Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 40

Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 ✝ Hákon Gutt-ormur Gunn- laugsson fæddist á Fæðingarheimili Reykjavíkur 19. maí 1991. Hann andaðist í Madríd 10. ágúst 2019. Hákon var fimmta og næst- yngsta barn eftir- lifandi foreldra sinna, Gunnlaugs Sigurðssonar og Ragnheiðar Þormar. Samfeðra er elsta syst- ir hans, Svanhildur, fædd 15. júní 1970, maki Þorsteinn Tryggvi Másson. Móðir hennar er Þórey Axelsdóttir. Alsystkini Hákonar eru Elísabet, fædd 4. ágúst 1973, maki Pierre Már Arnarsson og dóttir And- reu Júlíu er Ísadóra, og ófætt systkini hennar, Magnúsarbörn. Hákon lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi 2011, diplómu í margmiðlun frá háskólanum í Steinker í Noregi tveimur árum síðar og stundaði síðan nám í nokkrum greinum í HR og HÍ. Meðfram námi og að því loknu vann Hákon að ýmsum verkefnum á sviði margmiðl- unar ásamt því að stunda smíða- og byggingarvinnu. Hann kynnti sér á undanförnum árum ítarlega samvinnufélagið í Mondragon í Baskalandi og hugmyndafræði þess. Hann hafði nýverið verið á ferðalagi um héraðið þegar hann lést í Madríd. Útför hans var gerð frá kap- ellu San Isidro í Madríd 15. ágúst 2019. Minningarathöfn um Hákon Guttorm fer fram í Kópavogs- kirkju í dag, 22. ágúst 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. Mounoud; Alex- andra, fædd 26. apríl 1978, maki Atli Aðalsteinsson; Helga, fædd 19. febrúar 1985, maki Arnar Már Magn- ússon; Andrea Júl- ía, fædd 12. júlí 1988, maki Magnús Felix Tryggvason; Höskuldur, fæddur 26. september 1994, ókvæntur. Systkinabörn Hákonar eru börn Svanhildar, Sunneva og Tómas Þorsteins- börn; börn Elísabetar, Clara Nora og Ulysse Guttormur Mounoud; börn Alexöndru, Benjamín, Lúkas og Emma Júlía Atlabörn; sonur Helgu er Snorri Sviðið var holið á miðju loftinu í ævintýralegu húsi yst á Kársnes- inu en leikmunir voru stólar, sófi og sófaborð. Þú varst sex ára og lékst báða karakterana í frum- sömdum spunaleik og var sem þér yxi geysivítt vænghaf og langt stél stormfuglsins og enn lengra skott blettatígursins sem læddist um gresjuna í veiðihug og nú sá hann konung háloftanna þar sem hann sat á háum kletti og horfði hvössu augnaráði yfir víðáttur Afríku. Uggði þó ekki að sér fyrr en blettatígurinn hóf sig upp á ham- arinn í einu stökki og tókst að krækja beittri kló í eina fjöður úr stéli hans. Hún sveif um sinn á klettabrúninni en féll svo með þokkafullu flökti til jarðar. Ímyndunaraflið var óþrjótandi og þú sást með árunum kosmíska fegurð í minnstu atvikum lífsins, hvernig bláendinn á skottinu á kisa þínum tifaði til vitnis um það vitundarlíf sem sex milljörðum ára eftir Stóra hvell hafði loksins orðið til á örlítilli plánetu sem við köllum jörð. Þú birtir okkur óend- anlega kómískt eðli tilverunnar og af því urðu bæði kisi og hundurinn ykkar bræðra sem höfuðpersónur í forngrískum gamanleik. Þú gæddir þá svo ríkulegum per- sónuleika að okkur varð eðlilegt að deila með þér djúpri elsku þinni á þeim. Mildur í dómum um fólk en rót- tækur í skoðunum lastu hugsuði á borð við Peter Kropotkin og Noam Chomsky og lagðir sjálfur af mörkum í andófi gegn vald- níðslu og arðráni. Þú tókst nærri þér margt það sem venjuleg fá- fræði eða skeytingarleysi ver okk- ur gegn og kannski vanmastu þær varnir sem næmur hugur þinn hafði gegn vonsku