Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 41

Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 ✝ Birgir Sigurðs-son fæddist í Reykjavík 28. ágúst 1937. Hann lést 9. ágúst 2019. Birgir var sonur Sigurðar Ingimars Helgasonar, myndlistarmanns og sjómanns, og Friðbjargar Jóns- dóttur húsmóður. Systkini hans eru Ingimar Erlendur og Sigríður Freyja. Birgir ólst upp í Reykjavík, lauk kennaraprófi frá KÍ 1961, stundaði tónlistarnám við Tón- listarskólann í Reykjavík í fimm ár og söngnám í Amsterdam 1967. Birgir var blaðamaður á Tímanum 1961-64 og var kenn- ari og skólastjóri í nokkrum skólum þar til hann sneri sér al- farið að ritstörfum árið 1979. Eftir Birgi liggur fjöldi rit- verka; leikrit, skáldsögur, ljóð, þýðingar og fræðirit. Þekktasta leikrit Birgis er án efa Dagur höfundasambands Íslands 1982- 1986, var forseti Bandalags ís- lenskra listamanna 1985-87 og átti m.a. sæti í stjórn Listahátíð- ar og úthlutunarnefnd Kvik- myndasjóðs. Birgir var á þessu ári gerður að heiðursfélaga Rit- höfundasambandsins. Birgir var einnig virkur í náttúruverndarbaráttu og það voru einkum Náttúruvernd- arsamtök Íslands sem nutu krafta hans. Eftirlifandi eiginkona Birgis er Elsa Vestmann Stefánsdóttir, myndlistarmaður og fv. sviðs- stjóri hjá RÚV. Birgir eignaðist þrjú börn með fv. eiginkonu sinni, Jóhönnu Steinþórsdóttur. Þau eru: Steinþór, kona hans er Ásta Vilhjálmsdóttir, Freyja, maður hennar er Halldór Magn- ússon, og Steinunn Björg, mað- ur hennar er Hólmsteinn Jónas- son. Stjúpbörn Birgis eru: Anna Steinunn (látin), maður hennar er Kjartan Bjargmundsson, Einar, kona hans er Ásta Mar- grét Guðlaugsdóttir, Elías og Eva. Útför Birgis fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 22. ágúst 2019, klukkan 13. vonar, sem frum- sýnt var 1987, til- nefnt til bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs 1989 og hefur verið sýnt víða um heim. Fyrsta leikritið, Pétur og Rúna, vann 1. verðlaun í samkeppni Leik- félags Reykjavíkur 1972 og vakti mikla athygli. Meðal annarra leikrita hans eru Skáld-Rósa, Selurinn hefur mannsaugu, Grasmaðkur, Óskastjarnan, Dínamít og Er ekki nóg að elska. Birgir var heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur en hann þýddi einnig fjölmörg leikrit, m.a. Barn í garðinum, eftir Sam Shephard, Glerbrot, eftir Arth- ur Miller, og Köttur á heitu blikkþaki, eftir Tennessee Willi- ams. Þá þýddi hann tvær skáld- sögur eftir Doris Lessing, Gras- ið syngur og Marta Quest. Birgir var varaformaður Rit- Fyrir 23 árum steig ég í fyrsta sinn inn um dyrnar á Spítalastíg 3 og hitti þar fyrir tilvonandi tengdaföður minn, Birgi Sigurðs- son rithöfund. Þá fann ég strax að þar fór mikill og sterkur persónu- leiki. Þegar ég byrjaði að skrifa þessa minningargrein ákvað ég að punkta niður nokkur orð sem ég set í samband við Birgi. Þau fyrstu sem mér datt í hug voru verkfæri, framkvæmdir, jeppar og sumarbústaður, en fljótlega birtust einnig orð eins og bíla- verkstæði, hefilbekkur, hvalbein, hálendið, Þjórsárver, náttúru- vernd, fótbolti og handbolti. Auð- vitað var skáldskapurinn ekki langt undan, en við ræddum hann svo sem ekki mikið, enda var svo margt annað sem vakti áhuga hans og athygli. Sem tengdasonur var gott að leita til Birgis með margskonar mál. Ef mig til dæmis vantaði verkfæri þá hringdi ég í hann, hann átti járnkarl og bestu borvél í Reykjavík. Ef keyptur var bíll var mikilvægt að fá hans álit og ráð, enda hafði hann mikla reynslu af bílaviðskiptum. Sama gilti um hálendisferðir og þá að- allega hvernig best væri að fara yfir óbrúaðar