Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 35

Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 35
Liður í að bæta lífskjör blindra og sjónskertra Blindrafélagið, sam- tök blindra og sjón- skertra á Íslandi, fagn- aði áttatíu ára afmæli hinn 19. ágúst síðast- liðinn. Frá upphafi hef- ur félagið unnið að hagsmunamálum blindra og sjónskertra auk þess að veita margvíslega þjónustu og standa fyrir öflugu félagsstarfi, fræðslu og jafningjastuðningi. Félagið hefur jafnframt stuðlað að því að tryggja samræmda heild í þjónustunni þar sem ríki, sveitarfélög og hagsmuna- samtök notenda hafa tekið höndum saman með góðum árangri. Á liðnum árum hefur Blindra- félagið unnið markvisst að því að fjölga leiðsöguhundum til að mæta þörfum félagsmanna sinna. Áratuga- hefð er fyrir því að blindir og sjón- skertir um nánast allan heim nýti hunda í daglegu lífi til þess að kom- ast á milli staða. Hefðin er ekki eins rík hér á landi en á rætur að rekja til þess að fyrir rúmum tíu árum safn- aði Blindrafélagið ásamt Lions- hreyfingunni á Íslandi fyrir fjórum leiðsöguhundum sem keyptir voru frá Noregi. Það markaði upphafið að því sem síðan hefur verið kallað leið- söguhundaverkefnið og félagið stendur að í samvinnu við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með sam- þætta sjón- og heyrnarskerðingu. Tólf leiðsöguhundar hafa verið keyptir í gegnum þetta verkefni á síðastliðnum tíu árum og sem stend- ur eru átta leiðsöguhundar hér á landi. Fimm komu fullþjálfaðir frá Svíþjóð og þrír eru fæddir og þjálf- aðir hér á Íslandi. Hundarnir mættu hins vegar vera fleiri enda eru þeir afar mikilvægur liður í því að auka sjálfstæði blindra og aðlögun þeirra og þátttöku í samfélaginu. Fyrir liggur greinar- góð skýrsla Blindra- félagsins og fyrr- nefndrar Þjónustu og þekkingarmiðstöðvar um hvernig staðið hef- ur verið að þjálfun, fjármögnun og út- hlutun á leiðsögu- hundum hér á landi. Þar er jafn- framt að finna tillögur til framtíðar. Í tilefni afmælis félagsins ákvað ég að leggja verkefninu lið með þriggja milljón króna styrk fyrir kaupum og þjálfun á leiðsöguhundi. Hugmyndin er að flýta þannig fyrir framvindu verkefnisins. Þá hyggst ég stofna sérstakan samráðshóp sem fær það hlutverk að vinna að framþróun verkefnisins með tilliti til þeirra til- lagna sem komið hafa fram. Blindrafélagið hefur alla tíð vakað yfir þörfum félagsmanna og stöðugt leitað leiða til að sækja fram á við með það að markmiði að bæta lífs- kjör og aðstæður þeirra. Leiðsögu- hundaverkefnið er skýrt dæmi þess. Eftir Ásmund Einar Daðason Ásmundur Einar Daðason »Hugmyndin með framlaginu er að flýta fyrir framvindu leiðsöguhundaverkefn- isins enda leiðsögu- hundar mikilvægur lið- ur í að auka sjálfstæði blindra. Höfundur er félags- og barna- málaráðherra. Nýburagula – safn- að fyrir fullkomn- ari ljósalömpum Gula er algeng hjá nýburum á fyrstu dög- um lífsins. Hún orsak- ast af mikilli þéttni gallrauða í blóði og vefjum barnsins. Gall- rauðinn myndast við eðlilegt niðurbrot rauðra blóðkorna. Fyrir fæðingu sér fylgjan um að fjar- lægja hann úr blóði fóstursins, en eftir fæðingu tekur lifrin við því hlut- verki. Hins vegar getur tekið