heimsins. Svo fór að þú fékkst skýra viðvörun um að yrðir að gæta þín. Það reyndir þú vissulega að gera og safnaðir kröftum á ný með þeim hætti sem þér var eiginlegt, gafst og gafst af þér og áttum við ógleymanlegar stundir saman í nokkrum verklegum framkvæmd- um sem við tókum að okkur okkur til upplyftingar. Kláruðum þær með þeim stæl sem þér var lagið, handlaginn, hugkvæmur, verkfús og sá besti vinnufélagi og vinur í verki sem ég hef átt. „Egun ono“ veit ég fyrir þín orð að þýðir „góðan dag“ á basknesku. Þú varst staddur í Mondragon í Baskalandi að kynna þér víðfrægt samvinnufélag þeirra með það fyrir augum að staldra þar við í vinnu og námi. Skrappst þaðan til Madríd og skráðir þig inn á hótel laust eftir miðnætti aðfaranótt laugardagsins 10. Við sátum langa stund með því góða fólki sem varð það síðasta sem sá þig í þessu lífi og það fyrsta eftir andlát þitt, her- bergisþernu og Carlos sem vinnur í gestamóttökunni. Hann sýndi okkur herbergið sem þú hafðir gist í og túlkaði frá- sögn herbergisþernunnar af sam- skiptum ykkar um morguninn og af þeim þöglu ummerkjum sem vitnuðu um hinstu örlög þín um hádegisbil þann sama dag. Á samri stund urðum við ekki ein í sorginni, herbergisþernan hafði misst yngri bróður sinn úr of- neyslu eiturlyfja og Carlos hafði nýverið misst móður sína án þess að geta sagt henni hversu heitt hann elskaði hana og við grétum í faðmi hvert annars, hver annarri ókunnugar manneskjur fyrir stundu, sem vegna þín voru nú sem náin systkini. Þú dvaldir stutt í því fræga samvinnufélagi í Mondragon í þetta sinn og stutt á þessari jörð en sýndir okkur með lífi þínu og við hinstu örlög þín vitnaðist okk- ur að slá sama takti hjörtu okkar allra. Ástarþakkir fyrir það, ástar- þakkir fyrir allt sem þú gafst okkur, hjartans vinur minn kæri. Gunnlaugur Sigurðsson. Meira: mbl.is/minningar Elsku litli bróðir, elsku hjart- ans Hákon. Ég vissi að ekki var allt gott hjá þér og var búin að sjá fyrir mér að við gætum farið í nokkurra daga göngu upp í fjöll í Frakklandi í ágúst. Einbeita okkur að því að setja annan fótinn fram fyrir hinn, eitt skref í einu úti í náttúrunni. Þegar ég hringdi í þig með þessa uppástungu fór meginhluti sam- talsins í að rekja þér áhyggjur mínar af dóttur minni og raunir hennar. Þú hlustaðir með samúð og settir þig inn í málin. Svona varstu, ég hélt að ég ætlaði eitt- hvað að hjálpa þér svo varst þú í raun að hlusta á mig og mín vandamál, skilningsríkur og hlýr. Þessi símtöl sem við áttum og skriflegu samskipti í gegnum síma í einar tvær vikur í endaðan júlí og byrjun ágúst voru öll á þennan veg. Þú svaraðir með húmor, sagðir mér af ferðum þínum, bent- ir mér með gríni á að ég hefði ruglað saman tígrisdýri og hlé- barða þegar ég sendi þér mynd af veggjakroti frá Montpellier með ónákvæmri meðfylgjandi lýsingu. Þú varst athugull og nákvæmur þegar þú horfðir á heiminn. Þú komst til mín í heimsókn í Montpellier í Frakklandi, ekki orðinn sex ára, og teiknaðir tígris- dýr. Dóttir mín var nýfædd og þú varst að koma í heimsókn að sjá litlu frænku. Þetta var ævintýra- ferð fyrir lítinn gutta, hann var innilega glaður að vera á löngu ferðalagi með mömmu sinni í framandi borg og borða nýjan mat og lesa Andrésblöð með mömmu og litla bróður uppi í rúmi á kvöld- in. Þið höfðuð farið í dýragarðinn um daginn og þú hafðir augun gal- opin. Þegar heim