ár, að ég tali nú ekki um leiðbeiningar um ferðir í Þjórsárver, sem voru honum svo kær og hann átti svo stóran þátt í að bjarga, löngu áður en vernd miðhálendisins komst í hámæli. Birgir var næmur á tilfinningar annarra, en síðast en ekki síst átti hann auðvelt með að komast að kjarna hvers máls. Oftar en ekki sá maður nýja hlið á málefnum líðandi stundar eftir samtal við eldhúsborðið á Spítalastígnum, og síðar á Bergstaðastrætinu. Hann var líka óhræddur við að taka af- stöðu sem var á móti straumnum og ríkjandi viðhorfum á hverjum tíma. Hann kenndi mér margt og á stóran þátt í að gera mig að nátt- úruverndarsinna og að meiri jafn- aðarmanni en ég var fyrir kvöldið góða í Þingholtunum vorið 1996. Tengdaföður mínum var ekki fisjað saman. Það braut oft á hon- um, en hann bognaði hvorki né brotnaði og þess vegna finnst okkur sem stöndum honum næst nánast óhugsandi að hann sé far- inn frá okkur. Guð blessi minningu Birgis. Halldór Magnússon. Árið 1972 efndi Leikfélag Reykjavíkur, ein elsta mennta- stofnun landsins, til leikritasam- keppni í tilefni af 75 ára afmæli sínu. Markmiðið var augljóst: að efla og auka tiltrú á íslenskri leik- ritun. Þetta voru nokkur tíðindi, þó að áður hefði verið efnt til slíkrar keppni, í fyrsta sinn meira að segja fyrir aldamótin 1900. En uppskeran hafði ekki alltaf verið sem skyldi. En nú streymdu að handritin og dómnefnd gat ekki einu sinni gert upp á milli tveggja verka, sem verðlaunuð skyldi. Að auki hlaut leikrit sem féll utan ramma útboðslýsingarinnar sér- staka umgetningu. En verðlaunahöfundarnir reyndust sem sagt tveir. Annar var Jökull Jakobsson, sem kalla mátti hirðskáld í Iðnó á þessum árum, en sem fór hér inn á nýjar brautir og kom samverkamönnum sínum á óvart. Hinn var lítt þekkt ljóðskáld sem aldrei hafði áður samið fyrir leiksvið, Birgir Sig- urðsson. Bæði leikritin voru síðan í kjölfarið flutt í Iðnó við góðar undirtektir. Þarna hófst farsæll ferill eins helsta leikskálds okkar. Leikrit Birgis nefndist Pétur og Rúna og var raunsæ Reykjavíkurmynd þar sem deilt var á hlaup eftir ytri verðmætum. Síðan kom Selurinn hefur mannsaugu, þar sem táknsæi blandast inn í hið raun- sæja auga skáldsins, og þá Skáld- Rósa, sem fjallaði um þekkt efni úr sögu okkar á hugtækan hátt. Það er nokkur raun, hversu lítið hefur birst á prenti um leikritun- arsögu okkar. Sá sem hér heldur á penna harmar það til dæmis að ritgerð sem hann samdi um verk Birgis hefur ekki komið fyrir al- mennings sjónir; liggur í handriti að bók sem nefnist Af leikskáld- um. Blómaskeiðið á sjöunda og átt- unda áratugnum í okkar leikritun er nefnilega verðugt viðfangsefni; af sambærilegu gátu til dæmis hinar Norðurlandaþjóðirnar ekki státað. Þá kom meðal annarra úr- valsverka fram leikrit Birgis Dag- ur vonar í rómaðri sýningu Stef- áns Baldurssonar, í senn kröftugt og viðkvæmt skáldverk. Það hefur þegar verið sýnt aftur hér og reyndar erlendis og er eitt þeirra verka sem eru líkleg til að lifa, enda blandaðist þá engum hugur um að Birgir Sigurðsson var kom- inn í fremstu röð íslenskra skálda sem þá skrifuðu fyrir leiksvið. Hér er ekki rými til að fara yfir allan feril Birgis, sem þó maklegt væri. En til samanburðar við Dag vonar og til að sýna víðfeðmi skáldsins ber að nefna annað hans öndvegisverk, Ég er dínamít heit- ir það og helstu persónur leiksins eru heimspekingurinn og skáldið Friedrich Nietzsche og systir hans Elisabeth Förster. Sögusvið- ið er sem sagt óvenjulegt frá penna íslensks höfundar og svo sem við er að búast er hér kafað býsna djúpt í mannssálirnar. Formið er