nokkra daga fyrir lifrina að ná þeim þroska sem þarf til að hún geti sinnt því hlutverki nægilega vel og getur barnið þá orðið sýni- lega gult. Stundum þarf af með- höndla guluna, því ef magn gall- rauða í líkama barnsins verður of mikið getur hann valdið skemmd- um í heila og fötlun. Því er mikil- vægt að fylgjast vel með gulu hjá nýburum og hefja meðferð í tíma sé hennar þörf. Oftast er nóg að með- höndla guluna með því að setja börnin í þar til gerð ljós sem gerir gallrauðann vatnsleysanlegan þann- ig að hann skilst auðveldar úr lík- ama barnsins. Ef sú meðferð dugir ekki til þarf að skipta um blóð í barninu, sem gerist einkum ef mis- ræmi er milli blóð- flokka móður og barns. Reykjavíkurmara- þonið er um næstu helgi og safnar kven- félagið Hringurinn fé til kaupa á nýjum ljósalömpum fyrir vökudeild Barnaspítala Hringsins. Um er að ræða fullkomnari lampa en þeir sem nú eru í notkun á deild- inni og komnir eru til ára sinna. Þessir nýju lampar munu bæta meðferð nýbura með gulu og verða enn eitt dæmi um stórhug Hringskvenna til að tryggja framúrskarandi tækjakost á vökudeildinni. Eftir Þórð Þorkelsson Þórður Þórkelsson »Reykjavíkurmara- þonið er um næstu helgi og safnar kven- félagið Hringurinn fé til kaupa á nýjum ljósa- lömpum fyrir vökudeild Barnaspítala Hrings- ins. Höfundur er yfirlæknir nýbura- lækninga vökudeildar Barnaspítala Hringsins. 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 Í dag er skólasetn- ing í flestum grunn- skólum Reykjavíkur- borgar. Það er alltaf stór dagur þegar skól- arnir byrja aftur. Líf færist í borgina og daglegt líf hjá þús- undum skólabarna og foreldrum þeirra fær- ist í fast form. Miðað við magnið af tölvu- póstum sem við borgarfulltrúar höfum fengið frá foreldrum og starfsfólki grunnskóla Reykjavíkur síðustu mánuði eru ekki allir fullir tilhlökkunar. Ákall um að á sé hlustað Þessir tölvupóstar eiga það allir sameiginlegt að í þeim felst ákall til borgarfulltrúa um skilning á þeim vanda sem margir grunnskólar glíma við. Óskað eftir því að á for- eldra og starfsfólk sé hlustað, hlust- að á þá sem þekkja best til skólanna og skólastarfsins í hverju hverfi fyr- ir sig. Krafan er sú að ekki séu tekn- ar ákvarðanir sem koma sér illa fyrir nemendur, starfsfólk og foreldra. Að fólk fái upplýsingar um það hvernig staðan er á framkvæmdum þar sem þær eru í gangi og koma jafnvel til með að raska skóla- starfinu mikið. Hundruð barna á hrakhólum Skólaumhverfið er víða óviðunandi núna í upphafi skólaárs, framkvæmdir og skortur á fram- kvæmdum munu víða raska skólastarfi. Þetta mun bitna á hundruðum reykvískra skólabarna sem eru á hrakhólum vegna þessa. Framkvæmdir standa yfir í Ártúnsskóla, Breiðholtsskóla, Selja- skóla, Norðlingaskóla, Fossvogs- skóla og Dalskóla sem munu ekki klárast fyrir upphaf skólaárs með tilheyrandi púsli og raski fyrir nem- endur, starfsfólk og foreldra. Mikil þrengsli eru í Hagaskóla og loftgæði þar það slæm að Vinnueftirlitið hefur gefið Reykjavíkurborg frest til 1. október til að bæta úr því. Það á að leggja niður skólaakstur í þremur skólum, mikil óánægja er með þá ákvörðun. Laga þarf ferla og hlusta Það á að vera gleðilegt að