Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 44

Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-16 Holtagörðum | Sími 568 0708 | www.fako.is Stólar 29.900 kr. Nýjar vörur Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Það er glaðbeitt Guðrún sem heils- ar okkur enda blekið varna þornað á undirskriftinni en hún var rétt í þessu að skrifa undir nýjan samning sem stækkar verslunina Kokku um meira en helming. Guðrún segir að stækk- unin eigi sér töluverðan aðdraganda og hún hafi oft velt því fyrir sér hvað myndi gerast ef rýmið við hliðina á Kokku losnaði. „Svo gerist það í vor að Herrahúsið flytur og húsnæðið losnar. Þetta er stærðarinnar hús- næði á þremur hæðum sem þarf að gera mikið fyrir,“ segir Guðrún því rýmið mun þarfnast mikilla endur- bóta en möguleikarnir eru óþrjót- andi. „Fyrst um sinn opnum við að- eins yfir á fyrstu hæðina og stækkum því verslunarplássið um helming. Síð- an þarf að ákveða hvað verður gert á hæðinni fyrir ofan en möguleikarnir eru margir. Um er að ræða stærð- arinnar rými með glæsilegu útsýni. Möguleikarnir eru vissulega óþrjót- andi og ljóst að miðborgin á gott í vændum.“ Miðborgin í blóma Guðrún blæs á allt tal um að versl- un í miðborginni sé á undanhaldi. Miðborgin hafi vissulega tekið mikl- um breytingum á undanförnum árum en þær breytingar séu af hinu góða. „Borg er lifandi og þá ekki síst mið- borgin sem er fjölfarnasta hverfi borgarinnar. Hér hefur verið mikil endurnýjun og uppbygging og það er að skila sér margfalt til baka. Endur- nýjun á gömlu húsnæði, endurbætur og þar fram eftir götunum, svo ekki sé minnst á þá fjölgun verslana og veitingastaða sem verið hefur. Í frétt sem birtist á dögunum var sagt frá því að 60 nýir aðilar hefðu hafið rekst- ur í miðborginni. Það er gríðarlega mikill fjöldi og sýnir þróunina sem er í gangi. Svo má heldur ekki gleyma því að það tekur tíma fyrir svæði að ná jafnvægi. Það var til dæmis talað um það á sínum tíma að Laugaveg- urinn væri að breytast í eina stóra lundabúð en sú þróun hefur breyst og þeim er að fækka. Það er eðli hlut- anna að þeir finna sér farveg.“ Viðskiptavinirnir hlynntir göngugötu Að sögn Guðrúnar er hún hlynnt áformum borgarinnar um að breyta Laugaveginum í göngugötu. „Það eru auðvitað skiptar skoðanir um það meðal rekstraraðila en það sem skipt- ir höfuðmáli er að meirihluti borgar- búa sé fylgjandi því. Það er auðvitað mikilvægasta atriðið því við versl- unarfólk getum haft hvaða skoðun sem er en ef viðskiptavinirnir skila sér ekki er þetta búið spil. Við vorum með óformlega skoðanakönnun hér í búðinni þar sem við inntum fólk eftir þess skoðun og niðurstaðan var að 70% viðskiptavina okkar voru hlynnt áformum um að breyta Laugaveg- inum í göngugötu,“ segir Guðrún. „Fólk kannski áttar sig ekki á því en það hefur orðið svo mikil breyting og það er svo margt fólk á Laugaveg- inum. Það er af sem áður var. Hér er mikið líf og mikil stemning. Það er oft talað um að það séu bara ferðamenn á Laugaveginum en það er einfaldlega ekki rétt. Hingað koma Íslendingar í stórum stíl og lang- stærsti hluti viðskiptavina okkar er íslenskur,“ segir Guðrún sem segir kúnnahópinn jafnframt vera mjög fjölbreyttan. „Ég get ekki lýst hinum dæmigerða Kokku-kúnna,“ segir hún brosandi, „en ég hef fengið hingað inn allt frá ungum krökkum með klink í vasanum að kaupa gjöf handa mömmu sinni upp í rígfullorðna sæl- kera. Það mætti kannski segja að Kokku-kúnninn sé allir þeir sem hafi gaman af því að borða mat og mat- búa“. Gæðin skipta máli Kokka sérhæfir sig í vönduðum vörum og Guðrún er dugleg að pred- ika að fólk kaupi sér færri en vand- aðari hluti. „Í raun þarftu fátt annað en góðan hníf í eldhúsið. Alvöruhníf úr góðu stáli sem endist ævilangt.