Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
„Norskum ferðamönnum fjölgaði
hratt á Íslandi þegar það varð ódýr-
ara að ferðast til Íslands [eftir fall
bankanna]. Norðmenn eru almennt
mjög áhugasamir um Ísland og fyrir
Norðmenn er það merkilegt að fara til
Íslands. Þetta er því að hluta söguleg,
eða menningartengd ferðamennska.
Norskum ferðamönnum fjölgaði úr
um 35 þúsund í 55 þúsund á ári á
skömmum tíma eftir kreppuna á Ís-
landi en síðan hefur þetta jafnast út
og talan sigið töluvert undir 50 þús-
und á ári. Við hjá sendiráðinu sinnum
þessu nokkuð og þá helst með kynn-
ingum á Íslandi með ferðasölum. Hér
í Noregi eru ferðaskrifstofur sem sér-
hæfa sig í að selja ferðir til Íslands.
Ég hef kynnst Íslendingum og Norð-
mönnum sem fara með hópa til Ís-
lands í menningartengdar ferðir, til
dæmis á slóðir Snorra Sturlusonar.“
Norsk útgáfa Flateyjarbókar
– Þú nefnir skipulagðar ferðir.
Hversu fjölmennur hópur í Noregi
hefur áhuga á þessum menningararfi?
„Það er erfitt að gera sér grein fyrir
því. Ég skal nefna eitt dæmi. Eitt
merkilegasta verkefnið sem hefur
verið í gangi í Noregi síðustu ár er
norsk útgáfa á Flateyjarbók. Það eru
komin út fjögur bindi en alls verða
þetta sex bindi og á verkinu að ljúka
fyrir lok þessa árs. Bókaforlag í Staf-
angri gefur þetta út en að baki útgáf-
unni eru feðgarnir Torgrim Titlestad
prófessor, sem nú er kominn á eft-
irlaun, og Bárður sonur hans. Útgáfan
er fjölskyldufyrirtæki. Þetta er
gríðarlega stórt verkefni sem hefur
tekið mörg ár og hafa þau selt um 10
þúsund eintök af hverju bindi sem
hefur komið út. Þau eru góð í mark-
aðssetningu en það telst mjög gott í
Noregi að selja 10 þúsund bækur.
Þetta eru auðvitað ekki ódýrar bækur
en það er áhugi á efninu. Þarna er
verk að vinna en eitt af því sem við
lítum á sem hlutverk sendiráðsins er
að standa vörð um sagnaarfinn og
tala svolítið máli hans. Flateyjarbók
er náttúrlega eitt merkilegasta hand-
rit okkar Íslendinga – og eitt það
fallegasta – en þar segjum við sögu
Noregskonunga. Flateyjarbók er þó
ekki mjög þekkt í Noregi, ólíkt
Heimskringlu.“
Kveikjan að Íslandsferðum
– Hvernig getur sendiráðið staðið
vörð um þennan arf?
„Með því að rækta tengslin við
lykilfólkið sem vinnur þessi störf.
Það skiptir máli fyrir það að vita að
sendiráðið er ákveðinn bakhjarl. Ég
tók þátt í málþingi í Stafangri í apríl
sem tengdist orrustunni við Hafurs-
fjörð en þar sigraði Haraldur hár-
fagri konunganna árið 872 og varð sá
atburður líklega kveikjan að því að
margir fluttu frá Noregi og settust
að á Íslandi. Við tökum þátt og það
skiptir máli fyrir þetta fólk – það var
fullur salur af fólki, vel á annað
hundrað manns – að við ræktum
þessi tengsl. Við reynum að verða
fræðimönnum, bókaútgáfum og
öðrum sem að málum koma innan
handar eins og við mögulega getum
og minna á söguna. Það er brýnt fyrir
bæði okkur og Norðmenn að tapa
ekki þessari tengingu við okkar sam-
eiginlega menningar- og sagnaarf.
Ég upplifi það sem Íslendingur hvaða
þýðingu Íslendingasögurnar hafa og
Heimskringla hafði mikla þýðingu
fyrir sjálfstæðisbaráttu beggja
ríkja.“
Þar sem skáldið flutti Geisla
„Mér er minnisstætt þegar annað
bindið af Flateyjarbók kom út haust-
ið 2016 en þá var okkur hjónunum
boðið til Þrándheims. Forlagið var
með viðburð í Niðarósdómkirkju sem
er hreint stórkostleg bygging. Einar
Skúlason skáld flutti kvæðið Geisla
fyrir Eystein Haraldsson konung í
dómkirkjunni við stofnun biskupsset-
ursins 1153. Norsku kóngarnir voru
með íslensk skáld við hirðina. Flat-
eyjarbók byrjar á kvæðinu Geisla en
kannski stóð ég á sama stað og Einar
forðum þegar hann flutti kvæðið fyrir
kónginn. Það er auðvitað sérstakt
fyrir okkur Íslendinga að eiga slíka
sögu.“
Virkir á tónlistarsviðinu
– Ólafur Arnalds verður með tón-
leika í Ósló í sumar [fóru fram 8. júní].
