Morgunblaðið - 22.08.2019, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 22.08.2019, Qupperneq 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 ✝ Julien Oberléfæddist í Brest í Frakklandi 16. ágúst 1976. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 14. ágúst 2019. Hann var sonur hjónanna Paul Oberlé, f. 1944, og Martine Oberlé, f. 1948. Bróðir hans er Thomas Oberlé, f. 1979, kvænt- ur Sophie Oberlé og eiga þau tvö börn, Maxime og Alice. Eiginkona Juliens er Anna Dagmar Arnarsdóttir, f. 1. júlí 1974. Synir Juliens og Önnu Dagmarar eru Viktor, f. 2010, og Axel, f. 2014. Julien hóf skólagöngu í Frakklandi en flutti til Írlands haustið 1998 þar sem hann lauk háskóla- námi sínu, BS-prófi í rafeindaverkfræði frá University of Limerick. Hann hóf störf hjá Analog De- vice í Limerick á Ír- landi árið 2000. Julien flutti til Ís- lands haustið 2005 og hóf fljótlega störf hjá Landsteinum Streng. Árið 2012 flutti hann sig yfir til LS Retail þar sem hann starfaði til dánardags. Hann var meðlimur í Hjálpar- sveit skáta í Reykjavík og starf- aði einnig með Íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni. Útför Juliens fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 22. ágúst 2019, klukkan 13. Elsku Júlli minn, Ég kynntist þér haustið 1998 þegar ég fór sem Erasmus-skiptinemi til Írlands. Við hófum samband stuttu áð- ur en ég lauk dvölinni minni á Ír- landi vorið 1999 og þú komst fljót- lega í heimsókn til Íslands. Við ákváðum að vera í fjarsambandi ég á Íslandi og þú á Írlandi og hittumst reglulega. Á árunum þangað til þú fluttist til Íslands haustið 2005 skrifaðir þú mér óteljandi bréf. Bréf sem eru mér nú svo afskaplega dýr- mæt. Við giftum okkur á sumarsól- stöðum 21. júní 2008 á Snæfells- nesi og vorum með yndislega veislu þar fyrir allra nánustu ætt- ingja og vini. Haustið 2008 hófum við nýliða- þjálfun hjá Hjálparsveit skáta. Þá tók við skemmtilegur og krefjandi tími sem hjálpaði okkur að gleyma því sem var að gerast í samfélaginu. Við eignuðumst góða vini, Tófurnar, sem við fór- um í gegnum krefjandi námskeið með og í margar skemmtilegar göngur. Í apríl 2010 eignuðumst við eldri soninn okkar Viktor en við höfðum ákveðið nafnið á hann sumarið 1999. Axel kom í heiminn í desember 2014 og við vorum orð- in fjögurra manna fjölskylda. Þú hugsaðir svo vel um okkur fjöl- skylduna þína – eldaðir góðan mat handa okkur. Þú sást algjör- lega um matseld og ef þú varst ekki heima þá varst þú oft búinn að elda einhvern mat sem við gæt- um hitað upp. Enda spyrja strákarnir eftir að þú fórst, hver á eiginlega að elda matinn núna? Matur skipti þig miklu máli og þú hafðir yndi af því að borða góðan mat, Food and Fun var orðin að hefð þar sem þú sást um að velja veitingastaði til að fara á. Við gerðum margt skemmti- legt saman fjölskyldan, fórum reglulega í sumarbústaðaferðir, spiluðum borðspil og fórum í gönguferðir með nesti. Við áttum okkur margar hefðir sem ég og strákarnir munum halda við. Núna í sumar fórum við fjöl- skyldan í langþráða ferð í Legol- and með strákana. Þú hefur keypt óteljandi Lego í gegnum tíðina fyrir strákana og var dvölin þar því dýrmæt fyrir alla. Í kjölfarið fórum við fjölskyldan til Frakk- lands þar sem áttum þrjár ynd- islegar vikur með fjölskyldunni þinni. Gerðum margt skemmti- legt en eftirminnilegasti dagurinn er eflaust þegar við fórum í klif- urgarðinn og síðan á ströndina þar sem þú kenndir Viktori á brimbretti. Þú verður alltaf í hjarta okkar – við söknum þín og við elskum þig. Anna Dagmar, Viktor og Axel. Um sumarið hann dó Hann dó svo snöggt Enginn gat hann kvatt Á lífsneista hans var slökkt Hans hlátur, hans bros og bragur var öllum sem hann þekktu svo kær hann var þeim einlægur vinur og stóð þeim alltaf nær (Katrín Ruth) Elsku Júlli minn. Þú varst Önnu og strákunum þínum allt. Takk fyrir að vera skrítni franski gaurinn sem kom inn í líf okkar. Söknuðurinn er sár. Þín vinkona Bergþóra. Elsku Júlli okkar er dáinn, bráðkvaddur á heimili sínu í blóma lífsins. Svo mikill missir og óskiljanlegt