auk þess óvenjulegt. Gaman og raunar skylda er að láta aftur reyna á þetta verk. Leikhús- stjórar mega ekki vera ragir við að láta hverja nýja kynslóð fá að glíma frá sínum sjónarhóli við þau verk í okkar leikritunarsögu sem upp úr standa, gömul og ný. Undir lokin var Birgir heilsu- veill eins og svo margir. Ekki brást honum þó hans húmaníska sýn á heiminn og mennina né hans mannlega hlýja í hinu daglega. Hver dagur var dagur vonar. Elsu og öðrum aðstandendum sendum við Þóra hlýjar samúðar- kveðjur. Sveinn Einarsson. Hann var stór í sniðum hann Birgir. Sterkur persónuleiki, flug- gáfaður, skarpskyggn og fullur mannkærleika. Manni fannst maður verða betri manneskja af að hlusta á hann og umgangast hann. Hann lærði til kennara og stundaði kennslu og skólastjórn árum saman, einnig blaða- mennsku, en listin náði smám saman tökum á honum. Hann lærði söng í nokkur ár bæði hér heima og í Amsterdam en þar varð honum ljóst að kannski lægi ritlistin betur fyrir sér. Hann hlaut 1. verðlaun í samkeppni Leikfélags Reykjavíkur 1972 fyr- ir leikritið Pétur og Rúna og þá varð ekki aftur snúið. Á næstu ár- um komu svo Selurinn hefur mannsaugu, Skáld-Rósa og Grasmaðkur. Öll þessi verk stað- festu ritfærni hans og nutu vin- sælda. Birgir hafði einstaka hæfi- leika til að gæða persónur sínar lífi í samtölum og gjörðum, þannig að á sviðinu birtist ljóslifandi fólk, sem fór að skipta okkur máli. Og hann kunni að segja sögur. Við kynntumst fyrst að ráði þegar við sátum saman í stjórn Listahátíðar 1985-86. Það var strax bæði gam- an og fróðlegt að skiptast á skoð- unum við manninn. Hann var haf- sjór af fróðleik og fullur af andagift. Og svo kom meistaraverkið: Dagur vonar. Öllum varð ljóst að hér hafði Birgir náð fullum þroska og var orðinn eitt okkar magnað- asta leikskáld. Hann fól mér að leikstýra frumuppfærslu verksins í Iðnó. Leikritið náði gríðarlegum vinsældum, ekki bara hér heima heldur líka erlendis. Þótt mér sé málið skylt var líka ljóst að sýn- ingin tókst afburðavel og allir leikararnir sex unnu leiksigur. Það hefði verið gaman að sú sýn- ing hefði verið tekin upp fyrir sjónvarp eins og til stóð en af því varð ekki. Okkur var boðið með sýninguna á leiklistarhátíð í Hels- inki 1988 og sama ár stýrði ég sviðsettum leiklestri á verkinu í Los Angeles. Þar voru kynnt ell- efu ný leikrit frá ýmsum löndum á stórri leiklistarhátíð og Dagur vonar var eina leikritið sem keypt var til sýningar og síðar sýnt. Við Birgir unnum þarna í risastóru leikhúsi í miðri borginni, þar sem prúðbúnir leikhúsgestir flykktust á sýningar á kvöldin meðan lög- reglan átti í skotbardaga við dóp- salana handan götunnar, þar sem við Birgir reyndar deildum íbúð, þannig að við áttum stundum fót- um fjör að launa að loknum æfing- um. Síðar átti ég eftir að leikstýra Degi vonar í Danmörku og auðvit- að kom Birgir á frumsýningu og var ákaft hylltur. Ég leikstýrði síðar öðru stórmerku verki hans, Dínamít, í Þjóðleikhúsinu 2005. Það var mikið lán að kynnast Birgi og ekki síður Elsu, konu hans, með allt sitt listfengi, gáfur og glæsileik. Við Tóta höfum átt með þeim margar og ógleyman- legar samverustundir. Síðari hluta ævinnar barðist Birgir við þrálát veikindi en hélt reisn sinni og ástríðu og hélt áfram að skrifa til hinstu stundar. Með honum er gengið eitt okkar fremsta leik- skáld. Ég verð honum ævinlega þakklátur fyrir öll samtölin, vin- áttuna og samvinnuna. Þar bar aldrei skugga á. Við Tóta og fjölskyldan send- um Elsu, börnum Birgis og allri fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Þessa kæra vinar verður