Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 24

Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Tilboðsverð frá 1.480.000 Mest seldu f jórhjól á Íslandi á ti lboði! ALLT AÐ 1 90.000 kr . AFSLÁTTU R! 1.290.000 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is ,,Það er erfitt að setja stiku á breyt- ingarnar sem orðið hafa hjá mér sl. tvö ár. Ég er ekki sú sama og ég var, en hluti af mér er enn til staðar. Eftir að ég stóð upp og sagði frá því að ég væri með Alzheimer upplifði ég frjálsræði og skömmin sem ég upplifði af því að vera með sjúkdóm- inn hvarf,“ segir Ellý Katrín Guð- mundsdóttir, sem greindist með Alzheimersjúkdóminn fyrir fjórum árum, þá 51 árs gömul. Ellý, sem sagði hreinskilningslega frá sjúkdómi sínum á ráðstefnu Ís- lenskrar erfðagreiningar fyrir tveimur árum, ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu á laugar- daginn með hlaupahópnum „Gleym- um ekki gleðinni“ sem hleypur til styrktar Alzheimersamtökunum. Hlaupahópurinn hleypur nú í þriðja sinn en hann var stofnaður eftir að Stefán Hrafnkelsson greindist með Alzheimersjúkdóminn, 58 ára gam- all. Nú hafa fimm einstaklingar til viðbótar sem greindir hafa verið með Alzheimer ungir og fjölskyldur þeirra bæst í hópinn. ,,Gleymum ekki gleðinni“ vísar til þess að mikil- vægt sé að gleyma ekki gleðinni þrátt fyrir að minnið láti undan síga. Áður en Ellý greindist gegndi hún starfi borgarritara, hún fékk að sögn mikinn stuðning hjá borginni og starfar enn í 60% starfi á umhverfis- og skipulagssviði. Ellý segist hafa brunnið fyrir umhverfismálum alla tíð og fór m.a. í nám í umhverfisrétti til Bandaríkjanna árið 1994. Auk vinnunnar taka Ellý og Magnús þátt í starfi hóps innan sérstakrar deildar Alzheimersamtakanna sem gengur undir nafninu Frumkvöðlarnir. Í þeim hópi eru tólf manns, sex ein- staklingar sem greinst hafa ungir með Alzheimer og makar þeirra. „Átta manns voru í hópnum í upp- hafi og hópurinn mun stækka enn frekar. Í Frumkvöðlum í dag eru einstaklingar frá rúmlega 50 til 66 ára. Hópurinn hittist mánaðarlega og þess utan hittist hann til þess að gera eitthvað skemmtilegt saman,“ segir Magnús Karl Magnússon, eiginmaður Ellýjar, sem bendir á mikilvægi þess að eiga samskipti við fólk sem er í svipaðri stöðu. Fólks sem ennþá er úti í lífinu. Ellý Katrín bætir við að hún sé sú eina í hópnum með Alzheimer sem sé enn í vinnu. Dró úr jákvæðni og lífsgleði Ellý Katrín segist vera fegin að hafa stigið fram og sagt frá Alzheim- ersjúkdómnum og komið til dyranna eins og hún sé klædd, það sé í hennar eðli. Það hafi verið gott að koma út úr skápnum. Magnús bætir við að á meðan greiningarferlið var í gangi og feluleikurinn stóð yfir hafi dregið aðeins úr jákvæðni og lífsgleði sem alltaf hafi einkennt Ellý. Magnús tekur undir með henni og segir það breyta miklu að allt sé uppi á borð- inu gagnvart öllum þeim sem við um- göngumst. Svar við einfaldri spurn- ingu eins og „Hvað er að frétta?“ sé allt annað ef eitthvað er ósagt. Ellý segir að margir hafi stoppað sig út á götu og ekki síst eldri kynslóðin eftir erindi hennar hjá Íslenskri erfða- greiningu og þakkað henni fyrir að segja frá. Magnús segir margt hafa breyst eftir greiningu Ellýjar. Hann hafi stigið til hliðar í ýmsum stjórn- unarstörfum og horfi meira á þætti í vinnu og utan hennar sem hann hafi mestan áhuga á. Elly og Magnús lifa heilbrigðu lífi og leggja áherslu á svokallað „Mind diet“-mataræði sem fellur vel að næringarmarkmiðum landlæknis; grófmeti, hollar olíur, minna af rauðu kjöti og meira af grænmeti. ,,Líka bláber“ skýtur Ellý inn í og bætir við að svo fylgi mataræðinu eitt glas af rauðvíni á dag. ,,Á hverju kvöldi erum við með gæðastund þar sem við fáum okk- ur eitt rauðvínsglas, förum yfir dag- inn og hlustum á góða tónlist,“ segja Ellý og Magnús sem vanda sig við það sem þau gera og einbeita sér að því að njóta augnabliksins og þess sem gefur lífinu gildi. „Ég er ekki sú sama og ég var“  Greind með Alzheimer 51 árs  Einbeita sér að því að njóta lífsins og því sem gefur lífinu gildi  Starfa með Frumkvöðlum, hópi fólks sem greint hefur verið ungt með Alzheimer og mökum þeirra Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Samhent Magnús Karl Magnússon og Ellý Katrín Guðmundsdóttir takast á við Alzheimersjúkdóminn með því að njóta lífsins saman. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Hlauparar „Gleymum ekki gleðinni“ með Stefáni, Ellý, Jónasi, Steinþóri, Gunnlaugi, Eiríki og fjölskyldum ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sandauðnir þekja um 22.000 km2 af Íslandi. Áfokið frá sandauðnunum hefur haft mikil áhrif á vistkerfi landsins. Áður gat sandfokið verið slíkt að búfénaður drapst og bújarðir lögðust í eyði bæði á Suðurlandi og Norðausturlandi. Það voru hamfarir sem fólk í dag á bágt með að skilja. Fjallað er um sandauðnirnar, sandfok og ryk á Íslandi í nýjasta hefti Náttúrufræðingsins (89. árg., 1.-2. hefti). Höfundar eru dr. Ólafur Arnalds, prófessor við Landbúnaðar- háskóla Íslands (LbhÍ), Elín Fjóla Þórarinsdóttir, sérfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins, og Fanney Ósk Gísladóttir, lektor við LbhÍ. Foksandur getur borist langt frá upprunastað og jafnvel myndað tuga kílómetra langar „sandleiðir“. Ólafur sagði að margar sandleiðanna væru vel skilgreindar. „Einna frægust núna er sandleiðin frá svæðinu við Hagavatn og inn á Rótarsand. Hún er yfir 16 kílómetra löng. Trúlega eru tuga kílómetra langar sandleiðir í Ódáðahrauni,“ sagði Ólafur. Hann sagði mikilvægt að finna upptök sandfoks. Oft eru þau við ár sem renna undan jökli. Árnar mynda flæður og hlaða sífellt meiri sandi inn í kerfið. Jökullinn skilar breiðri blöndu af kornastærðum í framburð- inum. Fínasta efnið tekur flugið og myndar rykmekki en eftir situr gróf- ari sandur. Ekki er vitað hve stór hluti af sand- flæmum landsins er uppblásið land, að sögn Ólafs. Gróft áætlað gæti það verið um helmingur sandanna. „Það eru t.d. stór svæði í Ódáðahrauni sem eitt sinn voru gróin en eru uppblásin. Önnur svæði urðu reglulega fyrir áföllum en greru upp þess á milli. Birkiskógar uxu um allt Suðurland þótt jökulhlaup hafi reglulega flæmst yfir suma þeirra. Þegar búið var að eyða birkiskógunum skorti fræfall og rótarleifar til að skógurinn gæti vaxið upp á ný,“ sagði Ólafur. Hann nefndi að fyrir tíma virkjana í Þjórsá hefði komið mikil vorflóð sem skilaði mikl- um sandi á slétturnar við ána. Þar voru skógar sem komu í veg fyrir að sandurinn tæki á rás. Sandfokið var skaðvaldur Ólafur sagði að á öldum áður, sér- staklega á 19. öld, hefðu menn ekkert ráðið við foksandinn. Skógarhögg og beit áttu líklega sinn þátt í því. „Það eru þúsundir ferkílómetra á afréttum Suðurlands þar sem skógarhögg, beit, eldgos og framgangur sands hafa spilað saman,“ sagði Ólafur. Sandgræðsla ríkisins, sem síðar hét Landgræðsla ríkisins og nú Landgræðslan, var sett á fót 1907 til að stöðva framrás sands og koma í veg fyrir uppblástur. „Það hefur náðst mikill árangur og flestir áfoks- geirar landsins verið stöðvaðir. Þegar við förum t.d. um Hellu í dag sjáum við grasi gróin tún og beitilönd. Þetta var allt sandur áður,“ sagði Ólafur. Svartir sandar Íslands eru sér- stakir á heimsvísu. Samsetning ís- lensks sands er allt öðru vísi en sands víðast hvar annars staðar. Sandarnir hér eru langstærstu basaltglersand- ar í heiminum. Þeir eru m.a. ríkir af þungmálmum. Ólafur sagði að tilgát- ur hefðu verið settar fram um að fok sands út í sjó hefði haft jákvæð áhrif á vaxtarskilyrði og frumframleiðni í hafinu. Greinin í Náttúrufræðingnum er sú fyrri af tveimur. Fjallað verður um nokkur virkustu sandsvæðin í ann- arri grein í Náttúrufræðingnum síðar á þessu ári. Þar verður lögð áhersla á uppfok, ryk, áfok og áhrif áfoks á vistkerfi. Sandauðnirnar þekja um fimmtung Íslands  Foksandur var mikill skaðvaldur  Tuga km „sandleiðir“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sáð í sand Menn hafa lært að hemja sand og sandfok á ýman hátt. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is ,,Við erum alltaf að endurskoða verk- ferla og hvernig við getum nýtt fjár- magnið betur til þess að stytta óá- sættanlegan biðlista barna eftir ADHD-greiningu,“ segir Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Óskar segir þjónustu við börn og foreldra mjög góða en biðin sé vandamál. Þar sé bæði um að ræða greiningu en ekki síður ákveðna meðferð að henni lok- inni. ,,Vinnuhópur með fulltrúum frá landlækni, BUGL, Greiningarstöð og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur verið að störfum til að leita leiða til styttri biðtíma barna sem þurfa á greiningu að halda,“ segir Óskar og bætir við að umræðan sem nú fari fram hvetji hópinn enn frekar til þess að finna viðeigandi lausn. Óskar segir að meðal þeirra hugmynda sem ræddar hafi verið sé hvort hægt sé að flytja ákveðnar greiningar inn á heilsugæsluna í samstarfi við Þroska- og hegðunarstöð. Flytja eitthvað af greiningunum yfir á BUGL eða Greiningarstöð. Einnig sé í skoðun hvort og hvernig aukið fjármagn gæti stytt biðtíma barna sem sannarlega þurfi á hjálp að halda. Leita leiða til að stytta biðlistana  Óásættanlegur biðtími eftir greiningu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.