kom teiknaðir þú eftir minni öll dýrin sem þú hafðir séð í dýragarðinum, niður í minnstu smáatriði, þar á meðal flott tígrisdýr. Þú varst litli bróðir minn í ævintýraheimi og naust ferðarinnar mest af öllum. Þessi símtöl sem við áttum, þessi skilaboð sem fóru okkar á milli núna í sumar eru hinsta gjöf þín til mín. Öll sú hlýja og birta og húmor sem kom frá þér fylgja mér núna hvert andartak. Þú varst kominn til Spánar og við ætluðum að leggja af stað á miðvikudegi í fjallgöngu, vorum að ræða gönguskó og bakpoka, þú sagðir mér að þetta yrði „epískt“ ferðalag hjá okkur. Við fórum ekki í þetta skiptið en einhvern tíma munum við ganga saman í Pýreneafjöllunum, elsku Hákon. Elsku litli bróðir minn, það er svo ólýsanlega sárt að vera búin að missa þig og orðin eru svo tak- mörkuð til að lýsa því. Þú ert alls staðar með mér núna, hvert sem ég lít, hvern sem ég tala við, hvert sem ég fer, þá ert þú nálægur. Elsku litli bróðir minn, þakka þér fyrir allan þann tíma sem ég átti með þér, þakka þér fyrir að hafa tekið svona vel á móti litlu frænku þinni þegar hún kom í heiminn, þakka þér fyrir alla þá birtu sem þú skilur eftir í hjarta mínu. Elísabet Gunnlaugsdóttir. Fyrir Hákon. Ég vildi ganga hönd í hönd með þér hönd í hönd með þér Ég vildi ganga hönd í hönd með þér um lífsins langa veg. Ég vildi sjá þig lýsa af hamingju og gleði í hjarta þér Ég vildi sjá þín augu skína skær að allt gengi vel Ég vildi strjúka mjúkan vanga þinn strjúka þér um kinn Og hvísla að þér orðum sem tækju burt allan sársauka þinn Ég vildi heyra rödd þína æ og sí svo undurgóð og hlý Og halda hverju orði að hjarta mér þar til ég sé þig á ný Ég vildi’ ég gæti lýst þér lífsins veg lífsins þrautaveg Ég vildi’ ég gæti rutt hann myrkrinu og gengið hann með þér Ég vildi að ég gæti sest hjá þér við hliðina á þér Lagt hönd mína yfir axlir þér og haldið þér þétt að mér Ég vildi‘ að ég gæti hellt í glas með þér skálað hátt með þér Og hlegið öllum lífsins draugum að hlegið dátt með þér Ég vildi gefa allt fyrir augnablik augnablik með þér Og segja þér hve ósköp dýrmætur Hákon þú ert mér Ég vildi’ ég gæti haldið þéttingsfast þéttingsfast um þig Og lokað úti allar áhyggjur sem herjuðu á þig Hvert fórstu elsku hjartans Hákon minn hvert fórstu án mín? Ég vildi’ ég gæti sagt þér bróðir minn Hve heitt ég sakna þín Ég veit þú heldur fast í hönd mér fast í hönd mér Ég veit við fylgjumst æ að þú og ég um lífsins langa veg. Ég elska þig um alla eilífð. Þín Alexandra (Alex). Blunda þú nú barnið mitt, bráðum kemur nótt. Óli lokbrá læðist inn, létt og ofurhljótt. Mín fyrsta minning um þig, elsku bróðir minn. Þú ert að sofna í rúminu sem langafi hafði smíðað úr ljósum við og á rúmgaflinum útskorin mynd af Óla lokbrá þar sem hann heldur á regnhlífinni yf- ir barninu. Ég sit á rúminu hjá þér og raula fyrir þig vísuna um Óla lokbrá. Mikið var gott að vera ná- lægt þér. Seinna skyldir þú raula vöggu- vísur fyrir Snorra minn. Þú sagðir honum sögur í lestinni til og frá leikskólanum hans í Stokkhólmi, barst hann á háhesti þegar hann var orðinn þreyttur og bakaðir með honum pönnukökur þegar heim var komið. Þú hafðir ein- stakt lag á honum og með þolin- mæði þinni og hlýju tókst þér allt- af að umbreyta pirringnum hjá þreyttu leikskólabarninu í kæti. Hversdagslegar lestarferðirnar í janúarmyrkrinu til og frá leik- skóla breyttust í