Morgunblaðið - 22.08.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.08.2019, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Kragelund stólar K 406 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ákvörðun Donalds Trumps Banda- ríkjaforseta um að fresta fyrirhug- aðri heimsókn til Danmerkur tólf dögum áður en hún átti að hefjast er móðgun við Dani, að mati margra stjórnmálamanna og fréttaskýrenda í Danmörku. Trump kvaðst hafa ákveðið að fresta heimsókninni vegna þess að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefði neitað að ræða tillögu hans um að Bandaríkin keyptu Grænland. Nokkrir stjórnmálaskýrendur í Dan- mörku sögðu framgöngu Trumps til marks um virðingarleysi gagnvart Dönum, samstarfsþjóð Bandaríkj- anna í Atlantshafsbandalaginu, og kynda undir efasemdum um að Dan- ir og fleiri Evrópuþjóðir í NATO gætu reitt sig jafnmikið á samstarfið við Bandaríkin og þau hefðu gert síð- ustu áratugi. Heimsóknin átti að hefjast 2. september og standa í tvo daga. Yfir- völd í Danmörku höfðu lagt í mikinn kostnað við undirbúning heimsókn- arinnar, m.a. vegna öryggisviðbún- aðar. Margrét 2. Danadrottning hafði boðið forsetanum í heimsókn- ina og fjölmiðlafulltrúi hennar sagði ákvörðun Trumps hafa komið henni „á óvart“, að sögn fréttavefjar danska ríkisútvarpsins. Mette Frederiksen kvaðst vera „gröm og undrandi“ á ákvörðun Trumps en áréttaði að Bandaríkin væru á meðal helstu samstarfsríkja Danmerkur og samband ríkjanna væri ekki í hættu. „Skrípaleikur“ Viðbrögð annarra danskra stjórn- málamanna við ákvörðuninni voru hörð. Martin Lidegaard, talsmaður miðflokksins Radikale Venstre í utanríkismálum, sagði framgöngu forsetans vera „skrípaleik“. „Það er erfitt að finna orð sem nær yfir þetta, því að þetta er svo óvenjuleg og fá- ránleg staða. Ég kalla þetta diplóm- atískan skrípaleik en það er líka hægt að nota sterkari orð,“ sagði hann í viðtali við danska ríkisút- varpið. „Það eru margar góðar ástæður til að ætla að maðurinn sé flón og nú hefur enn ein bæst við. Þetta er auð- vitað fáránlegt,“ sagði Eva Flyv- holm, talsmaður Einingarlistans sem hefur stutt ríkisstjórn Jafnaðar- mannaflokksins ásamt Radikale Venstre og Sósíalíska þjóðarflokkn- um. Líkt við ofdekrað barn Talsmenn borgaralegu flokkanna í utanríkismálum tóku í sama streng. „Við sem héldum að Trump-sirkusinn gæti ekki orðið fáránlegri verðum nú að viðurkenna að hann er orðinn það,“ sagði Michael Astrup Jensen, talsmaður mið- og hægriflokksins Venstre. Hann sagði að ákvörðun Trumps væri „bein móðgun við Dan- mörku og konungsfjölskylduna“. Naser Khader, talsmaður Íhalds- flokksins, sagði það gremjulegt að forseti Bandaríkjanna skyldi ekki sætta sig við að Grænland væri ekki til sölu, eins og grænlenska land- stjórnin og dönsk stjórnvöld hafa sagt. „Við erum í bandalagi með Bandaríkjunum, ekki forseta lands- ins,“ sagði hann og kvaðst telja og vona að framganga Trumps spillti ekki samstarfi ríkjanna. Søren Espersen, talsmaður Danska þjóðarflokksins, sagði að ákvörðun Trumps væri „fáránleg“ og „mikil móðgun“ við drottningu Dana og hirðina sem hefði haft skamman tíma til að undirbúa heimsóknina. „Hún hafði verið undirbúin mjög hratt og svo koma þessi barnalegu viðbrögð frá Trump,“ sagði Esper- sen. Hann líkti forsetanum við „of- dekrað barn“ og strákling sem léti öllum illum látum fengi hann ekki það sem hann vildi. Líkt við lénsdrottna Marc Jakobsen, sérfræðingur í málefnum Grænlands við Kaup- mannahafnarháskóla, sagði að Trump hegðaði sér eins og „léns- drottinn á nýlendutímanum“. „Til- laga Trumps um að kaupa Grænland er fáránleg og það er fáránlegt að hann skuli núna aflýsa opinberri heimsókn sinni til Danmerkur vegna þess að hann veit að það er ekki nokk- ur möguleiki á því að Grænland verði 51. ríki Bandaríkjanna,“ sagði hann. Ole Wæver, prófessor í alþjóða- stjórnmálum við Kaupmannahafnar- háskóla, segir að það sé „fáheyrt“ og „augljós móðgun“ að aflýsa opinberri heimsókn með þessum hætti tólf dög- um áður en hún átti að hefjast. „Yfir- leitt er opinberum heimsóknum ekki aflýst nema eitthvað mjög óvenjulegt komi upp,“ sagði hann. „Ljóst er að hægt er að gera það ef stríð blossar upp eða ef lýst er yfir neyðarástandi.