Morgunblaðið - 22.08.2019, Síða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
Við sitjum þrjár úr gamla teym-
inu og skrifum minningagrein um
þig. Það gengur reyndar ekkert
sérstaklega vel, náum ekki fókus.
Við eigum svo margar minningar
um þig sem rifjast upp og umræð-
an fer um víðan völl – bara svona
eins og á testarafundunum í
vinnunni. Þeir gátu orðið heldur
skrautlegir, fundirnir okkar. Það
var eins og við fengjum sameig-
inlegan athyglisbrest um leið og
við settumst niður við fundar-
borðið. Óðum úr einu í annað.
Snerum öllu upp í grín. Leystum
málin og gengum svo oft út af
þessum fundum í hláturskasti.
Það er merkilegt hvað við fjögur
náðum að vinna vel saman, og
þrátt fyrir að álagið væri stundum
mikið, þá var alltaf fjör hjá okkur,
þú sást til þess.
Morgnarnir þar sem við sátum
öll með heyrnartólin okkar við
tölvurnar og smelltum á play á
YouTube eftir niðurtalninguna
„þrír, tveir, einn, nú!“ og hlust-
uðum á sama lagið á sitt hvorri
tölvunni á sömu sekúndunni svo
við yrðum nú samtaka í skrif-
borðsdansinum. Lagið okkar, af
því að auðvitað áttum við lag,
Come er með frönsku söngkon-
unni Jain.
Vináttan sem myndaðist á milli
okkar varð ekki til sjálfkrafa. Hún
varð til smátt og smátt í gegnum
árin og styrktist með hverri nýrri
upplifun sem við áttum saman.
Við studdum hvert við annað og
alltaf áttir þú ráð við vandamál-
unum sem þurfti að leysa. Hvort
sem það þurfti að setja upp NAV
með Rapid Installer eða þegar
mann vantaði karabínur, eða
brjóstahaldara. Þú áttir lausnir
við þessu öllu og uppskrift fyrir
hvert tækifæri.
Þú varst klettur fyrir marga og
veittir stuðning þegar á þurfti að
halda. Maður gat alltaf treyst á
þig þegar þess var þörf hvort sem
það var til að létta á skammdeg-
inu með þínum einstaka húmor
eða í erfiðum aðstæðum sem þú
barst svo mikla virðingu fyrir.
Einmitt fyrir það hversu næmur
þú varst á aðstæður gastu sagt
brandara sem enginn hefði getað
komist upp með að segja annar en
þú sjálfur.
Hugur okkar er með ykkur
Anna, Viktor og Axel. Hann talaði
oft um ykkur og það var augljóst
hvað hann elskaði ykkur mikið.
Við erum óendanlega þakklát-
ar fyrir að hafa fengið að kynnast
þér, elsku Júlli. Ætli það verði
ekki quiche, peru frangipane og
súkkulaði brioche stjarna á boð-
stólum í kvöld, þér til heiðurs.
Takk fyrir okkur, við munum
sakna þín.
Unnur, Hólmfríður
og Elísabet.
Það er með djúpum söknuði
sem við í Gourmet-teyminu kveðj-
um okkar ástkæra samstarfs-
mann og vin Julien í dag. Við unn-
um saman að því að gera
hugbúnaðarkerfi fyrir veitinga-
staði. Hann kom að nánast öllu
ferlinu og naut þess að koma með
góðar hönnunarhugmyndir og
lausnir og elskaði líka að finna
villur og benda á hvað betur
mætti fara. Hann lagði mikinn
metnað í vinnuna en það var alveg
sama hvað gekk á, hann hélt ró
sinni og var fljótur að finna og
leysa vandamálin. Umfram allt
var það ótrúlegur hæfileiki hans
til að sjá það jákvæða og spaugi-
lega við allt sem smitaði frá sér og
gerði það að verkum að við hlökk-
uðum til að fara í vinnuna á hverj-
um degi. Að þróa kerfi fyrir veit-
ingastaði stóð honum nærri enda
átti matargerð stóran sess í lífi
hans. Við í teyminu nutum góðs af
því og kom hann oft með gómsæta
rétti á fundi og kynnti okkur alls-
konar góðgæti sem við gjarnan
kölluðum vinnusprettina okkar
eftir.
Hann var óspar á að kynna
okkur það sem hann elskaði við
franska menningu og gerði líka
grín að því sem honum líkaði ekki
eins og hann einn gat leyft sér.