byrja í skóla, það á ekki að valda togstreitu eða auknu vinnuálagi á börn, for- eldra eða starfsfólk grunnskólanna. Það er ekkert mikilvægara en að hlusta á þá sem þekkja til í hverf- unum enda raunveruleikinn oft allt annar en í áætlunum og excel- skjölum. Það er mikilvægt að vandað sé til verka en auk þess er mikilvægt að sviðin tali saman, enda tvö svið, umhverfis- og skipulagssvið og skóla- og frístundasvið, sem fara með framkvæmdir í grunnskólum Reykjavíkur. Mikilvægt er að það ferli gangi vel fyrir sig. Það er margt sem má laga, fyrst og fremst verður Reykjavíkurborg að tryggja að ferlar á milli sviða séu í lagi þannig að borgin sé ekki sjálf að tefja eigin framkvæmdir og upp- byggingu. Þá er gríðarlega mikil- vægt að farið sé að lögum og munað eftir að eiga samtal við foreldra og starfsfólk um fyrirhugaðar fram- kvæmdir. Hundruð barna í óviðunandi skólahúsnæði Eftir Valgerði Sigurðardóttur » Það er ekkert mikil- vægara en að hlusta á þá sem þekkja til í hverfunum enda raun- veruleikinn oft allt ann- ar en í áætlunum og excel-skjölum. Valgerður Sigurðardóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Þorsteinn Víglunds- son fer mikinn í ný- legri grein til Frétta- blaðsins. Þar heldur hann því fram að fram- legð heilbrigðiskerf- isins og sérstaklega Landspítalans hafi dregist stórlega saman á undanförnum árum. Þar sem þingmaðurinn virðist ekki vera nægi- lega vel upplýstur um hlutverk og stöðu þjóðarsjúkrahúss- ins þá tel ég mikilvægt að benda á nokkrar mikilvægar staðreyndir í ljósi villandi staðhæfinga hans. Á því tímabili, sem þingmaðurinn tiltekur, hafa gengið í gildi kjara- bætur og launaleiðréttingar sem for- stöðumönnum heilbrigðisstofnanna hefur gengið erfiðlega að standa undir þar sem óhjákvæmilega aukn- um útgjöldum vegna þessara samn- inga hefur ekki verið mætt með sam- bærilegu fjármagni til reksturs viðkomandi stofnana. Einnig verður að minna þingmanninn á að tækja- kostur þessara stofnanna var fyrir löngu orðinn úreltur, auk þess sem húseignir þessara stofnana voru annaðhvort ónýtar eða stór- skemmdar vegna langtíma skorts á fjármagni til eðlilegs viðhalds og rekstrar lífsnauðsynlegs tækjabún- aðar. Af þessu leiddi að stór hluti þess fjármagns sem þingmaðurinn tiltekur hefur farið í löngu tímabær- ar viðgerðir og endurnýjun tækja- búnaðar þessara stofnana og sér- staklega Landspítalann, þar sem þeim fasa er hvergi nærri lokið. Því miður hafa langflestir Íslend- ingar þurft á þjónustu heilbrigðis- kerfisins að halda. Þeim er því flest- um vel kunnugt um mikilvægi þess, auk þeirrar framlegðar sem það veitir bæði með beinum og óbeinum hætti inn í íslenskt hagkerfi á hverj- um tíma. Það er gömul mýta að heil- brigðiskerfið sé rekið með halla, staðreyndin er sú að á hverju ári er hægt að reikna út þann gríðarlega arð sem þessi hornsteinn vel- megunar og farsældar þjóðarinnar veitir beint inn í hagkerfið. Langflest verk, þ.m.t. viðtalsmeðferðir, lyfjameðferðir, skurð- aðgerðir og almennar lýðheilsubætandi að- gerðir, hafa verið ítar- lega kostnaðargreind og nær undantekn- ingalaust eru þau rek- in með verulegum fjárhagslegum ábata bæði fyrir þann ein- stakling sem