hin mestu ævin- týri. Það kom aldrei á þig hik þeg- ar ég biðlaði til þín að koma út og hjálpa okkur. Ekki frekar en þeg- ar ég bað þig um hjálp við gerð rafmagnsmótors í verkfræðinni, þú þá aðeins 13 ára að aldri, eða gerð grafískra myndbanda sem mig vantaði fyrir vinnuna. Snorri var orðinn of stór til að vera á há- hesti þegar þú komst í heimsókn til okkar til Óslóar en fékk að vera á hestbaki í staðinn. Hákon besti frændi var kominn í heimsókn. Við fórum niður að bryggju og keyptum okkur ís. Hér heima á Ís- landi breyttust samverustundirn- ar í lestinni í bíóferðir og göngu- ferðir niður að sjó þar sem hundurinn Kútur hafði bæst í hóp- inn. Ég, þú og Kútur áttum líka góðar stundir í hlaupunum okkar saman hér við sjóinn á Kársnes- inu. Hundurinn ruglaði aðeins tempóið hjá okkur en það gerði ekkert til. Við náðum góðum takti samt sem áður. Hvort sem var í hlaupunum, á kaffihúsinu eða í bíl- túrnum spurðirðu mig alltaf hvernig Snorri hefði það. Við rifj- uðum upp skemmtileg atvik í þessu húmoríska ljósi sem þú iðu- lega sást heiminn í. Elsku Hákon, ég mun sakna samverustundanna okkar saman. Hlýjuna og einstaka nærveru þína sem ég fyrst fann við rúmgaflinn hjá þér í æsku mun ég geyma í hjartanu um ókomna tíð en engin orð fá henni lýst. Takk fyrir að vera alltaf til staðar, jafnvel á þín- um erfiðustu stundum. Ég elska þig, hjartans bróðir, og mun ávallt gera. Óli lokbrá leiðir þig létt um draumsins svið, heillar yfir barnsins brá, blíðan næturfrið. (Jakob V. Hafstein) Helga Gunnlaugsdóttir. Hákon Guttormur Gunnlaugsson HINSTA KVEÐJA Sönn ást er eilíf. Við munum ætíð vera hvort með öðru. Þakka þér fyrir að vera sá sem þú varst. Þakka þér fyrir að vera spegill minn sem vekur mig til að muna hver ég er. Ein sál, tveir líkamar. Ég elska þig. Pia.  Fleiri minningargreinar um Hákon Guttorm Gunn- laugsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HANNE HINTZE, Boðaþingi 22, Kópavogi, lést á Landspítalanum 10. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Elísabet Halldórsdóttir Ólafur Flosason Anna Ólafsdóttir Guðjón Már Guðjónsson Flosi Ólafsson Harpa Líf Hallgrímssdóttir Erling H. Halldórsson Fannar Smári Erlingsson Aníta Heiðarsdóttir Röed Egill Örn Erlingsson Gunnlaugur Erlingsson Okkar ástkæri JAKOB ÞORSTEINSSON bílstjóri, lést 6. ágúst á heimili sínu í Torrevieja á Spáni. Útför hefur farið fram. Steinþóra Fjóla Jónsdóttir Hafdís Guðný Jakobsdóttir Hafsteinn Elvar Jakobsson Garðar Berg Valur Berg Steinþór Sigurðarson tengdabörn og barnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN KATLA ÁRNADÓTTIR, Vegghömrum 4, lést miðvikudaginn 31. júlí. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu. Karólína Pétursdóttir Guðjón Einarsson Elena K. Pétursdóttir Þorvaldur Magnússon Arna H. Pétursdóttir Ragnar B. Ragnarsson Árni Snorri Ólafsson Steinunn Elfa Jóhannsdóttir og barnabörn Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, afi og sonur, HALLGRÍMUR ÓÐINN PÉTURSSON, Hálsvegi 7, Þórshöfn, lést á heimili sínu laugardaginn 17. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Þórshafnarkirkju sunnudaginn 25. ágúst klukkan 14. Jóhanna Ingimundardóttir Sonja Súsanna Hallgrímsdóttir Kristbjörn Lúther T. Hallgrímsson Hallmar Logi T. Hallgrímsson Petra Dögg T. Hallgrímsdóttir og aðrir vandamenn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.