Hann vildi öllum það besta og
stökk til með góð ráð ef einhver
lét í ljós áhuga á hjólum, spilum
eða ferðum um Frakkland og
lagðist umsvifalaust í mikla rann-
sóknarvinnu til að finna réttu
þjófavarnakerfin, ungbarnavör-
urnar, útivistarbúnaðinn og gjafir
fyrir makann. Hann var öflugur í
starfsmannafélaginu og ötull í að
skipuleggja ferðir og skemmtanir
í fyrirtækinu. Pub-Quizzin hans
eru ógleymanleg og fjölluðu oftar
en ekki um mat og drykk og alls
konar furðuleg mál eins og skjald-
armerki bæja sem að hans mati
átti greinilega að vera almanna-
þekking. Julien var virkur með-
limur í íslensku alþjóðabjörgun-
arsveitinni og lagði mikla vinnu
og metnað í starfið, hann gerði
ekkert með hálfum hug. Árleg
sala á björgunarkallinum fór ekki
framhjá neinum í fyrirtækinu og
þá sagði hann gjarnan í gríni að
engum yrði bjargað nema vera
búinn að borga.
Hrifnæmi hans, hugmynda-
auðgi og drifkraftur hefur smátt
og smátt síast inn í okkur öll og
breytt okkur til hins betra. Það er
óskiljanlegt að hann skuli ekki
bara birtast næstu daga og taka
upp þráðinn við að betrumbæta
vöruna okkar og bæta líf okkar.
Við sendum Önnu og strákunum,
foreldrum hans og bróður, okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Guðrún Edda, Gunnar Örn,
Harpa, Kristján, Kristófer
og Sigurður.
Það eru um ellefu ár síðan Juli-
en gekk til liðs við Hjálparsveit
skáta, Reykjavík. Það kom fljót-
lega í ljós að þarna höfðum við
fengið góðan liðsauka. Til að vera
virkur félagi í björgunarsveit
þarftu að geta unnið í hóp, tekið
ákvarðanir undir álagi og vera
lausnarmiðaður. Julien hafði
þetta allt til að bera og ávann sér
traust til að sinna erfiðum verk-
efnum. Svo hafði hann einn kost
sem er ekki öllum gefinn, hann
var svo skemmtilegur. Hann var
alltaf í góðu skapi og átti auðvelt
með að fá okkur hin til að brosa og
hlæja. Það er ómetanlegt.
Á seinna ári í nýliðaþjálfun
byrjaði Julien að starfa með búða-
hóp og fljótlega með þeim hluta
hópsins sem tilheyrir Íslensku al-
þjóðabjörgunarsveitinni.
Julien var mjög virkur í starfi
og óhræddur við að taka að sér
verkefni. Hann kom oft með til-
lögur að bættu verklagi og lausnir
á vandamálum. Það var þá gjarna
eftir að hafa kynnt sér verkefni
vel og öfugt við mörg okkar þá las
hann leiðbeiningar. Þrátt fyrir
þetta var hann hógværðin upp-
máluð og gerði lítið úr þessum
hæfileikum sínum
Útköll og æfingar búðahópsins
okkar taka yfirleitt nokkra daga.
Undir þeim kringumstæðum
reynir á samskiptafærni og út-
hald. Það var alltaf gott að vinna
með Julien, hann var einstaklega
þægilegur og mjög vinnusamur.
Reynar það vinnusamur að það
þurfti að passa að hann tæki sér
hvíld, en hvíld tók hann yfirleitt
ekki nema honum væri hreinlega
sagt að taka sér hvíld. Og það að
hafa Frakka í hópnum gerði okk-
ur betri sem hóp þ.s. hann hafði
oft aðra sýn á hlutina en þá sem
við innfæddu höfðum. Hann til-
einkaði sér hina ýmsu íslensku
ósiði en tvennt átti hann erfitt
með. Annað var íslenska viðhorfið
„þetta reddast“ og síðan var það
nestismenning okkar, sem var
ekki hátt skrifuð hjá honum.
Missirinn er mikill, en við mun-
um halda í þær mörgu og góðu
minningar sem við eigum um
þann góða mann sem Julien var.
Minningar frá hinum ýmsu stöð-
um á Íslandi og frá æfingum er-
lendis. En sterkust verður minn-
ingin um hláturinn og gleðina sem
fylgdi Julien.
Elsku Anna Dagmar, Viktor og
Alex, við sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Búðahópur HSSR,
Svava Ólafsdóttir.
Á burt af lífsins tré er fallið eitt
fegursta blóm fjölskyldunnar hún
Hlíf Kristinsdóttir tengdamóðir
mín. Hlíf bjó mestan hluta ævi
sinnar í Helga magra landinu
góða, Svíþjóð. Það þarf ekki að
fjölyrða mikið um mannkosti
hennar, einstök mildi og um-
hyggja bæði fyrir mönnum og
málleysingjum ætíð í fyrirrúmi.