ætíð minnst með hlýju, aðdáun og af virðingu. Stefán Baldursson. Ég heyrði verkið Dag vonar eftir Birgi Sigurðsson fyrst lesið upp af foreldrum mínum, við eld- húsborðið heima, seint um kvöld árið 1986. Ég var þá rétt um tví- tugt, og það vildi svo til að ég var heima og ákvað að hlusta. Það hafði reyndar kvisast út í leikhús- geiranum að fram væri komið óvenjulegt verk eftir íslenskt leik- skáld, verk sem jafnvel var hvísl- ast á um á göngum, verk sem væri af stærðargráðu sem menn áttu ekki að venjast á degi hverjum í íslenska leikhúsheiminum. Og lestur hófst sem sagt tiltekið kvöld þar sem foreldrar mínir, Guðmundur Pálsson og Sigríður Hagalín, þá leikarar hjá LR, lásu og skiptu á milli sín persónunum í verki Birgis. Og eitthvað fór af stað strax með fyrstu setningun- um. Textinn var öðruvísi en mað- ur átti að venjast, bæði ljóðrænn og myndrænn, með sterkri undir- liggjandi hrynjandi en þó svo hversdaglegur. Persónurnar spruttu upp af síðunum hver á fætur annarri með allan sinn magnaða kraft og skemmst er frá því að segja að hundrað og tutt- ugu eða þrjátíu blaðsíðum síðar (því Dagur vonar er langt verk!) höfðum við hvorki staðið upp né seilst í kaffibolla, þó að mamma hafi látið nokkrar sígarettur fjúka. Og þögnin sem fylgdi í kjöl- farið segir kannski meira en nokkur orð um áhrifin sem verkið hafði haft á okkur og átti eftir að hafa á áhorfendur seinna meir. Við gátum ekkert sagt lengi vel, horfðumst bara í augu með und- arlegan kökk í hálsi. Mögnuð sýn- ing Stefáns Baldurssonar fylgdi svo á eftir ári síðar, og hún sat í mér lengi. Mörgum árum eftir þetta var ég beðin um að halda erindi í fyr- irlestraröð um áhrifavalda, ís- lenskt leikrit sem hefði haft mest áhrif á feril minn sem leikskáld – Þorvaldur Þorsteinsson var þá nýbúinn að halda tölu um Þrett- ándu krossferðina eftir Odd Björnsson. Það var enginn vafi í huga mínum hvaða verk ég myndi fjalla um. Ég endurlas Dag vonar og sá nú nokkuð sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir áður. Verkið hafði ekki bara haft áhrif á mig, ómeðvitað hafði ég vitnað beint í verk Birgis í fyrsta leikritinu mínu, ég hafði jafnvel hnuplað frá honum heilu eða hálfu setningun- um og gert að mínum. Í erindinu benti ég á þetta allt saman, ýmis líkindi, játaði sum sé á mig þenn- an „smáþjófnað“ úr Degi vonar. Fyrir framan mig sat skáldið og brosti í kampinn. Ég held að hann hafi haft lúmskt gaman af þessu, hann tók alla vega fast í höndina á mér að erindi loknu, dustaði hratt af sér hólið og fór yfir í aðra sálma. Fyrir tveimur árum stóð- um við svo fyrir málþingi í Borgarleikhúsinu um Birgi og verk hans, þar kom vel fram vigt þeirra í íslenskri leikritunarsögu og íslenskum bókmenntum. Þeg- ar öllu er á botninn hvolft er fátt mikilvægara höfundum en að eiga sér fyrirmyndir. Aðra höfunda til að lesa og leita í og líta upp til. Ég þakka Birgi Sigurðssyni vega- nestið, og fyrir að vera mér þessi fyrirmynd, þegar ég var ung og leitandi og þurfti einmitt á því að halda að verða hljóð yfir verki eft- ir íslenskt skáld. Ég sendi Elsu og fjölskyldu Birgis innilegar samúð- arkveðjur. Hrafnhildur Hagalín Guð- mundsdóttir. Ég kynntist Birgi um miðjan sjötta áratug síðustu aldar í gegn- um sameiginlegan vin okkar beggja, Lúther Jónsson, sem þá var í námi í prentiðn í Ríkisprent- smiðjunni Gutenberg. Birgir var þá nemi í rafvirkjun hjá Árna Brynjólfssyni rafvirkjameistara en ég í vélvirkjanámi í Lands- smiðjunni. Kynni okkar Birgis voru í rauninni bundin við þann stutta tíma sem hann var í iðn- námi en Lúther hélt alla tíð sam- bandi