með öllu. Júlli skilur eftir tómarúm í lífi okkar allra sem þekktu hann; hjartahlýr, yndislegur húmoristi, matgæð- ingur og hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Kynni okkar við Júlla hófust fyrst sem nýliðar við upphaf nám- skeiðs í ferðamennsku og rötun hjá Hjálparsveit skáta í Reykja- vík haustið 2008. Framundan var heil helgi á Úlfljótsvatni með stórum hópi nýliða þar sem til- finningin var kvíðablandin en á sama tíma full eftirvæntingar. Þegar komið var á Úlfljótsvatn var eins og framtíðin væri skrifuð í skýin … við röðuðumst saman í herbergi og upphaf Tófanna og þar af leiðandi ævintýri næstu ára hófust. Mikil vinátta tókst strax á milli okkar og þegar leið á nýliðavet- urinn bættust fleiri í Tófuhópinn og hin síðari ár makar og börn. Það sem einkenndi Tófurnar strax og ekki síst fyrir tilstuðlan Júlla og konu hans Önnu Dag- marar, var þessi óbilandi atorka og metnaður til að leiða hópinn og skipuleggja æfinga- og skemmti- ferðir með einhverju skemmti- legu tvisti, innan og utan HSSR. Yndislegar minningar um ferðir eins og „gangan langa“ á Hvanna- dalshnúk þar sem Júlli söng af sinni alkunnu snilld „Is it true, is it over“, ylja hjartað og vekja upp bros; sólstöðuganga á Snæfells- jökul, Heiðarhornið í vetrarsól- inni, Móskarðshnúkar í rokinu, sumarferð HSSR og síðast en ekki síst öll matarboðin, viskí- smökkunin, jólahlaðborðin, árshátíð Tófanna í Helludal og Food and Fun-hittingar ár hvert. Minningar um hlýtt knús, koss á kinn og glettnin í svip Júlla þeg- ar við hittumst var ávallt fyrirboði um góðar samverustundir. Allt of snemma hefur stórt skarð verið höggvið í vinahópinn og eftir situr tómið. Í hjartanu lif- ir þó minningin um Júlla okkar að eilífu. Við sendum Önnu Dagmar, Viktori og Axel okkar innilegustu samúðarkveðjur með ósk um kærleik og styrk á þessum erfiðu tímum. Tófurnar: Helga Björk, Esra, Melkorka, Ragnar, Rún, Sigþóra, Sören, makar og börn. Kær vinur og góður félagi okk- ar í Hjálparsveit skáta í Reykja- vík er fallinn frá. Til að starfa í björgunarsveit þarf marga eigin- leika, m.a. þrautseigju, dugnað og að vera reiðubúinn að gefa af sér, og Julien hafði alla þessa kosti sem gerði hann að frábærum fé- laga í starfinu. Þegar leiðir okkar lágu saman, hvort sem það var í starfi sveit- arinnar eða utan, t.d. í karate- skutlinu, var alltaf stutt í brosið og tekið létt spjall enda var alltaf gaman og gleði í kringum Julien. Julien hóf nýliðaþjálfun hjá hjálparsveitinni árið 2008 og varð fullgildur félagi 2010. Hann starf- aði meðal annars í íslensku al- þjóðabjörgunarsveitinni þar sem hann fór á útkallsskrá árið 2011. Við félagar Hjálparsveitar skáta í Reykjavík kveðjum Julien með söknuði og sendum Önnu Dagmar, drengjunum þeirra og fjölskyldu innilegustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd Hjálparsveitar skáta í Reykjavík, Oddur Valur Þórarinsson. Julien Oberlé sótti um starf hjá LS Retail um veturinn 2011. Ráðningin var í sjálfu sér auðveld. Ég hafði unnið með Julien nokkr- um árum áður og þekkti ágætlega hvaða mann hann hafði að geyma. Sem starfsmaður var Julien til mikillar fyrirmyndar, bæði fag- legur og nákvæmur. En það var samt félagslegi þátturinn sem gerði Julien að þeim einstaka manni sem hann var. Julien hafði þann fágæta eiginleika að það lík- aði öllum vel við hann. Hann var hrókur alls fagnaðar, lífið og sálin í hverjum hópi, bæði stórum sem smáum. Við hjá LS Retail kveðj- um því ekki bara samstarfsmann heldur einstakan vin og félaga. Önnu, Viktori og Axel votta ég mínar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Juliens Oberlé. Daði Kárason. Elsku Julien, eða Júlíus Páls- son. Það var okkar útgáfa af nafn- inu þínu. Þú varst örugglega ís- lenskari en við allar til samans. Hlaupandi upp á fjöll með björg- unarsveitinni til að bjarga illa búnum útlendingum sem höfðu komið sér í ógöngur. „Helvítis út- lendingar“ áttirðu til að segja, auðvitað í gríni, en það var alltaf jafn fyndið þegar þú sagðir það. Julien Oberlé ✝ Margrét Þórðar-dóttir fæddist í Reykjavík 30. janúar 1971. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 8. ágúst 2019. Foreldrar hennar eru Hrönn Bald- ursdóttir, f. 11. jan- úar 1945, og Þórður Guðlaugur Gíslason, f. 6. júní 1935, d. 22. apríl 2019. Margrét var yngst systkina sinna en á undan komu þau Baldur Guðjón, f. 8. ágúst 1962, og Aðalheiður Guð- rún, f. 29. apríl 1966. Margrét lætur eft- ir sig tvö börn. Með Rúnari Gunnarssyni, f. 11. janúar 1968, eignaðist hún dóttur sína, Evu Hrönn, f. 6. janúar 1992, og með Páli Rúnarssyni, f. 26. september 1968, eignaðist hún Atla Frey, f. 17. apríl 1993. Útför Margrétar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 22. ágúst 2019, og hefst athöfnin kl. 13. Elsku mamma okkar, við kveðjum þig með söknuði og von um að þú sért á betri stað. Fyrir þér vorum við „gullið þitt“ eins og þú kallaðir okkur svo oft. Þú varst okkar sterkasta fyrirmynd, helsti stuðningur og vinur. Saman áttum við ótrúlega fal- legar stundir. Seinasti dagurinn okkar allra saman var hlýr sumardagur í júlí. Við ræddum lifið, tilfinningar, gamlar minningar og ókomna framtíð. Sá dagur mun seint falla okkur úr minni. Umhyggjusemi þín, dugnaður og hugrekki voru ávallt aðdáun- arverðir eiginleikar sem við von- umst til að tileinka okkur líka. Þú kenndir okkur að vera opin fyrir lífinu og fólkinu sem því fylgir og fyrir það erum við þakklát. Takk fyrir að vera þú. Vort hjarta svo ríkt af hreinni ást, að hugir í gegnum dauðann sjást. – Vér hverfum og höldum víðar, en hittumst þó aftur – síðar. (Jóhannes úr Kötlum) Með ást, þín börn Eva Hrönn Rúnarsdóttir og Atli Freyr Pálsson. Elsku litla sys. Í hinsta sinn hinn 8. ágúst lokaðir þú aug- unum þínum og kvaddir þetta líf eftir langa og hetjulega baráttu við mikil veikindi. Ég veit að þér líður betur núna og að pabbi okkar, sem fór rétt á undan þér í Sóllandið, breiddi út faðminn sinn þegar þú komst til hans og umvafði þig með allri sinni ást sem og aðrir ástvinir sem farnir eru. Elsku litla sys, ég elska þig og sakna þín uns við sjáumst aftur. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín stóra sys, Aðalheiður Guðrún Þórðardóttir. Margrét Þórðardóttir Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Emilía Jónsdóttir, félagsráðgjafi Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÍDA SIGURÐARDÓTTIR frá Hamraendum í Stafholtstungum, lést á Landspítalanum mánudaginn 19. ágúst. Ólöf Hildur Jónsdóttir Björn Jónsson Katrín Sveinsdóttir Anna Guðrún Jónsdóttir Birgir Skúlason Sesselja Þórunn Jónsdóttir Ólafur Hilmarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR SNORRI INGIMARSSON læknir, Laugarnesvegi 89, sem lést 14. ágúst, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 28. ágúst klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Kolbrún Finnsdóttir Áslaug Snorradóttir Ingimar Guðmundsson Arna Björk Kristinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ S. ARNBERGSDÓTTIR kaupmaður, Þrúðvangi 2, Hafnarfirði, frá Borgarfirði eystri, lést í faðmi dætra sinna og systur 9. ágúst. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 26. ágúst klukkan 13. Stefanía, Lilja, Íris, Ragnhildur, Ingveldur, Dennis og Kristinn barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, LILJA SIGURÐARDÓTTIR frá Hrísey, lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 11. ágúst. Útförin fer fram frá Hríseyjarkirkju laugardaginn 31. ágúst klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hrafnistu, Reykjavík, eða Hríseyjarkirkju. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Sigmannsson Magnea Henný Pétursdóttir Hanna Sigmannssdóttir Jakob Þorsteinsson Margrét Sigmannsdóttir Guðmundur Skarphéðinsson Tryggvi Sigmannsson Gísli Sigmannsson Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR SIGURÐSSON, fyrrum bóndi Brúnastöðum, lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 14. ágúst. Útförin fer fram frá Mælifellskirkju laugardaginn 24. ágúst klukkan 14:00 Sigurlaug, Böðvar Fjölnir, Atli Norðmann, Iðunn María, Ylfa Rún, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.