Þessi fallega freyja hleypti
snemma heimdraganum eftir að
hafa kynnst eiginmanni sínum
Svani Magnússyni málara. Ætlun
þeirra hjóna var að stoppa stutt í
Svíþjóð en reyndin varð önnur.
Hlíf stóð sem bústólpi alla tíð við
hlið eiginmanns síns sem vann
mikið utan heimilis um árafjölda
til styrktar stoðum heimilisins.
Þau eignuðust hús á Spáni og nutu
þar góðra samvista með börnum,
barnabörnum og fjölda annarra
vina. Hugulsemi og hlýja náði til
allra. Hlíf var einstakur hlustandi
og oftar en ekki var fólk búið að
opna hjarta sitt fyrir henni og
birtist þá hennar góða hugarþel
oft sem líkn í þraut, þannig var nú
farið um mildi hennar. Það var
aldrei fjörður milli frænda hjá
Hlíf, hún ræktaði garðinn vel við
vini og vandamenn. Hlíf sótti oftar
en ekki ættarmót þegar hún kom
til heimalandsins og þá oft til
Ólafsfjarðar, þar voru rifjaðar upp
bernskuminningar liðinna daga og
oft var mikið hlegið. Hún hafði
mikið dálæti á fallegum og fínum
fötum, alltaf var Hlíf vel til höfð
eins og drottningu sæmir og ilm-
andi eins og rós í runna. Allt hefur
sitt upphaf og endi, hægt og hljótt
lokast lífs vors bók. Hlíf kvaddi
þessa jarðvist með sól í heiði okk-
ur öllum að óvörum eins og oft
gerist.
Vonandi vaknar sálin aftur,
ekkert er nýtt undir sólinni, allt
gengur í bylgjum og allt er á
hringferð sem og lífskrafturinn,
viljinn og efnið, allt er óforgengi-
legt.
Blessuð sé minning þín, Hlíf
mín mæta.
Hilmar.
Elsku besta amma mín. Það er
erfitt að skilja að þú sért búin að
kveðja þennan heim, en nú ertu
komin til afa og veit ég að hann
tekur á móti þér opnum örmum.
Þú varst ekki bara besta amma
mín heldur líka besta vinkona og
nafna mín.
Amma, þú varst einstaklega
falleg manneskja, bæði að innan
og utan, þú varst alltaf til staðar
að hlusta og algjörlega fordóma-
laus. Sem barn var ég oft hjá ykk-
ur afa og þú bakaðir bestu pönns-
ur í heimi. Það eru óteljandi góðar
minningar frá sumarbústaðnum,
litla Dallas, og man ég alltaf eftir
því þegar þú klipptir rósirnar þín-
ar í garðinum. Á efri árum sagðir
Hlíf Kristinsdóttir
✝ Hlíf Kristins-dóttir fæddist
18. desember 1933
á Ólafsfirði. Hún
lést í Finspång í
Svíþjóð 20. júlí
2019.
Útför Hlífar fer
fram frá Árbæjar-
kirkju í dag, 22.
ágúst 2019, klukk-
an 13.
þú oft við mig að það
væri nú eiginlega
þér að kenna að við
enduðum öll úti um
allan heim, þar sem
þú varst sú sem
byrjaðir á því að
flytja litlu fjölskyld-
una þína tíl Svíþjóð-
ar á sínum tíma.
Það er kannski
satt að ævintýrið
byrjaði þá og nú hef-
ur þú sameinað fjölskyldur víða að
úr heiminum, barnabörn og
barnabarnabörn.
Ég er svo þakklát að þú fékkst
að kynnast sonum mínum, Elvin
Eli og Felix River, og munu þeir
bera minningarnar um ömmu Hlíf
til næstu kynslóðar og þú munt
lifa í hjarta okkar til eilífðar.
Megir þú hvíla í friði og ró og
englar alheimsins vaka yfir þér.
Þín dótturdóttir
Hlíf og barnabarnabörnin
Elvin og Felix.
Í minningu vinkonu okkar Hlíf-
ar Kristinsdóttur sem lést í Fin-
spång í Svíþjóð 20. júlí síðastliðinn
er margs að minnast.
Æviárin urðu 86 þar af 50 ár
fjarri fósturjörðinni. Hlíf var gift
Svan Magnússyni málarameist-
ara, d. 19. júlí 2005. Þau fluttu bú-
ferlum til Svíþjóðar 1969 og
bjuggu lengst af í Finspång.
Haf var milli vina, en vináttu-
tengslin sterk.
Heimsóknir okkar hjónanna til
Svíþjóðar til margra ára, eru okk-
ur afar minnisstæðar, gestrisni í
hávegum höfð og veitt af höfðings-
skap.