við hann. Sumarið 1956 bauð ég Birgi að koma með mér á heimaslóðir mín- ar austur á Hallormsstað á Hér- aði og dvelja þar í sumarleyfi okk- ar upp á þau býti að við ynnum svolítið í heyskap upp í fæði hjá Sigurði hálfbróður mínum og Arnþrúði Gunnlaugsdóttur eigin- konu hans. Þetta boð þáði Birgir með þökkum. Við munum hafa flogið í Egilsstaði um miðjan júní. Í veðurskýrslum má sjá að eigin- legt sumarveður kom fyrst eystra upp úr 10. júní þetta ár og sláttur byrjaði í seinna lagi. Þessir dagar eru mér ógleymanlegir og þá ekki síst gönguferðir okkar Birgis um skóginn; við spjölluðum þá mikið saman um hugðarefni okkar, þ.á m. þjóðmálin og alþjóðamál og höfðum á stundum yfir ljóð og sönglög sem okkur þótti vænt um. Ég fræddi vin minn um örnefni og kennileiti í skóginum: Hérna sérðu Gottáttuhríslu sem Páll Ólafsson orti um og Ingi T. gerði lag við; og hér erum við staddir í Gatnaskógi, elsta hluta skógar- ins … o.s.frv. – Minnisstæðust er mér gönguferð okkar í björtu veðri á fjöllin suðaustan við Hall- ormsstaðarbæinn, Dagmálafjall og Hádegisfjall. – Orðfæri Birgis, t.d. þegar hann lýsti hughrifum sínum af umhverfinu og útsýninu, minnti stundum á prósaljóð og þarf víst engum að koma á óvart. – Meðal fyrstu ljóða hans sem út komu á prenti gæti hafa verið prósaljóðið Útsýn sem birtist í tímaritinu Dagskrá (1. h. ág. 1958). Síðar birti hann mörg ljóð í Tímariti Máls og menningar. Í úrklippusafni mínu, frá því fyrir daga Internetsins, rakst ég á tvær blaðagreinar eftir Birgi. Sú fyrri nefnist Hernám tilfinning- anna og birtist í Þjóðviljanum 12. nóv. 1969. Þar fjallaði hann um styrjöldina í Víetnam og lagði út af afstöðu eins vinar síns til henn- ar. Við hlið greinarinnar er ljóð Birgis: Vektu þína rödd. Hér fer ekkert milli mála hvar hjarta höf- undar slær. – Sú síðari er ræða sem Birgir flutti á hátíð Sænsk- ísl. félagsins í Gautaborg 1. des. 1969. Þar vék hann bæði að Víet- namstríðinu og valdaráninu í Grikklandi og beindi kastljósinu að gildismati Íslendinga í ljósi þessara átaka. (Þjv. 4.12. ’69) Að lokum langar mig að minn- ast á fund í Háskólabíói 28. nóv. 1998 en þar var Birgir í forystu fyrir ’Hálendishópi’ sem stóð að fundinum en hann sóttu yfir 1.000 manns. Yfirskrift fundarins var: „Með hálendinu – gegn náttúru- spjöllum“. „Fundarmenn lýstu m.a. yfir eindreginni andstöðu við fyrirhugaðar stórvirkjanir á há- lendinu …“ (DV. 30.11. ’98) Al- mennar áherslur þessa fundar eiga ekki síður við í dag. Lifi minningin um ljúflinginn Birgi Sigurðsson. Eftirlifandi eig- inkonu, börnunum og öðrum að- standendum sendi ég samúðar- kveðjur. Gunnar Guttormsson. Birgir Sigurðsson  Fleiri minningargreinar um Birgi Sigurðsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför okkar ástkæra BALDVINS TRYGGVASONAR Fyrir hönd aðstandenda, Halldóra J. Rafnar Sveinbjörn I. Baldvinsson Tryggvi M. Baldvinsson Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna fráfalls ástkærs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR H. DAGSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks L4 á Landakoti fyrir góða umönnun og hjartahlýju. Ragnheiður Lárusdóttir Bjarki Sigurðsson Kolbrún Franklín Dagur Sigurðsson Ingibjörg Pálmadóttir Lárus Bl. Sigurðsson Anna María Ragnarsdóttir og afabörn Þökkum fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför MAGNÚSAR GUÐNASONAR, fv. rafmagnseftirlitsmanns, Árskógum 6, Reykjavík. Sendum bestu þakkir til starfsfólks á hjartadeild 13E, Landspítala, Hringbraut, fyrir góða umönnun. Lifið heil. Aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.