“ Guðrún segist merkja ákveðna þróun í þessum málum. „Fólk er orðið með- vitaðra og ábyrgara,“ segir hún og vís- ar þar til kauphegðunar fólks sem leggi meira upp úr gæðum og end- ingu. Starfsfólk Kokku veitir gjarnan ráðgjöf um rétta meðhöndlun vör- unnar sem aftur tryggir betri end- ingu. Svo er boðið upp á margvíslega þjónustu eins og brýningu á hnífum en deigur hnífur kemur að litlu gagni. Það er um að gera að koma með hníf- ana sína í Kokku þar sem heimilis- kokkar mæta reglulega með græj- urnar í brýningu. Þetta er hluti af þjónustunni sem Kokka býður upp á. Í ár fagnar Kokka jafnframt 15 ára afmæli vefverslunarinnar en kokka.is hefur verið mikilvæg fyrir verslunina. „Það fara flestir á netið áður en þeir koma í búðina,“ segir Guðrún. „Það má segja að vefsíðan sé stærsti búðarglugginn okkar. Fólk fer þarna inn og kynnir sér úrvalið, skoðar vör- unar og kemur svo gjarnan í búðina til að handfjatla vöruna. En það hefur einnig aukist jafnt og þétt að við- skiptavinurinn fái sent heim. Mest hefur aukningin í vefsölu verið síð- ustu tvö ár.“ Fjölskyldufyrirtæki fram í fingurgóma Þó að Guðrún standi í brúnni stendur öll fjölskyldan að baki henni. „Þetta hefur verið fjölskyldurekstur frá upphafi. Hér höfum við hjónin staðið vaktina og börnin okkar líka. Auður systir mín er hérna með mér og börnin hennar væntanlega líka um leið og þau eru orðin nógu gömul,“ segir Guðrún. „Ætli meðalaldurinn sé ekki í kringum tólf ár þegar krakk- arnir fá það verkefni að verðmerkja vörur og hjálpa til þegar mikið er að gera. Sem stendur er yngsta dóttir hennar Una að störfum í búðinni en eldri börnin tvö, Ástríður og Þór, hafa einnig starfað við verslunina. Það er svo eiginmaður Guðrúnar, Þorsteinn Torfason, sem er matgæðingurinn á heimilinu en hann sér, að sögn Guð- rúnar, um nánast alla eldamennsku á heimilinu enda afar flinkur á því sviði. Opinber starfsmaður í Þýskalandi „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á mat og matargerð frá því ég var lítil enda alin upp á heimili þar sem mikið var spáð í mat. Ég hélt fyrsta matar- boðið mitt sextán ára gömul og bauð þá upp á indónesískan mat,“ segir Guðrún og brosir að minningunni. Hún hafi alltaf verið „eldhúsnörd“ og Kokka hafi verið langþráður draum- ur hennar. „Við bjuggum í Þýska- landi og ég var opinber starfsmaður þar þegar við tókum þetta stökk,“ segir hún og sér ekki eftir því. Kokka hefur verið mekka matgæðinga og græjunörda í hartnær tvo áratugi og verslunin löngu þekkt fyrir gæði, þekkingu og gott vöruúrval. „Við er- um með yfir 5.000 vörunúmer. Tól til eldunar, borðbúnað og hönnunarvöru í bland.“ Stækkun verslunarinnar er því af- ar gleðileg tíðindi fyrir viðskiptavini verslunarinnar og Guðrún hyggur á frekari landvinninga. „Þetta þýðir að ég hef meira pláss fyrir eldavélarnar okkar sem eru mjög vinsælar. Hingað til hefur ekki verið mikið pláss fyrir þær í búðinni en það stendur til bóta. Svo er húsnæðið svo skemmtilegt. Laugaveginum var breytt á dögunum þannig að keyrt er upp hluta göt- unnar. Ég keyrði þessa leið á dög- unum og þá blasti við mér hornið sem ég var að taka á leigu og þvílíkt horn.“ Guðrún er, eins og áður segir, búin að ganga frá samningum og fá hús- næðið afhent þannig að nú fara í hönd spennandi og krefjandi tímar áður en hin nýja Kokka mun líta dagsins ljós fyrir lok árs. Ljóst er að það er heldur betur líf á Laugaveginum og framtíðin björt hjá verslun í miðborg- inni. Kokka blómstrar í miðborginni Guðrún Jóhannesdóttir hefur ásamt fjölskyldu sinni rekið verslunina Kokku á Laugavegi í rúm átján ár. Kokka er sérverslun með eldhúsvörur, eða dótabúð fyrir matgæðinga eins og einhver komst að orði. Verslunin stendur á tímamótum þessa dagana, en Guðrún festi sér nýverið húsnæði sem mun gjörbylta versluninni sem sælkerar landsins hafa svo mikið dálæti á. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Sælkeraverslun Kokka hefur löngum verið í uppáhaldi hjá matgæðingum og áhugafólki um matargerð enda sneisafull af alls kyns varningi. Handan við hornið Kokka mun síðar á þessu ári stækka um helming þegar búðin sameinast húsnæðinu við hliðina sem áður hýsti Herrahúsið. Líf og fjör Guðrún Jóhannesdóttir í Kokku segir þetta spennandi tíma. Laugavegurinn iði af lífi og stemningin sé mikil.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.