Eru Íslendingar virkir í menningar-
lífinu hér í Ósló?
„Það er mjög gaman að segja frá því
að íslenskt tónlistarfólk kemur hér
reglulega fram. Það er ansi mikið um
rokk- og popptónlist. Ólafur Arnalds
spilar hér í sumar. Ásgeir Trausti var
hér í vetur, Júníus Meyvant og
Reykjavíkurdætur svo fátt eitt sé
nefnt. Mezzoforte er svo náttúrlega
alltaf stórt nafn í Noregi og spilar
nokkuð reglulega vítt og breitt um
landið.“
– Hvað um bókmenntirnar?
„Nú síðast hefur Jón Kalman Stef-
ánsson fengið alveg feikilega góða
dóma fyrir Sögu Ástu [n. Historien om
Ásta] sem kom út í maí. Fyrsta skáld-
saga hans, Sumarljós og svo kemur
nóttin, kom út í fyrra, einnig í frábærri
þýðingu Tone Myklebust. Hún seldist
mjög vel eftir því sem ég best veit og
fékk mikla athygli. Auður Ava Ólafs-
dóttir hefur líka fengið mikla athygli
hér og svo seljast bækur Yrsu og Arn-
aldar auðvitað vel og fleiri íslenskar
bækur.“
Settu upp verk eftir Ibsen
– Svo eru það leikhúsin?
„Þorleifur Arnarson og Mikael
Torfason hafa sett upp tvö verk við
norska þjóðleikhúsið síðan ég varð
sendiherra. Nú er verið að sýna Faust.
Þeir settu líka upp Ibsen fyrir tveimur
árum og steyptu þá saman verkunum
Villiöndinni og Óvini fólksins. Það
gekk vel upp hjá þeim. Gísli Örn
Garðarsson er einnig mjög vel kynnt-
ur í Noregi. Hann bjó hér í Ósló sem
barn og talar fullkomna norsku. Hann
setti upp verkið Fólk, staðir og hlutir
við þjóðleikhúsið og fékk frábæra
dóma. Reyndar lék hann í nokkrum
sýningum sjálfur en var fyrst og
fremst leikstjóri. Íslenskir leikstjórar
koma því ansi reglulega í þjóðleik-
húsið. Það er mjög gaman að því.
Nefna mætti fleiri listamenn. Karl
Júlíusson leikmyndahönnuður hefur
búið og starfað lengi í Noregi en hann
hóf feril sinn á að gera leikmyndina í
Hrafninn flýgur. True North hefur
einnig framleitt kvikmyndir hér í
Noregi í gegnum dótturfélag sitt.
Mission Impossible var til dæmis tek-
in hér upp að hluta.“
– Hvað um atvinnulífið?
„Viðskipti milli Íslands og Noregs
eru mjög mikil. Heildarviðskipti eru
um 165 milljarðar íslenskra króna á
ári. Þá eru tekin saman vöru- og þjón-
ustuviðskipti og inn- og útflutningur.
Hafið býður upp á mörg tækifæri og
Norðmenn munu á komandi árum
leggja enn meiri áherslu á hafið og
nýtingu auðlinda þess. Íslensk fyrir-
tæki, á borð við Marel, Völku og
Skagann 3X, hafa selt Norðmönnum
búnað fyrir sjávarútveg. Svo er fisk-
eldi auðvitað risavaxið í Noregi og
hafa norskir aðilar fjárfest á Íslandi.
Á því sviði eru þegar komin sterk
tengsl milli Noregs og Íslands.“
Þarf að hlúa að tengslunum
– Að lokum, hvað stendur þá upp úr
eftir dvölina í Ósló?
„Hversu dýrmætt og mikilvægt
það er fyrir Ísland að vera hluti af
þessari norrænu fjölskyldu. Þetta eru
okkar nánustu grannar og vinir og
ættingjar og við megum ekki gleyma
að halda áfram að hlúa að þessum
tengslum eftir öllum mögulegum
leiðum,“ segir Hermann.
Bók Galgen eftir Yrsu Sigurðardóttir. Í góðum félagsskap Ólafur Arnalds með Elvis og fleiri góðum. Sú 4. söluhæsta Ásta, bók Jóns Kalmans.