þjón- ustuna fær og hagkerfið í heild sinni. Þar er þá undanskilinn hinn félagslegi og samfélagslegi ábati sem bætt heilsa og heilbrigði þjóðar veitir hverju sinni. Einn af þeim almennu mælikvörð- um sem flest alþjóðleg viðmið notast við er s.k. QALY. Þar er gengið út frá að hvert eitt ár sem einstak- lingur lifir við eðlilega heilsu án nokkurra inngripa sé 1,0 QALY. Út- reikningur á kostnaði hvers árs sem einstaklingurinn nær að lifa þar sem bæði er tekið til lífsgæða og lífs- lengdar hefur síðan áhrif á útreikn- aða útkomu hvers læknisfræðilegs inngrips (þ.e. kostnaður hvers árs). Þannig hafa orðið til heilsuhag- fræðileg viðmið þar sem gengið er út frá því að öll QALY innan þeirra viðmiða skili samfélaginu veruleg- um fjárhagslegum og félagslegum ábata. Almennt er gengið út frá því í Bandaríkjunum að meðferðir með kostnaðarhagkvæmni (cost- effectiveness) innan USD 50- 100.000 fyrir hvert áunnið QALY skili slíkum markmiðum. WHO hef- ur sambærileg skilmerki en þar er miðað við verga landsframleiðslu (GDP) þar sem inngrip sem kosta minna en 3xGDP af höfðatölu séu arðsöm og þau sem séu minna an GDP m.v. höfðatölu verulega arð- söm. Fjölmargar úttektir hafa verið gerðar á gæðum og afköstum ís- lensks heilbrigðiskerfis sem undantekningalaust hafa sýnt að þrátt fyrir að heildarframlög til málaflokksins séu eitt það lægsta hlutfall af vergri landsframleiðslu á alþjóðlegum vettvangi sem þekkist þá eru gæði og afköst með því besta sem til þekkist. Það kom ótvírætt fram í skýrslu McKinsey 2016, sem einnig kom fram í ítarlegri rannsókn um sama mál sem birt var í hinu virta læknatímariti The Lancet 2018. Þar var heilbrigðisvísitala (HAQ index) 195 landa reiknuð út frá gæðum og aðgengi m.t.t. ótíma- bærra dauðsfalla þeirra sem eru 75 ára og yngri. Þar skipaði Ísland sér í efsta sæti, meðan lönd eins og Dan- mörk (17. sæti) og Bandaríkin (29. sæti) voru töluvert neðar á listanum. Það er enn mikið verk að vinna til að bæta enn frekar aðgengi og gæði þeirrar þjónustu sem Landspítal- anum er ætlað að sinna. Þar má örugglega gera betur á ýmsum svið- um, sérstaklega er varðar stjórn- skipulag og rekstrarfyrirkomulag Landspítalans. Um það eigum við að sameinast, en ekki stunda niðurrifs- starfsemi um það sem vel er unnið þrátt fyrir kröpp kjör. Þannig hefur undirritaður ítrekað bent á bága stöðu vísinda og kennslu innan þjóðarsjúkrahússins, en þrátt fyrir nokkur jákvæð teikn á lofti er þar enn töluvert verk að vinna eins og áður hefur verið bent á. Prófessora- ráð Landspítalans hefur áður lýst yfir vilja sínum og áhuga á því að að- stoða við áframhaldandi uppbygg- ingu íslensks heilbrigðiskerfis, al- menningi til heilla. Það boð á einnig við alla þingmenn, sem og Þorstein Víglundsson, þó að ekki væri til ann- ars en til aðstoðar við nauðsynlega upplýsingaöflun í þeirra mikilvæga starfi. Arðbær starfsemi Landspítala Eftir Björn Rúnar Lúðvíksson »Rætt hefur verið um hallarekstur Land- spítalans. Hið rétta er að heilbrigðiskerfið er eitt það besta sem til er og rekið með verulegri arðsemi. Björn Rúnar Lúðvíksson Höfundur er formaður prófessora- ráðs Landspítala.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.