“ Prófessorinn sagði það áhugavert hversu langt borgaralegu flokkarnir hefðu gengið í því að gagnrýna ákvörðun Trumps. Hann kvaðst þó ekki telja að framganga forsetans myndi spilla samskiptum ríkjanna tveggja. Lillian Gjerulf Kretz, fréttaritari danska ríkisútvarpsins í Bandaríkj- unum, sagði Trump hafa brotið „allar reglur í handbókinni um samskipti ríkja“ og framferði hans hefði orðið til þess að samband landsins við Dan- mörku væri nú „við frostmark“. Danska blaðið Jyllands-Posten sagði hins vegar í fréttaskýringu að þegar allt kæmi til alls myndi fram- ganga Trumps verða Danmörku til framdráttar og styrkja stöðu landsins í valdatafli ríkja á borð við Bandarík- in, Rússland og Kína á norðurslóðum. „Mette Frederiksen hefur fengið tækifæri til að leggja áherslu á að stóru málin á Grænlandi ráðast í raun í Kaupmannahöfn,“ sagði blað- ið. Sögð sýna mikilvægi ESB Steffen Gram, fréttaskýrandi danska ríkisútvarpsins sagði hins vegar að það væri áhyggjuefni fyrir Dani og önnur NATO-lönd í Evrópu að forseti Bandaríkjanna skyldi ganga fram með þessum hætti. Leið- togar Evrópulandanna hlytu að velta því fyrir sér hvort óhætt væri að „setja öll eggin í bandarísku körfuna“ í varnar- og öryggismálum. „Og ef það er ekki óhætt, hvaða kost höfum við þá annan?“ Politiken sagði í forystugrein að framganga Trumps í utanríkismálum væri áhyggjuefni fyrir lítil lönd á borð við Danmörku og sýndi hversu mikilvæg aðild landsins að Evrópu- sambandinu væri. Ekki sem varnar- bandalags í stað NATO, því að það væri ekki raunhæft, heldur sem pólit- ísks bandalags. „Með traustu akkeri í Evrópu getur Danmörk alveg örugg- lega staðið storminn frá Bandaríkj- unum af sér,“ sagði Politiken. Aðrir fréttaskýrendur töldu ekki að málið stefndi samstarfi Bandaríkj- anna og Danmerkur í hættu. Frétta- skýrandi Politiken sagði að fram- ganga Trumps sýndi að hann væri tilbúinn að ganga mjög langt í því að tryggja að Kínverjar gætu ekki aukið áhrif sín á norðurslóðum með fjár- festingum í námum og samgöngu- mannvirkjum á Grænlandi. Hugsan- legt væri að Trump færi í heimsókn til Danmerkur síðar og kæmi þá með tilboð sem Danir gætu ekki hafnað. Sögð móðgun við Danmörku  Danir furða sig á ákvörðun Trumps um að fresta heimsókn til Danmerkur vegna þess að þeir vilja ekki selja Grænland  Eru ekki á einu máli um áhrifin á samstarf ríkjanna en segja ákvörðunina fáránlega AFP Leiðtogafundur Kim Kielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, á fundi í Nuuk 19. ágúst. AFP Ekki falt Borgarís við Kulusuk á Grænlandi. Grænlenska landstjórnin hefur sagt að landið sé ekki til sölu, en opið fyrir viðskiptum við Bandaríkin. AFP Dekurbarn? Donald Trump hefur verið lýst sem „ofdekruðu barni“. AFP Móðguð? Margrét 2. Danadrottn- ing bauð Trump í heimsóknina. Vægi Grænlands eykst » Muté B. Egede, formaður IA- flokksins á Grænlandi, sagði í gær að áhugi Trumps á að kaupa landið stafaði af auknu vægi þess á norðurslóðum. » Egede sagði ljóst að vægi landsins myndi aukast næstu árin og Grænlendingar þyrftu að hafa meiri áhrif á stefnuna í varnar- og utanríkismálum í framtíðinni. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sagði eftir viðræður við Angelu Merkel Þýskalandskanslara í Berlín í gær að „nægilegt svigrúm“ væri til að ná nýju samkomulagi um útgöngu Bretlands úr Evrópusam- bandinu. Johnson viðurkenndi að leiðtogar Evrópusambandsins legðu fast að bresku stjórninni að finna „fram- kvæmanlega“ lausn á því hvernig tryggja ætti opin landamæri milli Norður-Írlands og Írska lýðveldis- ins. Merkel kvaðst telja að hugsan- lega yrði hægt að finna lausn á deil- unni „innan næstu 30 daga“. Johnson kvaðst vera „meira en ánægður með þá sjóðheitu tíma- áætlun“. Boris Johnson áréttaði á fund- inum andstöðu sína við umdeilt ákvæði í útgöngusamningi ESB við Theresu May sem á að tryggja að landamæri Norður-Írlands og Írska lýðveldisins verði opin eftir brexit sem á að taka gildi 31. október næst- komandi. Andstæðingar samnings- ins segja ákvæðið geta orðið til þess að Bretland þurfi að vera áfram í tollabandalagi Evrópusambandsins til frambúðar. Stuðningsmenn ákvæðisins segja hins vegar að það sé nauðsynlegt til að koma í veg fyr- ir að brexit grafi undan samningnum sem náðist árið 1998 til að koma á friði á Norður-Írlandi eftir átök sem kostuðu um 3.500 manns lífið. Merkel telur mögulegt að finna lausn innan 30 daga  Boris Johnson ræðir brexit við kanslara Þýskalands AFP Viðræður Boris Johnson og Angela Merkel á blaðamannafundi í Berlín.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.