hansen. Myndin og ljóðið túlka dauðastríð Kol-
beins unga, en hann lést af bringusári sem hann hlaut við leik.
Guðni Th. Jóhannesson forseti
sagði í samtali við Morgunblaðið að
fyrir sig sem sagnfræðing væri
einkar ánægjulegt að kynnast verk-
efni á borð við það sem Sigurður
Hansen og fjölskylda stæðu að.
„Hér er sögð mögnuð saga. Það
er merkilegt að Sigurður fékk til
sín hóp valinkunnra erlendra lista-
manna sem ég þykist vita að hafi
ekki verið mjög kunnugir þessari
sögu er þeir komu hingað, en ná svo
að gera sér eins mikinn mat úr
þessu og raun ber vitni. Þarna
blandast saman hið þjóðlega og al-
þjóðlega og við getum eiginlega
ekki sagt sögu Sturlungaaldar
betur,“ sagði Guðni.
Miðlað á ólíka vegu
Í sömu ferð um Skagafjörð heim-
sótti forsetinn einnig nýju sýndar-
veruleikasýninguna á Sauðárkróki,
1238 – Baráttan um Ísland, þar sem
atburðum Sturlungaaldar eru gerð
skil með nýstárlegum hætti.
„Það er magnað að sjá hvernig
við höfum þennan efnivið, söguna,
og getum miðlað henni á svo ólíka
vegu, hér við Haugsnes á stein-
unum berum og með krossum á
steinunum sem táknar þá sem féllu.
Nakinn einfaldleikinn og mögnuð
upplifun. Og svo með nýjustu tækni
og vísindum stígum við inn í þennan
heim á sýningunni á Sauðárkróki
og fáum þennan heim beint í æð ef
svo má segja. Þetta eru sömu við-
burðir, sami löngu liðni tími en ólík-
ar leiðir til þess að upplifa hann,“
sagði Guðni og bætti við:
„Sagan er hérna á hverju strái.
Auðvitað eigum við Íslendingar
mikla sögu við hverja þúfu en að
öðrum ólöstuðum þá eru Skagfirð-
ingar óvenju ríkir að sögum og
ævintýrum og gera vel í því að hlúa
að þessum sagnaarfi, vinna með
hann og laða fólk til sín.“
Ljósmynd/Áskell Heiðar
Vígalegir Guðni Th. Jóhannesson
skoðaði sýninguna 1238 með Áskeli
Heiðari Ásgeirssyni.
Sagan á hverju
strái í Skagafirði
Forseti skoðaði tvær ólíkar sýningar