Morgunblaðið/Baldur
Leikhús Faust í uppsetningu Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnarsonar.
Hermann er menntaður bygginga-
tæknifræðingur frá Tækniskóla Ís-
lands og með M.Sc-gráðu í verk-
fræði, með áherslu á þróunar-
samvinnu, frá Háskólanum í
Álaborg. Um það leyti sem hann út-
skrifaðist var utanríkisráðuneytið
að auglýsa verkefnastarf sem
tengdist setu Íslands í ráðherra-
nefnd Alþjóðabankans, svokallaðri
þróunarnefnd, þar sem Halldór Ás-
grímsson, síðar forsætisráðherra,
var fulltrúi Norðurlandanna og
Eystrasaltsríkjanna.
Þegar Hermann hafði unnið í
ráðuneytinu í eitt ár losnaði staða
ráðgjafa í Alþjóðabankanum í
Washington sem Ísland þurfti að
manna. Fór svo að Hermann var
sendur til Washington. Þar starfaði
hann í fimm ár fyrir stjórnarfulltrúa
Norðurlandanna og Eystrasaltsríkj-
anna sem situr í stjórn bankans.
„Það var mun lengri tími en ég
átti von á. Þegar ég flutti heim til
Reykjavíkur átti Ísland sjálfan
stjórnarfulltrúann sem var þá skip-
aður Þorsteinn Ingólfsson heitinn
sendiherra. Hann sat í stjórn Al-
þjóðabankans í þrjú ár en þegar
hann sat í stjórninni bar Ísland
ábyrgð á því að samræma afstöðu
þessara átta ríkja í öllum málefnum
Alþjóðabankans. Ég stýrði þeirri
samhæfingu heima í ráðuneytinu í
þrjú ár, frá 2003 til 2006,“ segir
Hermann.
Síðasta árið urðu tímamót í
utanríkissögu Íslands. Varnarliðið
hélt af landi brott og skildi eftir
varnarmannvirki í forsjá íslenska
ríkisins. Hermann kom að þessari
vinnu en hann var þá farinn að
vinna meira í öryggis- og varnar-
málum í ráðuneytinu.
„Það var svo um vorið 2007 sem
ég var sendur til Brussel til að
starfa fyrir fastanefnd Íslands hjá
Atlantshafsbandalaginu, NATO. Þar
var ég bæði fulltrúi Íslands í her-
málanefnd NATO og í fjárlaga-
nefndum NATO sem eru nokkrar.
Meðal annars var ég fulltrúi Íslands
í mannvirkjasjóði NATO. Ísland var
þá að yfirtaka mannvirki og það var
mikil vinna sem þessu tengdist,
bæði heima á Íslandi og eins í
Brussel. Ég var úti í Brussel í mun
styttri tíma en ég hafði átt von á því
ég fékk síðan stöðu í ráðuneytinu
heima í lok árs 2008 og hóf störf í
janúar 2009.
Við fjölskyldan fluttum heim í
miðju hruninu, í desember 2008, en
þá varð ég sviðsstjóri þróunarsam-
vinnusviðs sem var nýstofnað inn-
an ráðuneytisins. Það er nú orðið
að þróunarsamvinnuskrifstofu
ráðuneytisins. Ég var sviðsstjóri í
þrjú ár en á miðju ári 2011 fékk ég
stöðu skrifstofustjóra alþjóða- og
öryggisskrifstofu ráðuneytisins
sem fer með pólitísk málefni, tví-
hliða gagnvart öðrum ríkjum og
gagnvart alþjóðastofnunum, þar
með talið Atlantshafsbandalaginu
og Sameinuðu þjóðunum. Þeirri
skrifstofu stýrði ég síðan til 2015
að ég kom hingað til Óslóar,“ segir
Hermann. Hann varð svo fasta-
fulltrúi Íslands hjá NATO í Brussel 1.
ágúst sl.
Ferill í utanríkisþjónustu
HERMANN HEFUR STARFAÐ Í NOKKRUM BORGUM
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
2-3 svefnherbergi
2 baðherbergi
Flott hönnun, vandaður frágangur
Frábært útsýni
Geymsla og stæði í bílakjallara
Hægt að velja um tilbúnar íbúðir
eða íbúðir í byggingu
Alg jör paradís fyrir golfara
Verð frá 33.900.000 Ikr.
(246.000 evrur, gengi 1evra/138 Ikr)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
GLÆSILEGAR LÚXUSÍBÚÐIR
Las Colinas
margverðlaunað sem eitt besta golfsvæðið á Spáni