Þau hjónin Hlíf og Svan gerð-
ust umsvifamiklir atvinnurekend-
ur um skeið á sviði iðnmenntunar
sinnar, þar var Hlíf þátttakandi í
rekstrinum til jafns við eiginmann
sinn.
Margir Íslendingar fluttu til
Svíþjóðar 1969 og á árunum þar á
eftir, fjölmargir leituðu eftir vinnu
og annarri aðstoð hjá Hlíf og eig-
inmanni hennar. Þau voru ávallt
reiðubúin til að hjálpa og aðstoða
fólk við að koma sér fyrir í nýju
landi.
Hlíf fæddist í Ólafsfirði 1933,
hún var nágranni okkar, bjó í
næsta húsi, ár æskunnar liðu, al-
varan tók við, ýmsar leiðir lífsins
valdar.
Hlíf var glæsileg kona og bar
sig ávallt vel.
Hinstu kveðjur og þakkir.
Innilegar samúðarkveðjur til
afkomenda.
Friðrikka Baldvinsdóttir,
Heimir Brynjúlfur
Jóhannsson.
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
RAGNAR S. HALLDÓRSSON
verkfræðingur og fyrrverandi forstjóri,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 7. ágúst, verður jarðsunginn
frá Hallgrímskirkju mánudaginn 2. september klukkan 13.
Margrét K. Sigurðardóttir
Kristín Vala Ragnarsdóttir
Halldór Páll Ragnarsson Jóhanna H. Jónsdóttir
Sigurður R. Ragnarsson Þórdís Kjartansdóttir
Margrét Dóra Ragnarsdóttir Hjálmar Gíslason
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSA KRISTÍN HERMANNSDÓTTIR,
Stigahlíð 24, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli síðastliðinn
sunnudag.
Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 27. ágúst klukkan 15.
Kolbeinn H. Brynjólfsson Eygló Lilja Ásmundsdóttir
Reynir Brynjólfsson
Ólafur Þórarinn Helgason Linda Sunnanväder
Salína Aðalbjörg Helgadóttir Einar Long
Guðmundur Örn Helgason Hildur Jósefsdóttir
Þröstur Helgason Gerður Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT INGUNN ÓLAFSDÓTTIR,
Dalbraut 20, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi
mánudaginn 19. ágúst.
Útförin verður tilkynnt síðar.
Eggert Ketilsson
Jónas I. Ketilsson Sigríður H. Helgadóttir
Haraldur Á. Bjarnason
Hrafn A. Ágústsson Joy C. Ágústsson
Ólafur Á. Haraldsson Lísa Einarsdóttir
Silja Unnarsdóttir Valdimar Ómarsson
Margrét I. Jónasdóttir Michel Hinders
Davíð G. Jónasson Ann Peters
Katla M. Jónasdóttir
og barnabarnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
systir, mágkona og tengdadóttir,
KARÓLÍNA BORG SIGURÐARDÓTTIR,
lést í faðmi fjölskyldunnar laugardaginn
17. ágúst. Útförin fer fram frá
Digraneskirkju í Kópavogi föstudaginn
30. ágúst klukkan 11.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Ljósið, endurhæfingar- og
stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og
aðstandendur þess.
Halldór Birkir Sturluson
Elías Hrafn Halldórsson
Sigurður Ari Halldórsson
Aþena Ýr Halldórsdóttir
Sigurður Eyjólfsson Ólafía Margrét Gústavsdóttir
Guðmundur Ingi Sigurðsson Árdís Hauksdóttir
Sveinbjörn Ólafur Sigurðss. María Waltersdóttir
Sturla Halldórsson Bryndís Kjartansdóttir
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
HÁKON GUTTORMUR
GUNNLAUGSSON,
andaðist laugardaginn 10. ágúst.
Útför hans var gerð frá kapellu San Isidro í
Madrid fimmtudaginn 15. ágúst.
Minningarathöfn um Hákon Guttorm fer fram í Kópavogskirkju
fimmtudaginn 22. ágúst og hefst klukkan 15.
Gunnlaugur Sigurðsson Ragnheiður Þormar,
Svanhildur Gunnlaugsdóttir
Elísabet Gunnlaugsdóttir
Alexandra Gunnlaugsdóttir
Helga Gunnlaugsdóttir
Andrea Júlía Gunnlaugsdóttir
Höskuldur Gunnlaugsson
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ALDA ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR,
Laufrima 14a,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn
15. ágúst. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 30. ágúst klukkan 13.
Jón Þórarinn Magnússon Björg Jónsdóttir
Linda Hrönn Magnúsdóttir Örn Hjálmarsson
Haukur Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.