Morgunblaðið - 22.08.2019, Síða 46
Dragdrottningin Heklína fór á svið í
Hljómskálagarðinum um helgina og
sló algjörlega í gegn í búningi sem
minnti á Tinu Turner. Hún kom
einnig fram í fyrra en sagði, í viðtali
við þau Ásgeir Pál og Kristínu Sif,
að áhorfendur í ár hefðu verið miklu
líflegri, líklega vegna þess að veðrið
í ár var mun betra en í fyrra. K100
var með beina útsendingu frá svið-
inu á Hinsegin hátíð í ár og tók
Heklínu tali. Hún rekur nætur-
klúbbinn Oasis í San Francisco og
hefur um langt árabil þjálfað aðrar
dragdrottningar í að koma fram.
Páll Óskar mætti einnig í viðtal
þar sem komið var inn á afmæli
Hinsegin daga sem urðu 20 ára í
ár. Hann hefur tekið þátt í öllum
gleðigöngum og hinsegin hátíðum
frá 1999 og líður ekki eins og þetta
hafi verið í 20. skiptið. „Það var ekki
fyrr en ég fór að sjá ljósmyndir og
lesa eigin dagbækur frá þessum
tíma sem ég sá hve mikið vatn er
runnið til sjávar. Það er lúxus að
vera barn sem fæddist árið 1999 og
Páll Óskar, Hatari,
Daði Freyr, Felix
Bergsson og
dragdrottn-
ingin Heklína
voru á meðal
þeirra sem
skemmtu á
Hinsegin
hátíð í
Hljóm-
skálagarði á
laugardag
og mættu í
beina útsend-
ingu á K100 en
stöðin sendi út
frá Gleðigöngunni
og Hinsegin
hátíðinni.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
Hlauparar leggja peppaðir af stað á
laugardag því K100 sér um alla tón-
list á stóra sviðinu í Reykjavíkur-
maraþoninu. Þar verður hellings
stuð þar sem dagskrárgerðarmenn
stöðvarinnar koma hlaupurum og
aðstandendum í gott skap og hress-
an gír fyrir hvert hlaup.
Peppið heldur áfram á hlaupa-
leiðinni því K100 sér um tónlistina á
hvatningarstöð Íslandsbanka við
hringtorgið á Granda, rétt áður en
hlauparar beygja í áttina að mið-
bænum. Enginn annar en Kiddi
Bigfoot verður á sviðinu og hvetur
hlaupara áfram með skemmtilegri
tónlist.
Á hvatningarstöð Íslandsbanka
og K100 verður einnig boðið upp á
GoGo-orkudrykkinn sem innheldur
engan sykur heldur einungis nátt-
úruleg sætuefni. Einnig verður
boðið upp á Sport Lunch-súkkulaði
fyrir þá sem vilja mæta á hvatning-
arstöðina til að hvetja hlaupara
áfram. Þeir sem mæta á svæðið
geta líka tekið þátt í leik hjá Adi-
das.is og fengið vegleg verðlaun.
Semsagt: gleði og stuð á hvatn-
ingarstöð Íslandsbanka og K100 á
laugardag á hringtorginu við
Granda, rétt áður en hlauparar
taka lokasprettinn inn í miðbæ.
Allir velkomnir.
K100 reimar á
sig hlaupaskóna
Hlauparar K100 mun sjá
um að koma hlaupurum í
Reykjavíkurmaraþoninu
af stað á laugardaginn
þekkir ekkert annað en að það sé
Gleðiganga á hverju ári.“
Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum var glatt á hjalla hjá K100 í
Hljómskálagarðinum. Öll viðtölin og
upptökur er hægt að finna á k100.is.
Gleði Gunn-
laugur Bragi
Björnsson,
formaður
Hinsegin
daga, er
þarna í dragi
á milli Stínu
og Sigga á
K100.
Gleði í Hljómskálagarðinum
Gordjöss Drag-
drottningin Heklína
frá San Francisco.
Gunni og Felix Felix Bergsson lét sig ekki
vanta í regnbogajakkafötum. Hann tók
þátt í göngunni ásamt Gunnari Helgasyni.
Ég er eins og ég er Aaron Ísak flutti lag
Hinsegin daga og kom auðvitað í spjall.
Í beinni Siggi Gunnars, sem var kynnir há-
tíðarinnar, í spjalli við Ásgeir Pál á K100.
K100-sviðið Stína
fyrir framan ferða-
stúdíó K100, eða
K100-sviðið.